Morgunblaðið - 23.11.2002, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 23.11.2002, Qupperneq 28
AKUREYRI 28 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ SS BYGGIR afhenti fyrstu fjórar leiguíbúðirnar, sem fyrirtækið er að byggja í Skálateig 1 á Akureyri, í byrjun nóvember sl. en þá voru tæplega 160 dagar frá því að fyrsta skóflustunga að húsinu var tekin. Alls voru byggðar 16 leiguíbúðir í þessum fyrsta áfanga og voru tólf leiguíbúðir til viðbótar afhentar um miðjan þennan mánuð. Að sögn Sig- urðar Sigurðssonar, framkvæma- stjóra SS Byggis, er töluverður áhugi fyrir leiguíbúðunum. Fyrirtækið byggir alls 47 tveggja herbergja leigubúðir í þremur áföngum í Skálateig 1 og er fólk þegar farið að panta íbúðir til leigu í öðrum áfanga. Sigurður sagði stefnt að því að 2. áfangi yrði tilbúinn fyrir skólaárið næsta haust. „Það virðist vera skortur á leiguhúsnæði til lengri tíma í bænum. Það þurfti alla vega ekki að auglýsa þessar leiguíbúðir til að koma þeim út.“ SS Byggir er einnig að byggja 44 söluíbúðir í Skálateig 3, 5 og 7, tveggja, þriggja og fjögurra her- bergja og sagði Sigurður að mjög vel gengi að selja þær íbúðir. Fyrstu söluíbúðirnar verða afhent- ar í ágúst á næsta ári. Sigurður sagði stefnt að því að gera allar íbúðirnar fokheldar fljótlega upp úr áramótunum, þannig að hægt yrði að vinna innandyra seinni part vetr- ar. Hann sagði þó ekki hægt að kvarta yfir veðrinu þessa dagana. „Það er glæsilegt að fá svona veður en þessi tíð er nú samt bara sam- kvæmt pöntun.“ Starfsmenn fyrirtækisins hafa unnið á vöktum í Skálateig frá því í sumar, frá kl. 6–14 og kl. 14–22 virka daga. Sigurður sagði frágeng- ið að unnið yrði á vöktum þar til uppsteypu húsanna væri lokið. Með vaktavinnunni fengist mun betri nýting bæði á mannskap og tækja- búnaði. Fyrirtækið er einnig með viðbyggingu við Amtsbókasafnið og sagði Sigurður að verkefnastaðan væri góð og útlitið bjart framund- an. Umfangsmiklar byggingarframkvæmdir í gangi við Skálateig Flutt inn í fyrstu leigu- íbúðirnar Morgunblaðið/Kristján Starfsmenn SS Byggis við vinnu sína í Skálateig, þar sem fyrirtækið bygg- ir hátt í 100 leigu- og söluíbúðir. Fyrstu 16 leiguíbúðirnar, í fjölbýlishúsinu sem sést á myndinni, hafa allar verið leigðar út. Vel hefur gengið að selja íbúðir ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð ræddi notkun og rekstur nýja fjölnota íþróttahússins á fé- lagsssvæði Þórs við Hamar á síðasta fundi sínum. ÍTA sam- þykkti að leggja til að rekstur hússins falli undir íþrótta- og tómstundadeild og verði í um- sjón eins forstöðumanna deild- arinnar. Deildarstjóra var hins vegar falið að ganga til við- ræðna við Íþróttafélagið Þór um samnýtingu og samvinnu vegna vöktunar í húsinu. KSÍ óskar eftir fjölmörgum tímum Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er helst horft til þess að fjölnota íþróttahúsið heyri undir forstöðumann íþróttamiðstöðvarinnar í Gler- árskóla, sem er í næsta ná- grenni hússins, en þar er bæði íþróttahús og sundlaug. Fram- kvæmdir við fjölnota íþrótta- húsið eru nokkuð á undan áætl- un og vonast knattspyrnumenn til þess að geta farið að stunda þar æfingar fyrir áramót. Í húsinu verður aðstaða fyrir frjáslar íþróttir en einnig er gert ráð fyrir að kylfingar og jafnvel skotmenn geti stundað þar æfingar. Mikill áhugi er fyrir tímum í húsinu og hefur KSÍ t.d. óskað eftir fjölmörgum tímum um helgar í vetur og fram á vor fyrir leiki í deild- arbikarkeppninni. Fjölnota íþrótta- húsið við Hamar Íþrótta- og tómstunda- deild sjái um rekstur Enskunám í Englandi Virtur málaskóli á suðurströndinni 18 ára og eldri 2-10 vikna námskeið. 