Morgunblaðið - 23.11.2002, Síða 74

Morgunblaðið - 23.11.2002, Síða 74
DAGBÓK 74 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Á morgun kemur Selfoss. Mannamót Aflagrandi 40. Jólahlað- borð verður haldið föst. 6. des. Gestur kvöldsins Þórunn Sveinbjörns- dóttir, varaform. Efl- ingar. Allir velkomnir. Bólstaðarhlíð 43. Jóla- hlaðborð verður fimmtu- daginn 5. desember. Uppl. í síma 568-5052. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Nám- skeið í mótun á leir alla föstudaga kl. 13–16, laus pláss. Billjardstofan op- in alla virka daga kl. 13– 16. Skráning og allar uppl. í Hraunseli í síma 555-0142. Opið hús fimmtudag 28. nóv. Nokkrir rithöfundar lesa úr verkum sínum. Kaffiveitingar. Dans- leikur verður í Hraun- seli föst. 29. nóv. kl. 20.30. Caprí tríó leikur fyrir dansi. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið opið mánu- og fimmtudaga. Mánud.: Kl. 16 leikfimi. Fimmtud.: kl. 13 tré- skurður, kl. 14 bókasafn- ið, kl. 15–16 bókaspjall, kl. 17–19 æfing kór eldri borgara í Damos. Laug- ard.: kl. 10–12 bókband, línudans kl. 11. Inn- kaupaferð í Kringluna 28. nóv. kl. 13. Miðasala hafin á jólahlaðborð. Uppl. í síma 586-8014 e.h. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi. Fimmud.: Kl. 10, aðra hverja viku púttað á Korpúlfsstöðum, hina vikuna keila í Keilu í Mjódd. Vatnsleikfimi í Grafarvogslaug á þriðjud. kl. 9.45 og föstud. kl. 9.30. Uppl. í s. 5454 500. Félag eldri borgara í Garðabæ. Jólahlaðborð í Kirkjuhvoli föstudaginn 6. desember nk. kl. 19.30. Húsið opnað kl. 19. Tryggvi Þorsteins- son læknir leikur á flyg- ilinn. Ávarp Nanna Guð- rún Zoëga, djákni. Garðakórinn syngur undir stjórn Kristínar Pjetursdóttur. Gaman- mál. Valdimar Lárusson leikari. Sighvatur Sveinsson leikur fyrir dansi og skemmtir að sínum hætti. Upplýs- ingar og miðapantanir hjá Arndísi í síma 565- 7826 eða 895-7826 og á skrifstofu félagsins í síma 565-6627 fyrir föstudaginn 29. nóv- ember. Allir velkomnir. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Sýslumaður- inn og lögreglan í Garða- bæ bjóða eldri borgur- um í Garðabæ í fræðslu- og skemmtiferð á Nesja- velli 10. desember kl. 12.30. Skráning í síma 820-8571 eftir hádegi. Föndurdagur í félags- starfinu 4. des. kl. 14. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan er lokuð vegna breytinga í Glæsibæ. Í dag, laugardag, kl.: 13.00. Heilsa og ham- ingja fyrirlestrar um fjármál aldraðra í Ás- garði, Glæsibæ. Basar Söngfélags FEB verður á morgun, sunnu- dag, kl. 13 í Ásgarði, Glæsibæ. Sunnudagur: Dansleikur kl. 20 Caprí tríó leikur. Mánudagur: Brids kl. 13. Línudanskennsla fyrir byrjendur kl. 18. Danskennsla Sigvalda, framh., kl. 19 og byrj- endur kl. 20.30. Almennur félagsfundur með þingmönnum Reykjavíkur laugardag- inn 30. nóvember í Ás- garði Glæsibæ kl. 13.30. Skrifstofa félagsins er flutt að Faxafeni 12 sími. 588-2111. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði, Glæsibæ. Upplýsingar á skrifstofu FEB. Gerðuberg, félagsstarf. Myndlistarsýning Árna Sighvatssonar opin í dag og á morgun frá kl. 13– 16. Fimmtudaginn 28. nóvember er „Kynslóðir saman í Breiðholti“. Fé- lagsvist kl. 13.15 í sam- starfi við Fellaskóla. All- ir velkomnir. Félag eldri borgara Kópavogi. Púttað á Listatúni í dag kl. 10.30. