Morgunblaðið - 23.11.2002, Síða 30
AKUREYRI
30 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
betri innheimtuárangur
meistar inn. is
ÁBYRGÐ ÁREIÐANLEIKI
Nonni og Manni ætla að
spila á flautu fyrir fiskana
en lenda í hvalavöðu og eru
hætt komnir. Þessi
ævintýralega saga Jóns
Sveinssonar birtist hér í
nýrri mynd, stytt og
myndskreytt af lista-
manninum Kristni G.
Jóhannssyni. Þetta er
einstaklega falleg bók sem
höfðar til allra barna.
Bókaveisla barnanna
Tólf ævintýri frá 6 löndum,
hvert öðru skemmtilegra,
í þessari einstaklega
fallegu bók. Hver kannast
ekki við Mjallhvít, syngjandi
lævirkjann og Þyrnirós?
Þetta er bók sem á eftir
að gleðja unga sem aldna.
Sannkallaðir
ævintýraheimar.
SPURNINGABÓKIN
- ÞÓ AÐ ÉG SÉ
MÖGUR OG MJÓ
Skemmtilegar spurningar fyrir
alla aldursflokka, pabbi og
mamma fá líka að vera með.
Prófaðu og þér
mun ekki leiðast!
BESTU BARNA-
BRANDARARNIR
- MEGA BÖGG
Þetta er sjöunda bókin
í þessum bókaflokki sem
er alltaf jafn-vinsæll.
Og MEGA BÖGG er
þeirra fyndnust.
Ómissandi bók á borðið
hjá barninu þínu.
Bókaútgáfan Hólar - fallegar bækursem fanga börnin -
Á
S
P
R
E
N
T
NONNI OG MANNI
FARA Á SJÓ
MAMMA MÖ RENNIR
SÉR Á SLEÐA
Kýrin Mamma Mu hefur
slegið í gegn og nú er hún
komin til Íslands með vini
sínum Kráki.
Stórskemmtilegar myndir
og frábær þýðing Þórarins
Eldjárns heilla börnin.
ÆVINTÝRAHEIMAR
STALDRIÐ
VIÐ
blaðið í verkefnasjóð, sem aftur
veitir styrki til ýmissa mála. Þessa
dagana er verið að leggja lokahönd
á vinnslu blaðsins og stefna Hængs-
félagar að því að bera blaðið til bæj-
arbúa um næstu mánaðamót.
Fram kom í máli Jónu Bertu
Jónsdóttur, formanns Mæðra-
styrksnefndar, að fólk væri þegar
farið að leita eftir aðstoð „og von-
andi getum við gert eitthvað fyrir
alla.“ Jóna Berta sagði að ekki væri
um að ræða matarmiða á Akureyri
heldur fengi fólk afhentar mat-
vörur beint frá nefndinni. Einnig
kom fram að ekki treystu sér allir
til að leita eftir aðstoð en að
Mæðrastyrksnefnd fengi stundum
ábendingar um fólk sem þyrfti á að-
stoð að halda.
LIONSKLÚBBURINN Hængur
hefur afhent fjárstyrki úr verk-
efnasjóði klúbbsins til þriggja aðila
á Akureyri sem vinna að mann-
úðarmálum, Mæðrastyrksnefndar,
Hjálpræðishersins og Íþrótta-
félagsins Akurs. Dan Brynjarsson,
formaður Lionsklúbbsins Hængs,
sagði það vel við hæfi í aðdraganda
jólanna að afhenda þessa fjárstyrki,
sem hann sagðist vonast til að
kæmu sér vel. Margir leita til
Mæðrastyrksnefndar og Hjálpræð-
ishersins eftir aðstoð, ekki síst fyrir
jólin. Þá hefur Hængur lengi stutt
við íþróttir fatlaðra og klúbburinn
stendur m.a. fyrir hinu landsþekkta
Hængsmóti ár hvert. Hængur hefur
gefið út Jólablaðið Leó til fjölda ára
og rennur ágóði af auglýsingasölu í
Morgunblaðið/Kristján
Styrkirnir afhentir, f.v. Rannveig Óskarsdóttir frá Hjálpræðishernum, Inga Ellertsdóttir, Björg Hansen og Jóna
Berta Jónsdóttir frá Mæðrastyrksnefnd, Dan Brynjarsson, formaður Lionsklúbbsins Hængs, Árni Páll Hall-
dórsson, formaður verkefnasjóðs, og Jósep Sigurjónsson frá Íþróttafélaginu Akri.
