Morgunblaðið - 23.11.2002, Side 73
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 73
Bridsfélag
Hreppamanna
Spilafélagar í Bridsfélagi Hreppa-
manna hittast á þriðjudagskvöldum í
hinum ágæta Huppusal í Félags-
heimilinu á Flúðum og taka slaginn
undir öruggri spilastjórn Karls
Gunnlaugssonar. Nú er nýlega lokið
keppni í einmenningskeppni. Í fimm
efstu sætunum urðu;
Gunnar Marteinsson 157
Sigurður Sigmundsson 156
Þórdís Bj. – Ari Einarss. –
Bjarni H Ansnes 156
Guðmundur Böðvarsson 155
Jóhannes Sigmundsson 152
Bridsfélag Kópavogs
Nú er einu keppniskvöldi ólokið í
Barómetrnum og línur farnar að
skýrast.
Staðan fyrir lokasprettinn:
Erla Sigurjónsdóttir – Sigfús Þórðars. 143
Eggert Bergsson – Unnar Atli Guðm. 114
Sigurður Sigurjónss. – Ragnar Björnss. 111
Magnús Aspelund – Steingrímur Jónass. 84
Hæsta skor sl. fimmtudag:
Erla Sigurjónsdóttir – Sigfús Þórðarson 74
Sigurður Sigurjónsson – Ragnar Björnss. 50
Birgir Örn Steingr. – Bernódus Kristinss. 37
Arngunnur Jónsd. – Harpa Fold Ingólfsd. 29
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði Glæsibæ mánud. 18. nóv. 2002,
26 pör. Meðalskor 216 stig
Árangur N-S
Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 264
Óskar Karlsson – Guðlaugur Nielsen 252
Sæmundur Björnss. – Olíver Kristóferss.238
Árangur A-V
Kristján Ólafsson – Ólafur Gíslason 287
Gunnar Hersir – Hannes Ingibergsson 258
Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson 250
Tvímenningskeppni spiluð fimm-
tud. 21. nóvember, 22 pör. Meðal-
skor 216 stig.
Árangur N-S
Gunnar Hersir – Ólafur Ingvarsson 230
Björn E. Pétursson – Hilmar Ólafsson 227
Sæmundur Björnss. – Olíver Kristóferss.226
Árangur A-V
Eysteinn Einarsson – Kristján Ólafsson 264
Magnús Oddsson – Magnús Halldórsson 250
Óskar Karlsson – Guðlaugur Nielsen 235
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Frá keppni hjá Bridsfélagi Hrunamanna. Ari Einarsson og Viðar Gunn-
geirsson spila gegn Margréti Runólfsdóttur og Karli Gunnlaugssyni.
MEÐ hópi héðan að heiman á veg-
um Sunnu, undir fararstjórn sr.
Franks M. Halldórssonar, var ég
staddur í Austur-Jerúsalem daginn
sem sexdaga stríðið brast á. Vik-
urnar á undan hafði hópurinn verið
á ferð í löndunum umhverfin Ísr-
ael; Líbanon, Sýrlandi, Egypta-
landi og Jórdaníu. Við flugum frá
Kairó til Amman í Jórdaníu og ók-
um þaðan samdægurs yfir Jórd-
andalinn til Jerúsalem. Er við
nálguðumst ána Jórdan í dalnum,
þá varð bifreið okkar að nema
staðar, því mikil breiða skriðdreka
Jórdana var þar á ferð. Þeir drek-
ar voru sagðir ættaðir frá ná-
grannalandi. Þetta kom okkur víst
ekki á óvart, því við höfðum séð
margvíslegan viðbúnað hernaðar á
ferð okkar um löndin ofangreindu.
Áður en þessi hópur hélt að heim-
an, sögðu fjölmiðlar frá því að
Nasser hinn egypski hefði látið
loka fyrir siglingar skipa Ísraels
um Rauðahafið til og frá hafnar-
borg þeirra við Aqabaha-flóann.
Mikil spenna virtist því þarna af
þessari ástæðu. Ég fór því á fund
Guðna í Sunnu og spurði hvort
hættandi væri á að senda ferða-
mennahóp héðan til þessara svæða
í slíku óvissuástandi. Hann gerði
frekar lítið úr og taldi titringinn
mestan í fjölmiðlunum. Hópurinn
hélt því fljúgandi af stað með milli-
lendingu í Róm og þaðan til Aþenu
í Grikklandi, sem skoðuð var í tvo
til þrjá daga áður en haldið var
áfram með flugvél til Beirut í Líb-
anon. Þeir sem þar tóku við okkur
voru undrandi yfir komu okkar, því
aðrir hópar höfðu afboðað komu
sína. Ánægjulegt var að skoða
glæsiborgina Beirut, sem bar
frönsk einkenni, eftir yfirráðatíma-
bil Frakka. Einnig var gaman og
fróðlega að aka um þetta sögu-
fræga land og allt til Damaskus í
Sýrlandi og skoða staðina, sem
kenndir eru við Sál frá Tarsus (Pál
postula), sem Postulasagan N.T.
greinir svo glöggt frá. Og meiri
háttar var að ferðast um hið forn-
fræga Egyptaland, skoða þar m.a.
