Morgunblaðið - 23.11.2002, Page 42

Morgunblaðið - 23.11.2002, Page 42
42 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. V ÍÐA um lönd hafa á undanförnum árum ver- ið miklar umræður, sem byggjast á upp- gjöri vegna stjórnmáladeilna og afstöðu einstakra flokka og manna á tímum kalda stríðsins. Deilurnar hafa meðal annars snú- ist um hollustu sósíalista og kommúnista við Sovétríkin og leiðtoga heimskommúnismans í Moskvu. Þá hafa þær verið um afstöðu manna til ákvarðana í utanríkis- og varnarmálum. Loks snúast þær að sjálfsögðu um ólíkar leiðir að því markmiði að tryggja einstökum þjóðum sem mesta hagsæld. Hér hefur ekki farið fram neitt pólitískt uppgjör af þessum toga. Að vísu hafa komið út bækur um samskipti sósíalista á Íslandi við kommúnista í Sovétríkjunum og Austur-Evrópu. Umræður um þetta pólitíska skeið Ís- landssögunnar hafa hins vegar verið svipur hjá sjón miðað við það, sem gerst hefur annars staðar. Raunar eru ýmsir þeirrar skoðunar, að sársauki þeirra, sem sáu lífshugsjónir sínar og hugmyndafræði hrynja með brott- hvarfi Sovétríkjanna, hafi verið og sé svo mikill, að í mannúðarskyni sé ekki vert að setja salt í þau sár. x x x Við höfum séð á síðum Morgunblaðsins undanfarna daga, hve aumur hinn pólitíski blettur er á þeim, sem telja sig handhafa kennisetninga og skoðana sósíalista. Í leiðara Morgunblaðsins síðastliðinn sunnudag var vikið að því, að Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, hefði sagt á flokksráðsfundi flokks síns föstudaginn 15. nóvember, að flokkurinn vildi gerbreytta stefnu í landsmálum, sem fælist í vinstri stefnu og myndun velferðarstjórnar. Hann bætti því við, að eðlilegir samherjar flokksins í baráttu fyrir gerbreyttri stjórnarstefnu væru hinir stjórnarandstöðuflokkarnir, Samfylkingin og Frjáls- lyndi flokkurinn. Morgunblaðið taldi af þessu tilefni ástæðu til að staldra við og spyrja, hvort vinstri flokkarnir væru lík- legri til að stuðla að öflugra velferðarkerfi en núverandi stjórnarflokkar. Niðurstaðan í leiðaranum var þessi: „Steingrímur J. Sigfússon er handhafi pólitískrar arf- leifðar, þ.e. hinnar sósíalísku arfleifðar, sem hefur frá upphafi til þessa dags komið lítið við sögu í up velferðarkerfisins á Íslandi að svo miklu leyti, það hefur verið að ræða, fyrst og fremst vegna þessara þjóðfélagsafla á sínum tíma innan ver hreyfingarinnar. Hugmyndir Steingríms J. Sigfússonar um v arstjórn á þeim forsendum, sem hann gefur sé því ekki upp.“ Steingrímur J. svarar fyrir sig í Morgunbla nóvember. Hann segist ekki vita, hvort hann s ir handhafanafnbótinni en segist fulltrúi „rótt vinstri stefnu“ (nú þorir enginn lengur að segj sósíalisti) og segir undir lok greinar sinnar, að vinstri sinnaðra stjórnmálamanna sé glæsileg lausn einstakra mála: „Er þá enn ótalið stærsta framlagið, hið sam og sígilda, þ.e. að leggja til sjálfan hinn hugmy fræðilega grundvöll. Hugsjónirnar um jöfnuð og félagslegt réttlæti eru ekki ættaðar af hæg stjórnmálanna heldur þveröfugt. Morgunblaðinu mun ekki takast að ræna þv lenskum vinstri mönnum að hafa með hugmyn sinni og baráttu lagt grunninn að velferðarsam og átt stærstan þátt í að byggja það upp.