Morgunblaðið - 23.11.2002, Qupperneq 27
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 27
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri segir að leggja þurfi
rannsóknir um stöðu laxastofna til
grundvallar ákvörðun um legu
Sundabrautar. Laxinn lendi í hremm-
ingum við ósa Elliðaár og því verði
menn að fara varlega í framkvæmdir
á því svæði. Tveir þingmenn Reykja-
víkur, Ólafur Örn Haraldsson og
Guðmundur Hallvarðsson, vilji að
innri leiðin, svokölluð landmótunar-
leið, verði valin „með þeim fyllingum
sem því fylgja“, eins og borgarstjóri
sagði á fundi borgarstjórnar á
fimmtudag.
Áhrif á laxastofna sé eitt af því sem
hljóti að koma til sérstakrar skoðun-
ar varðandi innri leiðina. Í skýrslu
um vistfræði ánna segi að kanna þurfi
áhrif framkvæmda utan Elliðaárósa
og afla betri vitneskju um göngur,
bæði seiða og fullvaxta fisks. Svara
þurfi hversu alvarlega þrengi að
vatnasviði ánna og kortleggja meng-
andi og áhættusama starfsemi á
vatnasviðinu.
Lífríki Elliðaá var til umræðu á
fundi borgarstjórnar á fimmtudag,
en á þriðjudag samþykkti borgarráð
ályktun þar sem lögð var áhersla á að
Orkuveita Reykjavíkur tryggði að
vatnsrennsli ánna nægði til að lífríki
yrði viðhaldið, en komið hefur fyrir að
vestari kvísl árinnar þorni upp og
hafa þessar sveiflur valdið fiska-
dauða.
Óeðlilegt að orkufyrirtæki
fari með stjórn Elliðaáa
Guðlaugur Þór Þórðarson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks, sagði mjög
óeðlilegt að orkufyrirtæki stjórnaði
vatnasvæði árinnar. Sjálfstæðismenn
vildu að sérstök stjórn yrði skipuð um
árnar sem hefði umsjón með þeim og
semdi við hagsmunaaðila eins og OR
og Stangaveiðifélag Reykjavíkur.
Reykjavíkurborg væri ein af síðustu
borgum heims sem hefðu laxveiðiá
innan borgarmarkanna og mikilvægt
væri að uppbygging svæðisins lyti
einni stjórn. Engin rök væru fyrir því
að orkufyrirtæki hefði umsjón með
ánum, sérstaklega þegar það væri
með orkuvinnslu í ánni og ætti því
hagsmuna að gæta. Náttúran ætti að
hafa forgang yfir orkuvinnsluna.
Borgarstjóri sagði að það væri
samdóma álit borgarfulltrúa að lífríki
ánna ætti að njóta vafans umfram
orkuvinnsluna. Menn hefðu hins veg-
ar ekki verið tilbúnir til að kyngja því
að raforkuvirkjun í ánum væri upp-
spretta þeirra erfiðleika sem komið
hefðu fram í laxastofnunum. „Fyrir
því eru ósköp einföld rök. Það hefur
verið orkuvinnsla í ánni frá árinu
1921 og við sjáum að á því árabili hafa
göngur í ánum verið mjög mismun-
andi og virðist ekkert samhengi milli
orkuvinnslunnar í ánum og laxa-
gengdar.“ Það hefði verið sagt í borg-
arstjórn að um leið og menn gætu
bent á það með haldbærum rökum að
virkjunin væri orsakavaldurinn væru
menn tilbúnir að hætta þeirri vinnslu.
Byggð í Norðlingaholti
eykur álag á árnar
Ólafur F. Magnússon, borgar-
fulltrúi F-listans, sagði að ekki væri
nógu mikil nærgætni viðhöfð við það
viðkvæma lífríki sem Elliðaárnar
væru. Það væri ekki nóg að bregðast
við uppþornun hluta árinnar og fiska-
dauða með tillögu, sem væri þó í
sjálfu sér góð. Fyrirhugaðar bygg-
ingar í Norðlingaholti væru of stórar
og myndu valda enn meira raski á líf-
ríki ánna.
Skoraði hann á meirihlutann að
deiliskipulag svæðisins yrði tekið upp
og minnkað að umfangi svo dregið
yrði úr álagi á þessa náttúruperlu
borgarinnar.
Fara verður varlega í fram-
kvæmdir við ósa Elliðaáa
Elliðaárdalur Borgarstjóri segir landmótunarleið
með fyllingum umhugsunarverða
ZERO
PLUS
ww
w.
for
va
l.is