píramídana miklu og fljúga allt til
Luxor við Fljótið mikla, langt inni í
landinu, og sjá þar m.a. hinar fornu
grafir Faraóanna. En nú var sjálf-
ur Nasser þarna allsráðandi og
undirbjó greinilega „aðgerðir“. Og
upp úr sauð, eins og fyrr segir, er
hópurinn okkar var staddur í hinni
forn-helgu borg, Jerúsalem, 5 júní
1967. Talið var rétt að forða sér
þaðan hið fyrsta og freista þess að
komast af ófriðarsvæðinu með flug-
vél frá Amman. Við hlið okkar
hjóna í bifreiðinni sat „lókal“ leið-
sögumaður, lágur og grannur
arabi, sem aðstoðað hafði farar-
stjóra okkar á ferðunum þarna við
Botninn. Nú var hann yfirspenntur
og titrandi – glaður og síendurtók:
„Loksins, loksins, loksins er upp-
runnin sú stund að við getum rekið
alla Júðana í hafið og loks losnað
við þá alla…hvern einasta.“ Ég
sleppti því að tjá mig og minna
hann á fyrirheitið, sem ættfaðirinn
Abraham fékk forðum og frá er
sagt í upphafi 12. kap. I. Móse-
bókar. Ég sat bara og lét hann sjá
að ég hlustaði, en undraðist og
hugsaði hvort þetta væri í rauninni
takmark þeirra Palestínumanna?
Og Hamasmenn nútímans hafa ný-
lega staðfest það með yfirlýsingum
sínum skv. fréttum fjölmiðla. Ekki
sluppum við í burtu þennan dag,
því er við nálguðumst Amman flug-
völlinn, logaði þar allt eftir átök og
hervélar þutu þar yfir. Við forð-
uðum okkur úr bílnum og leituðum
skjóls við steinvegg við veginn.
Presturinn las fyrir okkur styrkj-
andi orð úr Ritningunni og síðan
tókum við til við að syngja sönginn
góða Linu Sandels í þýð: sr. Fr.
Fr: „Enginn þarf að óttast síður,
en Guðs barna skarinn fríður…“ Í
því gengur framhjá foringi í jórd-
anska hernum með breiða borða,
lítur hvössum augum til okkar og
hrópar: „Allah is god.“ Ekki trúði
ég honum og eflaust enginn annar í
hópnum okkar. Er herþoturnar
voru horfnar og kyrrð komin á,
fórum við aftur inn í farartæki
okkar og ókum inn í höfuðborgina
Amman og fengum þar inni á góðu
hóteli…í 6 daga og nætur. Þar
reyndist fyrir lítill hópur enskra
ferðamanna svo og einir tveir Þjóð-
verjar, líklega blaðamenn, sem
færðu sig nær okkur eitt kvöldið,
er við rauluðum sálm Lúters: „Vor
Guð er borg á bjargi traust.“
HERMANN ÞORSTEINSSON,
fv. framkvæmdastjóri.
Harmleikurinn við
botn Miðjarðarhafsins
Frá Hermanni Þorsteinssyni:
Allar nánari upplýsingar um prófkjörið, framkvæmd þess og frambjóðendur er að finna á heimasíðu Sjálfstæðisflokkins www.xd.is
Í hvaða kjörhverfi skal kjósa?
Kjósa skal í því kjörhverfi sem
viðkomandi átti lögheimili þann
30. október 2002.
Hafi kjósandi flutt í kjörhverfið eftir
þann tíma ber honum að staðfesta
það með afriti af staðfestri
aðflutningstilkynningu.
1. kjörhverfi
Vestur- og Miðbæjarhverfi,
Nes- og Melahverfi og Austurbæjar-
og Norðurmýrarhverfi.
Kjörstaður:
Hótel Saga, Ársalur (2. hæð, gengið
inn að norðanverðu).
2. kjörhverfi
Hlíða- og Holtahverfi, Laugarneshverfi
og Langholtshverfi.
Kjörstaður:
Valhöll, Háaleitisbraut 1.
3. kjörhverfi
Háaleitishverfi og Smáíbúða-, Bústaða-
og Fossvogshverfi.
Kjörstaður:
Valhöll, Háaleitisbraut 1.
4. kjörhverfi
Árbær, Selás og Ártúns- og Grafarholt.
Kjörstaður:
Hraunbær 102b.
5. kjörhverfi
Hóla- og Fellahverfi, Bakka- og Stekkjahverfi,
Skóga- og Seljahverfi.
Kjörstaður:
Mjódd, Álfabakka 14a.
6. kjörhverfi
Grafarvogur.
Kjörstaður:
Hverafold 1-3.
7. kjörhverfi
Kjalarnes.
Kjörstaður:
Fólkvangur, Félagsheimili Kjalnesinga.
Hverjir mega kjósa?
A. Allir félagsbundnir sjálfstæðismenn
í Reykjavík, sem þar eru búsettir og náð
hafa 16 ára aldri prófkjörsdagana.
B. Þeir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins,
sem eiga munu kosningarrétt í Reykjavík
við alþingiskosningarnar 10. maí 2003 og
undirritað hafa inntökubeiðni
í sjálfstæðisfélag í Reykjavík fyrir lok
kjörfundar.
Hvernig á að kjósa?
Athugið! Kjósa skal 10
frambjóðendur, hvorki fleiri né færri.
Kosið skal með því að setja tölustafina
1 til 10 fyrir framan nöfn frambjóðenda.
Þannig skal talan 1 sett fyrir framan nafn
þess frambjóðanda sem óskað er að hljóti
fyrsta sætið í prófkjörinu, talan 2 fyrir
framan nafn þess sem menn vilja að
hljóti annað sætið í prófkjörinu, talan
3 fyrir framan nafn þess sem menn
vilja að hljóti þriðja sætið í prófkjörinu
og þannig koll af kolli þar til kosnir
hafa verið 10 frambjóðendur.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
22. og 23. nóvember 2002
Hvar og hvenær á að kjósa?
Í dag, laugardaginn 23. nóvember, er kosið kl. 10.00 - 18.00 á sex stöðum í sjö kjörhverfum.