Morgunblaðið - 23.11.2002, Síða 65

Morgunblaðið - 23.11.2002, Síða 65
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 65 HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa er 100 ára á þessu ári og verður af- mælisins minnst með hátíðarmessu nk. sunnudag kl. 13:30 og kaffi- samsæti í Þingborg að messu lok- inni. Ingi Heiðmar Jónsson, org- anisti og söngstjóri Hraungerðisprestakalls, hefur ásamt kór prestakallsins undirbúið vandaðan tónlistarflutning við messuna. M.a. kemur fram Strengjasveit Tónlistarskóla Árnesinga undir stjórn Maríu Weiss. Sóknarprest- urinn, sr. Kristinn Ágúst Friðfinns- son, þjónar fyrir altari og vígslu- biskup Skálholtsstiftis, sr. Sigurður Sigurðarson, prédikar, en hann þjónaði áður m.a. Hraun- gerðiskirkju. Á undan hafði faðir hans, dr. Sigurður Pálsson, síðar vígslubiskup, setið í Hraungerði áður en hann settist að á Selfossi. Eftir messuna munu sr. Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri KFUM og KFUK, og oddviti Hraungerð- ishrepps, Guðmundur Stefánsson, flytja ávörp. Sóknarbörn, fyrrum íbúar í Hraungerðisprestakalli og velunnarar Hraungerðis eru hvatt- ir til að mæta til kirkju og í kaffi- samsætið, sem Ungmennafélag Hraungerðishrepps annast, að messu lokinni. Fyrst er getið kirkju í Hraun- gerði í skrá Páls biskups frá um 1200 og hafa síðan fjölmargar kirkjur verið á staðnum. Núver- andi Hraungerðiskirkja var vígð 4. sunnudag í aðventu, 21. desember 1902, af sr. Valdimar Briem pró- fasti. Eiríkur Gíslason smiður frá Bitru í Hraungerðishreppi var ráð- inn til að smíða kirkjuna, gera að henni teikningar og semja áætlun um byggingu hennar. Kirkjunni hefur verið vel við haldið og var ytra byrði hennar endurnýjað, turn endurbyggður, sökklar steyptir, gert við grind og settir nýir gluggar í hana alla svo og hlífðarhurðir á árunum 1993–97 undir yfirumsjón Hjörleifs Stef- ánssonar arkitekts, en verkið unnu húsasmíðameistararnir Albert Sig- urjónsson á Sandbakka og Ólafur Sigurjónsson í Forsæti. Mjög greinargóða lýsingu á kirkjunni og munum hennar er að finna í nýút- kominni bók, Kirkjur Íslands, 2. bindi, sem Þjóðminjasafn Íslands, Húsafriðunarnefnd ríkisins og Biskupsstofa standa að. Hraungerði er áberandi kenni- leiti þegar ekið er austur Suður- landsveg frá Selfossi. Hraungerði er talið landnámsjörð, en þar bjó Hróðgeir bróðir Oddgeirs í Odd- geirshólum og síðar Þorvaldur Ís- leifsson, Skálholtsbiskup, Giss- urarsonar. Fyrrum var Hraungerði þingstaður. Í Hraun- gerði höfðu Skálholtsbiskupar forðum vöruskemmur sínar og oft hefur staðurinn reyndar tengst með einum eða öðrum hætti meg- instraumum í sögu kirkju, héraðs og þjóðar. Frá síðustu öld má m.a. nefna rannsóknir dr. Sigurðar Pálssonar í helgisiðafræði og þann þátt sem þær áttu í viðreisn hinnar sígildu messu og Hraungerð- ismótin sem voru undanfari hinna árlegu almennu móta KFUM og KFUK, en þau voru síðast haldin 1998. Hraungerði er nú aftur höf- uðkirkja, en í Hraungerði- sprestakalli eru, auk hennar, Laugardælakirkja og Vill- ingaholtskirkja. Hraungerðis- kirkja 100 ára C vítamín 400 mg með sólberjabragði Bragðgóðar tuggutöflur. Eflir varnir. Nýtt frá Biomega Fæst í apótekum Alltaf á þriðjudögum                                                                   !"#  $    % &            Hlaupahjól - um jólin Smáralind - Glæsibæ Simi 545 1550 og 545 1500 Jólatilbo›: 4.990 kr. Opi›: Smáralind mán. - föst. kl. 11-19 • lau. kl. 11-18 • sun. 13-18, Glæsibæ mán. - föst. kl. 10-18 • lau. kl. 10-16 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TS 1 94 42 11 /2 00 2 Stö›ugt og au›velt a› leggja saman. Úr stáli. Litir: svart, rautt og blátt. Fullt ver›: 5.990 kr. w w w .d es ig n. is © 20 02 - IT M 90 20 V. Fellsmúla • S. 588 7332 Opið: Mán. - föst. 9-18, Laugardag 10-14 F j ö l b r e y t t ú r va l h r e i n læ t i s tæk j a Belgískar og Ítalskar Miðstöð baðinnréttinga Innréttingarfyrir baðherbergi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.