Morgunblaðið - 17.11.2002, Síða 47

Morgunblaðið - 17.11.2002, Síða 47
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 47 Húsfélagaþjónustan ehf Sími 863 8855www.husfelag.is Er kominn tími á teppahreinsun? Væri ekki gaman að vera komin með nýhreinsað teppi og ferskt loft í stigaganginum fyrir hátíðarnar? Vissir þú að teppin endast betur ef þeim er haldið hreinum? Húsfélagaþjónustan ehf býður húsfélögum teppahreinsun fyrir jólin. Við notum bestu fáanlegar vélar og efni við hreinsunina. Stuttur þurrktími. Pantið tímanlega fyrir jólin Fyrirtæki til sölu:  Rekstrarleiga með kauprétti. Við höfum verið að þróa nýjan valkost fyrir seljendur og kaupendur sem virðist henta mörgum vel. Gerður er fimm ára samningur um leigu á rekstri með ákveðinni leiguupphæð á mánuði, með tilteknum tryggingum. Jafnframt er samið um að leigutaki geti hvenær sem er á leigutímanum keypt reksturinn á tilteknu verði og ef hann nýtir þann rétt, gengur helmingur þeirrar leigu sem greidd hefur verið upp í kaupverðið. Nánari upplýsingar um þennan valkost er að finna á www.husid.is.  Rótgróin snyrtistofa í verslunarkjarna. Verð 3 m. kr.  Bílaverkstæði í Hafnarfirði. Gott húsnæði og vel tækjum búið. Mjög mikið að gera. Hentugt fyrir 3—4 starfsmenn.  Veitingastaðurinn Tex-Mex á Langholtsvegi er fáanlegur á rekstrarleigu með kauprétti. Góður rekstur og pottþétt dæmi fyrir duglegt fólk.  Dagsöluturn við Laugaveg. Fallegur og snyrtilegur staður. Verð aðeins 3,8 m. kr.  Járn & lykkjur ehf. Vel tæknivætt framleiðslufyrirtæki sem þjónar bygg- ingariðnaðinum. Sameining eða sameign kemur vel til greina.  Rekstrarleiga með kauprétti. Þekkt myndbandasjoppa í Breiðholti með góða veltu. Gott tækifæri fyrir byrjendur sem eiga ekki mikla peninga.  Stór sérhæfð trésmiðja með góðan hagnað. 10 starfsmenn. Gott tæki- færi fyrir fyrirtæki í svipaðri starfsemi.  Pizzustaður í Hafnarfirði. Partur af stórri keðju. Hentugt fyrir tvo sam- henta sem vilja byrja í rekstri.  Framköllunarþjónusta í miðbænum. Góð tæki, frábær staðsetning.  Dagsöluturn í atvinnuhverfi með áherslu á léttar veitingar. Lítil en vax- andi velta og miklir möguleikar.  Rótgróin deild úr heildverslun með búsáhöld. Sala 10,2 m. kr. á ári, framlegð 5 m. kr.  Höfum ýmis góð sameiningartækifæri fyrir stærri fyrirtæki.  Rótgróið veitingahús við Bláa lónið. Góður og vaxandi rekstur í eigin húsnæði á þessum fjölsóttasta ferðamannastað landsins.  Lagerhótel - búslóðageymsla. Ársvelta 10 m. kr. Gott tækifæri fyrir sam- einingu við annan rekstur. Möguleiki á miklum akstri.  Verslunin Litla-Brú, Höfn í Hornafirði. Blóma- og gjafavöruverslun í eigin húsnæði á besta stað í bænum. Auðvelt að breyta í annan rekstur, t.d. kaffihús. Auðveld kaup.  Lítil málmsteypa. Hentar vel fyrir grafískan hönnuð á landsbyggðinni.  Hlíðakjör. Rótgróin matvörusjoppa með ágæta afkomu. Ársvelta 36 m. kr. Góð greiðslukjör fyrir trausta aðila.  