Morgunblaðið - 23.11.2002, Side 71
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 71
BJÖRN Þorfinnsson sló tvær flug-
ur í einu höggi með sigri á Atskák-
móti Reykjavíkur 2002. Það er
óvenjulegt að menn vinni tvo titla á
sama mótinu, en
Björn hlaut titil-
inn atskák-
meistari
Reykjavíkur
2002 ásamt því
að verða atskák-
meistari Tafl-
félagsins Hellis.
Mótið var skipu-
lagt af Helli og
ákveðið var að
sameina þessi
tvö mót. Það er skynsamleg ákvörðun
þar sem mótadagskrá skákmanna er
æði þéttskipuð núorðið og erfitt að
finna góðan tíma fyrir skákmót.
Björn hlaut 6½ vinning af 7 mögu-
legum á mótinu. Hann gerði jafntefli
við Benedikt Jónasson í þriðju um-
ferð, en sigraði alla aðra andstæðinga
sína. Ingvar Jóhannesson, sem leiddi
mótið eftir fyrri hluta þess, varð í
öðru sæti með 5½ vinning. Lokastað-
an varð þessi:
1. Björn Þorfinnsson 6½ v.
2. Ingvar Þór Jóhannesson 5½ v.
3. Páll Þórarinsson 5 v.
4.–6. Benedikt Jónasson, Björn
Freyr Björnsson, Ingvar Ásmunds-
son 4½ v.
7.–8. Stefán Þór Sigurjónsson, Vig-
fús Ó. Vigfússon 4 v.
9.–10. Gunnar Nikulásson, Jón
Árni Halldórsson 3½ v.
11.–14. Atli Freyr Kristjánsson,
Sigurður Ingason, Björgvin Krist-
bergsson, Benedikt Egilsson 3 v.
15. Elsa María Þorfinnsdóttir 2½ v.
o.s.frv.
Skákstjóri var Vigfús Ó. Vigfússon.
Guðmundur Kjartansson hefur 4½
vinning að loknum 8 umferðum í
flokki 13–14 ára á heimsmeistaramóti
ungmenna sem fram fer í Heroklion á
Krít. Hann er í 28.–45. sæti, en kepp-
endur eru 105.
Dagur Arngrímsson hefur fengið
3½ vinning í flokki 15–16 ára. Hann er
í 56.–67. sæti, en keppendur í flokkn-
um eru 94.
Alls verða tefldar 11 umferðir, en
mótinu lýkur á sunnudag. Fararstjóri
er Sigurbjörn J. Björnsson.
Skákhátíð Guðmundar Arason-
ar og úrslit í Bikarkeppni ÍAV
Laugardaginn 23. nóvember fer
fram úrslitaleikur Reykjavíkurstór-
veldanna, TR og Hellis, í Bikarkeppni
ÍAV. Keppt verður í húsnæði Skák-
sambands Íslands í Faxafeni. Sjálf
hátíðin hefst kl. 16 og svo rekur hver
viðburðurinn annan. Sjálfur úrslita-
leikurinn hefst kl. 18:30. Meðal við-
burða eru unglingalandskeppni á
Netinu, fjöltefli, skák- og bridge-
keppni og Thule-skákmótið.
Strax að lokinni setningu hátíðar-
innar hefst fjöltefli Helga Ólafssonar
við börn og unglinga. Þátttaka er
ókeypis og öllum opin. Á sama tíma
hefst skákkeppni liðs ríkisstjórnar-
innar gegn stjórnarandstöðunni, en
sú keppni er á vegum Plúsferða.
Einnig bjóða Úr og djásn til keppni í
bridge og skák milli átta sterkra
keppnismanna á því sviði.
Bláalónsmótið hefst einnig upp úr
kl. 16, en það er landskeppni U-20
landsliða Íslands, Þýskalands, Frakk-
lands og Svíþjóðar á www.playchess.-
com.
Um kl. 18:30 hefst hápunktur há-
tíðarinnar, með því, að forstjóri ÍAV
leikur fyrsta leiknum í úrslitaleik Bik-
arkeppni ÍAV milli TR og Hellis. Þá
hefst einnig Thule Trophy-mótið á
http://www.playchess.com.
Klukan 20:30 verður verðlaunaaf-
hending og hátíðinni síðan slitið.
Íslandsmótið í netskák 2002
Íslandsmótið í netskák 2002, sem
fram fer sunnudaginn 24. nóvember,
er lokahluti Bikarsyrpu Halló. Opinn
flokkur er öllum opinn og hefst kl.
18:00. Þátttaka er ókeypis. Þeir sem
hafa áður teflt í syrpunni þurfa ekk-
ert að gera annað en að mæta fyrir kl.
18:00 á ICC. Aðrir þurfa að skrá sig á
Hellir.is (ofarlega til hægri).
