Morgunblaðið - 23.11.2002, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 23.11.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ VEIK HÖRPUSKEL Nýjar mælingar Hafrannsókna- stofnunar sýna að stofn hörpudisks hefur minnkað um 40% undanfarna sex mánuði. Líklegt er að veiðar verði minnkaðar verulega á næsta ári eða stöðvaðar alveg. Það hefði al- varlegar afleiðingar í för með sér fyrir veiðar og vinnslu. Annríki hjá Halldóri Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra átti annríkt á leiðtogafundi NATO í vikunni. Hann átti fundi með 14 af 15 utanríkisráðherrum Evrópusambandsins. Aðeins sá spænski gekk honum úr greipum. Á fundunum ræddi Halldór m.a. um nýlegar kröfur ESB um framlag í þróunarsjóð sambandsins og frjálsar fjárfestingar í sjávarútvegi. Rússar ánægðir Igor Ívanov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði á blaðamannafundi í gær að sú breyting á hermála- stefnu NATO, sem ákveðin var á fundi leiðtoga bandalagsins í vik- unni, væri fagnaðarefni. Hún yki möguleika á enn nánara samstarfi bandalagsins og Rússlands. Landsvirkjun frestar opnun Landsvirkjun hefur ákveðið að fresta um viku opnun tilboða í gerð stíflu og aðrennslisganga Kára- hnjúkavirkjunar. Tilboðin á að opna 6. desember í stað 29. nóvember. Samningaviðræður við Alcoa vegna álversframkvæmda á Reyðarfirði fóru fram í New York í vikunni og er stefnt að áritun samninga um miðjan desember. Óöld í Nígeríu Hundruð manna liggja í valnum í Nígeríu eftir að óeirðir brutust út í landinu vegna deilna um keppnina Ungfrú heimur. Ákveðið hefur verið að flytja keppnina til London. L a u g a r d a g u r 23. n ó v e m b e r ˜ 2 0 0 2 2002  LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A ÍR-INGAR URÐU AÐ JÁTA SIG SIGRAÐA Á HEIMAVELLI / B2 ALÞÓÐAFRJÁLSÍÞRÓTTASAMBANDIÐ, IA- AF, hefur nokkrar áhyggjur af því hve fáir grískir frjálsíþróttamenn og -konur hafa farið í lyfjapróf á undanförnum misserum. Forseti IA- AF, Lamine Diack, hefur sent formlegt skeyti til grískra frjálsíþróttasambandsins þar sem hann hvetur samtökin til þess að taka til í sínum ranni áður en Ólympíuleikarnir í Aþenu fara fram árið 2004. Forráðamenn gríska frjáls- íþróttasambandsins segja hinsvegar að allt sé í stakasta lagi í þeirra herbúðum og skilja ekki áhyggjur IAAF, en segja þó að grískir íþrótta- menn séu ekki mikið lyfjaprófaðir utan keppni, en það standi til bóta. . Um nokkurra ára skeið hafa gengið óstaðfestar sögur af lyfjanotkun gríska frjálsíþróttamanna og stundum hefur það þótt einkennilegt hverju lítið þeir bestu keppa á mótum yfir hásumarið. IAAF hefur var- að Grikki við Guðni sagði í samtali við Morg-unblaðið að hugmyndin að gerð myndbandsins hefði vaknað hjá því fjölmiðlafyrirtæki sem sér um öll fjölmiðlamál hjá Bolton. ,,Þeir vildu endilega koma þessu verkefni í gegn. Ég var í fyrstu á báðum áttum um að gefa samþykki mitt fyrir gerð myndarinnar en að lokum ákvað ég að gefa vilyrði fyrir því. Ég held að það verði bara gaman að eiga þessar minningar og sjá til dæmis mörkin sín á einum stað í ell- inni þegar maður verður orðin ennþá eldri en í dag,“ sagði Guðni við Morg- unblaðið. Guðni segir að allur ágóði af sölu myndbandsins renni til góðgerðar- mála. ,,Það er verið að að byggja sjúkraheimili fyrir börn sem þau geta leitað í með fjölskyldum