Morgunblaðið - 17.11.2002, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 49
DAGBÓK
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STUNDUM eru menn
þvingaðir í tveimur litum,
stundum þremur. En er
hægt að vera þvingaður í
tveimur og hálfum lit? Clyde
E. Love segir það, og er þá
að tala um haldþvingun:
Norður
♠ ÁD
♥ K853
♦ ÁKD93
♣KD
Vestur Austur
♠ 62 ♠ G943
♥ D76 ♥ G94
♦ 76 ♦ 108652
♣G108632 ♣4
Suður
♠ K10875
♥ Á102
♦ G
♣Á975
Suður spilar sjö grönd og
fær út laufgosa. Hann tekur
á tígulgosa, ÁD í spaða og
annan laufslag, en þá hendir
austur hjartafjarka. Sagn-
hafi er með tólf toppslagi og
þarf ekki nema einn í viðbót,
svo hann tekur næst tígulás
og hendir spaða heima. Svo
kemur tíguldrottning og í
þann slag hendir suður
hjartatíu, en vestur laufi.
Nú er ljóst að austur
valdar tígulinn. Sagnhafi fer
heim á hjartaás og spilar
laufás í þessari stöðu:
Norður
♠ --
♥ K85
♦ D9
♣--
Vestur Austur
♠ -- ♠ G9
♥ D76 ♥ G
♦ -- ♦ 108
♣108 ♣--
Suður
♠ K10
♥ 2
♦ --
♣Á9
Í laufásinn fer hjartafimm-
an úr blindum. Og það er ein-
mitt núna, sem austur er
þvingaður í „tveimur og hálf-
um lit“. Hann má augljóslega
hvorki henda tígli né spaða,
svo hjartagosinn verður að
fara – sem er það „hald“ í
litnum sem gerði makker
kleift að verja hann. En nú er
það hald farið. Sagnhafi tek-
ur spaðakónginn og hendir
tígulníu úr borði. Austur er
nú upptalinn og því er hægt
að svína hjartaáttunni af
100% öryggi.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert samvinnufús og
hjálpleg(ur). Þú kannt að
brúa bilið milli ólíkra menn-
ingarheima og þjóðfélags-
hópa. Þú berst af hörku fyrir
rétti hinna verst stöddu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Enn á ný kanntu að komast í
uppnám yfir breyttum
reglum varðandi sameigin-
legt eignarhald. Talaðu skýrt
út um það sem þú vilt og
spurðu hlutaðeigandi hvað
honum/henni finnst sann-
gjarnt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Sumum kann að þykja erfitt
að tala við foreldra sína í dag.
Hafðu hugfast að flest okkar
dæma foreldra sína óþarf-
lega hart.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Óvæntar breytingar á vinnu-
tilhögun koma þér úr jafn-
vægi. Mundu kínverska mál-
tækið: Fellibylur stendur
aðeins yfir í einn dag.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú munt þurfa að sýna börn-
um mikla þolinmæði og skiln-
ing í dag. Hugsaðu um hvað
barninu er fyrir bestu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Dagleg venja þín mun ekki
ganga sem skyldi í dag.
Nýttu þetta tækifæri til að
gera eitthvað nýtt og óvenju-
legt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú mátt búast við einhverj-
um óhöppum í dag, einkum
hvað samgöngur varðar.
Farðu þér hægt og leyfðu
náunganum að hafa forgang.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þig langar til að sleppa af þér
beislinu í dag með því að
kaupa eitthvað villt og
óvenjulegt. Þú hefur góðan
smekk svo láttu bara vaða.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er svo margt sem þú hef-
ur enga stjórn á. Þú skalt bú-
ast við hinu óvænta.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er laus einhver villt og
byltingarkennd orka í dag.
Þetta kveikir í frelsislöngun
þinni, svo þú skalt fara gæti-
lega.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú færð áskorun úr óvæntri
átt. Taktu þetta ekki per-
sónulega, margir hafa þörf
fyrir að sýna barnið innra
með sér í dag.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú býrð yfir sjálfstæði og
byltingarkennd. Reyni ein-
hver að ráðskast með þig í
dag muntu taka það óstinnt
upp.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú fært óvænt tækifæri
varðandi ferðalög, útgáfu,
menntun eða lögfræði í dag.
Ef þetta virðist gott, skaltu
grípa gæsina.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÉG BÝST við, að þeir séu
fleiri en ég, sem geta ekki
ævinlega sett samasem-
merki (=) milli ofan-
greindra sagnorða, þ.e.a.s.
skipt um þau í ræðu eða
riti án nokkurs blæ- eða
öllu heldur notkunarmun-
ar. Sannleikurinn er sá, að
annað þeirra er gjaldgengt
á einum stað, en hitt svo á
öðrum stað. Aftur á móti
hef ég veitt því athygli, að í
fjölmiðlum virðast þau á
stundum notuð sitt á hvað.
