Morgunblaðið - 23.11.2002, Síða 6

Morgunblaðið - 23.11.2002, Síða 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ „ÞETTA er hræðilegt og ekki hægt að bjóða okkur upp á þetta,“ segir kona á besta aldri sem var í keramikmálun í handavinnustofunni á Dalbraut 18–20 er blaðamaður leit þar inn í gær. Ekkert skipulagt félagsstarf verður á Dalbraut frá og með maí á næsta ári samkvæmt ákvörð- un borgarinnar. Mætingin var glimrandi góð, hvert sæti upptekið og í ljós kemur að svo vinsæl er málunin að færri komast að en vilja og skipta þarf hópnum í tvennt svo allir geti verið með. „Þetta er vel sótt starf af báðum kynj- um,“ segir Selma Jóhannsdóttir, for- stöðumaður félagsmiðstöðvarinnar og blæs á þau rök sem m.a. komu fram í viðtali við Björk Vilhelmsdóttur, formann félagsmála- ráðs, í Morgunblaðinu sl. fimmtudag, að fé- lagsstarfið sé ekki nægilega vel sótt af íbú- um félagsmiðstöðvanna. Umhverfis hana taka handavinnukon- urnar undir, en sumar þeirra koma frá öðrum félagsmiðstöðvum eða þekkja til þeirra og segja starfið alls staðar vel sótt. Hvert sæti er líka skipað í litlu handa- vinnustofunni á Dalbraut og konurnar segja það daglegt brauð. Þar verða dag eftir dag til fagrir gripir, en konurnar leggja þó áherslu á að samveran og vin- áttan sem þar verður til sé mun dýrmæt- ari. „Hér erum við með litla og heimilislega aðstöðu sem fólkið sækir sérstaklega í, líka þeir sem eru úr öðrum hverfum,“ segir Selma og til blaðamanns kemur kona sem segist heimsækja handavinnustofuna viku- lega ásamt „sunddrottningunum“, gömlum bekkjarsystrum úr Verslunarskólanum. Félagsstarfið er alla virka daga frá kl. 9–5. Gestir handavinnustofunnar taka sér ýmislegt fyrir hendur undir leiðsögn Lauf- eyjar Jónsdóttur. Þá er einnig leikfimi og dans hluti af starfinu sem mun að sögn Selmu einnig bráðlega heyra sögunni til. „Það sem verður áfram er matarafgreiðsl- an og sjúkrabaðið.“ „Ætli það verði ekki bara svefninn sem tekur við þegar starfinu verður hætt,“ seg- ir ein konan og undir orð hennar taka aðr- ar sem hafa litið upp úr máluninni til að spjalla við blaðamann. „Þetta heldur okkur við, að leggja stund á okkar áhugamál og geta unnið í þeim að krafti,“ heldur hún áfram. „Oft tekur langan tíma að fá fólkið til að byrja að mæta en þegar það loks fer að koma þá er þetta svo gefandi,“ segir Selma. „Þegar fólk er loks búið að rjúfa einangrun sína þá á að loka hérna.“ Þegar blaðamaður spyr viðstadda, sem þennan morguninn eru eingöngu konur, hvort þeir eigi ekki eftir að sækja fé- lagsstarfið í aðrar þjónustumiðstöðvar þeg- ar því verður hætt Dalbraut, er svarið ein- róma „nei“. Selma segir að Dalbraut sé 15 ára hús og margir íbúarnir séu orðnir háaldraðir. „Við sækjum fólk upp í íbúðir og styðjum það niður. Þetta fólk fer ekki á aðra staði.“ Keyptu íbúð vegna þjónustunnar „Ég keypti mér hérna íbúð út af þessu starfi,“ segir kona ein og er mikið niðri fyrir. „Ég veit að fleiri hafa gert það. Ég myndi aldrei fara upp í rútu og fara að sækja þetta starf annað.“ Konan segir að nú eigi fólkið af sjálf- dáðum að setjast niður saman með handa- vinnu og kannski gera sumir það fyrst í stað, en hvað svo? „Þetta snýst um að hafa eitthvað ákveðið í gangi hverju sinni, að haldið sé utan um starfið.“ Önnur kona kinkar kolli yfir postulíns- jólasveininum sem hún er að mála skott- húfu á og segir að auðvitað sé félagsskap- urinn það sem skipti öllu máli. „Við komum hingað til að spjalla saman, þó að stundum megum við varla vera að því, við verðum svo niðursokkin í handavinnuna,“ segir hún brosandi. „En það þarf eitthvað til þess að fá fólk á staðinn. Ég segi fyrir mitt leyti að ég myndi ekki koma ef það væri ekki.