sínum eftir erfið veikindi og mig langaði að leggja þessum góða málstað lið. Myndbandið er 80 mínútna langt þar sem er stiklað á stóru á ferli Guðna hjá Bolton og Tottenham og þá eru myndbrot frá leikjum Guðna með ís- lenska landsliðinu og Val. „Óskarinn ekki í hættu“ ,,Eina markið sem ég skoraði með landsliðinu er sýnt hvað eftir annað. Mikið er gert út því en eins og frægt er skoraði ég það tvisvar þar sem ég fyldi skotinu eftir með því að skalla boltann inn fyrir línuna. Ég held að ágætlega hafi tekist til með gerð myndarinnar en ég held samt að ,,Óskarinn“ sé ekkert í hættu sem besta heimildarmyndin.“ Myndbandið kostar 13 pund eða um 1.800 krónur. Guðni Bergsson um myndbandið „Guðni Boltonsson“ Gaman að eiga það í ellinni GUÐNI Bergsson, fyrirliði Bolton, segist bara nokkuð sáttur við myndina „Guðni Boltonsson“ en myndbandið, sem fjallar um feril Guðna, var frumsýnd á Reebok-leikvanginum í Bolton í vikunni. ENN og aftur er Eiður Smári Guðjohnsen orðaður við Man- chester United. Enska blaðið The Sun segir frá því í gær að samn- ingaviðræðum Chelsea og Eiðs Smára hafi verið hætt og þar með opnist leið fyrir Sir Alex Fergu- son, stjóra United, til að kaupa ís- lenska sóknarmanninn. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er ekkert nýtt að frétta af þessu máli, í fyrsta lagi gáfu Chelsea og Eiður Smári út í haust að samningaviðræður yrðu látnar bíða fram á vorið og í annan stað var Ferguson tilkynnt í vikunni að hann fengi ekki peninga til að kaupa nýja sóknarmenn. Þrátt fyrir þessar staðreyndir er aldrei að vita hvað gerist en samkvæmt The Sun á Ferguson að vera reiðubúinn með tilboð í Eið Smára, sem hvorki hann né forráðamenn Chelsea geta hafn- að. Eiður Smári mun ekki hafa heyrt af þessu frá forráðamönn- um Chelsea. Tilboð Ferguson ku hljóða upp á 10 milljónir punda, um 1,4 milljarða króna. „Það kemur mér ekki á óvart að lið á borð við Manchester vilji fá Eið Smára í sínar raðir því Real Madrid, Juventus og fleiri stórlið vildu gjarnan hafa leikmann eins og hann. Sem betur fer er Eiður hjá Chelsea og við munum sitjast niður með honum innan tíðar og ræða við hann um nýjan samn- ing,“ sagði Ranieri. RÚNAR Alexandersson náði frá- bærum árangri á heimsmeistara- mótinu í fimleikum í Ungverja- landi í gærkvöldi. Rúnar tryggði sér sæti í úrslitunum í æfingum á tvíslá þegar hann hafnaði í 8. sæti í 16-manna úrslitunum en hann hlaut einkunnina 9,075 fyrir æfing- ar sínar. Rúnar og Bandaríkja- maðurinn Sean Townsend hlutu sömu einkunn en dómarar úr- skurðuðu að Rúnar skyldi hafna í áttunda sætinu en Bandaríkjamað- urinn sat eftir með sárt ennið. Rúnar er þar með fyrsti íslenski fimleikmaðurinn sem kemst í úr- slit á heimsmeistaramóti í fimleik- um, en keppt verður til úrslita í tvíslá á morgun. Rúnar varð hársbreidd frá því að komast einnig í úrslit fyrir æf- ingar sínar á bogahesti en hann hafnaði í 9.