Morgunblaðið - 23.11.2002, Page 84
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Saga segist vonast til að komast heim aftur
sem fyrst. Hér er hún ásamt Erni, syni sínum,
og hundinum Patta.
ÞRJÚ íbúðarhús á Seyðisfirði voru rýmd í
gærkvöldi vegna hættu á aurskriðu og var
fólki ráðlagt frá því að fara inn í sex önnur hús
sem ekki er búið í, að sögn Lárusar Bjarnason-
ar, sýslumanns á Seyðisfirði. Alls þurftu níu
manns að yfirgefa heimili sín, meðal þeirra
voru Saga Valsdóttir, eiginmaður hennar, Jón
Bergmann Ársælsson, fjórtán ára dóttir
þeirra, Ása Guðrún, og tólf ára sonurinn Örn.
Fjölskyldan býr á Austurvegi 54, en 30–40
metra breið aurskriða féll á húsið nýlega.
„Það er óhugnanleg tilfinning að fara úr
húsinu sínu og geta ekki farið heim. Maður
hefur alltaf haldið að maður ætti að vera
hræddur við snjóflóð, en ekki þetta,“ segir
Saga.
Fjölskyldan fékk inni hjá ættingjum og vin-
um. „Börnin taka þessu verr en við, þau vildu
taka með sér dót sem þeim þykir vænt um,
myndir af ömmu og afa og svoleiðis. Dóttir
mín vildi taka fermingarkertið sitt,“ segir
Saga.
Lárus Bjarnason, sýslumaður á Seyðisfirði,
sagði að lögreglan yrði á vakt í nótt og áætlun
væri tilbúin ef á þyrfti að halda. Auk húsanna
sem hafi verið rýmd hafi lögregla varað íbúa á
svæðinu í kring við og boðið fólki annað hús-
næði. Rauði krossinn reki hjálparstöð og haldi
m.a. utan um hverjir sofi hvar. Margir fari til
vina og ættingja en nokkrir einstaklingar hafi
boðið húsnæði til afnota.
Rignt hafi í langan tíma, hlíðin fyrir ofan
bæinn sé vatnsósa, sprungur og sig hafi komið
fram á nokkrum stöðum. Jarðfræðingur frá
Veðurstofu Íslands mat aðstæður í gær og ráð-
lagði hann að húsin yrðu rýmd.
Óhugnanlegt að geta
ekki farið heim
Níu yfirgáfu heimili sín vegna aurflóðahættu
UM klukkan hálfellefu í gærkvöldi var til-
kynnt um rán í verslun 11–11 við Skúlagötu
í Reykjavík. Að sögn lögreglu frömdu tvær
grímuklæddar manneskjur með hettu yfir
höfði ránið, en ekki voru neinar vísbend-
ingar um að vopnum hefði verið beitt.
Ekki fengust upplýsingar um ránsfeng
og ræningjarnir voru ófundnir á miðnætti.
Sl. þriðjudagskvöld var framið rán í Olís-
stöðinni við Skúlagötu og er það óupplýst.
Lögreglumenn á vettvangi í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Júlíus
Annað rán við
Skúlagötu
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Valkostur
vandlátra
– leiðandi í lausnum
Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001
PHARMACO hf. hefur keypt 69%
hlut í serbnesku lyfjaverksmiðjunni
Zdravlje og skuldbundið sig til að
kaupa 15% til viðbótar á næstu þrem-
ur árum. Samningur þess efnis verð-
ur undirritaður í Serbíu á mánudag-
inn. Jafnframt mun Pharmaco
fjárfesta í uppbyggingu serbneska fé-
lagsins á næstu árum.
Kaupverð þess 84% hlutar sem
Pharmaco mun kaupa, er 5,5 milljónir
evra, jafnvirði um 475 milljóna ís-
lenskra króna. Verðið skiptist þannig
að 3,5 milljónir evra greiðast fyrir
69% hlutinn og 2 milljónir evra fyrir
15% hlutinn, sem greiðast á næstu
þremur árum. Þessu til viðbótar
skuldbindur Pharmaco sig til að fjár-
festa fyrir 20 milljónir evra á næstu
fimm árum. Það er Búnaðarbankinn
sem sér um fjármögnun kaupanna.
Hjá Zdravlje starfa um 2.100
manns. Starfsmenn Pharmaco í dag
eru um 5.300 talsins þannig að eftir
kaupin á verksmiðjunni í Serbíu
munu um 7.400 manns starfa á vegum
Pharmaco í 13 löndum.
!
" # $
% &
'!()
*"+,'-,
./'-,
0,"%,
()
*! +
Hagnaður eykst/14
VIÐRÆÐUR Íslands og Bandaríkjanna
um breytingar á samkomulagi ríkjanna
um viðbúnað í varnarstöðinni í Keflavík
munu hefjast í kringum áramótin, að sögn
Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra.
Í tengslum við leiðtogafund Atlantshafs-
bandalagsins í Prag átti Halldór samtöl
bæði við Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og Joseph Ralston, yfir-
mann Evrópuherstjórnar NATO, um
stöðu Keflavíkurstöðvarinnar. Í nýju her-
stjórnarskipulagi NATO mun stöðin heyra
undir Evrópuherstjórnina.
