Morgunblaðið - 23.11.2002, Page 14

Morgunblaðið - 23.11.2002, Page 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 14 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ VANSKIL hjá innlánsstofnunum hafa farið vaxandi á þessu ári. Þau jukust um rúmlega 24% á fyrstu níu mánuðum ársins, eða úr tæpum 25 milljörðum króna um áramót í tæpan 31 milljarð króna í lok september, samkvæmt tölum sem Fjármálaeftir- litið hefur sent frá sér um vanskil um- fram einn mánuð. Útlán jukust á sama tíma um 6% og hlutfall vanskila af útlánum fór úr 3,5% um áramót í 4,1% í lok september, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Um 3⁄4 hlutar útlána innlánsstofn- ana eru til fyrirtækja og hafa útlán til fyrirtækja vaxið hraðar en útlán til einstaklinga. Útlán til fyrirtækja hafa vaxið um 7,2% frá áramótum til loka september en útlán til einstaklinga um 1,1%. Þróun vanskila hefur verið svipuð hjá fyrirtækjum og einstak- lingum, en aukningin er þó heldur meiri hlutfallslega hjá fyrirtækjum. Þróunin misjöfn eftir atvinnugreinum Bjarni Ármannsson, forstjóri Ís- landsbanka, segir vanskil hjá bank- anum nánast hafa staðið í stað á þessu ári en ekki aukist líkt og meðal- talsþróunin sýni. Að undanförnu hafi vanskilin farið heldur minnkandi. Spurður um útlitið segir Bjarni þróunina mismunandi eftir atvinnu- greinum, en að hann sjái ekkert í stöðunni í dag sem bendi til aukinna vanskila. Hann bætir því við að tölu- verðu máli geti skipt hvort af stór- iðjuframkvæmdum verði og að þær myndu hafa jákvæð áhrif á þessa þró- un. Elín Sigfúsdóttir, aðstoðarfram- kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Búnað- arbankans, segir vanskil misjöfn á milli atvinnugreina. Það séu helst fyr- irtæki sem starfi eingöngu á innan- landsmarkaði sem eigi erfitt, en mörg fyrirtæki standi mjög vel. Einstak- lingar segir hún að séu mikið í skuld- breytingarferli; séu að breyta skammtímalánum í langtímalán og fái þannig hagstæðari kjör. Hún bendir á að lægri vextir og verðbólga hjálpi þeim sem skuldi auk þess sem geng- isþróun hafi að undanförnu verið já- kvæð fyrir mörg fyrirtæki. Elín segir að þó ástandið sé ekki gott nú, því vanskil séu of mikil, sé út- litið betra og hún segist ekki telja ástæðu til svartsýni um þróun van- skila. Toppnum vonandi náð Þór Þorláksson, framkvæmda- stjóri áhættustýringarsviðs Lands- bankans, segir að Landsbankinn kannist við þá þróun sem fram kemur í tölum Fjármálaeftirlitsins. Vanskil hafi aukist frá því á síðasta ári og auk- ist enn. Hraði aukningarinnar fari hins vegar minnkandi og Þór segist telja að mesta efnahagslægðin sé að baki og nú stefni frekar upp á við. Arnar Bjarnason, framkvæmda- stjóri fjármálasviðs Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, SPRON, segir að á heildina litið sé hlutfall van- skila af útlánum hjá SPRON þó nokkru undir meðaltali innlánsstofn- ana. Hann segir að SPRON hafi aukið varúðarafskriftir bæði í ár og í fyrra, en tölur um vanskil frá síðasta mánuði sýni minnkandi vanskil. Arnar segir að toppnum hafi vonandi verið náð og að nú megi sjá batamerki.                                                     !  "!#       $ 31 milljarður í vanskilum Bankarnir telja bjartara framundan HAGNAÐUR Pharmaco hf. á fyrstu níu mánuðum þessa árs nam 2.173 milljónum króna. Á sama tímabili í fyrra var hagnaður félags- ins 1.173 milljónir. Aukningin er því 1.000 milljónir króna. Róbert Wessman, forstjóri rekstrar Pharmaco, segist vera ánægður með afkomu félagsins. Hún sé að mestu í samræmi við áætlanir. Afkoma félagsins fyrir vexti, af- skriftir og skatta, EBITDA, er 2.707 milljónir króna en var 2.298 milljónir á sama tíma í fyrra. Rekstrartekjur námu 11.741 milljón króna en voru 10.906 milljónir á síð- asta ári. Tekjur félagsins aukast því um 1.031 milljón króna milli ára. Rekstrargjöld tímabilsins námu 9.865 milljónum króna í ár en 8.920 milljónum í fyrra. Arðsemi eiginfjár er 25,9%. Heildareignir Pharmaco eru 39.082 milljónir króna í lok sept- ember 2002, heildarskuldir 19.102 milljónir og