13-17 ára 2-4 vikna námskeið 50 ára og eldri 2 vikna námskeið Skólinn sér fyrir fæði og húsnæði. Uppl. eftir kl. 17.00 í síma 862 6825. Ómar Ragnarsson Eitt sinn var Ómar að lýsa knatt- spyrnuleik í sjónvarpi og varð þá fóta- skortur á tungunni undir lok viðureignar- innar. Hann sagði: "Leiktíminn er alveg að renna út. Dómarinn er kominn með klukkuna upp í sig." Hörður Magnússon Gamli markahrókurinn úr FH, Hörður Magnússon, gegnir nú starf i íþrótta- fréttamanns á Stöð 2 og Sýn og á hann stundum athyglisverða málfarsspretti í knattspyrnulýsingum. Hér koma nokkrir þeirra: "Þarna sjáum við Houllier. Hann er glaður á bragðið." "Veron með fræga sendingu." "Það er mikil barátta um samkeppni í liðinu." Sagt um Liverpool. "Við gerum nú örstutt hlé og komum svo með síðari hálfleikinn fyrir handan." "Helmingur leikmanna félagsins eru uppaldir leikmenn." Um FH-liðið í knatt- spyrnu. Mismæli í beinni Heimir Már Pétursson: "Heilbrigðisráðherra tók ákvörðunina að höfðu samræði við lækna." Edda Andrésdóttir: "Og talandi um snáka, hingað er mættur Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir, til að ræða um hrossasóttina." Kolfinna Baldvinsdóttir: "Lögreglan lagðist til atlögu seinni partinn í gær." Auðun Georg Ólafsson: "Kvennalistinn heldur áfram engum þingmanni." Steingrímur Ólafsson: "Á köldum klaka hefur fengið mjög góða dóna, afsakið ... dóma, í Noregi og Svíþjóð." Opnun Smáralindar Það var við opnun verslunarmiðstöðvar- innar Smáralindar á síðasta ári. Jóhanna Vilhjálmsdóttir, annar af umsjónar- mönnum þáttarins Ísland í bítið, var þarna viðstödd og varla hafði fyrstu gestunum verið hleypt inn í geimaldið þegar hún stökk á einn þeirra, vopnuð hljóðnema frá Stöð 2, og spurði - að sjálfsögðu í beinni útsendingu: "Ertu að koma hingað í fyrsta skipti?" Hauslausir Kóreumenn Jörundur Áki Sveinsson, knattspyrnu- þjálfari, var einn af fjölmörgum fótbolta- spekingum sem íþróttafréttamenn Stöðvar 2 og Sýnar höfðu sér til halds og trausts í lýsingum frá síðustu heims- meistarakeppni í knattspyrnu. Hafði hann vitaskuld margt til málanna að leggja, eins og þetta, sem skaust út úr honum í viðureign Suður-Kóreu og Póllands: "Þótt Kóreumennirnir séu höfðinu styttri þá eru þeir að vinna alla skallaboltana." JK Byrjandi í blaðamennsku, en nú þekkt sjónvarpspersóna, fékk það verkefni á Vísi að annast lesendabréf in. Dag nokkurn barst bréf frá manni sem hafði uppi skammir um Jónas Kristjánsson rit- stjóra vegna leiðaraskrifa. Blaðamaðurinn fór með bréfið inn til Jónasar og spurði hvort hann vildi hnýta einhverju svari aftan við bréfið. Jónas lofaði að athuga málið og láta blaðamanninn vita. Svo þegar Jónas komst í að lesa bréfið fannst honum ekki ástæða til að svara því í neinu, hripaði niður athugasemd þess efnis á lappann og lagði á borð blaða- mannsins. Þegar bréfið birtist í Vísi daginn eftir stóð undir því: "Þetta er tómt bull og ekki svaravert. JK" Augnaðgerðin Það var óhemju mikið að gera á Vísi í tengslum við alþingiskosningarnar 1979. Birtar voru myndir af öllum helstu fram- bjóðendum flokkanna um allt land og annaðist Jens úrvinnslu myndanna fyrir blaðið. Þurfti hann vitaskuld að lagfæra eitt og annað, svo að prentgæði þeirra yrðu sem best, og dó þá aldrei ráðalaus. Mitt í þessu kosningaamstri fékk Jens Alexandersson, ljósmyndari blaðsins, í hendur andlitsmynd af frambjóðanda úti á landi, sem virtist alls ekki nægilega vakandi yfir framboði sínu að mati ljós- myndarans, enda var annað auga hans lokað. Jens tók sig því til og "opnaði" það, vitaskuld með tækni þessa tíma. Skemmst er frá því að segja, að "upp- skurðurinn" tókst vel, en daginn sem þessi mynd birtist í Vísi voru símalínurnar hins vegar rauðglóandi á skrifstofu blaðs- ins. Umræddur frambjóðandi var nefnilega eineygður. Margrét