Morgunblaðið - 23.11.2002, Page 78
78 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 10
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 14.
Ben Cronin átti bjarta framtíð, en á einu augnabliki
breyttist allt saman. Nú er hans mesti aðdáandi
orðin hans versta martröð.
Frábær
spennutryllir sem
fór beint á toppinn í
Bandaríkjunum
Lína fer í Tívolí kl. 2
Vetur á Sjónarhóli kl. 2
Hamagangur á Sjónarhóli kl. 4
Lína fer í skóla kl. 4
Miðasala opnar kl. 13.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Kvikmyndir.com
DV
HJ. MBL
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16.
Sýnd kl. 2, 6, 8 og 10.Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 14.
Hann er með 1000 andlit... en veit ekkert í sinn haus!
Dana Carvey fer á kostum í geggjaðri gamanmynd sem
er framleidd af Adam Sandler.
DV
Sýnd kl. 8 og 10.30. B. i. 16.
2.30, 7.30 og 10.
1/2Kvikmyndir.com
USA Today
SV Mbl
RadíóX
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 2.
Ben Cronin átti bjarta framtíð, en á einu
augnabliki breyttist allt saman. Nú er hans
mesti aðdáandi orðin hans versta martröð.
Frábær
spennutryllir sem
fór beint á toppinn í
Bandaríkjunum
Sýnd kl. 2 og 3.Sýnd kl. 2. Ísl. tal. Síðustu sýn.
300 kr. tilboð
alla helgina
Tilboð 300 kr.
Tilboð 300 kr.
Tilboð 300 kr.
Tilboð 300 kr.
Tilboð 300 kr.
JÁ, hann Harry Potter er nú meira
fyrirbærið. Allir – næstum því í heim-
inum – þekkja Harry Potter, sem er
ein helsta ástæðan fyrir því að þessi
önnur mynd um galdrastrákinn er
mun betri en sú fyrri. Þá þurfti að
kynna áhorfendur fyrir persónunum
og bakgrunni þeirra, skólanum, og
hvernig allt nú virkar í ótrúlegum og
undraverðum heimi galdramanna og
mugga. Hér er hins vegar allt komið á
fleygiferð. Myndin hefst á atriði með
Dursley-fjölskyldunni, Weasley-
strákunum og húsálfinum Dobby. At-
riðið er spennandi og skemmtilegt og
þannig helst það myndina á enda.
Enda þurfa Harry Potter og félagar
að bjarga skólasystkinum sínum sem
finnast frosin og stjörf hér og þar. Að
öllum líkindum er það skrímslinu óg-
urlega í leyniklefanum að kenna, og
hver þorir og getur tekist á við það,
nema sjálfur Harry Potter? Þessi
mynd er miklu óhuggulegri en fyrri
myndin, eiginlega einsog hryllings-
mynd fyrir börn með spennuívafi.
Samt ekki þannig að einhver ætti að
hætta við að sjá myndina. En það er
skrifað með blóði á veggina, sem ekki
boðar gott. Óhuggulegt atriði með
mannæturisakóngulóm og svo
skrímslinu sjálfu.
Myndin er uppfull af nýjum hug-
myndum og skemmtilegum atriðum.
Auk þess eru margar nýjar persónur
kynntar til sögunnar og þær eru allar
frábærar. Dobby er yndislega sætur
og mikið krútt. Pabbi Draco Malfoy,
helsta óvinar Harrys í skólanum,
Lucius Malfoy, kemur sterkur inn og
það gustar af honum illmennskan, en
John Fleton leikur hann af mjög mik-
illi sannfæringu.
Ginny systir hans Rons byrjar í
skólanum, en hún dýrkar Harry Pott-
er (kannski er hún bara skotin í hon-
um). Yndisleg Julie Walters leikur
Weasley-mömmuna, og draugurinn
Vala væluskjóða skiptir sköpum. Síð-
ast en ekki síst er er það nýi kenn-
arinn í vörnum gegn myrku öflunum,
hinn sjálfumglaði Gilde-
roy Lockhart sem er alveg
óborganleg persóna. Það
hefði ekki verið hægt að
finna betri leikara en
Kenneth Branagh í þetta
hlutverk. Hvort sem það
er af því að hann er sjálfur
sjálfumglaður eða ekki,
veit ég ekki, en hann leik-
ur Lockhart með ein-
stökum tilþrifum og mikl-
um húmor.
Mér finnst leikurinn í
myndinni almennt mjög
góður, og það er greini-
lega gaman á tökustað.
En því miður verð ég að
segja að eini leikarinn sem
mér finnst ekki standa sig
nógu vel er Daniel Radcliffe í hlut-
verki sjálfs Harry Potters. Og þótt
undarlegt megi virðast, býður hans
hlutverk upp á minnst, finnst manni.