–10. sæti með ein- kunnina 9,550 en sá sem hafnaði í 8. sæti og tryggði sér sæti í úrslit- unum hlaut einkunnina 9,562. AP Kínverjinn Li Xiao-Peng náði bestum árangri keppenda á tví- slánni í gær og verður einn sjö andstæðinga Rúnars í úrslitum. Rúnar í úr- slit á HM Óbreytt staða hjá Eiði og Chelsea Yf ir l i t Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir blað Hjálparsveitar skáta í Reykjavík. Blaðinu er dreift um allt land. Í dag Sigmund 8 Minningar 46/53 Viðskipti 13/17 Umræðan 54/63 Erlent 18/24 Kirkjustarf 64/66 Höfuðborgin 26/27 Staksteinar 70 Akureyri 28/30 Skák 71 Suðurnes 31 Myndasögur 72 Árborg 32 Bréf 72/73 Landið 33 Dagbók 74/75 Neytendur 34 Leikhús 76 Listir 34/38 Fólk 78/81 Heilsa 40/41 Bíó 78/81 Forystugreinar 42 Ljósvakamiðlar 82 Viðhorf 46 Veður 83 * * * SAMNINGAVIÐRÆÐUR vegna álversfram- kvæmda á Austurlandi ganga eftir áætlun að sögn Finns Ingólfssonar, formanns álviðræðunefndar. Gert er ráð fyrir að samningarnir verði áritaðir um um miðjan desember, að sögn Þorsteins Hilm- arssonar, upplýsingarfulltrúa Landsvirkjunar. Opnun tilboða í gerð stíflu og aðrennslisganga Kárahnjúkavirkjunar hefur verið frestað til 6. des- ember. Samanburðarskýrsla á umhverfisáhrifum þess álvers sem Norsk Hydro hugðist reisa og fyr- irhugaðs álvers Alcoa hefur verið send til skipu- lagsstjóra. Stífar samningaviðræður á milli Alcoa og Ís- lendinga fóru fram í New York á miðvikudag og fimmtudag og gengu vel. „Áætlanir eru óbreyttar af okkar hálfu, þ.e. að hægt verði að leggja fram frumvarp á Alþingi fyrir jólin,“ segir Finnur Ing- ólfsson. Samanburðarskýrsla komin til skipulagsstjóra Í viljayfirlýsingu var gert ráð fyrir því að í lok nóvember myndu liggja fyrir fjárfestingarsamn- ingur og lóða- og hafnarsamningur, þannig að hægt væri að leggja fyrir Alþingi frumvarp til heimildarlaga sem væntanlega yrði síðan afgreitt upp úr áramótum. Finnur segir að samanburðarskýrsla á um- hverfisáhrifum að 420 þúsund tonna álveri, sem Norsk Hydro hugðist reisa í Reyðarfirði og svo því 320 þúsund tonna álveri sem Alcoa hefur í hyggju að byggja, hafi verið send til skipulagsstjóra í gær. „Þegar lá orðið fyrir að Alcoa hafði eignast Reyð- arál tók málið mikinn kipp. Nú hefur skipulags- stjóri fjórar vikur til þess að úrskurða í málinu,“ segir Finnur. Aðspurður segir Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins, að þótt álver Alcoa sé minna en það sem Norsk Hydro hugðist reisa og þar eigi ekki að vera rafskautaverksmiðja þurfi engu að síður að skoða nokkur atriði sérstaklega. „Þar á ég t.d. við hvernig er tekið á brenni- steinsdíoxíði. Fyrirtækin nota mismunandi tækni og beita mismunandi mótvægisaðgerðum og í fljótu bragði geri ég ráð fyrir að um það muni mál- ið snúast.“ Spurður hvort Skipulagsstofnun muni úrskurða á skemmri tíma en fjórum vikum segir Stefán erf- itt um það að segja þar sem stofnunin sé mjög háð umsögnum annarra aðila. „Ef það koma tiltölulega einfaldar og skýrar athugasemdir mun þetta ganga vel. En ef kemur fram ágreiningur og þarf að skoða tiltekin atriði betur treysti ég mér ekki til þess að lofa neinu.“ Frestar opnun tilboða Landsvirkjum hefur ákveðið að fresta um viku opnun tilboða í gerð stíflu og aðrennslisganga Kárahnjúkavirkjunar. Til stóð að opna tilboðin 29. nóvember en nú hefur verið ákveðið að þau verði opnuð 6. desember. Þorsteinn Hilmarsson hjá Landsvirkjun segir að þetta hafi verið gert að ósk bjóðenda ítalska byggingafyrirtækisins Impreglio, sem hyggst bjóða í bæði verkin, sem hafi óskað eftir fresti. Landsvirkjun hafi ákveðið að verða við því og öll- um fyrirtækjunum hafi verið gerð grein fyrir þessu og þetta sé gert í góðri samvinnu við þau. „Við sjáum ekki fram á að þetta raski framgangi