Morgunblaðið - 23.11.2002, Page 47

Morgunblaðið - 23.11.2002, Page 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 47 ✝ Guðjóna Sigríð-ur Sumarliða- dóttir fæddist í Bol- ungarvík 7. október 1927. Hún andaðist á sjúkradeild Heil- brigðisstofnunarinn- ar í Bolungarvík 16. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru þau María Friðgerður Bjarna- dóttir og Sumarliði Guðmundsson sem bæði eru látin en þau bjuggu allan sinn búskap í Bol- ungarvík fyrir utan fjögur ár sem þau bjuggu í Skálavík en þaðan fluttu þau aftur til Bolung- arvíkur. Börn Maríu og Sumar- liða voru átta og var Guðjóna hið fimmta í röð systkinanna en þau eru: Bjarni, látinn, Magnús, Elín, Björg, Kjartan, Rú- rik og Kristján. Einnig sonur Sum- arliða og fyrri konu hans, Pétur, sem er látinn. Guðjóna bjó allan sinn aldur í Bolung- arvík utan skamms tíma sem hún dvaldi í Reykjavík og á Víf- ilsstöðum. Synir Guðjónu eru: Sumarliði Birk- ir Andrésson og Bjarni Kristjánsson og barna- börnin eru þrjú og barnabarna- börnin tvö. Guðjóna verður jarðsungin frá Hólskirkju í Bolungarvík í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Frænka mín, Guðjóna Sumarliða- dóttir, er jarðsett í dag í kirkjugarð- inum í Bolungarvík. Í Bolungarvík ól hún líka nær allan sinn aldur. Þessarar frænku minnar minnist ég með mikilli hlýju og stolti. Stolti yfir að hafa þekkt svona ekta mann- eskju eins og hún var. Hlýju vegna þess að hún var alltaf svo góð við mig og bar hag minn fyrir brjósti. Við bjuggum á Ísafirði en amma, Guðjóna og Bjarni sonur hennar bjuggu saman í Bolungarvík. Mér eru minnisstæðar allar ferðirnar sem við fórum á sunnudögum út í Vik að heimsækja systur pabba og ömmu. Allavega veður voru á leið- inni og þessi bratta brekka sem var kölluð Haldið og er nú löngu horfin. Guðjóna og amma bjuggu í gamalli verbúð sem var eitt herbergi, svefn- loft og búr. Í búrinu var alltaf nóg súrmeti í tunnu, á loftinu alltaf nægilegt svefnpláss fyrir alla og í eldhúsinu alltaf þessi mikla hlýja. Hlýja bæði vegna eldavélarinnar sem kynt var með kolum svo logaði glatt og vegna þeirrar mannlegu hlýju sem er svo sjaldgæf í dag. Það er víst ábyggilegt að hlýjan í húsum samtímans er ekki alltaf í takt við stærð þeirra og rýmið fyrir gesti enn síður. Í eldhúsinu var iðulega hlegið dátt og rædd hin ýmsu mál- efni hversdagsins oftar en ekki póli- tík eða bækur. Lestur bóka var mikið stundaður á þessu heimili. Hún frænka mín bjó ekki við mik- inn veraldlegan auð og heldur lélegt heilsufar. Oft var ekki mikla glætu að sjá. Lundin gat verið dyntótt og dimm en það var samt alltaf eitt- hvað hressandi við hana. Hún kom alltaf til dyranna eins og hún var klædd. Maður vissi alltaf nákvæm- lega hvar maður hafði hana. Því miður eiginleiki sem verður æ sjald- gæfari. Aldrei í eitt einasta skipti leiddist mér í heimsókn hjá Gauju frænku eins og hún var kölluð. Hún fylgdist vel með stórfjölskyldunni, mönnum og málefnum og sá oftar en ekki spaugilegu hliðina á lífinu. Þrátt fyrir hávaðasamt spjall og óvægið fann maður alltaf hlýjuna frá henni. Ég vildi oft óska að það væru fleiri Gaujur á Íslandi þá væru kannski hreinskiptnari samskipti, meiri skörungsskapur og hlýja. Hún var íslensk alþýðukona sem vann í fiski, átti ekki á kost á að mennta sig en mikill lestrarhestur. Einstæð móðir sem lét annan drenginn sinn frá sér á unga aldri er hún sjálf fékk berkla. Ferðaðist lítið, átti aldrei bíl, talaði um verka- lýðsmál