Morgunblaðið - 23.11.2002, Síða 61
Guðmund Hallvarðsson í 5. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins 22. og 23. nóv.
Stétt með stétt
gerir Sjálfstæðisflokkinn sterkari
Vélstjórasonurinn úr Laugarnesinu er réttnefndur fulltrúi launþega
í Sjálfstæðisflokknum. Hann starfaði um langt árabil við fiskvinnslu og
sjómennsku og var áratugum saman í forsvari fyrir Sjómannafélag
Reykjavíkur. Guðmundur sem er Breiðholtsbúi er löngu þekktur fyrir forystu
sína við uppbyggingu Hrafnistuheimilanna. Á þingi hefur Guðmundur staðið
vörð um hagsmuni farmanna og sjómanna og flutt frumvörp sem snerta
reykvískar fjölskyldur og afkomu þeirra.
Opið
Opið í dag frá kl. 10.
Símar 533 6006l7l8l9 • www.ghallvards.is • ghallvards@ghallvards.is
Skrifstofa stuðningsmanna
Guðmundar Hallvarðssonar
er að Ármúla 7
Ríkur
af reynsluSjálfstæðismenn í Reykjavík
þurfa sterkan málsvara allra stétta.
Líttu við
í kosningakaffi
í dag!
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 61
ÓÞARFI er að minna sjálfstæð-
isfólk í Reykjavík vegna prófkjörs-
ins á hversu mikilvægt það er að
Guðmundur Hallvarðsson alþing-
ismaður hljóti góða
kosningu – verði of-
arlega á framboðs-
listanum í öruggu
sæti. Guðmundur
hefur verið farsæll
maður í lífi og
starfi – vandaður,
réttsýnn og drengilegur. Lagt
mörgum framfaramálum gott lið
og átt frumkvæði í öðrum. Fáir á
Alþingi hafa komið jafn sterkt við
sögu í baráttunni fyrir betri kjör-
um og aðbúnaði aldraðra en Guð-
mundur. Áratugastörf hans í þágu
sjómannastéttarinnar eru lands-
kunn. Innan Sjálfstæðisflokksins
hefur hann þrotlaust, ásamt fleir-
um, barist fyrir sjónarmiðum
launafólks, í því felst m.a. styrkur
flokksins á vettvangi þjóðmála.
Guðmundur er ekki stjórn-
málamaður hávaða og sýnd-
armennsku – hann vinnur verk sín
vel og örugglega. Í hita barátt-
unnar verðum við sjálfstæðismenn
að tryggja örugga stöðu Guð-
mundar Hallvarðssonar á fram-
boðslista flokksins í næstu alþing-
iskosningum.
Farsæll maður
í lífi og starfi
Guðmundur H. Garðarsson, fyrrv. alþing-
ismaður, skrifar:
Klapparstíg 27, sími 552 2522
ÖMMUSTÓLL
Kr. 6.900.
INGVI Hrafn Óskarsson, formað-
ur Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna, er einn þeirra góðu manna
úr hópi ungra sjálfstæðismanna sem
nú bjóða sig fram í
prófkjöri sjálfstæð-
ismanna. Ég starfaði
með Ingva Hrafni
þegar hann var for-
maður Heimdallar,
frá 1998 til 1999. For-
mannstíð hans í
Heimdalli var einstaklega öflug og er
sérstök ástæða til að rifja upp tvennt,
frelsisvikuna og stofnun vefrits
Heimdallar, Frelsi.is. Þegar Ingvi
Hrafn var formaður héldu ungir sjálf-
stæðismenn í Reykjavík svokallaða
frelsisviku þar sem meðal annars var
vakin athygli á ofurtollum á matvæli,
ríkiseinokun á áfengisverslun og
skylduáskrift að ríkisreknum fjöl-
miðlum. Vakti átakið verðskuldaða
athygli enda furðulegt hvað margir
alþingismenn eru orðnir samdauna
úreltu landbúnaðarkerfi og núver-
andi fyrirkomulagi áfengisverslunar.