samningamála við Alcoa og þeir vita af þessari frestun. Eins geri ég ráð fyrir að fresturinn komi öðrum bjóðendum vel. Svona útboðsgögn eru flók- in, það þarf að huga að mörgum þáttum og fyr- irtækin þurfa að ræða við undirverktaka enda er þetta milljarða útboð,“ segir hann. Opnun tilboða frestað og stefnt að áritun um miðjan desember FYRIRHUGAÐ álver Alcoa í Reyð- arfirði verður örlítið austar en það sem Norsk Hydro hugðist reisa auk þess sem það er nokkru minna í sniðum. Þetta er fyrsta töluvugerða myndin af 322.000 tonna fyrirhug- uðu álveri Alcoa í Reyðarfirði. Í til- lögum Alcoa er gert ráð fyrir að ál- verið krefjist liðlega fimmtungi minna rafmagns, þriðjungi minna eldsneytis (33 prósent minna) og hátt í 60% minna vatns en það 420 þúsund tonna álver sem Reyðarál hugðist reisa á sínum tíma. Reiknað er með að 455 manns starfi í álveri Alcoa auk nær 300 manna í tengd- um greinum. Töluvugerð mynd af fyrirhuguðu álveri Alcoa. Það er nokkru minna og aðeins austar en fyrirhugað var að reisa álver Reyðaráls. Tölvugerð mynd af álveri Reyðaráls. Fyrirhugað álver Alcoa ÞEIR lífeyrisþegar sem fá hækkun á almannatryggingum í kjölfar sam- komulags ríkisins og Landssam- bands eldri borgara, sem undirritað var á þriðjudag, eru fyrst og fremst þeir sem eru með algjörlega óskerta tekjutryggingu og tekjutryggingar- auka. Benedikt Davíðsson, formaður Landssambands eldri borgara, segir að örfáir úr þessum hópi, kannski 3– 500 af þeim 24 þúsundum einstak- linga sem fái greiðslur frá Trygg- ingastofnun, geti fengið hækkun sem nemi hæstu tölunum sem nefndar hafi verið í fjölmiðlum. Tekjutryggingarauki byrji að skerðast við fyrstu krónu sem fólk þéni eða fái í tekjur frá lífeyrissjóði. Skerðingarhlutfall tekjutryggingar- aukans lækki úr 67% í 45%, þannig að fleiri muni fá tekjutryggingar- auka, eftir að breytingarnar taki gildi um næstu áramót. Það hafi því verið ofsagt í fyrir- sögn í Morgunblaðinu að hjá hverj- um og einum sem njóti tekjutrygg- ingarauka hækki tekjur um 8–14 þúsund. Benedikt segir þó nokkra, sem hafi misskilið hvað samkomu- lagið hafi í för með sér, hafa haft samband við skrifstofu Landssam- bands eldri borgara, að undanförnu. Þeir sem hafi eingöngu grunnlífeyri, hvorki tekjutryggingu né tekju- trygginarauka, fái enga viðbótar- hækkun um áramótin fyrir utan þá 3,2% hækkun sem fjárlagafrumvarp fyrir árið 2003 geri ráð fyrir. „Þessar breytingar um nokkrar krónur, jafnvel einhver þúsund á tryggingagreiðslum, eru verulegur áfangi fyrir sumt fólk. Áfanginn er þó allt of lítill því fjöldi manns og nánast allir sem eingöngu búa við tryggingagreiðslur eiga ekki fyrir eðlilegum framfærslukostnaði. Auð- vitað hefðu þetta þurft að vera veru- lega hærri upphæðir til að hækka það bil. En þetta er áfangi samt,“ segir Benedikt. Hann segir breytingar á skipulagi öldrunarþjónustu mikilvægari, verið sé að skapa aðstöðu fyrir þá sem eru að bíða eftir því að komast á hjúkr- unarheimili og settir séu fjármunir í að tryggja áframhaldandi uppbygg- ingu hjúkrunarheimila fyrir aldraða. Mesta hækk- unin kemur fáum til góða Lífeyrisþegar með óskerta tekju- tryggingu og tekjutryggingarauka hagnast mest á samkomulaginu Morgunblaðið/Sverrir Frá samráðsfundi í Ráðherrabú- staðnum um málefni aldraðra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.