Morgunblaðið - 23.11.2002, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 23.11.2002, Qupperneq 35
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 35 NORRÆNIR músíkdagar hefjast í Berlín í dag. Kjartan Ólafsson, for- maður Tónskáldafélags Íslands, mun sækja þessa tónlistarhátíð, sem nú er í fyrsta skipti haldin utan Norðurlanda. „Norrænir músíkdagar voru fyrst haldnir 1888 og eru ein af elstu tón- listarhátíðum í heimi,“ segir Kjart- an. „Hátíðin er haldin annað hvert ár til skiptis á Norðurlöndunum en er nú eins og fram kom í fyrsta skipti haldin utan Norðurlandanna.“ Hvers vegna er það? „Hátíðin er haldin „undir hatti“ norræna tónskáldaráðsins, en er að þessu sinni haldin undir leiðsögn Norðmanna. Að halda hátíðina í Berlín er tilraun til að kynna og koma á framfæri norrænni tónlist í fjölþjóðlegu umhverfi. Berlín varð fyrir valinu vegna landfræðilegra aðstæðna,“ svarar Kjartan. Tilgang Norrænna músíkdaga segir hann vera að koma á framfæri nýrri og nýlegri norrænni tónlist, ásamt kynningu á norrænni tónlist og tónlistarmönnum. Einstakt tækifæri fyrir íslensk tónskáld „Á hátíðina að þessu sinni hafa verið valin verk frá öllum Norður- löndunum af ólíkum toga og frá ólík- um kynslóðum tónskálda. Þá hafa norrænir hljóðfæraleikarar og hljóð- færahópar fengið boð um að taka þátt í hátíðinni, þar á meðal Caput frá Íslandi, Cikada frá Noregi, Kroumata frá Svíþjóð og Avanti! frá Finnlandi, auk dönsku útvarps- hljómsveitarinnar Olso Philharmon- ic Orchestra. Hin þekkta Fílharm- óníuhljómsveit Berlínar tekur einnig þátt í hátíðinni. Að þessu sinni hefur verkefnaval nær eingöngu verið í höndum list- ræns stjórnanda, hljóðfærahópa og hljóðfæraleikara. Vladimir Ashkenazy mun stjórna Fílharmóníuhljómsveit Oslóar og hefur valið m.a. verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Diafonia, frá árinu 1984 á tónleikadagskrána. Rétt er að nefna að flutt verða einnig verk eftir Hauk Tómasson, Snorra Sigfús Birgisson, Atla Ingólfsson, Hafliða Hallgrímsson, Kjartan Ólafsson, Ríkharð H. Friðriksson og tón- smíðanemendurna Áka Ásgeirsson og Önnu Sigfríði Þorvaldsdóttur.“ Veitir þessi þátttaka íslenskum tónlistarmönnum góð tækifæri? „Já, þetta er útrás íslenskra tón- skálda. Hátíðin í ár er einstakt tæki- færi fyrir íslensk tónskáld og ís- lenska tónlistarmenn til að koma list sinni á framfæri á alþjóðlegum vett- vangi. Til hátíðarinnar í Berlín hafa Norðmenn boðið fulltrúum frá al- þjóðlegum menningarstofnunum, dagblöðum og öðrum fjölmiðlum ásamt kynningarfulltrúum frá ýms- um fyrirtækjum og stofnunum. Tónskáldafélag Íslands hefur ákveðið að taka myndarlegan þátt í þessari hátíð sem gefur þetta ein- staka tækifæri til kynningar á ís- lenskri tónlist og sendir til Berlínar öll þau sjö íslensku tónskáld sem verk eiga á hátíðinni. Flutningur á íslenskri tónlist á er- lendri grund fer sífellt vaxandi og eru þau íslensku verk í raun eins konar „sendiherrar“ Íslands í al- þjóðlegu menningarumhverfi. Bæði eiga þar í hlut erlendir að- ilar, sem hafa áhuga á íslenskri tón- list, en einnig eiga þar stóran hlut ís- lenskir tónlistarmenn. Auk fjölda íslenskra einleikara sem ferðast með íslenska tónlist í farteskinu á tón- leikaferðum má nefna hljóðfæra- hópa eins og Kammersveit Reykja- víkur, Caput og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Sökum einangrunar Íslands er bæði dýrt og erfitt fyrir íslenska listamenn, burtséð úr hvaða list- grein þeir koma, að taka þátt í