Í sömu viku opnaði Heimdallur vefrit
sitt, Frelsi.is, sem varð málgagn fé-
lagsins og hefur verið það æ síðan.
Ég held að orðin sem lýsi Ingva
Hrafni best séu frumkvæði og dugn-
aður, það var strax ljóst þegar hann
var formaður Heimdallar. Ingvi vinn-
ur nú af sama krafti með félögum sín-
um í starfi Sambands ungra sjálf-
stæðismanna. Þennan dugnaðarfork
þurfum við inn á þing.
Styðjum Ingva
Hrafn í prófkjörinu
Sigurður Kjartan Hilmarsson
hagfræðingur skrifar:
ÞAÐ er misjafnt verkefni sem al-
þingismenn fá að glíma við í störfum
sínum og getur þingferill þeirra og
framtíð sem þingmanna nokkuð ráð-
ist af því í hvaða
nefndum þeir sitja
og hvaða ábyrgð-
arstörfum þeim er
treyst fyrir. Láru
Margréti var strax i
upphafi sýnt mikið
traust þegar hún var
skipuð til starfa fyrir okkar hönd á
vettvangi alþjóðamála. Þar hefur
hún hlotið mikið lof fyrir störf sín,
einurð, heiðarleika og dugnað, enda
verið falin alls kyns trúnaðarstörf á
vegum Evrópuráðsins og fleiri er-
lendra stofnana. Lára Margrét er
ekki sú manngerð að leitast sífellt
við að vera í kastljósi fjölmiðlanna,
hún kýs frekar að vinna störf sín
með þeim hætti sem að ofan er lýst;
af kostgæfni og vandvirkni. Það er
mikill fengur og okkar gæfa að Lára
Margrét skuli gefa kost á sér til setu
á framboðslista Sjálfstæðisflokksins
fyrir næstu þingkosningar. Tryggj-
um því að þjóðin fái notið starfs-
krafta hennar í næstu framtíð, kjós-
um Láru Margréti í öruggt sæti.
Lára Margrét
Ingi Björn Albertsson skrifar:
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi
höfðað til þeirra sem telja að frelsi
einstaklingsins og framtak hans séu
lykillinn að velgengni þjóðarinnar
allrar. Guðrún Inga
Ingólfsdóttir hag-
fræðingur er ung
kona sem trúir á
þessi tímalausu gildi
og vill beita þeim í
pólitík til hagsbóta
fyrir alla. Hún vill
minnka útgjöld ríkisins og draga úr
gjaldtöku á almenning, en þar sem
hún er hagfræðingur gerir hún sér
líka ljóst að skyndilausnir eru ekki
leiðin til árangurs heldur þarf rúm-
an aðlögunartíma þegar miklar
breytingar eru gerðar. Þegar rætt
er við hana um skattamál dylst eng-
um að þar er hún á heimavelli.
Við þurfum konu eins og Guðrúnu
á þing, sem tekur yfirvegaðar
ákvarðanir eftir að hafa kynnt sér
málin ofan í kjölinn, og byggir þar á
reynslu sinni og þekkingu. Ég styð
því Guðrúnu Ingu í 9. sætið.
Guðrún Inga
í 9. sætið
Haukur Þór Hauksson, stjórnarmaður í
SUS, skrifar:
FRAMUNDAN er prófkjör. Mér
er rétt og skylt að hvetja alla Grafar-
vogsbúa til að styðja góðan vin minn
Guðlaug Þór Þórð-
arson í 6. sæti. Ég
hef starfað með hon-
um á undanförnum
árum og get fullyrt
að þar fer kröftugur
stjórnmálamaður
sem hikar ekki við að
fylgja eftir góðum málum. Þannig
menn vil ég sjá á Alþingi Íslendinga.
Styðjum
Guðlaug Þór
Snorri Hjaltason skrifar:
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111