Morgunblaðið - 23.11.2002, Síða 28
AKUREYRI
28 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SS BYGGIR afhenti fyrstu fjórar
leiguíbúðirnar, sem fyrirtækið er
að byggja í Skálateig 1 á Akureyri, í
byrjun nóvember sl. en þá voru
tæplega 160 dagar frá því að fyrsta
skóflustunga að húsinu var tekin.
Alls voru byggðar 16 leiguíbúðir í
þessum fyrsta áfanga og voru tólf
leiguíbúðir til viðbótar afhentar um
miðjan þennan mánuð. Að sögn Sig-
urðar Sigurðssonar, framkvæma-
stjóra SS Byggis, er töluverður
áhugi fyrir leiguíbúðunum.
Fyrirtækið byggir alls 47 tveggja
herbergja leigubúðir í þremur
áföngum í Skálateig 1 og er fólk
þegar farið að panta íbúðir til leigu
í öðrum áfanga.
Sigurður sagði stefnt að því að 2.
áfangi yrði tilbúinn fyrir skólaárið
næsta haust. „Það virðist vera
skortur á leiguhúsnæði til lengri
tíma í bænum. Það þurfti alla vega
ekki að auglýsa þessar leiguíbúðir
til að koma þeim út.“
SS Byggir er einnig að byggja 44
söluíbúðir í Skálateig 3, 5 og 7,
tveggja, þriggja og fjögurra her-
bergja og sagði Sigurður að mjög
vel gengi að selja þær íbúðir.
Fyrstu söluíbúðirnar verða afhent-
ar í ágúst á næsta ári. Sigurður
sagði stefnt að því að gera allar
íbúðirnar fokheldar fljótlega upp úr
áramótunum, þannig að hægt yrði
að vinna innandyra seinni part vetr-
ar. Hann sagði þó ekki hægt að
kvarta yfir veðrinu þessa dagana.
„Það er glæsilegt að fá svona veður
en þessi tíð er nú samt bara sam-
kvæmt pöntun.“
Starfsmenn fyrirtækisins hafa
unnið á vöktum í Skálateig frá því í
sumar, frá kl. 6–14 og kl. 14–22
virka daga. Sigurður sagði frágeng-
ið að unnið yrði á vöktum þar til
uppsteypu húsanna væri lokið. Með
vaktavinnunni fengist mun betri
nýting bæði á mannskap og tækja-
búnaði. Fyrirtækið er einnig með
viðbyggingu við Amtsbókasafnið og
sagði Sigurður að verkefnastaðan
væri góð og útlitið bjart framund-
an.
Umfangsmiklar byggingarframkvæmdir í gangi við Skálateig
Flutt inn í
fyrstu leigu-
íbúðirnar
Morgunblaðið/Kristján
Starfsmenn SS Byggis við vinnu sína í Skálateig, þar sem fyrirtækið bygg-
ir hátt í 100 leigu- og söluíbúðir. Fyrstu 16 leiguíbúðirnar, í fjölbýlishúsinu
sem sést á myndinni, hafa allar verið leigðar út.
Vel hefur gengið
að selja íbúðir
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð
ræddi notkun og rekstur nýja
fjölnota íþróttahússins á fé-
lagsssvæði Þórs við Hamar á
síðasta fundi sínum. ÍTA sam-
þykkti að leggja til að rekstur
hússins falli undir íþrótta- og
tómstundadeild og verði í um-
sjón eins forstöðumanna deild-
arinnar. Deildarstjóra var hins
vegar falið að ganga til við-
ræðna við Íþróttafélagið Þór
um samnýtingu og samvinnu
vegna vöktunar í húsinu.
KSÍ óskar eftir
fjölmörgum tímum
Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er helst horft
til þess að fjölnota íþróttahúsið
heyri undir forstöðumann
íþróttamiðstöðvarinnar í Gler-
árskóla, sem er í næsta ná-
grenni hússins, en þar er bæði
íþróttahús og sundlaug. Fram-
kvæmdir við fjölnota íþrótta-
húsið eru nokkuð á undan áætl-
un og vonast knattspyrnumenn
til þess að geta farið að stunda
þar æfingar fyrir áramót. Í
húsinu verður aðstaða fyrir
frjáslar íþróttir en einnig er
gert ráð fyrir að kylfingar og
jafnvel skotmenn geti stundað
þar æfingar. Mikill áhugi er
fyrir tímum í húsinu og hefur
KSÍ t.d. óskað eftir fjölmörgum
tímum um helgar í vetur og
fram á vor fyrir leiki í deild-
arbikarkeppninni.
Fjölnota íþrótta-
húsið við Hamar
Íþrótta- og
tómstunda-
deild sjái
um rekstur
Enskunám í Englandi
Virtur málaskóli á suðurströndinni
18 ára og eldri
2-10 vikna námskeið.
13-17 ára
2-4 vikna námskeið
50 ára og eldri
2 vikna námskeið
Skólinn sér fyrir fæði og húsnæði.