af eldmóði og reykti heil ósköp. Ég get samt ekki hugsað um hana sem þröngsýna konu heldur konu sem fylgdist vel með öllu og hafði skoðanir á öllu. Hún var jafn- víg að tala við mig hvort sem ég var unglingur eða fullorðin kona, hún var að sumu leyti svo frjálslynd. Þegar ég hugsa til baka þá man ég ekkert hvernig var inni hjá henni því hún fyllti út í íbúðina með per- sónuleika sínum sem var sterkur. Í dag er oft eins og í sumum húsum sé ekkert nema drasl jafnvel þótt greitt hafi verið með miklum fjár- fúlgum fyrir það og fólkið sem í þeim býr bara kusk í einu horninu. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst svona konu og að hafa átt frænku sem var fyrst og fremst manneskja með öllum sínum kost- um og göllum, óhrædd að vera hún sjálf. Hún hefur líklega verið hvíld- inni fegin eftir erfið veikindi síðustu ár. Fyrir hönd systra minna og fjöl- skyldna okkar votta ég Birki, Bjarna, Guðfinnu og börnum þeirra samúð okkar. María Rúriksdóttir. Guðjóna Sigríður var föðursystir mín og dvaldi um skeið á unglings- árum sínum á heimili foreldra okkar í Fljótshlíðinni – og hjálpaði til við að halda í hemilinn á okkur bræðr- unum, sem þá vorum liðlega farnir að klæða okkur hjálparlaust. Hún hvarf svo aftur heim í Bolungarvík- ina og það var ekki fyrr en löngu seinna að þráðurinn tengdist að nýju. Guðrún Gísladóttir og við systkinin erum Guðjónu þakklát fyrir vinsemd hennar og hlýjan hug og sendum innilegar samúðarkveðj- ur til sona hennar og fjölskyldna þeirra og til allra vina hennar og ættingja. Gísli Ólafur Pétursson. GUÐJÓNA SIGRÍÐUR SUMARLIÐADÓTTIR ✝ Filippus Sigurðs-son, Brekkuvegi 3 á Seyðisfirði, fæddist í Brúnuvík í Borgarfjarðar- hreppi 16. nóvember 1912. Hann lést á sjúkrahúsi Seyðis- fjarðar 17. nóvem- ber síðastliðinn. For- eldrar hans voru Jón Sigurður Filippus- son bóndi í Brúnu- vík, f. 27.6. 1882 í Kálfafellskoti í V- Skaftafellssýslu, d. 1.6. 1951, og Lukka Árnína Sigurðardóttir, f. 18.12. 1888 í Húsavík í Borgarfjarðar- hreppi, d. 27.11. 1968. Hinn 28. maí 1945 kvæntist Fil- ippus Ólínu Jónsdóttur, f. 6. júní 1914 í Geitavík í Borgarfirði, d. 21. mars 1995. Börn þeirra eru: 1) Jón Sigurður, f. 1942, bóndi í Dvergasteini á Seyðisfirði, kona hans er Soffía Margrét Ívarsdótt- ir, f. 1950. Börn þeirra eru: Jörgen íasson, f. 1951. Börn þeirra eru: Helga, f. 1976, sambýlismaður Þorvaldur Skúli Pálsson, f. 1979, og Harpa, f. 1979, og er hennar sambýlismaður Hjörleifur Waag- fjörð. 7) Ragnhildur, f. 1956, starfsmaður hjá RKÍ Akureyrar- deild. Börn hennar og fyrrverandi sambýlismanns, Sigtryggs Gísla- sonar, f. 1956 eru: Telma, f. 1975, búsett í London, maki Kjartan Örn Sigurðsson og eiga þau eina dótt- ur; Kjartan, f. 1979; Sigurður Kristinn, f. 1984; og Guðborg Björk, f. 1990. Filippus ólst upp í Brúnuvík í Borgarfjarðarhreppi og bjó hann þar til 27 ára aldurs. Í Brúnuvík stundaði hann búskap og sjósókn. Árið 1939 flyst hann að Dverga- steini í Seyðisfirði og stundaði bú- skap þar til ársins 1967, en þá flyst hann að Brekkuvegi 3 á Seyðis- firði. Bjó hann þar til dauðadags. Fljótlega eftir að Filippus flyst í Dvergastein fer hann að selja mjólk í Seyðisfjarðarkaupstað. Árið 1953 opnar hann verslun á Seyðisfirði og stundaði hann verslunarrekstur þar nær óslitið í 45 ár, lengst af í Breiðabliki. Útför Filippusar fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Ívar, f. 1975; Filippus, f. 1977, sambýliskona hans er Arna Stefáns- dóttir; Tinna, f. 1979; Stefán Ólafur, f. 1982; Silja, f. 1983; Margrét, f. 1986; Haukur Ingi, f. 1988; Þórunn, f. 1991; og Ólína, f. 1993. 