Morgunblaðið - 23.11.2002, Blaðsíða 64
KIRKJUSTARF
64 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GOSPELMESSA verður í
Vídalínskirkju sunnudaginn 24.
nóv. kl. 20. Fram koma Jónsi, úr
hljómsveitinn Í svörtum fötum,
Ómar Guðjónsson æskulýðsleiðtogi
og gítarleikari og Erla Björg og
Rannveig Káradætur.
Við gospelmessuna þjónar sr.
Hans Markús Hafsteinsson. Ferm-
ingarbörn eru sérstaklega hvött til
að mæta vel og hafa „Litlu messu-
bókina“ meðferðis og færa inn í
hana á viðeigandi hátt.
Allir hjartanlega velkomnir eins
og alltaf. Mætum vel og gleðjumst
með Guði.
Prestarnir.
Kolaportsmessa
HELGIHALD þarfnast ekki hús-
næðis heldur lifandi fólks. Kirkja
Jesú Krists er ekki steypa, heldur
lifandi steinar, manneskjur af holdi
og blóði. Þess vegna er hægt að
fara út úr kirkjubyggingum með
helgihald og fagnaðarerindið og
mæta fólki í dagsins önn. Í tilefni
af því bjóðum við til guðsþjónustu í
Kolaportinu sunnudaginn 24. nóv-
ember kl.14.
Í síðasta mánuði heimsótti bisk-
up Íslands Karl Sigurbjörnsson
okkur heim í Kolaportinu. Í því
fólst uppörvun og gleði fyrir okkur
sem þykir svo vænt um helgihaldið
á þessu einstaka mannlífstorgi.
Á morgun mun Bjarni Karlsson
prestur í Laugarneskirkju predika
og þjóna ásamt Jónu Hrönn Bolla-
dóttur miðborgarpresti og Irmu
Sjöfn Óskarsdóttur, presti á Bisk-
upsstofu.
Þorvaldur Halldórsson leiðir lof-
gjörðina ásamt Margréti Scheving.
Áður en Kolaportsmessan hefst
kl.13.40 mun Þorvaldur Hall-
dórsson flytja þekktar dæg-
urperlur. Þá er hægt að leggja inn
fyrirbænarefni til þeirra sem þjóna
í messunni. Í lok stundarinnar
verður blessun með olíu, þar erum
við minnt á nálægð Guðs og að
Kolaportsmessurnar eru stundir
nálægðarinnar.
Guðsþjónustan fer fram í kaffi-
stofunni hennar Jónu í Kolaportinu
sem ber heitið Kaffi port, þar er
hægt að kaupa sér kaffi og dýr-
indis meðlæti og eiga gott sam-
félag við Guð og menn.
Það eru allir velkomnir. Mið-
borgarstarf KFUM&KFUK og
Kirkjunnar.
Minning látinna í
Laugarneskirkju
SUNNUDAGINN 24. nóvember
verður hin árvissa samvera í Laug-
arneskirkju sem ber heitið minn-
ing látinna. Þá eru nöfn þeirra sem
sóknarprestur hefur jarðsett á um-
liðnu ári lesin upp við altarið í
bæn. Syrgjendur kveikja ljós í
minningu ástvina sinna, sálmar eru
sungnir og Guðs orð íhugað. Að
þeirri stund lokinni býður söfn-
uðurinn upp á kaffiveitingar við
kertaljós í safnaðarheimilinu þar
sem sr. Bjarni Karlsson mun flytja
erindi um sorg og sorgarviðbrögð
og stýra umræðum.
Öllum syrgjendum er velkomið
að taka þátt, og vilji einhver fá
nafn látins ástvinar lesið við altarið
tekur sóknarprestur fúslega við
slíkum beiðnum inn á talhólf í síma
820 8865.
Kópavogskirkja
– Kópamessa
EINU sinni í mánuði eru messur í
Kópavogskirkju sem hlotið hafa
nafnið Kópamessur. Í þeim er lögð
áhersla á virka þátttöku kirkju-
gesta bæði í söng og öðrum þáttum
helgihaldsins. Tónlistin er með
öðrum og léttari blæ en jafnan er í
hefðbundnum guðsþjónustum.
Næsta Kópamessa verður sunnu-
daginn 24. nóvember kl. 20. Fé-
lagar úr kór kirkjunnar leiða safn-
aðarsöng en undirleik annast
Kristmundur Guðmundsson, sem
leikur á trommur og Julian Hewl-
ett, sem spilar á píanó.
Fermingarbörn taka virkan þátt
í Kópamessunni, bæði með því að
lesa ritningarlestra og leiða beinir.
Séra Ingþór Indriðason Ísfeld að-
stoðar við útdeilingu.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Léttmessa í
Grafarvogskirkju
LÉTTMESSA verður í Grafarvogs-
kirkju sunnudaginn 24. nóv. kl. 20.