“ Í leiðara 21. nóvember telur Morgunblaðið, grímur J. sé ekki nógu vel að sér í pólitískri sö helmingi 20. aldarinnar, ef marka megi svar h fyrri leiðara blaðsins. Morgunblaðið hafi ekki gera tilraun til að ræna einu eða neinu af vinst um. Rannsóknir sagnfræðinga á þessum þáttu leiða í ljós, að sú söguskýring, sem Morgunbla sett fram, eigi við full rök að styðjast. Það get skaðað hugmyndir Steingríms J. um velferðar þótt sögulegum staðreyndum um uppbygging arríkis á Íslandi sé haldið til haga! x x x Fáum kemur líklega á óvart, að ég sé samm stöðu Morgunblaðsins í viðræðum þess við St Sigfússon. Íslenska velferðarþjóðfélagið hefði lega aldrei komið til sögunnar, ef sósíalistar h undirtökum í íslenskum stjórnmálum. VETTVANGUR Vinstri/grænir í söm Eftir Björn Bjarnason U MRÆÐA hefur vaknað um það hvernig megi beisla þann „auð“ sem býr í ís- lenskum tónlistarmönnum og flytja hann út – sú hugs- un er athyglisverð að í íslenskri tónlist séu faldar margar milljónir sem koma þurfi böndum á og flytja út. Það felst ákveðinn misskilningur í því að ætla að setja tónlist einungis undir iðnað á þeirri forsendu að við séum að fást við tón- listariðnað. Víst þurfa tónlistarmenn að leggjast í hark úti á markaðnum til að ná til áheyrenda og selja plötur, en það er rétt að benda á að sú tónlist sem stendur næst því að kalla megi hana iðnaðartónlist, með fullri virðingu fyrir þeim sem stunda þá gerð tónlistar, hefur ekki selst í útlönd- um. Þegar Mezzoforte sló í gegn í Bretlandi með Garden Party fyrir meira en tveimur áratugum var hljómsveitin búin að vera starfandi í nokkur ár og mjög virk í ákveð- inni grasrót hér heima. Það sem næst sló í gegn var Sykurmolarnir, sem ég var í meðal annarra, og við vorum þá búin að vera starfandi í hringiðu nýrra tónlistar í mismunandi hljómsveitum í mörg ár. Þeg- ar Sykurmolarnir hætta heldur Björk áfram, þá búin að vera í tíu ár að þroskast sem listamaður hér heima á Íslandi, í raun í friði fyrir öllum útflutnings- eða iðn- aðarráðum. Nýjasta dæmið um hljómsveit sem er að slá í gegn úti er Sigur Rós, sem stökk heldur ekki fullþroskuð fram sem ís- lensk útflutningsvara, heldur í kjölfar þess að þeir eru sjálfir búnir að vera að þroska sig sem listamenn hér heima og nýta síðan tengsl til að ná eyrum manna í útlöndum. Auðvitað eru dæmi þess að menn hafa beitt aðferðum iðnaðar til að búa til tón- listarmann sem vörumerki erlendis og undirbúið markaðssetningu en þegar kom að því að viðkomandi listamaður átti að stökkva fram á sjónarsviðið, albúinn að slá í gegn og selja milljónasölu, var fyrirtækið sem hann starfaði hjá selt og hann settur ofan í skúffu, öll vinna og undirbúningur þar með unninn fyrir gýg. Það ætti að opna augu manna fyrir því að það er ekki bara áhættusamt að gera svona heldur ber það sjaldnast árangur. Það er ekkert sem segir að opinber af- skipti verði til að auðvelda mönnum að komast áfram og reyndar virðist flest benda til að þau yrðu frekar til trafala, myndu koma í veg fyrir að menn fái að þróast við eðlilegar aðstæður hér heima, mótast sem listamenn sem eitthvað er spunnið í en ekki gerðir að einhvers konar innpakkaðri markaðsvöru til útflutnings. Tónlist lýtur í grundvallaratriðum sömu lögmálum og aðrar listgreinar, það er ekki hægt að benda nákvæmlega á það hvaða áhrif hún mun hafa á hvern og einn. Í kringum hana