2) Geirlaug Gunnfríður, f. 1943, búsett á Egilsstöðum. 3) Andrés Þór, f. 1945, rannsóknarmaður hjá SR-mjöli hf. á Seyðis- firði. Maki hans var Þóra Ívarsdóttir, f. 1947, þau skildu. Börn þeirra eru: Halldóra, f. 1966, maki Gauti Hall- dórsson, f. 1963, og eiga þau þrjá syni; Þórarinn, f. 1968; Ívar, f. 1975; og Freyr, f. 1976, og er sam- býliskona hans Lilja Finnboga- dóttir. 4) Magnús Grétar, f. 1950, búsettur á Seyðisfirði. 5) Stefán Mar, f. 1950, búsettur á Seyðis- firði. 6) Sunneva, f. 1953 sérkenn- ari í Reykjavík, maki Torfi Matth- Það kom mér ekki á óvart er ég frétti lát Filippusar frænda míns. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að eiga stund með hon- um í sumar, hann brosti, gerði að gamni sínu eins og í gamla daga, þannig man ég hann best. Hann var einn af mínum uppáhaldsfrændum. Hann var sáttur við lífið er hann kvaddi þennan heim, hann þráði það heitast að fá að sofna í rúminu sínu heima. Það fékk hann þó ekki upp- fyllt, hann fékk hægt andlát á sjúkrahúsinu við góða umönnun þar, daginn eftir að hann varð níutíu ára. Er ég lít til baka sé ég þennan heiðursmann í huganum, gangandi upp brekkuna í fjós, akandi á gamla Willys-jeppanum, puðandi í hey- vinnu og á stað sem við unnum mikið saman, í verslun hans Dvergasteini, á síldarárunum. Það er ógleyman- legt. Þar var nú oft glatt á hjalla, mikið að gera og unnið á meðan stætt var. Þú varst hetja í alla staði. Það var dásamlegt að sjá hvað þú hugsaðir vel um „drengina“ þína og hana Geiru. Það er mikill kross að bera að eiga þrjú vangefin börn, það getur enginn sett sig í þau spor nema sá sem gengur þau. Kæru frændsystkin og allir að- standendur og vinir, Guð veri með ykkur á sorgarstund, ég hugsa til ykkar frá fjarlægum slóðum. Kæri frændi, hafðu þökk fyrir allt. Heiða Árnadóttir, Lúxemborg. FILIPPUS SIGURÐSSON ✝ Kristrún BjarnarArnfinnsdóttir fæddist á Hafranesi við Reyðafjörð 31. mars 1934. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsinu í Neskaup- stað 13. nóvember síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru hjón- in Arnfinnur Anton- íusson, f. 6. október 1883, d. 21. júní 1976, og Aldís Jór- unn Guðnadóttir, f. 25. janúar 1899, d. 1. júní 1977. Systkini Kristrúnar voru: Sigurður, f. 6. apríl 1929; Guðrún Kristín, f. 18. nóvember 1930, d. 2. júlí 1966; Anton Bjarnar, f. 20. apríl 1932; Hjörtur, f. 5. nóvember 1936; Sal- gerður, f. 11. október 1937; og Hjördís, f. 5. mars 1943. Einnig átti hún hálfbróður, Þórð Arnfinnsson, maí 1962, d. 16. maí 1962. 3) Arn- finnur, f. 27. mars 1964, kona hans er Elízabet Guðný Tómasdóttir, þau eru búsett í Reykjavík og eiga tvo syni, fyrir á hann eina dóttur. 4) Sigurður Vilmundur, f. 29. októ- ber 1970, d. 26. júní 1976. 5) Krist- ján Rúnar, f. 19. september 1975, kona hans er Guðbjörg Lára Ingi- marsdóttir, þau eru búsett á Dal- vík og eiga þrjá syni. Fyrir átti Kristján Vilmundarson eina dótt- ur, Unni Dagmar, f. 12 maí 1959, og á hún þrjár dætur og tvö barna- börn. Kristrún lauk námi frá Hús- mæðraskólanum á Löngumýri í Skagafirði 1955. Fyrst eftir nám starfaði hún sem ráðskona, síðar við ræstingar, í fiskvinnslu, en lengst af starfaði hún við umönnun aldraðra bæði á elliheimilinu Bjargi og á FSN. Hún tók þátt í fé- lagsstörfum og var virk í Sjálfs- björgu, kvenfélaginu