Morgunblaðið - 17.11.2002, Page 64

Morgunblaðið - 17.11.2002, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. SAMKOMULAG um sölu á stærst- um hlut ríkisins í Búnaðarbanka Ís- lands var undirritað í gær. Það voru Egla ehf., Eignarhaldsfélagið Sam- vinnutryggingar, Samvinnulífeyris- sjóðurinn og Vátryggingafélag Ís- lands sem undirrituðu samkomulagið annars vegar og hins vegar fram- kvæmdanefnd um einkavæðingu. Alls verður 45,8 prósenta hlutur í bankanum seldur fjárfestahópnum en söluverð er rúmlega 11,9 milljarð- ar króna. Gert er ráð fyrir að afhend- ing hlutabréfanna og greiðsla verði tvískipt en annars vegar verða 27,48 prósent hlutafjár afhent í kjölfar und- irritunar kaupsamnings og hins veg- ar 18,32 prósent eigi síðar en 20. des- ember á næsta ári. Eignarhlutur ríkisins í bankanum að sölu lokinni verður um 9 prósent. Meðalgengi viðskiptanna er 4,81 og er stefnt að undirritun kaupsamnings fyrir næstu áramót en samkomulagið er gert með fyrirvara um áreiðan- leikakönnun beggja aðila. Að Eglu ehf. standa Ker hf., Sam- vinnutryggingar ehf. og síðar fjöl- þjóðleg fjármálastofnun sem mun eiga verulegan hlut þess sem keypt verður. Gert er ráð fyrir að greint verði frá því hver hinn erlendi fjár- festir er innan skamms. Eftir auglýsingu einkavæðingar- nefndar hinn 10. júlí síðastliðinn sýndu fimm hópar fjárfesta áhuga á kaupum á hlutabréfum í Landsbanka og Búnaðarbanka. Tæpur mánuður er síðan gengið var frá samkomulagi um sölu á 45,8 prósenta hlut í Landsbankanum til Samsonar ehf. en söluverðið var 12,3 milljarðar króna. Samhliða þeirri undirritun var ákveðið að ganga til viðræðna við tvo hópa fjárfesta um sölu á stærstum hlut ríkisins í Bún- aðarbankanum og varð S-hópurinn svonefndi fyrir valinu. Nokkrar breytingar urðu á sam- setningu S-hópsins í viðræðuferlinu, sem fól aðallega í sér að VÍS gerðist aðili að hópnum, en Samskip, Fisk- iðjan Skagfirðingur o.fl. féllu út. S-hópur kaupir í Búnað- arbanka á 11,9 milljarða Morgunblaðið/Þorkell Ólafur Ólafsson, forstjóri Samskipa, og Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS, yfirgefa fundarstað eftir undirskriftina. 24 milljarðar fengust fyrir ríkisbankana LEIKMENN á alþjóðlega badmintonmótinu sem nú stendur yfir í TBR- húsinu sýndu snilldartaka í gær. Keppendur eru 58, þar af er 31 frá útlönd- um og 27 Íslendingar úr landsliðum og unglingalandsliðum. Í gær áttust meðal annars við í tvíliðaleik Helgi Jóhannesson og Sveinn Logi Sölvason sem hér sjást spila gegn Michael Lahnsteiner og Roman Zirnwald frá Aust- urríki. Íslensku strákarnir unnu leikinn. Morgunblaðið/Þorkell Snilld á badmintonmóti Samningar hafa náðst við norskt verktakafyrirtæki, Riise Underwat- er Engineering, um að lyfta skipinu af um 40 metra dýpi en hópur Íslend- inga mun síðan draga skipið til hafn- ar. Íslendingarnir fara utan síðar í þessum mánuði en stefnt er að því að skipið verði komið til hafnar fyrir jól. Norðmenn kafa „Norðmennirnir munu sjá um neðansjávarpartinn og mínir menn verða ofansjávar,“ segir Haukur. Hann segir að skipinu verði lyft upp með átta flottönkum, sem eru fjög- urra metra breiðir og 24 metra lang- ir. Tankarnir verði fylltir af sjó og þeim sökkt niður til skipsins, sjónum verði síðan dælt úr þeim og skipinu þannig lyft upp. Um 20 kafarar munu koma að þessari aðgerð á vegum norska fyr- irtækisins, en það vann m.a. við það síðasta sumar að dæla olíu úr El Grillo, sem liggur á botni Seyðis- fjarðar. Haukur segir að Stein-Inge Riise, eigandi fyrirtækisins, muni ganga frá tæknilegum atriðum og öðrum undirbúningi. Aðspurður seg- ir hann koma til greina að selja skip- ið að fyrsta áfanganum loknum, það eigi eftir að koma í ljós hvort Íshús Njarðvíkur gerir skipið upp og gerir það sjófært á ný. Um 300 tonn af olíu voru um borð og tæplega 900 tonn af frystri síld. 200 milljónir til að bjarga Guð- rúnu Gísladóttur UNDIRBÚNINGUR fyrir björgun fjölveiðiskipsins Guðrúnar Gísladóttur KE-15, sem sökk við strendur N-Noregs í sumar, er nú á lokastigi, að sögn Hauks Guðmundssonar hjá Íshúsi Njarðvíkur, sem keypti skipið af fyrri eigendum, útgerðarfélaginu Festi hf. DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segist ánægður með samkomu- lag um sölu á 45,8 prósenta hlut í Búnaðar- bankanum, sem undirritað var í gær. „Þetta hef- ur gengið vel og menn geta vel unað við það verð sem fæst fyrir þennan hlut ríkisins í bankanum. Ríkið á um 8–9 prósent eftir þessa sölu í bank- anum og þarna er söluverð nálægt 12 milljörðum króna þannig að það hefur verið gríðarleg sala á fáeinum vikum.“ Er Davíð þar að vísa í sölu Landsbankans sem samkomulag náðist um í síðasta mánuði. Samkvæmt samkomulaginu verð- ur afhending hlutabréfanna og greiðsla fyrir þau tvískipt. Valgerður Sverrisdóttir iðn- aðar- og við- skiptaráðherra tekur í sama streng og Davíð. „Það var stefnt að því strax í stjórn- arsáttmála að selja bankana á kjörtímabilinu og það virðist vera að takast, sem er mjög mikilvægur áfangi.“ Hún segist vera ánægð með söluverðið sem nemur um 11,9 millj- örðum króna. Að mati Valgerðar er líka ánægju- legt að erlent fjármálafyrirtæki komi inn í söluna, sem hún segir styrkja samkomulagið. Hún vill þó ekki gefa upp hverjir hinir erlendu fjárfestar eru. „Þetta voru stuttar en snarp- ar samningavið- ræður sem leiddu til þeirrar sam- eiginlegu niður- stöðu sem kynnt er núna,“ segir Kristinn Hall- grímsson, hæsta- réttarlögmaður og talsmaður kaupendahópsins. Hann segir að búast megi við áherslubreytingum í rekstri Búnað- arbankans með nýjum eigendum, þótt í grundvallaratriðum verði fylgt þeirri stefnu sem þegar hafi verið mörkuð. Ólafur Davíðs- son, formaður framkvæmda- nefndar um einkavæðingu, sagði að náðst hefði mjög viðun- andi niðurstaða í málinu. „Það er selt á verði yfir núverandi markaðsverði og yfir því markaðsverði sem hefur verið und- anfarnar vikur og mánuði. Ég held því að þetta hafi gengið mjög vel upp fyrir ríkið, að selja þennan stóra hlut í bankanum á mjög viðunandi verði.“ Ánægja með erlenda þátttöku

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.