Lionsklúbburinn
Hængur afhendir
fjárstyrki
MJÖLL og Norðlenska hafa gert
með sér samning um þrif, þrifalýs-
ingar, hreinlætiseftirlit og ráðgjöf
fyrir kjötvinnslu og sláturhús Norð-
lenska á Akureyri og kjötvinnslu fyr-
irtækisins á Húsavík. Samningurinn
er til þriggja ára og er metinn á um
70 milljónir króna.
Samningurinn kveður á, auk þrifa
á vinnslueiningum Norðlenska á Ak-
ureyri og Húsavík, um ræstingar á
skrifstofum fyrirtækisins á Akur-
eyri, öll hreinsiefni og stoðvörur sem
notaðar eru í vinnslueiningum fyr-
irtækisins auk þess sem sérfræðing-
ar Mjallar munu mánaðarlega gera
sérstakar mælingar og tryggja
þannig virkt eftirlit með þrifunum. Í
samningnum er tekið fram að notuð
verði eins umhverfisvæn efni og
unnt er, án þess að rýra gæði þrif-
anna, m.a. að dregið verði úr notkun
klórs og ný og áhrifameiri sótt-
hreinsiefni verði notuð, segir í frétt
um samninginn.
Mjöll og Norð-
lenska semja
BÓKASAFN Eyjafjarðarsveitar,
sem nú er jafnframt skólabókasafn
fyrir
Hrafnagilsskóla, varð til við sam-
runa fleiri bókasafna í sveitarfé-
laginu allt frá tíma gömlu lestrar-
félaganna. Vegna samrunans er til
mikið af bókum, sem ekki er þörf eða
rúm fyrir í núverandi safni. Fyrir
nokkrum árum var efnt til útsölu á
bókum úr eldri söfnunum og var sú
útsala vel sótt.
Þrátt fyrir það er enn eftir veru-
legt magn bóka og verða þær boðnar
til sölu á markaði í Félagsheimilinu
Sólgarði í dag, laugardaginn 23. nóv.,
og á morgun, sunnudaginn 24. nóv.,
kl. 14.00–17.00 báða dagana.
Bækurnar eru af ýmsum toga,
eldri sem yngri, og er verðið kr. 100
á bók. Unnt verður að semja um enn
lægra verð fyrir mikið magn eða
bókakassa.
Bóksala í
Sólgarði
TVÆR matvöruverslanir í Ólafs-
firði, Strax og Valbúð, verða sam-
einaðar í eina um næstu áramót.
Þorsteinn Þorvaldsson, núver-
andi framkvæmdastjóri Valbúðar,
mun stýra versluninni sem fær
nafnið Úrval við sameininguna.
Hún verður við Aðalgötu 2–4, þar
sem Strax-verslunin er núna. Versl-
uninni verður breytt og hún stækk-
uð.
Þess er vænst að unnt verði að
lækka vöruverð í kjölfar sameining-
arinnar og að það verði sambæri-
legt við aðrar Úrvalsverslanir, sem
eru á Dalvík, Húsavík og Akureyri.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Þorsteinn Þorvaldsson hjá Valbúð og Gísli Gíslason frá Samkaupum.
Matvöruverslanir sameinaðar
FYRSTU 10 mánuði ársins voru
greiddar 35,4 milljónir króna í
fjárhagsaðstoð á Akureyri. Á síð-
asta fundi félagsmálaráðs var lagt
fram yfirlit um veitta fjárhagsað-
stoð í október sl. Fyrir lágu 96 um-
sóknir en veittir voru 70 styrkir að
upphæð tæplega 2,9 milljónir
króna og 5 lán að upphæð um 260
þúsund krónur. Synjað var 21 um-
sókn.
Einnig var tekið fyrir erindi frá
Jónu Bertu Jónsdóttur formanni
Mæðrastyrksnefndar, þar sem hún
óskaði eftir styrk sem notaður yrði
til kaupa á mat og fleira, sem síðar
yrði úthlutað fyrir jólin til þeirra
sem á þurfa að halda. Félagsmála-
ráð samþykkti að veita Mæðra-
styrksnefnd styrk að upphæð 275
þúsund krónur.
35 milljónir kr. í fjárhagsaðstoð