Nönnu og kvennadeild Slysavarnafélagsins. Kristrún bjó mestan hluta ævi sinnar í Neskaupstað. Útför Kristrúnar verður gerð frá Norðfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. f. 14. apríl 1914, d. 13. desember 1966. Kristrún giftist 2. júní 1962 Kristjáni Vilmundarsyni, f. 8. desember 1938. Hann er sonur Vilmundar Guðbrandssonar, f. 4. júní 1913, d. 25. apríl 1981 í Neskaupstað, og Sigríðar Jónu Kristjánsdóttur, f. 1. desember 1917, d. 13. desember 1980. Fyrir hjónaband átti Kristrún son, Jón Má Jónsson, f. 1. febr- úar 1957. Kona hans er Anna Þóra Árnadóttir. Þau eru búsett í Nes- kaupstað og eiga tvö börn. Börn Kristrúnar og Kristjáns eru: 1) Örn Rósmann, f. 23. júní 1961, kona hans er Þóra Lilja, þau eru búsett í Neskaupstað og eiga fjögur börn. 2) Óskírð stúlka, f. 13. Það var fyrir rétt tæpu ári að GSM-síminn minn hringdi, en ég var stödd niðri í miðbæ Reykjavíkur á sunnudegi um miðjan desember og eitthvað að huga að komandi jólum í nýju umhverfi. En í símanum var góð vinkona mín að austan að láta mig vita að hún væri komin suður og lægi inni á Landspítala í rannsóknum vegna veikinda í höfði. Ég fór beint upp á sjúkrahús og hitti þau þar fyrir hjónin Diddu og Stjána, og þá var mér tjáð að hún væri með æxli við heilann og væri að fara í uppskurð al- veg á næstu dögum. Didda var mjög bjartsýn og vongóð og var alveg viss um að þetta væri nú ekki svo alvar- legt, eins og síðar kom í ljós, en í von- ina hélt hún og barðist hetjulega í þeirri von að hún fengi kannski eitt til tvö ár og gæti séð litlu barnabörn- in vaxa og dafna, en sú von varð að engu er hún lést úr þessum skæða sjúkdómi sem krabbamein er. Kynni okkar hófust fyrir tæpum 40 árum, er við bjuggum í nágrenni hvor við aðra og börnin okkar urðu leikfélagar og skólafélagar, og hefur síðan haldist vinskapur milli okkar alla tíð og við stutt hvor aðra í áföll- um lífsins, sem við höfum ekki verið laus við frekar en margur annar. Þau hjón urðu fyrir því að missa tvö börn sín, stúlku fædda 1962 nýfædda og dreng fæddan 1970, d. 1976, en hann var mjög mikið fatlaður, og þess vegna flutti fjölskyldan suður í Kópa- vog svo hann fengi allra bestu þjón- ustu sem bauðst á þeim tíma. Hug- urinn var mikið fyrir austan, og komu þau austur sumarið 1975 og voru í kjallaranum hjá okkur í nokkr- ar vikur, en þá gekk hún með yngsta son þeirra, sem var held ég auga- steinn allrar fjölskyldunnar. Eftir að drengurinn þeirra dó fluttu þau aftur austur á Neskaupstað. Hin síðustu ár hafa þau hjónin ferðast mikið á sumr- in í húsbíl sem þau eignuðust fyrir nokkrum árum, og var Didda farin að hugsa til þess að hætta að vinna til að geta verið í fríi þegar Stjáni ætti frí. Lengi vonaðist hún til þess að geta farið í ferð út í náttúruna í sumar, en sjúkdómurinn ágerðist það hratt að lítið varð úr ferðalögum. Elsku Didda mín, ég vil þakka fyr- ir öll árin sem við áttum saman, hvort sem var í fríum eða vinnu, og jafnt í blíðu sem stríðu. Elsku Stjáni, Jón Már, Öddi, Arnfinnur, Kristján og fjölskyldur, Guð veri með ykkur og styrki á þessum erfiðu tímum. En munið að þið og fjölskyldur ykkar voruð henni allt, og átti hún ekki orð til að lýsa því hversu góðar tengda- dætur hún ætti, þegar ég var hjá henni í sumar. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Kær kveðja frá mér og fjölskyldu minni. Rósa Skarphéðinsdóttir. KRISTRÚN ARNFINNSDÓTTIR Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.