kynn- ingu á íslenskri menningu og land- inu. Á hinum Norðurlöndunum eru opinberir aðilar mun virkari hvað varðar þátttöku þeirra listamanna á hinu alþjóðlega menningarsviði. Sem dæmi má nefna að Finnar tóku upp á því fyrir nokkrum áratugum að styrkja sína listamenn til alþjóð- legrar þátttöku. Það leið ekki á löngu þar til finnsk tónskáld, finnsk- ir hljóðfæraleikarar og finnskir ein- leikarar voru farnir að kynna Finn- land og finnskar afurðir í ríkari mæli en nokkurn tíma hafði áður þekkst. Þessi aðstoð Finna við að kynna menningu sína skilaði sér umsvifa- laust í auknum fjárhagslegum ávinn- ingu á erlendri grund, – flestir þekkja ævintýrið um litlu Nokia- gúmmívaðstígvélin sem urðu að al- þjóðlega Nokia-stórsímafyrirtæk- inu.“ Eru íslensk stjórnvöld dugleg að styðja við bakið á sínum listamönn- um? „Stjórnvöld hafa reynt að styðja við bakið á íslenskum listamönnum en það er ljóst að eins og staðan er í dag þyrfti slíkur stuðningur að vera meiri og markvissari til þess að Ís- land geti tekið áfram þátt í hinum sí- stækkandi erlenda menningar- heimi.“ Hátíðinni lýkur 1. desember nk. Útrás íslenskra tónskálda Morgunblaðið/RAX Kjartan Ólafsson: „Einstakt tækifæri fyrir íslensk tónskáld.“ Sjö íslensk tónskáld eiga verk á Norrænum músíkdögum í Berlín. Kjartan Ólafsson, for- maður Tónskáldafélags Íslands, segir hér Guð- rúnu Guðlaugsdóttur frá fyrirhugaðri hátíð og einnig sitthvað frá sögu hennar og þýðingu. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík. Sýningarsalir, safnbúð og kaffistofa, opið alla daga nema mánudaga frá kl. 11-17. Vefsetur: www.listasafn.is Stærsta sýning á íslenskri samtímalist til þessa ÍSLENSK MYNDLIST 1980-2000 Á fræðsludagskránni: • Leiðsögn alla þriðjudaga og sunnudaga. • Aukið sýningarrými - aldrei verið meira. • Stækkuð safnbúð með nýjum vörum. • Opinn gagnagrunnur í tölvum safnsins. Málþing laugardaginn 23. nóvember kl. 11-13 Leiðsögn sunnudaginn 24. nóvember kl. 15-16 Staða íslenskra listamanna og alþjóðleg tengsl myndlistar. Stjórnandi: Dr. Ólafur Kvaran, safnstjóri. Pallborðsumræður: Anna Líndal myndlistarmaður, prófessor við myndlistardeild Listaháskóla Íslands, Arnbjörg Sveinsdóttir alþingismaður, Kristján Steingrímur Jónsson myndlistarmaður, deildarforseti myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, Ósk Vilhjálmsdóttir myndlistarmaður, Tumi Magnússon myndlistarmaður, prófessor við myndlistardeild Listaháskóla Íslands, Þorgeir Ólafsson listfræðingur, deildarstjóri lista- og safnadeildar menntamálaráðuneytisins. „Samtal við listaverk“. Þessir listamenn fjalla um verk sín: Hannes Lárusson, Margrét Blöndal, Tumi Magnússon, Steingrímur Eyfjörð. Atlas International sem er stærsta og virt- asta fasteignasala á Spáni, býður Íslending- um til sölu húseignir á Costa Blanca á Spáni af öllum stærðum og gerðum. Flestar eignirnar eru á Torrevieja svæðinu, rétt sunnan við Alicante, sem skiptist í fjölda hverfa og er ávallt stutt í alla þjón- ustu svo sem banka, verslanir, veitingastaði og bari, og svo er mjög stutt á stöndina. Ef þú ert að hugleiða að eignast þitt annað heimili á Costa Blanca, þá skaltu annað hvort hringja eða senda okkur tölvupóst, og við munum senda þér eða koma með heim til þín, stórglæsilega bæklinga og verðlista, og veita þér upplýsingar um: Eignirnar – Lánsmöguleika – Svæðið – Skoðunarferðir. Þar sem Atlas International á 25 ára starfsafmæli í ár, þá bjóða þeir öllum sem kaupa eignir hjá þeim, húsgögn með hverri