hefur orðið til markaðs- fyrirbæri er í dag með ma hrynur p stendur h nýrri tæk hugmynd því. Þróuni vegu að og selja bera æ m Hver er þessi auður? Eftir Einar Örn Benediktsson Afkvæmi guðanna á Airwaves-tónlistarhátíðinni 2002. NATO STÆKKAR OG BREYTIST Á fundi Atlantshafsbandalagsins íPrag voru gerðar róttækarbreytingar á skipulagi banda- lagsins. Það má færa rök fyrir því að Prag-fundurinn hafi verið meðal mikil- vægustu leiðtogafunda í sögu banda- lagsins. NATO var stofnað á sínum tíma til að standa vörð um öryggi vestrænna ríkja gagnvart sovésku ógninni. Þegar hún hvarf tók við áratugur þar sem bandalagið hafði í nógu að snúast við að koma á friði á Balkanskaga. Þegar ástandið í Bosníu og Kosovo breyttist til hins betra var óhjákvæmilegt að upp kæmu spurningar um hvert væri hlut- verk NATO við breyttar aðstæður. Er einhver þörf á varnarbandalagi þegar óljóst er hverjum er verið að verjast? Þungamiðja heimsmálanna hefur vissulega færst til frá því á árum kalda stríðsins. Það er ekki lengur hætta á stórfelldum stríðsátökum í Evrópu. Varsjárbandalagið er horfið, flest ríki þess eru nú orðin aðilar að eða á leið inn í NATO og Rússar hafa tengst banda- laginu nánum og formlegum böndum. Þar með er hins vegar ekki sagt að NATO þjóni ekki lengur neinum til- gangi. Líklega er engin stofnun mikil- vægari til að tryggja að þær breytingar, sem átt hafa sér stað í Evrópu, festi rætur. Fyrir fimm árum var þremur ríkjum í austurhluta álfunnar boðin að- ild og nú eru sjö ríki til viðbótar búin að fá boð um aðild. Í þeim eru meðal ann- ars Eystrasaltsríkin þrjú. Með ákvörð- un um stækkun NATO og nú síðar á þessu ári ákvörðun um stækkun Evr- ópusambandsins er verið að bjóða þessi ríki velkomin í samfélag vestrænna ríkja. Í því felst ekki síst að þau verða að fylgja þeim leikreglum sem þar ríkja, virða lýðræði og mannréttindi og leysa deilumál með friðsamlegum hætti. Enn eru til ríki í Evrópu þar sem lýð- ræði hefur ekki náð að festa rætur og mikill óstöðugleiki ríkir, jafnt í stjórn- málum sem efnahagsmálum. Úkraína og Hvíta-Rússland eru skýr dæmi um það. Á vettvangi NATO er unnið að því að halda tengslum við þessi ríki og reynt að knýja á um breytingar. Evr- ópusambandið gegnir einnig mikilvægu hlutverki í þessu sambandi. Styrkur NATO er hins vegar að þar gefst ríkjum í austurhluta Evrópu einnig kostur á að mynda tengsl við ríki Norður-Ameríku. Þegar upp er staðið er NATO eini vett- vangurinn þar sem þjóðir Evrópu og Norður-Ameríku vinna sameiginlega að því að efla pólitískt samstarf sín á milli á breiðum grundvelli. NATO er því ekki síður mikilvægt pólitískt bandalag en varnarbandalag. Samhliða stækkuninni er jafnframt verið að endurmóta hið hernaðarlega hlutverk NATO þannig að það taki mið af þeim raunveruleika sem við búum við í dag. Síðastliðinn áratug hefur NATO gegnt mikilvægu hlutverki við að halda úti og skipuleggja friðargæslustarf, ekki síst á Balkanskaga. Sú verður áfram raunin og á því sviði hefur Ísland látið til sín taka í auknum mæli. Með ákvörðun um að setja á stofn öfl- ugt 21 þúsund manna hraðlið innan tveggja ára er tekið stórt skref í þá átt að endurmóta hlutverk bandalagsins í samræmi við breytta heimsmynd. Ríkj- um NATO stafar ekki lengur ógn af því að á þau