eigið fé 19.980 milljónir. Eiginfjárhlutfall er 51%. Veltufé frá rekstri er 2.321 milljón og hand- bært fé frá rekstri 2.525 milljónir. Pharmaco eignaðist meirihluta í Delta hf. í júlímánuði og í framhald- inu voru félögin sameinuð undir nafni Pharmaco. Rekstur Delta er innifalinn í rekstri samstæðunnar frá 1. júlí síðastliðnum. Samkvæmt tilkynningu frá Pharmaco gengur vinna við að samræma starfsemi Pharmaco og Delta vel. Sala í Búlgaríu og Rússlandi undir væntingum Sala Balkanpharma í Búlgaríu er um 3% undir áætlun á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Segir í til- kynningu Pharmaco að sala á mörk- uðum í Búlgaríu og Rússlandi sé undir væntingum og hafi markað- irnir ekki enn tekið við sér eftir upptöku virðisaukaskatts og breyt- ingar á greiðslufyrirkomulagi al- mannatrygginga. Sala í Eystra- saltslöndum hafi aftur á móti gengið vel og sé í samræmi við áætlun. Sala Delta á 3. ársfjórðungi er 2,7% undir áætlun og munar þar mestu að sala á lyfjahugviti fellur til síðar en áætlað var. Í tilkynning- unni segir að afkoma sé þó í sam- ræmi við áætlanir. Söluhæstu lyf samstæðunnar, miðað við níu mánaða sölu eru, Citalophram, en sala þess nam 1.649 milljónum króna, og Cipro- floxacin, 1.107 milljónum. Á fyrri hluta þessa árs var Pharmaco skipt upp og innanlands- hluti félagsins seldur. Segir í til- kynningu Pharmaco að söluhagn- aður vegna þeirra viðskipta hafi verið 355 milljónir króna. Framleiðslugeta 13 milljarðar taflna Eignarhluti Pharmaco í bjórverk- smiðjunni Bravo var einnig seldur og var söluhagnaðurinn 254 millj- ónum króna. Í septembermánuði var lokið byggingu nýrrar verksmiðju Balk- anpharma í Dupnitsa í Búlgaríu. Fram kemur í tilkynningunni að kostnaður við verkið hafi numið 935 milljónum króna í septemberlok, en áætlaður heildarkostnaður sé um 1.500 milljónir. Fram kemur í tilkynningu Pharmaco að framleiðslugeta fé- lagsins sé nú um 13 milljarðar taflna. Á næsta ári hefjist fram- leiðsla í nýrri og fullkominni verk- smiðju félagsins í Dupnitza. Einnig hafi verið gerðar miklar endurbæt- ur á verksmiðju félagsins á Möltu til þess að hún standist ströngustu gæðakröfur Evrópusambandsins. Þriggja milljarða hagnaður á árinu Í tilkynningunni segir að stjórn- endur Pharmaco geri ekki ráð fyrir verulegum frávikum frá áætlunum ársins um hagnað þrátt fyrir minni sölu á markaðssvæðum í Búlgaríu og Rússlandi. Samkvæmt þeim sé áætlaður hagnaður 3 milljarðar króna. Þar vegi þyngst að útflutn- ingur á lyfjum frá Delta sé nokkru meiri en gert var ráð fyrir. Pharmaco hagnast um 2,2 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins Hagnaður eykst um millj- arð milli ára Morgunblaðið/Golli Sindri Sindrason og Róbert Wessman, forstjórar Pharmaco, gerðu á kynn- ingarfundi í gær annars vegar grein fyrir kaupum félagsins á verksmiðju í Serbíu, og hins vegar afkomu félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins. HLUTFALL þeirra sem eru án vinnu og í at- vinnuleit hefur ekkert breyst frá því í apríl, en það er 3,2% vinnuaflsins í landinu. Þetta jafngildir því að um 5.200 einstaklingar hafi verið atvinnulausir í nóvember 2002 en um 5.300 voru atvinnulausir í apríl. Þetta kemur fram í vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar sem birt var í gær. Sé miðað við sams konar rannsókn frá því í nóvember 2001 sést að at- vinnulausir eru fleiri nú en í fyrra. Þá mæld- ist atvinnuleysi 2,4% eða um 3.900 manns. Færri ungir karlar án atvinnu Atvinnuleysi er meira hjá körlum en kon- um skv. rannsókninni. Í nóvember 2002 var atvinnuleysi 2,7% hjá konum en 3,6% hjá körlum. Mest er atvinnuleysi meðal yngstu aldurshópanna, eins og komið hefur fram í fyrri rannsóknum Hagstofunnar, eða 7,1% meðal 16–24 ára. Atvinnuleysi karla í þessum aldurshópi hefur þó minnkað síðan í apríl á meðan atvinnuleysi kvenna hefur aukist. Meðal karla í hópnum mælist atvinnuleysi 8,8% í nóvember 2002 en 10,2% í apríl síðast- liðnum. Á sama tíma reyndist atvinnuleysi meðal ungra kvenna vera 5,2% en var 3,4% í apríl 2002. Fram kemur í