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Jóna Valdís lyfjafræðingur verður á mánudaginn kl. 13 og veitir ráðgjöf um lyfja- skömmtun, lyfseðla og heimsendingar lyfja. Jólabingó föst. 29. nóv. kl. 13. Norðurbrún 1. Þriðju- daginn 26. nóv. kl. 14 les Viðar Hreinsson upp úr bók sinni um ævi Steph- ans G. Stephanssonar. Nýtt jóganámskeið hefst 26. nóv. kl. 14. Nánari uppl. í síma 568 6960. Vesturgata 7. Jólafagn- aður verður haldinn fim. 5. des. Húsið opnað kl. 17. Ragnar Páll Einars- son leikur á hljómborð. Jólahlaðborð kaffi og eftirréttur. Barnakór frá leikskólanum Rjúpna- hæð. Fiðluhópur frá Allegro SusukiTónlistar- skólanum. Jólasaga. Hera Björk Þórhalls- dóttir syngur einsöng. Fjöldasöngur. Hugvekja séra Jakob Ágúst Hjálmarsson. Hljóm- sveit Hjördísar Geirs leikur fyrir dansi. Allir velkomnir óháð aldri, upplýsingar og skráning í síma 562 7077. Digraneskirkja, kirkju- starf aldraðra. Opið hús á þriðjudag frá kl. 11 leikfimi, léttur máls- verður, helgistund, fræðsluþáttur, kaffi. All- ir velkomnir. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krummakaffi kl. 9. Allir velkomnir. Digraneskirkja, kirkju- starf aldraðra. Opið hús þriðjudag frá kl. 11. Matur, helgistund og samvera. Kvenfélag Fríkirkj- unnar í Hafnarfirði. Jólafundur verður hald- inn 1. desember nk. í Skútunni við Hólshraun kl. 20. Breiðfirðingafélagið efnir til gönguferðar í dag. Hittumst við Breið- firðingabúð kl. 13. Geng- ið verður um Laugardal- inn. Dansleikur í kvöld kl. 22 í Breiðfirðingabúð. Hljómsveitin Últra leik- ur. Söngkona Íris Guð- björnsdóttir. Bandalag kvenna í Reykjavík. Jólafund- urinn verður þriðjudag- inn 27. nóv. kl. 20 að Hallveigarstöðum, Tún- götu 14. Upplestur, tískusýning, happdrætti, kaffiveitingar. Kvenfélag Háteigs- sóknar. Jólafundurinn verður þriðjudaginn 3. des. kl. 19 í Safnaðar- heimilinu. Tilkynnið þátttöku sem allra fyrst hjá Þórdísi í síma 511-5405, Guðnýju í síma 553-6697 og Snjó- laugu í síma 561-2163. Nýir félagar velkomnir. Munum jólapakkana. Félag áhugamanna um íþróttir aldraðra. Aðal- fundur félagsins verður haldinn í dag, laugar- daginn 23. nóvember, kl. 14 í Þjónustumiðstöðinni Bólstaðarhlíð 43. Félag breiðfirskra kvenna. Jólafundurinn verður mánudaginn 2. desember kl. 19. Skrán- ing fyrir miðvikudaginn 27. nóvember í síma 553- 2562 Ingibjörg, 564-5365 Gunnhildur. Jólamatur, söngur og gleði. Munið jólapakk- ana. Íslenska bútasaums- félagið. Jólafundur þri. 6. nóv. kl. 20 í safnaðar- heimili Háteigskirkju. Munið jólapakkana og happdrættið (20x20 rautt). Nýir félagar vel- komnir. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. GA-fundir spilafíkla, kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðslu- deild SÁA, Síðumúla 3–5, og í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigs- veg á laugardögum kl. 10.30. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamarkaður í Kattholti, Stangarhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 ganga að Kattholti. Í dag er laugardagur 23. nóvember, 327. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Sá sem elskar líf sitt, glatar því, en sá sem hatar líf sitt í þessum heimi, mun varðveita það til eilífs lífs. (Jóh. 12,25) Víkverji skrifar... VÍKVERJI var á ferð í Búdapestá dögunum og upplifði þar á einstaklega skemmtilegan hátt hversu ólíkar þjóðir Íslendingar og Ungverjar eru. Það var ekki laust við að Víkverja og ferðafélögum hans fyndist eima eftir af því sem þeir ímynduðu sér að væri austur-evr- ópskt skrifræði kommúnismans. Sterkust var upplifunin af þessu þegar hópurinn ákvað að skella sér í baðhús, en Ungverjar eru mjög þekktir fyrir baðhús sín sem kemur til af því að þeir búa yfir jarðvarma líkt og við Íslendingarnir. Þegar hópurinn kom í miðasöluna var verðlisti yfir hina og þessa þjón- ustu uppi á vegg, skilmerkilega bæði á ensku og