Morgunblaðið - 23.11.2002, Side 51

Morgunblaðið - 23.11.2002, Side 51
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 51 ✝ Jónas Hallgríms-son fæddist á Dalvík 14. nóv. 1912. Hann lést í Dalbæ, dvalarheimili aldr- aðra á Dalvík, 12. nóvember síðastlið- inn. Hann var næst- elstur átta barna þeirra hjóna Hall- gríms Gíslasonar og Hansínu Jónsdóttur frá Bjarnarstöðum á Dalvík. Systkini Jónasar eru: Stefán, á Hrafn- istu í Hafnarfirði; Gísli, látinn, bjó á Selfossi; Guð- rún, í Dalbæ á Dalvík; Kristinn, á Eskifirði; Guðlaug, á Svertingsstöðum í Eyjafjarðarsveit; Rósa, í Flórída, og Maríanna, látin, bjó í Kópavogi. Jónas var ókvænt- ur og barnlaus og bjó alla tíð á Bjarn- arstöðum þar til hann fyrir um það bil sex árum fluttist á Dalbæ, dvalar- heimili aldraðra á Dalvík. Útför Jónasar verður gerð frá Dal- víkurkirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13.30. „Um héraðsbrest ei getur þó hrökkvi sprek í tvennt“. Svo kvað Guðmundur frá Sandi um ekkjuna sína við ána og þegar sprekin eru komin með níutíu ár á herðar eru þau oftast orðin nokkuð stökk. Mér brá satt að segja ekkert við, þegar mér var tilkynnt að Jónas frændi minn væri látinn, heilsufari hans undanfarna mánuði hafði verið þannig háttað að andlátsfregnin kom ekki á óvart og þó að við ætt- ingjarnir séum með söknuð í hjarta vegna fráfalls frænda og góðs vinar, finnum við einnig til gleði yfir að lífsstríði manns sem orðinn var saddur lífdaga sé nú lokið. Lífs- klukka Jónasar í Bjarnarstöðum stoppaði vegna þess að fjöðrin var útgengin, hún var búin að ganga í hart nær sjöhundruð áttatíu og áttaþúsund og fimmhundruð klukkustundir. En við skulum halda í þessa fjöður, hún geymir minn- ingar. Minningar um ljúfan og heið- arlegan mann, sem lifði og starfaði í kyrrþey og án fyrirferðar. Ég man hve ég í æsku leit upp til hans og reyndar móðurbræðra minna allra, mér fannst þeir vera þvílíkir visku- brunnar að hvergi fyrirfyndust aðr- ir slíkir, Jónas og Kristinn vissu allt um skip og báta og þeir Stefán og Gísli vissu allt annað sem vita þurfti. Þá munu ekki gleymast kvöldin þegar söngsveitin var í essinu sínu, en þeir bræður og einnig Hallgrím- ur afi voru allir skínandi söngmenn og sungu með ýmsum kórum víða um land eftir búsetu, og þegar svo vildi til að tveir þeirra eða fleiri voru saman komnir heima í Bjarnarstöð- um var lagið tekið af innlifun og allt- af sungið raddað. Barnsskónum sleit Jónas ekki nema að litlu leyti í foreldrahúsum, því hann var nokkur ár í fóstri hjá frændfólki sínu að Ytra-Garðshorni í Svarfaðardal og má segja að æ síð- an hafi bóndinn blundað í honum þó að sjómennskan yrði hans ævistarf, sem hófst fyrir alvöru í desember 1938. Þá keyptu þeir bræður Stefán og Jónas ásamt Hallgrími föður þeirra vélbátinn Þórólf og gerðu hann út í þrjú ár, seldu hann og keyptu annan er þeir nefndu Erling og gerðu hann einnig út í þrjú ár. Seldu hann þá og lauk þar með sam- eignarútgerð þeirra feðga. Síðan gerist það árið 1946 eða 7 að Jónas gekk í félag við nokkra Dalvíkinga, sem stofnuðu Útgerðarfélagið Röð- ul, sem starfaði á þriðja áratug, og átti félagið á þessu tímabili þrjá báta hvern á fætur öðrum sem allir hétu Bjarmi. Jónas mun að vísu að- eins hafa róið á tveim fyrstu bát- unum en hætt til sjós um það bil sem síðasti báturinn var keyptur. Síðustu starfsárin vann hann með sínum fyrri félögum við fiskverkun og hafði lítilsháttar fjárbúskap sem tómstundagaman, en