Halldór segir að Bandaríkjamenn vilji
hefja viðræður um samkomulag ríkjanna
um viðbúnaðinn í stöðinni í kringum ára-
mótin. Þær áttu að hefjast á síðasta ári en
var frestað, m.a. vegna hryðjuverkaárás-
arinnar á Bandaríkin. Utanríkisráðherra
segist gera ráð fyrir að fara til fundar við
Powell um þau mál í upphafi næsta árs.
Viðræður um
Keflavík hefj-
ast um áramót
Prag. Morgunblaðið.
Munum þurfa/20
„ÞAÐ fyrsta sem gerðist var að raf-
magnið fór af, ég heyrði í reyk-
skynjara og eldvarnarhurðir lokuð-
ust,“ segir Árni Þórðarson,
starfsmaður Húsasmiðjunnar, sem
varð fyrstur var við að eldur hefði
kviknað í timburverkstæði Húsa-
smiðjunnar við Súðarvog, síðdegis í
gær. Hann var staddur í hliðarsal á
verkstæðinu þegar eldurinn kvikn-
aði.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn
og má telja það mikla mildi að ekki
fór verr, en mikill eldsmatur var á
staðnum og var slökkvilið búið und-
ir að eldurinn myndi breiðast út, að
sögn Erlings Júlínussonar, stöðvar-
stjóra sem stjórnaði aðgerðum.
„Ég opnaði inn í stóra vinnusal-
inn til að sjá hvað væri að gerast og
af hverju rafmagnið væri farið. Þá
komst súrefni þangað inn og eld-
urinn magnaðist. Rúðurnar
sprungu og há eldtunga steig upp af
bandsöginni. Ég sá að það þýddi
ekkert að reyna að slökkva eldinn,
þetta var orðið það mikið,“ segir
Árni sem síðan kallaði á hjálp og fór
í það ásamt fleirum að flytja timbur
sem lá utan í húsinu í burtu, til að
minnka eldsmatinn og forða því
sem hægt var að forða.
Fór aftur inn í reykjarkófið
Eftir að slökkviliðið mætti á stað-
inn heyrði Árni að enn væri kveikt á
sogkerfi, sem sogar spæni frá sög-
unum í burtu. Hann rauk þá aftur
inn í vinnslusalinn og slökkti á sog-
kerfinu. Aðspurður segist hann
ekkert hafa hugsað um þá hættu
sem væri því samfara að fara aftur
inn í salinn. „Ég vissi hvað var í
hættu og þótt ég þyrfti að fara
þarna inn í reykjarkófið, þá hugsaði
ég ekkert út í það. Ég vissi bara
hvar neyðarrofinn var og vissi að
[slökkviliðið] yrði lengur að finna
hann en ég. Ég gerði bara það sem
ég gat gert. Þetta voru ósjálfráð
viðbrögð.“
Erling segir að það hafi skipt
sköpum að Árni hafi slökkt á sog-
kerfinu, þó það hafi ekki verið skyn-
samlegt að fara aftur inn í reykj-
arkófið. „Hann slekkur á sogkerfi
hússins, sem vissulega hafði áhrif á
og hindraði að eldurinn breiddist út
þá leiðina. Maður veit ekki hvernig
það hefði endað ef eldurinn hefði
náð að fara inn í sogkerfið með öllu
sem því fylgir,“ segir Erling.
Tjónið hefði getað
verið mun meira
Slökkviliðið fékk útkallið klukkan
16.48 og rétt rúmum hálftíma síðar,
kl. 17.20, var búið að slökkva eldinn.
Erling segir að sótt hafi verið að
eldinum úr mörgum áttum og aldrei
hafi nokkur verið í hættu. Allt til-
tækt slökkvilið auk bakvaktar hafi
verið kallað út, eða um 50 manns.
Eldur hafi staðið út úr gluggaröð á
um 10 metra kafla á norðurhlið
hússins þegar slökkvilið kom á stað-
inn. „Aðstæðurnar voru vissulega
erfiðar, þarna var lélegt skyggni,
mikið rými, reykur, tæki og annað
sem hindraði okkur í að sækja að
eldinum.“
Talið er að eldurinn hafi kviknað
út frá bandsög, sem stendur í miðju
verkstæðinu. Erling segir að mikið
tjón hafi orðið á húsinu, „en þetta er
eins vel sloppið og það getur verið
miðað við hvernig hefði getað farið
ef eldurinn hefði náð að breiðast út.
En vissulega hefur orðið þarna tug-
milljóna króna tjón.“ Erling segist
stoltur af sínum mönnum og því
verki sem þeir unnu í þessu útkalli.
Morgunblaðið/Júlíus
Eldtungur teygðu sig út um glugga á um tíu metra svæði á norðurhlið
verksmiðjunnar þegar slökkvilið kom á svæðið.
Rúðurnar sprungu út og há
eldtunga steig upp úr húsinu
Betur fór en á horfðist í eldsvoða í timburverkstæði Húsasmiðjunnar
Starfsmönnum fjölgar um 2.100
Pharmaco kaupir serbneska lyfjaverksmiðju
♦ ♦ ♦
Á NÆSTUNNI kemur út Íslensk hljóm-
plötuskrá, uppfletti- og skráningarforrit
með gagnagrunni er geymir skráningu á ís-
lenskum hljómplötum frá því fyrsta hljóm-
platan kom á markað 1907 og til ársins 2002.
Reynt hefur verið að skrá sem flestar op-
inberar útgáfur, en í skránni nú eru taldar
5.000 útgáfur og 46.000 lög.
5.000 útgáfur,
46.000 lög
Skrá yfir/80