ungversku, og þannig gátu menn áttað sig á því hvað þeir vildu. Hins vegar vandaðist málið töluvert þegar komið var að því að óska eftir þessari þjónustu því kon- urnar í afgreiðslunni töluðu nánast enga ensku. Þetta olli talsverðum vandræðum í einhverjum tilfellum – til dæmis ætlaði einn félagi Víkverja aldrei að koma miðasölukonunni í skilning um að hann vildi leigja hand- klæði. Það var ekki fyrr en hann barði í borðið og hækkaði róminn að skilningur konunnar jókst og fé- laginn fékk það sem hann bað um, reyndar ekki handklæðið sjálft held- ur miða fyrir einu slíku sem hann skyldi sýna þegar inn í sjálfa baðhús- bygginguna var komið. Víkverja og vinum hans skildist enda fljótt að í þessari stofnun sner- ist allt um miða. Þannig stóðu Vík- verji og hans betri helmingur uppi með tólf miða í höndunum þegar þau sluppu í gegnum nálarauga miðasöl- unnar: tvo miða fyrir sundferðinni, tvo miða fyrir nuddi (sem reyndist söguleg upplifun svo ekki sé meira sagt), tvo miða fyrir handklæðum og aðra tvo fyrir tryggingagjaldi sem þurfti að greiða fyrir þau og loks ann- að eins fyrir sundfatnaði sem nauð- synlegt var að leigja. Með þetta miðafargan var mars- érað inn í sundhöllina þar sem her manns virtist vera í vinnu við það eitt að fá að skoða miðana. Á endanum tókst Víkverja og vin- um hans að komast í sundið og þótt ferðin hafi öll einkennst af misskiln- ingi og villum og tekið helmingi lengri tíma en hópurinn áætlaði varð þessi lífsreynsla til þess að kitla hlát- urtaugarnar svo um munaði. Og hún verður lengi í minnum höfð. x x x FLÓRA veitingastaða í Reykjavíkmætti að mati Víkverja vera fjölbreyttari en nú er. Vissulega hafa komið veitingastaðir sem í eina tíð hefðu þótt framandi en þykja jafnvel hversdagslegir í dag. Má þar nefna ítalska og ýmsa austurlenska staði en mun sjaldgæfara er að rekast á ind- verska staði, þótt þeir finnist og Vík- verji veit ekki til þess að í borginni sé að finna veitingastað sem býður upp á arabískt eldhús. Þá saknar Víkverji sérstaklega grískra staða og á satt best að segja erfitt með að skilja hvers vegna eng- um hefur dottið í hug að koma einum slíkum á laggirnar. Grikkir eru meðal annars þekktir fyrir sína sérstöku að- ferð við að matreiða lambakjöt sem, eins og þjóð þekkir, er best á Íslandi. Víkverji skorar hér með á ein- hverja framtakssama aðila að koma grískum matsölustað á laggirnar og lofar dyggum viðskiptum við staðinn í staðinn. Misjafnlega upplýst ÉG VAR að brjóta saman þvottinn á sunnudags- morgni og af einhverri ástæðu var kveikt á Silfri Egils á Skjá 1. Voru Stein- grímur Sigfússon og Björn Bjarnason gestir Egils að þessu sinni. Ég var ekkert að hlusta á þetta með nein- um áhuga en ég „vaknaði“ aðeins þegar Steingrímur sagði að það ríkti hræðilegt ástand í heiminum í dag og er þessi setning ástæðan fyrir því að ég skrifa þenn- an pistil. Það hefur alltaf ríkt hræðilegt ástand í heimin- um, við erum bara misjafn- lega upplýst um það. Eins og ég er viss um að það eru fáir sem vita að fólk var á sínum tíma pínt og dregið til dauða til að fullkomna verkjalyfið asprin, það voru ekki margir sem vissu um óréttlætið gegn Nelson Mandela fyrr en seinustu árin hans í fangelsi. Það vissu fáir, fyrir utan Afr- íkubúa, að stelpur þar í landi væru umskornar. Fyrir utan Hitler og nokkra af hans mönnum vissi enginn um að eyða ætti gyðingastofninum. Og svona væri hægt að halda áfram endalaust. En vegna góðs aðgengis að fjölmiðlum erum við bet- ur upplýst í dag en áður var en samt vitum við ekki nema lítið brot af því sem gerist í heiminum í