Morgunblaðið - 23.11.2002, Side 33
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 33
MYNDARLEGUR jólatrésfarmur
er farinn frá Skógræktinni í
Skorradal. Á myndinni eru starfs-
menn skógræktarinnar að lesta bíl
frá ÞÞÞ á Akranesi.
Á bílinn fóru 30 torgtré, sem
voru frá fjórum metrum og upp í
þrettán metra á hæð. Þessi bíl-
farmur fór suður á Reykjanes. Alls
verða felld um 130 torgtré hjá
Skógræktinni í Skorradal fyrir
þessi jól. Felld heimilistré verða um
500 og að auki verður almenningi
gefinn kostur á að fella sín eigin tré
í Selsskógi helgina 14.–15. desem-
ber nk.
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Þórður Þórðarson og Gísli B. Henryson, starfsmenn skógræktarinnar.
Jólatré úr Skorradal
á torg Reyknesinga
Skorradalur
SAMNINGUR hefur verið gerður
milli Hitaveitu Rangæinga annars
vegar og Landgræðslunnar og
Landspítala – Háskólasjúkrahúss
hins vegar um lagningu hitaveitu
til Vistheimilisins í Gunnarsholti,
sem rekið er af Landspítalanum,
og til Landgræðslunnar.
Undirbúningur hófst fyrir
tveimur árum þegar farið var að
vinna að því að fá fjárveitingu til
þessara framkvæmda sem fékkst
fyrir atbeina landbúnaðar- og fjár-
málaráðherra. Kostnaður mun
nema nálægt 70 milljónum.
Ástæða þess að Hitaveita Rang-
æinga er nú í stakk búin til að
bæta við lögninni í Gunnarsholt og
mannvirki þar er sú að ráðist var í
viðbótarvatnsöflun í Kaldárholti í
janúar 2000 en borholur hitaveit-
unnar á Laugalandi í Holtum önn-
uðu vart notendum og stefndi í
vatnsþurrð þar.
„Við teljum að þetta sé geysilegt
framfaraspor fyrir byggðina hér í
Gunnarsholti,“ segir Sveinn Run-
ólfsson, landgræðslustjóri. „Það er
mjög þýðingarmikið fyrir fræverk-
un og fræframleiðslu að fá þessa
hitaveitu, það skilar betri vöru,
það verður betra vinnuumhverfi og
betri geymslustaður fyrir þessa
verðmætu framleiðslu á land-
græðslufræjum. Sú verkun hefur
farið fram með olíu. Einnig er um
að ræða mun fýsilegri kost fyrir
fólk að búa í þeim þéttbýliskjarna
sem hér hefur myndast. Á Vist-
heimilinu hefur verið kynt með olíu
en hjá Landgræðslunni með raf-
magni.“
Framkvæmdir við lagningu um
10 km stofnæðar frá aðallögn hita-
veitunnar austan við Hellu og að
Gunnarsholti munu hefjast á næst-
unni.
Einnig verður lögð aðveituæð
frá Gunnarsholti að Akurhól og
dreifikerfi að húsnæði Land-
græðslunnar og Vistheimilisins í
Gunnarsholti. Byggð verður dælu-
stöð til þess að halda uppi nægum
vatnsþrýstingi. Stefnt er að því að
verkinu verði lokið fyrir 30. sept-
ember 2003.
Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir
Undirritun samnings um lagningu hitaveitu í Gunnarsholt, frá vinstri: Guð-
mundur Guðmundsson, Ágúst Ingi Ólafsson, Ingvar Baldursson, Sveinn
Runólfsson, Aðalsteinn Pálsson og Ingólfur Þorláksson.
Samningur um
hitaveitu í
Gunnarsholti
Hella