Þekkt lítil heildverslun með jurtabaðvörur og gjafavörur. Tilvalið sem við- bót við annan rekstur.  Rekstrarleiga með kauprétti. Þekktur suðrænn veitingastaður til leigu. Fullbúinn og í fullum rekstri. 100 sæti. Gott tækifæri fyrir duglegt fólk.  Langar þig í eigin rekstur? Höfum til sölu nokkur lítil en góð fyrirtæki sem auðvelt er að byrja á. Jafnvel auðveldara en þú heldur.  Lítið fyrirtæki sem rekur 9 leikjakassa í sjoppum. Auðveldur rekstur í aukavinnu.  Fullbúin naglaverksmiðja með nýjum tækjum sem passar í lítið húsnæði eða jafnvel bílskúr. Hentar vel til flutnings út á land. Verð aðeins 3,5 m. kr.  Sérhæft fyrirtæki sem setur lakkvörn á bíla. Gott einkaumboð, tæki og lager. Hentugt fyrir tvo menn.  Lítill iðnrekstur til sölu. Mjög hentugur fyrir verndaðan vinnustað. 4—6 störf.  H-búðin, Garðatorgi. Rótgróin fataverslun með eigin innflutning. Skemmtilegt tækifæri fyrir tvær samhentar konur.  Höfum til sölu nokkrar stórar sérverslanir, heildverslanir og iðnfyrirtæki í ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr.  Lítil en þekkt smurbrauðsstofa og veisluþjónusta með góð tæki og mikla möguleika.  Stór austurlenskur veitingastaður í miðbænum. Mikil velta, góður hagnaður.  Þekkt íþróttavöruverslun. Ársvelta 25-30 m. kr. Auðveld kaup. Skoðið nýja heimasíðu fyrirtækjadeildar með ítarlegri söluskrá og gagnlegum fróðleik: www.husid.is Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen) Sími 533 4300, GSM 820 8658 Lára Margrét áfram í 5. sæti Kynntu flér stefnumálin á www.laramargret.is e›a hringdu í síma 551 3339 og 861 3298 Hef opnað fótaaðgerðastofu í Listhúsinu Laugardal • fótaaðgerðir • fót- og göngugreining • innlegg og skór Á sama stað er umboð og dreifing fyrir GREEN COMFORT gæðaskó og innlegg frá Danmörku. Pantanir í síma 553 3503 postur@friskarifaetur.is Fótaaðgerðastofa Guðrúnar Alfreðsd. Listhúsinu Laugardal Engjateigi 17-19, 108 Reykjavík Guðrún Alfreðsdóttir lögg. fótaaðg.fr. fr is ka ri fa et ur .i s ARNDÍS HARALDSDÓTTIR snyrtifræðingur Hef hafið störf á snyrtistofunni Gyðjunni. Býð alla viðskiptavini velkomna. Skipholti 50d - sími 553 5044 STJÖRNUSPÁ mbl.is ÞÝSKI organistinn Jörg E. Sonder- mann lýkur á þriðjudagskvöld röð 26 tónleika sinna þar sem hann hefur leikið öll orgel- verk J.S. Bachs. Eru tónleikarnir sem fyrr haldnir í Breiðholtskirkju og hefjast klukk- an 20.30. Aðgangseyrir hefur runnið til verkefna Hjálpar- starfs kirkjunnar. Á tónleikunum á þriðjudagskvöldið verður aðgangur ókeypis en sóknar- nefnd Breiðholtssóknar greiðir 900 krónur til Hjálparstarfs kirkjunnar fyrir hvern tónleikagest. Anna M.