hann hafði alla tíð mjög gaman af að sýsla við sauðfé og var afar fjárglöggur. Það mun því hafa verið honum nokkurt áfall þegar niðurskurður á sauðfé var fyrirskipaður vegna riðuveiki sem erfitt hefur reynst að uppræta í héraðinu. Á níunda áratugnum fór hann að finna fyrir hjartakvilla sem ágerðist nokkuð hratt og hafði mikil áhrif á heilsu og ekki síst hugarfar hans. Þegar svo var komið og ljóst var að umönnun Guðrúnar systur hans, sem hafði hugsað af alúð um hann í nokkur ár, dygði ekki til, var farið að ýja að því að hann fengi inni á Dalbæ, en sjálfur var hann lengi vel ekki tilbúinn til að samþykkja þau vistaskipti, þó svo færi að lok- um og vafalaust hefur hann fundið eftir á að þetta var honum fyrir bestu. Lífshlaup Jónasar frænda míns var ekki hávaðasamt, hann sló ekki um sig né barst á og síðustu árin dró hann sig inn í skel sem sjaldan opnaðist. Morguninn sem mér barst andlátsfregnin var fagurt veður hér á höfuðborgarsvæðinu, blankalogn og sólin fór allan dagbogann án þess að skugga bæri á, vafalaust tilvalið ferðaveður fyrir þá sem eru að hafa endanleg vistaskipti. Og þegar ég tók eftir litlum skýhnoðra rétt yfir Skarðsheiðinni, fannst mér vera ein- hver samlíking með þessum ský- hnoðra, sem varla sást á himninum, og nýlátnum frænda mínum, sem vildi sem minnst láta fyrir sér fara. Kannski hafði honum verið fenginn þessi farkostur til sinnar hinstu far- ar. Að endingu vil ég þakka innilega stjórn og starfsfólki Dalbæjar fyrir umönnunina þessi ár sem Jónas var undir þeirra handarjaðri. Guð blessi minningu Jónasar í Bjarnarstöðum. Stefán Sigurðsson. JÓNAS HALLGRÍMSSON ✝ GuðmundurGíslason fæddist í Bjarnarhöfn í Helgafellssveit 9. október 1913. Hann lést á Sjúkrahúsinu í Stykkishólmi 26. september síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Gísli Guð- mundsson, f. á Slit- vindastöðum í Stað- arsveit á Snæfellsnesi, og kona hans, Guðrún Sigurrós Magnús- dóttir, f. í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu. Hún var ekkja eftir Gísla Guðlaugsson Árið 1926 flytja þau Guðrún og Gísli að Örlygsstöðum og búa þar næstu 11 árin en flytja þá að Kárs- stöðum í sömu sveit og búa þar til æviloka ásamt sonum sínum. Guðmundur giftist Harriet Jó- hannesdóttur frá Þýskalandi, sem áður hafði eignast son, Jóhannes Ásbjarnarson, sambýliskona Lára Sigurðardóttir, þau eiga eina dóttur og búa á Akureyri. Harriet og Guðmundur eiga tvö börn: Gunnar Helga búsettan í Kópa- vogi, hann á þrjú börn og eitt barnabarn, og Margréti Guðrúnu Sigurrósu. Hún er búsett á Kárs- stöðum. Fyrir utan að stunda öll almenn sveitastörf fór Guðmundur og vann í Ullarverksmiðjunni á Ála- fossi. Einnig reri hann nokkrar vertíðir frá Grindavík. Útför Guð- mundar var gerð frá Narfeyrar- kirkju á Skógarströnd 12. októ- ber. bónda í Koti, nú Sunnuhlíð í Víðidal. Þau Gísli eignuðust tvö börn, þau eru: a) Sigríður Helga, mað- ur hennar var Guð- mundur Ari Gíslason. Þau eru bæði látin. Þau eignuðust 14 börn. b) Þorsteinn Björn. Kona hans var Ólína Benediktsdótt- ir. Þau eru bæði látin, en áttu þrjú börn. Guðrún og Gísli, seinni maður hennar, eignuðust tvo syni, Gísla, sem einn lifir systkini sín, f. 1911 og Guðmund. Guðmundur var alveg einstakur maður. Ég kynntist honum ekki mikið fyrstu árin sem ég átti heima í Hólminum, en þeim mun betur á seinni árum hans og sérstaklega eftir að hann kom á spítalann í Stykkishólmi. Þangað heimsótti ég hann margoft