rannsókninni að skekkjumörk á niðurstöðum um atvinnuleysi eru ± 0,8%. Starfandi fólki fækkar um 3.100 Í nóvember var fjöldi starfandi 156.800 samanborið við 159.900 í nóvember ári áður og 157.100 í apríl síðastliðnum. Starfandi fólki fækkar því um 3.100 á milli ára. Atvinnuþátt- taka mældist 82,8% í nóvember 2002 en 83,6% á sama tíma ári áður og í apríl 2002 mældist hún 82,9%. Meðalfjöldi vinnustunda reyndist vera 43 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmið- unarviku samanborið við 42,8 klst. í nóv- ember 2001 og 42,9 klst. í apríl 2002. Með- alfjöldi vinnustunda í aðal- og aukastarfi mældist 48,9 klst. hjá körlum en hjá 36,2 klst. hjá konum. Hagstofan skilgreinir þá atvinnulausa sem eru án vinnu og tilbúnir að taka vinnu strax ef hún býðst. Í rannsókninni voru þátttak- endur yngri en 70 ára spurðir hvort þeir væru skráðir atvinnulausir hjá opinberri vinnumiðlun og samkvæmt því voru 4.000 á atvinnuleysisskrá í nóvember. Af þeim voru 2.500 atvinnulausir samkvæmt skilgreiningu Hagstofunnar en um 1.000 gegndu einhverju starfi í viðmiðunarvikunni og 500 voru ekki tilbúnir að ráða sig í vinnu strax, en það jafn- gildir því að vera utan vinnumarkaðar. Rannsóknin fór fram dagana 9.–20. nóv- ember 2002 og tók til stöðu á vinnumarkaði 2.–15. nóvember. Aldursmörk þátttakenda og spurningar í rannsókninni miðast við sam- bærilegar kannanir sem gerðar eru innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Svara var aflað með símtölum. Heildarúrtakið var 4.395 manns á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir, sem voru látnir eða búsettir er- lendis, reyndist nettóúrtakið vera 4.267 ein- staklingar. Þátttaka var mjög góð. Alls feng- ust nothæf svör frá 3.629 einstaklingum sem jafngildir 85% endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Í tilkynningu frá Hagstofunni kemur fram að þessi rannsókn sé sú síðasta sem gerð verður á þennan hátt. Rannsóknin hefur ver- ið framkvæmd tvisvar á ári frá 1991 en frá og með janúar 2003 verður upplýsingum safnað allt árið um kring í samræmi við ákvæði samningsins um evrópska efnahagssvæðisins (EES). Þá mun Hagstofan breyta ýmsu í skil- greiningum á hugtökum og spurningum til samræmis við breytingar sem hafa orðið inn- an EES. Af breytingunum leiðir að rannsókn- arniðurstöður frá og með 2003 verða ekki sambærilegar við fyrri niðurstöður. Á móti kemur að rannsóknin verður stækkuð, hægt verður að birta ársfjórðungslegar niðurstöð- ur, árstíðasveiflur valda ekki lengur kerf- isbundinni skekkju og tryggt verður að ís- lensku niðurstöðurnar verða fyllilega samanburðarhæfar við niðurstöður annarra Evrópuþjóða. Atvinnuleysi óbreytt frá því í apríl ÍSLENSKIR aðalverktakar högn- uðust um 250 milljónir króna eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við 20 milljóna króna tap á sama tíma í fyrra. Hagnaður fyr- irtækisins fyrir afskriftir og fjár- magnsliði, svokölluð EBITDA-fram- legð, lækkar þó sem hlutfall af tekjum, úr 11% í 7%. Á fyrstu níu mánuðum ársins nam hagnaður fyrir afskriftir og fjár- magnsliði 390 milljónum, en 744 milljónum í fyrra. Minnkunin er þó ekki hlutfallslega jafnmikil og þessar tölur gefa til kynna, þar sem rekstr- artekjur minnkuðu úr 6,5 milljörðum króna í 5,5 milljarða. Rekstrargjöld lækkuðu einnig, úr 5,8 milljörðum í 5,1 milljarð. Afskriftir voru svipaðar og á sama tíma í fyrra, eða 213 m.kr. samanbor- ið við 230 milljónir 2001. Nettó fjár- munatekjur voru hins vegar tæplega 690 milljónum meiri en í fyrra, eða jákvæðar um 55 m.kr. Á fyrstu níu mánuðum ársins 2001 voru þær nei- kvæðar um 632 milljónir. Veldur stjórnendum vonbrigðum Í frétt frá fyrirtækinu segir að rekstur þess á þriðja ársfjórðungi valdi stjórnendum vonbrigðum. Tekjuöflun hafi verið í samræmi við væntingar, en framlegð minnki veru- lega frá fyrri ársfjórðungi. Það skýr- ist af sérstökum kostnaðarauka í verkframkvæmdum umfram áður áætlaðan framkvæmdakostnað. ÍAV hagnast um kvart- milljarð Framlegð minnkar milli ára

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.