íbúð. ÞITT ANNAÐ HEIMILI Á SPÁNI COSTA BLANCA Atlas International á Íslandi ● Þórhallur Sigurðsson Sími 896-2047 ● 553-7718 ● E-mail laddi@islandia.is Geisladiskur Til sölu er geisladiskur sem Gissur Björn Eiríksson gefur út og ber nafnið „The beginning“. Nánari upplýsingar eru í síma 552 8680, Hátúni 10. Verð á geisladisknum er kr. 2.290,- TVÖ verk eftir Þorkel Sig- urbjörnsson verða leikin á Nor- rænum músíkdögum í Berlín, hljómsveitar- verkið Díafónía sem Fílharm- óníusveitin í Ósló leikur undir stjórn Vladimirs Ashkenazys, og hins vegar org- elverk sem Har- ald Herrstahl leikur. „Díafónía er bara ein af þessum gömlu synd- um,“ segir Þorkell um hljómsveit- arverkið sitt, „en þeir voru nú að hita sig upp og spiluðu það á tvennum tónleikum í Ósló núna á fimmtudag og föstudag. Ég samdi þetta 1984 að ósk Jean-Pierre Jac- quillats hljómsveitarstjóra og Sin- fóníuhljómsveit Íslands frumflutti það með glæsibrag undir hans stjórn. Það hefur verið flutt nokkr- um sinnum síðan.“ Vladimir Ashkenazy hefur flutt nokkur verk Þorkels á tónleikum með hljómsveitum sínum í Evrópu, Mistur, Gletcherlied og Gang, sem hann frumflutti í Prag í fyrra, en tvö síðastnefndu verkin pantaði Ashkenazy hjá Þorkeli. „Já, hann fékk áhuga á þessu og hefur verið að spila þessi verk víða. Í júní í fyrra var hann með tvö þessi verk á tónleikaferð með hljómsveitinni Fílharmóníu í Englandi, og hann virðist bara vera ánægður með þau. Hann óskaði svo eindregið eft- ir því að ég kæmi á hátíðina nú í Berlín ef ég ætti þess nokkurn kost til að vera viðstaddur flutninginn á Díafóníu. Það er langt síðan ég hef farið á Norræna músíkdaga og ákvað að fara. Maður hittir líka alltaf eitthvað af kollegum sínum frá hinum Norðurlöndunum.“ Þor- kell er að semja nýtt verk fyrir Ashkenazy og Kammersveit Reykjavíkur; það er einleiksverk, – Azhkenazy verður einleikari og stjórnandi á tónleikunum. „Hann fékk áhuga á þessu“ Þorkell Sigurbjörnsson SÝNINGIN Milli goðsagnar og veruleika verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi í dag kl. 16. Þar gefur að líta yfir sextíu verk eftir listamenn frá sextán arabalönd- um, sem unnin er á síðari hluta 20. aldar. Sýningin kemur frá Konung- lega fagurlistasafninu í Jóraníu og var hluti hennar í Listasafninu á Ak- ureyri á liðnu sumri. Á sýningunni er dregin upp mynd af stöðu nútímalistar í arabaheimin- um með úrvali verka eftir listamenn frá Alsír, Barein, Egyptalandi, Írak, Jórdaníu, Kúveit, Líbanon, Mar- okkó, Aman, Palestínu, Sádi-Arabíu, Súdan, Sýrlandi, Túnis, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Jemen. Verkin á sýningunni veita innsýn í hugarheim listamannanna auk þess sem áhorfendur fá að kynnast ólík- um stefnum og stílum. Annars vegar er um að ræða verk sem tengjast trúarbrögðum, kynferði og pólitík. Hins vegar getur að líta afturhvarf til hefðarinnar sem dregur lista- mennina að sagnfræðilegum og trúarlegum uppruna sínum. Sýningarstjóri er hennar konung- lega hátign Wijdan Ali prinsessa sem er doktor í íslamskri myndlist frá Lundúnaháskóla. Í tengslum við opnun sýningarinnar í Hafnarhúsinu er dr. Khaled Khreis, forstöðumaður Konunglega fagurlistasafnsins, kominn hingað til lands. Hann mun m.s. flytja fyrirlestur um úrvinnslu arabískrar nútímalistar á skrautrit- unarhefðinni er hefst kl. 17 á mánu- dag. Sýningin Milli goðsagnar og veru- leika stendur til 19. janúar 2003. Arabísk nútímalist á sýningu GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.