Landsliðsflokkur hefst kl. 20:00 en
þar taka þátt þeir 20 skákmenn sem
best stóðu sig í bikarsyrpunni. Þátt-
takendur í landsliðsflokki:
1. Björn Þorfinnsson 48½ v.
2. Snorri G. Bergsson 43½ v.
3. Arnar E. Gunnarsson 42½ v.
4. Rúnar Sigurpálsson 42 v.
5. Arnar Þorsteinsson 38½ v.
6.–7. Davíð Ólafsson og Hrannar
Baldursson 38 v.
8.–10. Gunnar Björnsson, Gylfi
Þórhallsson og Magnús Magnússon
35½ v.
11. Jóhann H. Ragnarsson 34 v.
12. Sverrir Unnarsson 33 v.
13. Halldór Brynjar Halldórsson
32 v.
14.–15. Bragi Halldórsson og Davíð
Kjartansson 31 v.
16. Björn Ívar Karlsson 29½ v.
17. Sæberg Sigurðsson 28½ v.
18. Stefán Kristjánsson 28 v.
19. Tómas Veigar Sigurðarson 26 v.
20. Hrannar Björn Arnarss. 25½ v.
Að mótinu og syrpunni standa
Taflfélagið Hellir, Halló! og ICC.
Tefldar verða níu umferðir í báðum
mótunum. Umhugsunartími er fjórar
mínútur á skák auk þess sem tvær
viðbótarsekúndur bætast við eftir
hvern leik. Góð verðlaun eru í boði
Halló og ICC.
Björn Þorfinnsson
atskákmeistari
Reykjavíkur
SKÁK
Hellisheimilið
ATSKÁKMÓT REYKJAVÍKUR
11. til 18. nóv. 2002
Daði Örn Jónsson
Björn Þorfinnsson
dadi@vks.is
Myndabrengl
Röng mynd
birtist í Morgun-
blaðinu í gær
með grein eftir
Braga Krist-
jónsson bóka-
kaupmann. Með
greininni birtist
mynd af Páli
Braga Krist-
jónssyni, fram-
kvæmdastjóra
Eddu – útgáfu
hf. Eru hlutaðeigandi beðnir velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Rangnefni á Bjartmars-plötu
Þau leiðu mistök áttu sér stað í
plötudómi um nýja plötu Bjartmars
Guðlaugsonar að rangt var farið með
titil hennar. Platan heitir Vor, en
ekki Von eins og þar kemur fram.
Beðist er velvirðingar á þessum
rangfærslum.
Fyrirlestrar
um klausturlíf
Fyrirlestrar um klausturlíf verða
á Minjasafni Austurlands kl. 14 í dag
en ranglega var farið með þetta í
blaðinu í gær. Beðist er velvirðingar
á því.
LEIÐRÉTT
Bragi
Kristjónsson
úð og umhyggju. En þau þurfa einn-
ig meiri aga en gengur og gerist;
mikla atferlismótun og skilvirkan
aga. Þau verða að vita nákvæmlega
hvað má og hvað má
ekki. Það verður allt að
standa sem sagt er.
Með því að vinna jafnt
og þétt í þessu er hægt
að ná þeim árangri að
utanaðkomandi geri sér
ekki grein fyrir því að
einstaklingurinn eigi
við þennan vanda að
etja.“
Katrín segir að oft
þurfi lyfjameðferð, að
minnsta kosti fyrst eft-
ir að röskunin er greind
og börnin séu að ná
jafnvægi. Lyfjagjöfin
hjálpar þeim að halda
athyglinni og einbeita
sér í skólanum. Það er síðan ein-
staklingsbundið hve lengi þau nota
lyfin.
Börn með athyglisbrest eiga oft
erfitt með félagsfærni og hafa til-
hneigingu til að einangrast. Katrín
segir að þau geri oft lítinn grein-
armun á stríðni og árás, upplifi jafn-
vel að allur bekkurinn sé á móti
þeim. Þau bregðast því oft illa við.
Katrín tók ákveðið á þessu í sínu
tilviki.
„Við sendum bréf, í samvinnu við
skólahjúkrunarfræðing, til foreldra
annarra barna í bekknum og sögð-
um hvernig í málinu lá. Það gerði að
verkum að barnið var velkomið á
NÆR 800 fjölskyldur eru í For-
eldrafélagi misþroska barna. Yfir-
leitt vegna þess að eitt barn eða
fleiri í fjölskyldunni búa við mis-
þroska, sem oftast er
athyglisbrestur með
eða án ofvirkni. Þessi
röskun hrjáir 3–6%
barna í hverjum ár-
gangi og hefur marg-
vísleg áhrif á líf þeirra
og líðan. Foreldra-
félagið hefur starfað í
14 ár og staðið fyrir
fræðslufyrirlestrum,
námskeiðum, styrkt
útgáfu fræðslubóka og
eins rekur það bóka-
safn. Nú er unnið að
stofnun þjónustumið-
stöðvar.