Hörður Bragason, Birgir Braga-
son og Hjörleifur Valsson sjá um
hljóðfæraleik. Anna Sigríður
Helgadóttir söngkona leiðir söng.
Kaffi, djús og kleinur að lokinni at-
höfn.
Fræðslumorgunn
og messa í
Hallgrímskirkju
SUNNUDAGINN 24. nóv. verður
fræðslumorgunn kl. 10. Hörður Ás-
kelsson kantor flytur erindi með
tóndæmum um Jólaóoratoríu
Bachs, en 5., 6. og 7. des. verður
Jólaóratorían flutt í heild sinni.
Messa og barnastarf verður kl. 11.
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédik-
ar og þjónar fyrir altari ásamt sr.
Jóni Bjarman. Barnastarfið verður
í umsjá Magneu Sverrisdóttur
æskulýðsfulltrúa. Barna- og ung-
lingakór Hallgrímskirkju syngur
undir stjórn Bjarneyjar Ingibjarg-
ar Gunnlaugsdóttur.
Ensk messa verður kl. 14. Prest-
ur sr. Bjarni Þór Bjarnason. Org-
anisti verður Jón Bjarnason. Guð-
rún Finnbjarnardóttir mun leiða
almennan safnaðarsöng. Barna- og
unglingakór Grafarvogskirkju
syngur undir stjórn Oddnýjar J.
Þorsteinsdóttur. Messukaffi að at-
höfn lokinni. Á þessu ári hefur ver-
ið boðið upp á enska messu í Hall-
grímskirkju síðasta sunnudag
hvers mánaðar.
Mömmumorgnar
í Breiðholtskirkju
10 ára
10 ár eru liðin frá því að „mömmu-
morgnar“ hófu göngu sína í Breið-
holtskirkju. Við munum minnast
afmælisins í fjölskylduguðsþjón-
ustu sunnudaginn 24. nóvember kl.
11.
Í guðsþjónustunni mun yngri
barnakór kirkjunnar syngja undir
stjórn Sigrúnar M. Þórsteinsdóttur
organista og Kvennakór Reykja-
víkur syngur nokkur lög undir
stjórn Sigrúnar Þorgeirsdóttur og
við undirleik Þóru Fríðu Sæmunds-
dóttur. Eftir guðsþjónustuna verð-
ur boðið upp á léttar veitingar í
safnaðarheimilinu. Þeim for-
eldrum sem komið hafa með börn-
in sín á mömmumorgna er sér-
staklega boðið til þátttöku í
athöfninni.
Mömmurmorgnar eru alla föstu-
dagsmorgna frá kl. 10–12. Það er
margt sem við höfum tekið okkur
fyrir hendur í gegnum árin. Fengið
fyrirlesara til að fræða okkur um
ýmislegt sem viðkemur barnaupp-
eldi og um okkur sjálfar. Við höf-
um farið saman á námskeið bæði í
föndri og matargerð, auk þess sem
við föndrum oft fyrir jól og páska.
Einnig tökum við frá stund fyrir
okkur mæðurnar og förum saman
út að borða og í bíó. Einnig höfum
við farið í stuttar ferðir út fyrir
bæinn þegar fer að vora.
Vonumst til að sjá sem flesta í
fjölskylduguðsþjónustunni.
Eldri borgarar
í Seljakirkju
ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 26. nóv-
ember kl. 18 verður samvera fyrir
eldri borgara í Seljakirkju. Einar
Már Guðmundsson rithöfundur les
upp. Kirkjukór Seljakirkju syngur
undir stjórn Gróu Hreinsdóttur.
Samveran hefst á helgistund í
kirkjunni og lýkur á léttum máls-
verði um kl. 20. Vinsamlegast til-
kynnið þátttöku í síma 567-0110
eigi síðar en á hádegi á þriðjudag.
Verið velkomin.
Charles Indifone
í Krossinum
CHARLES Indifone er lækn-
ingapredikari frá Nígeríu. Hann
hefur predikað mikið á Norð-
urlöndunum og þó sérstaklega í
Danmörku. Fyrir u.þ.b. tveimur ár-
um braust út vakning í Danmörku
er lækningaundur gerðust á sam-
komum hjá honum. Fjölmiðlar
tóku málið upp og fjölmargir komu
á samkomur og leituðu Guðs.
Charles Indifone hefur verið á
ferð í Finnlandi, Svíþjóð og Dan-
mörku, en hefur viðkomu hér á leið
sinni vestur um haf.
Með honum í för er söngfólk og
tónlistarfólk.
Samkomurnar með Charles Indi-
fone verða á laugardagskvöldið kl.
20.30, á sunnudaginn kl. 16.30 og
þriðjudaginn kl. 20.30. Allir eru
velkomnir.
Tónleikar í
Aðventkirkjunni
LÍKNARFÉLAGIÐ Alfa heldur
tónleika í Aðventkirkjunni í dag,
laugardag, kl. 19.30. Þetta er liður
í jólasöfnun félagsins.
Gospelmessa í
Vídalínskirkju