og alltaf fór ég fróð- ari og ánægðari frá honum. Ég veitti því fljótt athygli hve minn- ugur hann var, hafði lesið mikið um dagana og geymdi það í traustu minni. Þar var líka gamla gestrisn- in til staðar. Hann vildi alltaf að ég fengi mér hressingu með sér og áréttaði það við þjónustustúlkurn- ar. Hann dvaldi 7 ár á sjúkrahús- inu. Guðmundur gerði ekki víðreist um dagana. Aldrei fór hann til út- landa, lét sér nægja landið og þann blett sem hann bjó á og Suður- landið. En hann fylgdist þeim mun betur með útvarpinu og þar nýtti hann sér þann fjársjóð sem lands- mönnum var boðinn og festi það vel í minni. Bækurnar las hann fram á síðustu daga og fylgdist með framþróun og tækninni hvernig hún óx með hverju árinu sem leið. Skapið var alltaf gott og þakklætið fyrir komuna gleymdist aldrei. Ég á hans hlýja handtak í minningunni og æðruleysi og þakkir hans til Drottins fyrir góða handleiðslu. Ég á honum margt upp að unna. Guð blessi hann og varðveiti. Langri, farsælli og góðri ævi er lokið. Inni- legar þakkir fyrir allt, góði vinur. Árni Helgason, Stykkishólmi. GUÐMUNDUR GÍSLASON Ástkær eiginkona mín og móðir, HEIÐRÚN SIGURDÍS SIGURÐARDÓTTIR, Sturluflöt, Fljótsdal, lést á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum að kvöldi miðvikudagsins 20. nóvem- ber. Útförin auglýst síðar. Sveinn Ingimarsson, Hjördís Sveinsdóttir, Hulda L. Hauksdóttir. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR, lést á dvalarheimilinu Hornbrekku, Ólafsfirði, þriðjudaginn 19. nóvember. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Anna Freyja Eðvarðsdóttir, Karl G. Þórleifsson, Magnús Þorsteinsson, Erla Bára Gunnarsdóttir, Björn Þorsteinsson, Silvia Kimworn, Eiríksína Þorsteinsdóttir, Bessi Skírnisson, ömmu- og langömmubörn. Ástkær eiginmaður minn, GUÐMUNDUR KRISTJÁN HERMANNSSON frá Súgandafirði, Lautasmára 3, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð fimmtu- daginn 21. nóvember. Útförin fer fram frá Digraneskirkju miðvikudag- inn 27. nóvember kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Blindrafélagið. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Kristjánsdóttir. Ástkær amma okkar, tengdamóðir og lang- amma, GUÐLAUG LALLA ERLENDSDÓTTIR, Stigahlíð 22, Reykjavík, lést fimmtudaginn 21. nóvember. Þórður Erlendsson, Pia Luoto, Guðlaug Erlendsdóttir, Vilhjálmur Wiium, María Dröfn Erlendsdóttir, Ásgeir Ingólfsson, Una Hlín Gunnarsdóttir og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARGRÉTAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði, áður til heimilis í Smáratúni 5, Selfossi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðis- stofnunar Suðurlands, Reykjalundar, Hjúkrunarheimilisins Áss í Hveragerði og hágæslu Landspítalans í Fossvogi. Ólöf Guðmundsdóttir, Kristján Gíslason, Helga Guðrún Guðmundsdóttir, Jón Gunnlaugsson, Helgi Guðmundsson, Susan Faull, Guðmundur Guðmundsson, Katrín Bjarnadóttir, Edda Guðmundsdóttir, Karl H. Hillers, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, dóttir og systir, ADDA TRYGGVADÓTTIR hjúkrunarfræðingur, frá Vopnafirði, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi miðvikudaginn 20. nóvember síðastliðinn. Aðalbjörn Björnsson, Tryggvi, Bjartur og Heiðar Aðalbjörnssynir, Heiðbjört Björnsdóttir, Tryggvi Gunnarsson, Þorgerður Tryggvadóttir, Hulda Tryggvadóttir, Gunnar Björn Tryggvason, Emma Tryggvadóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.