Katrín Eyjólfsdóttir
á tvö börn sem greinst
hafa með athyglisbrest með ofvirkni.
Hvernig lýsir þessi röskun sér?
„Athyglisbrestur, með eða án of-
virkni, stafar af truflun boðefna í
miðtaugakerfi. Röskunin lýsir sér
m.a. í einbeitingarskorti og skipu-
lagsleysi. Þeir sem hafa röskunina
gleyma hlutum og týna þeim, börnin
ná ekki því sem kennarinn segir því
hugurinn er floginn eitthvað annað.
Einbeitingin er svo takmörkuð.
Þessir einstaklingar eru oft mjög vel
gefnir, en þyrftu helst einkakennslu
til að ná góðum árangri í námi.“
Hvernig fara foreldrar þessara
barna að í daglegu lífi?
„Þessi börn þurfa mikla blíðu, ást-
önnur heimili og bekkurinn skildi
betur vanda þess. Það varð því ekki
útundan og ef eitthvað bar út af þá
var því líka tekið af meiri skilningi.“
Þjónustumiðstöð
í undirbúningi
Innan Foreldrafélags misþroska
barna eru starfandi stuðningshópar
fyrir foreldra, börn og fullorðna ein-
staklinga með athyglisbrest með eða
án ofvirkni.
„Í stuðningshópum foreldra getur
fólk talað um vanda sinn, bæði sín á
milli og við fagaðila. Fólk kynnist í
þessum hópum og þar myndast oft
vináttutengsl. Það er ómetanlegt að
geta talað um reynslu sína við aðra
foreldra. Þegar barnið manns grein-
ist með þessa röskun er það áfall og
maður gengur í gegnum ákveðið
sorgarferli.“
Einnig eru haldin fræðslunám-
skeið á vegum Eirðar þar sem for-
eldrar eru fræddir um röskunina og
árangursríkar uppeldisaðferðir. En
hvað hefur reynst Katrínu og henn-
ar fjölskyldu best?
„Það er að viðurkenna að þarna er
vandamál á ferðinni, eitthvað sem
ekki gerist innan venjulegrar fjöl-
skyldu. Það er mikilvægt að átta sig
strax á að eitthvað er að, fá grein-
ingu og vinna í málinu. Vera opin-
skár því þetta er hvorki leyndarmál
né feluleikur. Ég hef reynslu af því
að það er hægt að vinna stóra sigra á
þessu sviði. Það höfum við reynt.“
Katrín sagði að nú væri unnið að
stofnun þjónustumiðstöðvar við ein-
staklinga, foreldra, kennara, fag-
aðila og fleiri um athyglisbrest með
eða án ofvirkni. Hún sagði það risa-
stórt verkefni og undanfarið hefði
undirbúningshópur lagt línur og
rætt við stjórnvöld.
„Ég hef trú á að þetta verkefni
komist á laggirnar innan skamms.
Það mun muna miklu fyrir bæði heil-
brigðiskerfið og skólakerfið að fá
miðstöðina.“
Mikilvægast að
viðurkenna vandann
Tónleikar Caritas til styrktar Foreldra-
félagi misþroska barna verða haldnir í
Kristskirkju við Landakot á morgun kl. 16.
Guðni Einarsson ræddi við Katrínu Eyjólfs-
dóttur sem situr í stjórn foreldrafélagsins.
Katrín Eyjólfsdóttir
JÓLASTEMMNINGIN var í al-
gleymingi í bókabúð Máls og
menningar við Bankastræti í
gær, þegar rithöfundar og
tónlistarmenn skemmtu gest-
um á svokölluðum Föstudags-
bræðingi, sem haldinn er
hvert föstudagssíðdegi. Bræð-
ingurinn er reyndar fastur lið-
ur kl. 17 á föstudögum, óháð
árstíma, en jólin settu sterkan
svip á gærdaginn, þar sem les-
ið var úr nýútkomnum jóla-
bókum. Geir Ólafsson og
hljómsveit fluttu gestum tón-
list og rithöfundarnir komu
fram hver af öðrum til að lesa
úr verkum sínum.
Borgar Jósteinsson, inn-
kaupastjóri Máls og menning-
ar, segir búðina komna í jóla-
búninginn og þá er
Laugavegurinn í heild sinni
orðinn vel skreyttur, nú þegar
mánuður er til Þorláksmessu. Morgunblaðið/Kristinn
Jólastemmningin í algleymingi
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 Sími 562 3614
GRANÍT MORTEL
áður kr. 4.500
Nú kr. 3.300
Stærð15 cm