dag. Það hefur alltaf og mun alltaf ríkja hræðilegt ástand í heiminum en lang- ar okkur virkilega að vita um það allt og vera samt hamingjusöm? Aðalheiður Dögg Ágústsdóttir, 1. árs nemi í Versló. Góð dagskrá MIG langar að koma á framfæri þakklæti til Sjón- varpsins fyrir góða dagskrá sunnudagskvöldið 17. nóv- ember sl. Þáttur sjónvarps- ins „Árin og seglið“ hreif mig á allan hátt. Lýsing Bjarna Jónssonar listmál- ara á áraskipunum og ein- stakar myndir hans af þessu viðfangsefni var sannarlega mikils virði að sjá og heyra. Þáttur Bjarna Jónssonar listmálara í varðveislu á heimildum um opna ára- báta á öldum áður er þjóð- inni dýrmætur. Mikilvægi árabátanna til flutnings var einstakt og öflun sjávar- fangs var oftast farsæl. Mismunandi gerð og lögun bátanna er áhugaverð. Hafðu, Bjarni, bestu þakkir fyrir framlag þitt til þessa þáttar. Ég vænti end- ursýningar fyrir þá sem misstu af góðum þætti. Með kveðju. Árni Helgason, Stykkishólmi. Tapað/fundið Silkislæða týndist GRÁ munstruð silkislæða týndist á bílaplaninu í Mjódd. Skilvís finnandi hafi samband í síma 557 3549. Seðlaveski týndist BRÚNT seðlaveski týndist í verslunarmiðstöðinni við Háaleitisbraut. Skilvís finnandi hafi samband í síma 553 0094. Silfurhálsmen týndist Silfurhálsmen með brúnum sporöskjulaga stein í silfur- umgjörð, týndist líklegast í miðbæ Reykjavíkur eða á Teigunum. Finnandi hringi í Fanneyju í síma 698 7204. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 samtíningur, 8 snúin, 9 fallegur, 10 fag, 11 skepnurnar, 13 peningar, 15 krakka, 18 bráðlyndur maður, 21 álít, 22 dýrki, 23 rík, 24 manntjón. LÓÐRÉTT: 2 bál, 3 nytjalöndin, 4 minnast á, 5 ótti, 6 þyngd- areining, 7 ókeypis, 12 greinir, 14 dveljast, 15 lít- il máltíð, 16 bölva, 17 stíf, 18 reik, 19 hulin grjóti, 20 kvenmannsnafn. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 háski, 4 sæmir, 7 tjáði, 8 orkan, 9 nár, 11 aðal, 13 eira, 14 óvani, 15 vopn, 17 reit, 20 hin, 22 takki, 23 æskir, 24 remma, 25 iðrar. Lóðrétt: 1 hátta, 2 skána, 3 ilin, 4 spor, 5 mikli, 6 renna, 10 ávani, 12 lón, 13 eir, 15 vitur, 16 púkum, 18 eykur, 19 tærar, 20 hika, 21 næði. K r o s s g á t a NÚ hefur leigjendum fé- lagsbústaða loks borist til- kynning um samþykkt fé- lagsmálaráðs og borgar- stjórnar varðandi breyt- ingar á leigu. Annars vegar jöfnunaraðgerð og hinsvegar 12% hækkun allrar leigu. Í marga mán- uði hefur fólkið mátt lesa í blöðum og heyra í öðrum fjölmiðlum hugleiðingar og ætlanir sem varða kjör þess. Enginn sá ástæður til að tala við leigjendurna og engu líkara en þeim kæmi þetta ekkert við. Nú hefur sem sagt borist formlegt bréf þar sem áður nefndar breytingar á leigusamn- ingi eru tilkynntar. Eflaust eru leigjendur félagsbústaða með gilda leigusamninga þar sem umsamin leiga er tilgreind. Sá samningur heldur gildi sínu meðan honum er ekki sagt upp löglega eða hon- um rift með lögmætum hætti. Húsaleiga er samn- ingsatriði en ekki ákveðin einhliða af öðrum samn- ingsaðilanum. Meðan samningur er í gildi þurfa leigjendur ekki að greiða aðra leigu en þar segir. Undirritaður hefur ekki gert athugasemdir við jöfnunaraðgerðir enda fyrri reglur um ákvörðun leigu fremur frumstæðar. 12% hækkun vegna vaxta- hækkunar íbúðarlánasjóðs er út í hött. Það vantar um 3.000 leiguíbúðir í Reykja- vík og þær verða aldrei keyptar á markaði. Bygg- ingu þeirra á að bjóða út til að lækka bygging- arkostnað og til greina kemur að bjóða einnig út reksturinn. Jón Kjartansson frá Pálmholti. Leiguhækkun hjá borginni
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.