“ „Afskaplega illa að þessu staðið“ Íbúar og aðrir sem sækja félagsstarfið á Dalbraut 18–20 segjast hafa frétt það í fjöl- miðlum að leggja ætti niður starfið. „Þetta fólk virðist ekkert vita hvaða starf fer hér fram, það þekkir ekkert inn á þetta hjá okkur,“ segir ein er talið berst að því hvort breytingarnar hafi ekki verið kynntar starfsfólki og íbúum áður en þær voru að fullu ákveðnar. „Við höfðum ekki grun um hvað væri að fara að gerast.“ Selma segir að fundur hafi verið haldinn með starfsfólki þegar breytingarnar voru ákveðnar. „Okkur var hreinlega bannað að láta þetta fréttast því það átti að halda fund með hússtjórninni einhvern næstu daga. Það er ekki ennþá búið. Það er af- skaplega illa að þessu staðið.“ Selma segist finna að gamla fólkið sé mjög ósátt við þessar fyrirhuguðu breytingar. „Ætli þeir vilji ekki bara senda okkur pillur í staðinn, þá er þetta bara búið,“ segir ein og undir orð hennar taka hinar konurnar og núna eru umræðurnar orðnar það heitar að flestar hafa lagt pensilinn frá sér. „Mér finnst þetta lítilsvirðing við fólkið hérna og starfsfólkið líka,“ segir Laufey leiðbeinandi, en samkvæmt frétt Morg- unblaðsins á fimmtudag verður starfsfólki fækkað vegna breytinganna. „Aldrei talað um að leggja neitt niður“ Selma segir að um hríð hafi verið uppi hugmyndir um að breyta og efla fé- lagsstarfið í félagsmiðstöðvunum til að mæta þörfum yngra fólks sem þar býr, t.d. með því að setja upp tölvur. „Ég er mjög hlynnt því að breyta félagsstarfinu, fá inn nýjar áherslur. En það var aldrei talað um að leggja neitt niður.“ Hússtjórn Dalbrautar hefur beðið um fund með Félagsþjónustunni en ekki hefur enn verið ákveðið hvenær hann verður. „Þegar félagsstarf aldraðra fór af stað hafði það að markmiði að rjúfa einangrun og finna störf fyrir alla við sitt hæfi,“ út- skýrir Selma. „En þetta virðist því miður hafa gleymst.“ Íbúar á Dalbraut 18–20 ósáttir við að leggja eigi niður skipulagt félagsstarf í félagsmiðstöðinni „Lítil og heimil- isleg aðstaða sem fólk sækir í“ Skipulagt félagsstarf í fimm af fjórtán félagsmiðstöðvum aldraðra í borginni verður lagt niður á næsta ári. Sunna Ósk Logadóttir heimsótti stappfulla handavinnustofuna á Dalbraut 18–20 og ræddi við gamla fólkið sem er afar ósátt við ákvörðunina sem það frétti af í sjónvarpinu. Morgunblaðið/Golli Yfir rauðum skotthúfum ræða konurnar um að yfirvofandi er að félagsstarfinu verði hætt. Morgunblaðið/Golli Handavinnukonurnar á Dalbraut 18–20 segjast ekki myndu sækja félagsstarfið annað. sunna@mbl.is ÁÆTLANIR um að leggja niður skipulagt fé- lagsstarf fyrir aldraða í fimm af fjórtán fé- lagsmiðstöðvum borgarinnar voru harðlega gagnrýndar á fundi borgarstjórnar á fimmtu- dagskvöld. Tillögu Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa F-listans, um að fallið verði frá fyrirhuguðum niðurskurði og lögð áhersla á öflugan stuðning við félagsstarf aldraðra og ör- yrkja til að koma í veg fyrir einangrun þessara hópa, var vísað til meðferðar starfshóps um starfs- og fjárhagsáætlun Félagsþjónustunnar. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sagðist telja að mistök hefðu átt sér stað við afgreiðslu málsins í félagsmála- ráði. Tillaga um að leggja niður allt skipulagt félagsstarf hafi aldrei verið borin upp til sam- þykktar eða synjunar innan ráðsins, heldur væru áformin inni í starfs- og fjárhagsáætlun Félagsþjónustunnar. Fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins hafi setið hjá við þá afgreiðslu, þó þeir hafi tekið þátt í umræðu um áætlunina meðan hún var í vinnslu, birtist þar stefna R- listans en ekki Sjálfstæðisflokksins. Hefði átt að sjá viðvörunarljósin „Ég skal fúslega viðurkenna það að ég hefði átt að sjá viðvörunarljósin og gera mitt til að koma í veg fyrir að R-listin samþykkti þennan gjörning. Ég skal taka betur það hlutverk mitt að veita embættismönnum sem og meirihlut- anum meira aðhald. Það er hins vegar ekki of seint og þess vegna leggjum við það til núna að fyrirhugaðar aðgerðir verði endurskoðaðar. Hvet ég R-listann eindregið til að sjá að sér í málinu,“ sagði Guðrún Ebba. Sérstaklega væri ámælisvert að ekki hefði verið haft samband við forstöðumenn þeirra fé- lagsmiðstöðva sem um ræddi, sem þó væri full- yrt í bókun borgarstjóra. „Við lögðum til að með hagræðingu og sparnaði mætti halda uppi svipaðri starfsemi og nú, en með færri stöðu- gildum. Þetta lögðum við fram eftir samtal okkar við forstöðumenn viðkomandi mið- stöðva. […] Öllum, jafnvel háttvirtum borgar- fulltrúum, geta orðið á mistök, þeir eru menn að meiri að viðurkenna það og fylgja eigin sannfæringu,“ sagði hún. Fáir notendur í sumum félagsmiðstöðvum Björk Vilhelmsdóttir, formaður félagsmála- ráðs, sagði athyglisvert að sjálfstæðismenn í borgarstjórn hefðu valið að taka nú upp um- ræðu um fyrirhugaðar breytingar. „Það er gott að slá sig til riddara í aðdraganda prófkjörs, sérstaklega þegar maður getur sýnt gæsku sína án þess að það kosti mann neitt,“ sagði Björk. Í ársskýrslu Félagsþjónustunnar væri tekið fram hver sé fjöldi þátttakenda á ársgrund- velli. 19 einstaklingar hafi sótt félagsstarf á Dalbraut 18–20. „Þetta er ótrúlega lág tala því hér er bæði um að ræða íbúa og einnig þá sem koma utan úr bæ,“ sagði Björk. Á Sléttuvegi 11 hafi 24 einstaklingar sótt opnar vinnustofur, eins og handavinnu og smíðar á síðasta ári. Í starfsáætlun Félagsþjónustunnar fyrir næsta ár sé gert ráð fyrir að í þjónustukjörnum borgarinnar verði persónuleg þjónusta efld á kvöldin, næturnar og um helgar. Þó skipulagt félagsstarf verði lagt niður verði áfram leik- fimi, samkomur og skemmtanir á borð við þorrablót og jólastundir. Þá verði áfram helgi- hald þar sem þjónar kirkjunnar sinni íbúum og áfram verði rækt allt það starf sem rekið sé af hálfu sjálfboðaliða. Hægt verði að efla starf sjálfboðaliða enn frekar eftir breytingarnar, þurft hafi að neita þjónustu margra sem hafi boðið fram krafta sína, þar sem ekki hafi verið svigrúm til þess. Þeim sem ekki geti sótt fé- lagsstarf utan heimilisins verði boðið upp á ein- staklingsbundna þjónustu, í formi aukinnar lið- veislu og heimaþjónustu. Persónuleg þjónusta ekki rýrð „Hér eftir sem hingað til verður boðið upp á öflugt félagsstarf í öllum hverfum borgarinnar og það verður ekki rýrð sú persónulega þjón- usta sem íbúar þessara íbúakjarna þurfa á að halda. Þvert á móti eru uppi róttækar áætlanir um það að efla alla persónulega þjónustu við eldra fólk í borginni, ekki bara frá 8–17 heldur 24 tíma á sólarhring. […] Ég geri mér grein fyrir því að þetta er sársaukafullt fyrir ein- hverja sem telja sig ekki geta sótt annað, en það er eftir að koma í ljós hvað verður í boði og þegar það verður ljóst held ég að allir verði mjög sáttir,“ sagði Björk. Borgarstjóri sagði að 241 milljón yrði sett í félagsstarf aldraðra á næsta ári, þrátt fyrir þessa breytingu. Árið 2001 hafi 209 milljónir farið í málaflokkinn. Þetta sé ekki meiri nið- urskurður en svo, en samt sparist 15–20 millj- ónir króna árlega. Telja að mistök hafi átt sér stað við afgreiðslu málsins Tillögu um að fallið verði frá niðurskurði í félagsþjónustu við aldraða vísað áfram
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.