Uppl. eftir kl. 17.00 í síma 862 6825.
Ómar Ragnarsson
Eitt sinn var Ómar að lýsa knatt-
spyrnuleik í sjónvarpi og varð þá fóta-
skortur á tungunni undir lok viðureignar-
innar. Hann sagði: "Leiktíminn er alveg
að renna út. Dómarinn er kominn með
klukkuna upp í sig."
Hörður Magnússon
Gamli markahrókurinn úr FH, Hörður
Magnússon, gegnir nú starf i íþrótta-
fréttamanns á Stöð 2 og Sýn og á hann
stundum athyglisverða málfarsspretti í
knattspyrnulýsingum. Hér koma nokkrir
þeirra:
"Þarna sjáum við Houllier. Hann er
glaður á bragðið."
"Veron með fræga sendingu."
"Það er mikil barátta um samkeppni í
liðinu." Sagt um Liverpool.
"Við gerum nú örstutt hlé og komum svo
með síðari hálfleikinn fyrir handan."
"Helmingur leikmanna félagsins eru
uppaldir leikmenn." Um FH-liðið í knatt-
spyrnu.
Mismæli í beinni
Heimir Már Pétursson:
"Heilbrigðisráðherra tók ákvörðunina að
höfðu samræði við lækna."
Edda Andrésdóttir:
"Og talandi um snáka, hingað er mættur
Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir, til
að ræða um hrossasóttina."
Kolfinna Baldvinsdóttir:
"Lögreglan lagðist til atlögu seinni
partinn í gær."
Auðun Georg Ólafsson:
"Kvennalistinn heldur áfram engum
þingmanni."
Steingrímur Ólafsson:
"Á köldum klaka hefur fengið mjög góða
dóna, afsakið ... dóma, í Noregi og
Svíþjóð."
Opnun Smáralindar
Það var við opnun verslunarmiðstöðvar-
innar Smáralindar á síðasta ári. Jóhanna
Vilhjálmsdóttir, annar af umsjónar-
mönnum þáttarins Ísland í bítið, var þarna
viðstödd og varla hafði fyrstu gestunum
verið hleypt inn í geimaldið þegar hún
stökk á einn þeirra, vopnuð hljóðnema
frá Stöð 2, og spurði - að sjálfsögðu í
beinni útsendingu: "Ertu að koma hingað
í fyrsta skipti?"
Hauslausir Kóreumenn
Jörundur Áki Sveinsson, knattspyrnu-
þjálfari, var einn af fjölmörgum fótbolta-
spekingum sem íþróttafréttamenn
Stöðvar 2 og Sýnar höfðu sér til halds
og trausts í lýsingum frá síðustu heims-
meistarakeppni í knattspyrnu. Hafði hann
vitaskuld margt til málanna að leggja,
eins og þetta, sem skaust út úr honum í
viðureign Suður-Kóreu og Póllands: "Þótt
Kóreumennirnir séu höfðinu styttri þá
eru þeir að vinna alla skallaboltana."
JK
Byrjandi í blaðamennsku, en nú þekkt
sjónvarpspersóna, fékk það verkefni á
Vísi að annast lesendabréf in. Dag
nokkurn barst bréf frá manni sem hafði
uppi skammir um Jónas Kristjánsson rit-
stjóra vegna leiðaraskrifa. Blaðamaðurinn
fór með bréfið inn til Jónasar og spurði
hvort hann vildi hnýta einhverju svari
aftan við bréfið. Jónas lofaði að athuga
málið og láta blaðamanninn vita. Svo
þegar Jónas komst í að lesa bréfið fannst
honum ekki ástæða til að svara því í
neinu, hripaði niður athugasemd þess
efnis á lappann og lagði á borð blaða-
mannsins. Þegar bréfið birtist í Vísi
daginn eftir stóð undir því: "Þetta er tómt
bull og ekki svaravert. JK"
Augnaðgerðin
Það var óhemju mikið að gera á Vísi í
tengslum við alþingiskosningarnar 1979.
Birtar voru myndir af öllum helstu fram-
bjóðendum flokkanna um allt land og
annaðist Jens úrvinnslu myndanna fyrir
blaðið. Þurfti hann vitaskuld að lagfæra
eitt og annað, svo að prentgæði þeirra
yrðu sem best, og dó þá aldrei ráðalaus.
Mitt í þessu kosningaamstri fékk Jens
Alexandersson, ljósmyndari blaðsins, í
hendur andlitsmynd af frambjóðanda úti
á landi, sem virtist alls ekki nægilega
vakandi yfir framboði sínu að mati ljós-
myndarans, enda var annað auga hans
lokað. Jens tók sig því til og "opnaði"
það, vitaskuld með tækni þessa tíma.
Skemmst er frá því að segja, að "upp-
skurðurinn" tókst vel, en daginn sem
þessi mynd birtist í Vísi voru símalínurnar
hins vegar rauðglóandi á skrifstofu blaðs-
ins. Umræddur frambjóðandi var
nefnilega eineygður.