Skal hér tekið dæmi um
þetta. Í Fréttablaðinu 16.
f.m. stóð þetta í fyrirsögn:
„Fimm kindur dóu vegna
hita.“ Síðan er so. að deyja
endurtekið nokkrum sinn-
um í fréttinni. Loks er
klykkt út með þessum orð-
um: „Kindurnar sem hafi
dáið hafi því drepist á
kerrunni.“ Í lokin var þá
„rétt“ so. notað í þessu til-
viki, þ.e. so. að drepast. Ég
held það sé enn almennt
mál að tala um, að skepnur
drepist (úr hita eða öðru),
en menn aftur á móti deyi
(eða látist ) úr hita eða
sjúkdómum. Í öðru blaði
var sagt frá þessu sama at-
viki, og þar var so. að
drepast einvörðungu not-
að. Sá, sem þá frétt skrif-
aði, hefur því haft sömu til-
finningu og ég um notkun
þessara sagnorða. Ég
held, að hér sé á ferðinni
einhver „tepruskapur“, ef
nota má það orð, og mönn-
um finnist so. drepast
óviðfelldið orðalag. Svo er
einmitt ekki í ofangreind-
um samböndum. Annað
mál er, ef það er notað um
menn. Þá felst oft í því
niðrandi merking. Ef sagt
er sem svo: Loks drapst
karlanginn, þá er ljóst, að
hann var ekki öllum harm-
dauði. Þetta er sama af-
staða og felst nú á dögum í
lo. dauður og dáinn.
Skepnan er dauð, en ekki
dáin (og því að síður látin).
Af ofangreindum dæmum
sést, hversu fráleitt er að
líta á þessi so. hér sem
samheiti. Þau eiga heima
hvort á sínum stað, og þá
fellur allt í ljúfa löð. -
J.A.J.
ORÐABÓKIN
Deyja – drepast
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Bxc6 dxc6 5. O-O f6 6. d4
Bg4 7. dxe5 Dxd1 8. Hxd1
fxe5 9. Rbd2 O-O-O 10. He1
Bd6 11. h3 Bh5 12. Rh4 Rf6
13. Rf5 Bf8 14. g4 Bf7 15.
Rf3 He8 16. Bd2 h6 17. Bc3
Rd7 18. Had1 Hg8
Staðan kom upp í fyrri
hluta Íslandsmóts skák-
félaga sem fram fór í húsa-
kynnum B&L. Tom-
as Oral (2546) hafði
hvítt gegn Birni Þor-
steinssyni (2200). 19.
Hxd7! Kxd7 20.
Rxe5+ Ke6 21. Hd1
g6 22. f4 Bc5+
Svartur yrði mát eft-
ir 22... gxf5 23. exf5+
Kg6 24. Rg6#. Í
framhaldinu fær
hvítur yfirburðartafl
sem hann vann úr af
miklu öryggi. 23.
Kg2 Hd8 24. Hxd8
Hxd8 25. Rxf7 Kxf7
26. Rxh6+ Kf8 27.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
g5 Bd4 28. Bxd4 Hxd4 29.
Kf3 Hd2 30. f5 Hxc2 31. h4
Hxb2 32. Kg4 Kg7 33. e5
gxf5+ 34. Rxf5+ Kf7 35. h5
Hg2+ 36. Rg3 c5 37. g6+
Kg7 38. Kf3 Hg1 39. Rf5+
Kf8 40. e6 Hf1+ 41. Kg4
Hg1+ 42. Kf4 b5 43. e7+
Ke8 44. h6 og svartur gafst
upp.
Unglingameistaramót
Hellis hefst mánudaginn 18.
nóvember kl. 16:30. Allir 15
ára og yngri velkomnir.
Teflt verður í Hellisheim-
ilinu, Álfabakka 14a í Mjódd.
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 18. nóvember, er fimm-
tugur Ómar Másson, húsa-
smiður, Skriðustekk 29,
Reykjavík. Eiginkona Óm-
ars er Þóra Löve. Ómar
verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
LJÓÐABROT
UM HAUST
Syngur lóa suðr í mó
sætt um dáin blóm –
alltaf er söngurinn sami
með sætum fuglaróm.
Himinblíð eru hljóðin þín,
heiðarfuglinn minn!
Hlusta ég hljóður á þig,
og hverfa má ei inn.
Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Peysur og pils
Bankastræti 11 • sími 551 3930
Námskeið um meðvirkni, samskipti,
tjáskipti og tilfinningar verður haldið
föstudagskvöldið 29. nóvember og
laugardaginn 30. nóvember
í kórkjallara Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 553 8800.
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Meðvirkni
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafi
Hinn 1. desember næstkomandi
mun ég loka lækningastofu minni í Læknasetrinu,
Þönglabakka 6 og opna móttöku á Landspítalanum.
Læknum og sjúklingum er bent á
Göngudeild Landspítala, Hringbraut, tímapantanir
í síma 543 2201 eða 543 2202 milli kl. 8 og 16.
Þorvaldur Jónsson,
sérfræðingur í almennum skurðlækningum
Flutningur á læknastofu
Foreldrafræðsla
Fæðingarundirbúningsnámskeið fyrir verðandi foreldra.
Námskeið hefjast 28. nóv. og 3. des. nk.
Leiðbeinandi er Hrefna Einarsdóttir ljósmóðir,
Active birth leiðbeinandi og Aromatherapisti.
Táningafræðsla
Fæðingarundirbúningsnámskeið fyrir verðandi mæður
undir 18 ára aldri.
Námskeið hefst 29. nóv. nk.
Leiðbeinandi er Anna Eðvaldsdóttir ljósmóðir og nuddari.
Skráning fer fram í síma 533 5355
starfa á hárgreiðslustofunni
Caracter
Listhúsinu v/Engjateig
sími 553 0300
Karl Berndsen mun í desembermánuði
Laugavegi 46, sími 561 4465
Villtar & Vandlátar
NÝTT
NÝTT NÝTT
NÝTT„HAPPY HOUR!“
milli kl. 12 og 14
20% afsláttur af fatnaði
(frá mán.-fös.)