verði ráðist með hefðbundnum herafla. Ógnin sem við stöndum frammi fyrir í dag er að einstök ríki eða hryðju- verkasamtök komist yfir og beiti efna-, sýkla- eða jafnvel kjarnavopnum. Með stofnun hraðliðsins verður aðildarríkj- um bandalagsins gert kleift að bregðast við slíkri ógn með skjótum hætti. Það er mikilvægt að verði nauðsynlegt að grípa til hernaðaraðgerða til að koma í veg fyrir hryðjuverk eða árásir sé það gert í samvinnu Evrópuríkja og Banda- ríkjanna. Þegar kemur að hernaðar- legri getu hefur bilið á milli Bandaríkj- anna og Evrópu óðum verið að breikka. Er nú svo komið að það er orðið tækni- lega erfitt fyrir önnur ríki að starfa með Bandaríkjunum. Eitt helsta markmiðið með stofnun hraðliðsins er að auka getu Evrópuríkjanna þannig að þau geti staðið við hlið Bandaríkjanna þegar á reynir. AUKIÐ FRAMLAG ÍSLANDS Eitt af því sem nauðsynlegt er til aðtryggja að NATO geti sinnt því framtíðarhlutverki sem bandalaginu er ætlað er að aðildarríkin auki framlög sín til varnarmála. Verulega hefur dregið úr framlögum flestra ríkja frá því á dögum kalda stríðsins sem hefur bitnað á hernaðarlegri getu þeirra. Skýrt dæmi er að ríki Evrópubúa hafa mjög takmarkaða getu til að sinna her- flutningum í lofti sem takmarkar svig- rúm þeirra verulega. Á fundinum í Prag var lögð rík áhersla á að bandalagsríkin yrðu að verja auknu fé til varnarmála. Þar er ekkert ríki undanskilið. Jafnframt yrði að verja framlögunum með skilvirkari hætti þannig að þau nýttust sem best. Almennt hefur verið miðað við að framlög til varnarmála séu ekki lægri en sem nemur tveimur prósentum af landsframleiðslu. Sum ríki, t.d. Banda- ríkin, verja nú þegar mun hærra hlut- falli til varnarmála. Önnur mun minna. Ísland er í þeim hópi. Davíð Oddsson forsætisráðherra segir í samtali í Morgunblaðinu í gær að Íslendingar vilji eins og aðrar þjóðir styrkja bæði bandalagið og sjálfa sig innan bandalagsins með því að heita auknum framlögum. Ísland hefur nú skuldbundið sig til að verja allt að 300 milljónum króna til þess að leigja vélar undir herflutninga á vegum Atlants- hafsbandalagsins ef til aðgerða kemur á vegum NATO. Einnig hefur ríkis- stjórn Íslands samþykkt að flýta upp- byggingu Íslensku friðargæslunnar og gæti kostnaður við hana orðið allt að hálfur milljarður árið 2006. Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra minnir í samtali í Morgunblaðinu í dag á að Ís- lendingar hafi nýlega tekið við flug- umferðarstjórn í Pristina í Kosovo. „Við getum því reiknað með að leitað verði til okkar í vaxandi mæli. Við þurf- um að geta brugðist við því og það mun kosta peninga,“ segir utanríkisráð- herra. Það er sjálfsagt og eðlilegt að Ísland axli auknar byrðar í þessu samstarfi. Við njótum góðs af því öryggi sem NATO tryggir ekki síður en aðrar þjóðir og getum ekki ætlast til að vera laus allra mála þegar kemur að því að kosta starfsemi NATO. Ef miðað væri við að framlag Íslands næmi tveimur prósentum af landsfram- leiðslu væri það um fimmtán milljarðar á ári. Jafnvel þótt við miðum við þær þjóðir er leggja hvað minnst af mörk- um ætti eðlilegt framlag til varnarmála að vera um tíu milljarðar árlega. Fram- lag okkar getur því síst talist of hátt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.