Þóra um Ingimar Eydal Mörgum þótti Margrét Þóra Þórsdóttir, blaðamaður Moggans á Akureyri, hafa komist einkennilega að orði í frétt sem birtist 22. janúar 2002 í tilefni af því að tónlistarhúsið Laugaborg í Eyjafjarðar- sveit var tekið í notkun eftir viðamiklar breytingar. Þar var einnig undirritaður samningur um að flygill sem keyptur var í minningu Ingimars Eydal skyldi varðveittur þar næstu fimm ár. Fréttin endaði svona: "Loks léku félagar úr Hjómsveit Ingimars Eydal frá árinu 1993, en Ingimar lést það ár, fyrir troðfullu húsinu við góðar undirtektir." Svín og mjólk Ævar Kjartansson, þulur og dagskrár- gerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu til margra ára, átti einhverju sinni að lesa auglýsingu frá Kjötbúð Tómasar, þess eðlis, að þar fengjust ný svínarif. Ævari urðu hins vegar á smávægileg mistök við lesturinn og hljómaði auglýsingin svo: "Nýtt svínarí! Kjötbúð Tómasar." Skemmst er frá því að segja, að kjötbúðin fylltist á augabragði af fólki á öllum aldri, enda vildi enginn missa af svínarí- inu og ekki harmaði starfsfólk búðarinnar þennan mislestur Ævars - sem vonlegt var, miðað við athyglina sem þessi auglýsing vakti. Prentvillupúkinn Sæmundur Guðvinsson var lengi blaða- maður og síðar fréttastjóri á Vísi og svo á DV eftir sameiningu síðdegis- blaðanna. Eitt sinn hringdi hann í Stefán Valgeirsson alþingismann til að afla frétta af ákveðnu hitamáli í þinginu. Stefán var tortrygginn í upphafi sam- talsins og taldi hættu á að málflutningur hans yrði affluttur í þessu "íhalds- málgagni." Sæmundur kvaðst geta fullvissað hann um að svo yrði ekki og fyllsta hlutleysis gætt, enda væri Vísir ekki flokksmálgagn. Stefáni varð rórra og hafði á orði að helst væri blaða- mönnum ættuðum að norðan treystandi. Ummælum Stefáns var slegið upp á forsíðu Vísis. Blaðið var nýkomið á götuna þegar Stefán hringir í Sæmund og var þungt í honum. Hann hefði mátt vita betur. Auðvitað hefði íhaldsnepillinn notað tækifærið til að reyna að niðurlægja hann. Sæmundur kom af fjöllum og sagði rétt eftir Stefáni haft í einu og öllu. "Það má vel vera," svaraði Stefán ævareiður, "en hér stendur í blaðinu: sagði Stefán Valgeirsson alþingismaur í samtali við Vísi." Bókstafurinn ð hafði óvart fallið niður. Agnes hrellir Jónas Nafnaruglingur getur verið afar hættulegur í blaða- og fréttamennsku. Þegar óljósar sögur af yfirvofandi sam- einingu Vísis og Dagblaðsins kvisuðust út á sínum tíma, fór valkyrjan Agnes Bragadóttir á stúfana til að fá sögurnar staðfestar. Hún hringdi í menn út og suður en hafði ekki erindi sem erfiði; hver maðurinn á fætur öðrum neitaði öllu og sagðist ekkert kannast við sannleiksgildi þessa. Loks kom þó að því að einn kannaðist við að hafa heyrt eitthvað en sagði blaðakonunni að hafa samband við Jónas Haralds; hann vissi örugglega eitthvað um þetta. Og þar átti maðurinn við Jónas Haraldsson þáverandi fréttastjóra DB, og núverandi aðstoðarritstjóra DV. Blaðakonan góða hringdi hins vegar í Jónas Haralz þáverandi bankastjóra Landsbankans strax um kvöldið og þrefaði lengi vel við hann um vitneskju hans á sameiningu Vísis og Dagblaðsins. Og það er Sigmundur Ernir Rúnars- son sem slær botninn í þetta að sinni með eftirfarandi áminningu: "Við minnum á ellefu fréttir sem hefjast stundvíslega klukkan 22:30." Í fréttum er þetta helst A U G L Ý S I N G Bókaútgáfan Hólar hefur gefið út bókina Í fréttum er þetta helst - gamansögur af íslenskum fjöl- miðlamönnum. Ritstjórar eru Guðjón Ingi Eiríksson og Jón Hjaltason og er þetta áttunda bókin í þessum vinsæla gaman- sagnaflokki. Skal nú gripið niður í bókina Í fréttum er þetta helst: Bókaútgáfan Hólar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.