Þ. Ólafsdóttir, fræðslufulltrúi Hjálpar- starfsins, tjáði Morgunblaðinu að fyr- ir tekjurnar af tónleikunum hefði ver- ið unnt að grafa tvo vatnsbrunna í Mósambik í Afríku. Segir hún þá tryggja tveimur þúsund manna þorp- um hreint drykkjarvatn um ókomna framtíð. Anna segir Jörg E. Sonder- mann hafa komið að máli við fulltrúa Hjálparstarfsins með hugmynd að þessari tónleikaröð og að láta að- gangseyri renna til Hjálparstarfsins. Fyrir nokkru sameinuðustu ís- lenskir organistar um þetta verkefni en einn organisti hefur ekki áður flutt öll orgelverk Bachs á þennan hátt. Jörg E. Sondermann hefur flutt allar þekktar frumgerðir og tilbrigði fyrir orgel sem Bach samdi og verk sem ekki voru upphaflega samin fyrir oregl. Á tónleikunum á þriðjudags- kvöld er m.a. fantasía í C-dúr, sex kóralar, fúga í h-moll sónata nr. 1 í Es-dúr og toccata og fúga í d-moll. Jörg E. Sondermann er fæddur í Witten í Þýskalandi en hefur búið hérlendis frá árinu 1997 og er org- anisti í Hveragerðis- og Kotstrandar- sóknum. Hann hefur haldið tónleika víða um lönd, m.a. í Þýskalandi, Hol- landi, Sviss, Frakklandi, Póllandi og Finnlandi og víða hérlendis. Lýkur orgel- tónleikaröð á þriðju- dagskvöld Jörg E. Sondermann HEILSUSTOFNUN NLFÍ í Hveragerði býður fólki nú að grenna sig í hópi með því skilyrði, að meg- inmarkmið dvalarinnar sé að létta sig og að líkamsþyngdarstuðull (BMI) sé yfir 30. Í fyrstu meðferðinni er dvölin fjór- ar vikur. Hópnum er síðan boðið að koma aftur í aðhald með reglulegu millibili, viku í senn. Markmið með- ferðarinnar er ekki að léttast sem mest, heldur að læra hvernig hægt er að bæta lifnaðarhætti og þannig stuðla að því að léttast, styrkjast og líða almennt betur. Læknir, hjúkr- unarfræðingur, næringarfræðingur, sjúkraþjálfari, sálfræðingur og íþróttakennari sjá um meðferð og fræðslu. Vigtun fer fram í fyrstu læknis- skoðun og svo vikulega hjá hjúkr- unarfræðingi meðan á dvöl stendur. Næringarfræðingur er með fræðslu- fyrirlestra og býður einnig upp á einkaviðtöl. Innritun er hafin á næsta nám- skeið sem hefst 8. janúar nk. Gert er ráð fyrir tíu manns í hópi. Námskeið í bættum lifnaðarháttum Framkoma í fjölmiðlum Stjórn- endaskóli Háskólans í Reykjavík stendur fyrir námskeiðinu „Sviðsljós fjölmiðlanna“ þriðjudaginn 19. nóv- ember kl. 8:30–12:30. Boðið verður upp á léttan hádegisverð og umræð- ur að námskeiði loknu. Hámarks- fjöldi þátttakenda er 15 manns. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Gísli Marteinn Baldursson fjölmiðla- maður á RÚV og Hanna Katrín Frið- riksson, framkvæmdastjóri Stjórn- endaskóla Háskólans í Reykjavík, fyrrverandi blaðamaður á Morg- unblaðinu. Á námskeiðinu verður farið í hvernig best er að ná árangri í samskiptum við ólíka fjölmiðla. Ennfremur verð- ur fjallað um fjölmarga hagnýta þætti er varða viðtöl í ljósvakamiðl- um annars vegar og prentmiðlum hins vegar. Þá verða þátttakendur þjálfaðir í viðtölum fyrir framan sjón- varpstökuvél. Námskeiðið er ætlað almennum stjórnendum og sérfræð- ingum í atvinnulífinu sem vilja bæta framkomu sína í fjölmiðlum og ná skilvirkari og árangursríkari sam- skiptum við fjölmiðlafólk. Skráning á námskeiðið fer fram á heimasíðunni: www.stjornendaskoli.is. Á NÆSTUNNI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.