Harry Potter er nefnilega frekar
húmorslaus týpa. Persónurnar eru
allar frekar einhliða og standa fyrir
viss karaktereinkenni, einsog sá ill-
gjarni, sá sjálfumglaði, sá vitri, sá
góði, klaufinn, trúðurinn og náms-
hesturinn. Það er allt í lagi og virkar
ósköp vel í álíka ævintýri. En hins
vegar er aðalpersónan frekar flöt.
Maður tengist frekar við aðstæðurn-
ar sem hann er í og hæfileikana sem
hann býr yfir, frekar en persónuna
sjálfa. Þetta finnst mér galli, og
spurning hvort betri leikari hefði get-
að gefið okkur eitthvað meira.
Tækniatriðini eru frábær og hús-
álfurinn Dobby er svo flottur að ég
gat ekki hætt að velta fyrir mér
hvernig hann er gerður. Og leik-
myndin er hreint úr sagt ótrúleg, því-
líkur heimur!
Já, nýja Harry Potter er mun betri
en sú fyrri. Hún fylgir bókinni út í
ystu æsar, og hefði kannski mátt
stytta á stundum. En það er ekki
spurning að hún á eftir að standa full-
komlega undir væntingum aðdáenda
um allan heim.
Skemmtileg fleygiferð
KVIKMYNDIR
Sambíóin og Háskólabíó
HARRY POTTER OG LEYNIKLEFINN
Leikstjóri: Chris Columbus. Handrit:
Steven Kloves eftir samnefndri skáld-
sögu J. K. Rowling. Kvikmyndataka: Rog-
er Pratt. Aðalhlutverk: Daniel Radcliff,
Rupert Grint, Emma Watson, Kenneth
Branagh, Maggie Smith, Robbie Coltr-
ane, John Felton, Jason Isaacs, Richard
Harris og Alan Rickman. BNA. 161 mín.
Warner Bros. 2002.
Harry Potter er betri nú en í fyrra, að mati
Hildar Loftsdóttur.
Hildur Loftsdóttir
KEPPNIN um herra Ísland 2002 fór
fram í Broadway á fimmtudags-
kvöldið. „Keppnin er búin að skapa
sér fastan sess núna. Áhuginn er
alltaf meiri og meiri,“ segir Elín
Gestsdóttir, framkvæmdastjóri Feg-
urðarsamkeppni Íslands, sem stend-
ur fyrir keppninni um titlana herra
og ungfrú Ísland. „Strákarnir sækja
núna í að vera með í keppninni.“
Þetta var í sjöunda sinn, sem
herra Ísland var valinn, og tóku 15
strákar þátt í keppninni. Í ár
hreppti Sverrir Kári Karlsson tit-
ilinn eftirsótta. Hann er 22 ára
Kópavogsbúi og trésmíðanemi. Enn-
fremur æfir hann körfubolta hjá
Fjölni og er ekki á lausu en unnusta
hans heitir Helena Kristinsdóttir.
Sverrir Kári var einnig valinn sport-
strákur Oroblu. Hann keppir síðan
um titilinn Mr. International á næsta
ári.
Í öðru sæti lenti höfuðborg-
arbúinn Jón Björgvin Hermannsson,
22 ára tölvunarfræðinemi við Há-
skólann í Reykjavík. Þriðja sætið
vermir Elís Bergmann Blængsson,
21 árs húsasmíðanemi úr Borg-
arnesi.
Fleiri titlar voru í boði og hlaut
Kristinn Óli Hrólfsson, 21 árs hár-
greiðslumaður úr Reykjavík, tvo
þeirra. Hann lenti í fjórða sæti
keppninnar auk þess að vera valinn
ljósmyndamódel DV.
Arnar Már Jónsson, 22 ára Kefl-
víkingur og húsasmiður, lenti í
fimmta sæti og Baldvin Jón Hall-
grímsson, 24 ára málari úr Mos-
fellsbæ, var valinn vinsælasti strák-
urinn úr hópnum.
Elín segir að íslenskt þema hafi
ráðið ríkjum í keppninni en stílisti
var Sigrún Baldursdóttir, nemi í
Listaháskóla Íslands.
Vel tókst til með keppnina, sem
fór fram fyrir fullu húsi, að sögn El-
ínar. Hljómsveitirnar Írafár og
Land og synir skemmtu gestum.
Fjöldi mætra manna sat í dóm-
nefnd. Auk Elínar sáu Íris Björk
Árnadóttir fegurðardrottning, Sig-
urjón Ragnar ljósmyndari, Þórunn
Högnadóttir förðunarmeistari og
Pétur Ívarsson, verslunarstjóri hjá
Boss, um valið.
Herra Ísland 2002, Sverrir Kári
Karlsson, ásamt unnustunni, Hel-
enu Kristinsdóttur.
Morgunblaðið/Kristinn
Sigurvegararnir gleðjast saman að keppninni á Broadway lokinni.
Fríðir og
föngulegir
Herra Ísland valinn í sjöunda sinn