Margrét Þóra um Ingimar Eydal
Mörgum þótti Margrét Þóra Þórsdóttir,
blaðamaður Moggans á Akureyri, hafa
komist einkennilega að orði í frétt sem
birtist 22. janúar 2002 í tilefni af því að
tónlistarhúsið Laugaborg í Eyjafjarðar-
sveit var tekið í notkun eftir viðamiklar
breytingar. Þar var einnig undirritaður
samningur um að flygill sem keyptur var
í minningu Ingimars Eydal skyldi
varðveittur þar næstu fimm ár. Fréttin
endaði svona: "Loks léku félagar úr
Hjómsveit Ingimars Eydal frá árinu 1993,
en Ingimar lést það ár, fyrir troðfullu
húsinu við góðar undirtektir."
Svín og mjólk
Ævar Kjartansson, þulur og dagskrár-
gerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu til
margra ára, átti einhverju sinni að lesa
auglýsingu frá Kjötbúð Tómasar, þess
eðlis, að þar fengjust ný svínarif. Ævari
urðu hins vegar á smávægileg mistök við
lesturinn og hljómaði auglýsingin svo:
"Nýtt svínarí! Kjötbúð Tómasar."
Skemmst er frá því að segja, að kjötbúðin
fylltist á augabragði af fólki á öllum
aldri, enda vildi enginn missa af svínarí-
inu og ekki harmaði starfsfólk búðarinnar
þennan mislestur Ævars - sem vonlegt
var, miðað við athyglina sem þessi
auglýsing vakti.
Prentvillupúkinn
Sæmundur Guðvinsson var lengi blaða-
maður og síðar fréttastjóri á Vísi
og svo á DV eftir sameiningu síðdegis-
blaðanna. Eitt sinn hringdi hann
í Stefán Valgeirsson alþingismann til að
afla frétta af ákveðnu hitamáli í þinginu.
Stefán var tortrygginn í upphafi sam-
talsins og taldi hættu á að málflutningur
hans yrði affluttur í þessu "íhalds-
málgagni." Sæmundur kvaðst geta
fullvissað hann um að svo yrði ekki og
fyllsta hlutleysis gætt, enda væri Vísir
ekki flokksmálgagn. Stefáni varð
rórra og hafði á orði að helst væri blaða-
mönnum ættuðum að norðan treystandi.
Ummælum Stefáns var slegið upp á
forsíðu Vísis. Blaðið var nýkomið á
götuna þegar Stefán hringir í Sæmund
og var þungt í honum. Hann hefði mátt
vita betur. Auðvitað hefði íhaldsnepillinn
notað tækifærið til að reyna að niðurlægja
hann. Sæmundur kom af fjöllum og sagði
rétt eftir Stefáni haft í einu og öllu. "Það
má vel vera," svaraði Stefán ævareiður,
"en hér stendur í blaðinu: sagði Stefán
Valgeirsson alþingismaur í samtali við
Vísi." Bókstafurinn ð hafði óvart fallið
niður.
Agnes hrellir Jónas
Nafnaruglingur getur verið afar
hættulegur í blaða- og fréttamennsku.
Þegar óljósar sögur af yfirvofandi sam-
einingu Vísis og Dagblaðsins kvisuðust
út á sínum tíma, fór valkyrjan Agnes
Bragadóttir á stúfana til að fá sögurnar
staðfestar. Hún hringdi í menn út og
suður en hafði ekki erindi sem erfiði;
hver maðurinn á fætur öðrum neitaði
öllu og sagðist ekkert kannast við
sannleiksgildi þessa. Loks kom þó
að því að einn kannaðist við að hafa
heyrt eitthvað en sagði blaðakonunni að
hafa samband við Jónas Haralds; hann
vissi örugglega eitthvað um þetta. Og
þar átti maðurinn við Jónas Haraldsson
þáverandi fréttastjóra DB, og núverandi
aðstoðarritstjóra DV. Blaðakonan góða
hringdi hins vegar í Jónas Haralz
þáverandi bankastjóra Landsbankans
strax um kvöldið og þrefaði lengi vel við
hann um vitneskju hans á sameiningu
Vísis og Dagblaðsins.
Og það er Sigmundur Ernir Rúnars-
son sem slær botninn í þetta að sinni
með eftirfarandi áminningu:
"Við minnum á ellefu fréttir sem hefjast
stundvíslega klukkan 22:30."
Í fréttum er þetta helst
A U G L Ý S I N G
Bókaútgáfan Hólar hefur gefið út
bókina Í fréttum er þetta helst -
gamansögur af íslenskum fjöl-
miðlamönnum. Ritstjórar eru
Guðjón Ingi Eiríksson og Jón
Hjaltason og er þetta áttunda
bókin í þessum vinsæla gaman-
sagnaflokki. Skal nú gripið niður
í bókina Í fréttum er þetta helst:
Bókaútgáfan Hólar