Morgunblaðið - 07.01.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 5. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 mbl.is
Gatan loks
malbikuð
Langþráður draumur Gunnars
og Stellu í Gilinu rættist 22
Ný unglingasaga talin verða næsta
Harry Potter-æðið Fólkið 48
Efni í frábæran
sellóleikara
Margrét Árnadóttir sellóleikari
hélt tónleika í Salnum Listir 30
Hryllingur á
hvíta tjaldið
LOÐNUVERTÍÐIN er hafin af
fullum krafti út af Austfjörðum. Um
25 skip eru nú á miðunum og var
mokveiði þar í gær og nokkur skip á
landleið með fullfermi.
Rannsóknaskipið Árni Friðriks-
son hélt úr höfn í Reykjavík í gær til
að mæla stærð loðnustofnsins, sjáv-
arhita og seltu. Leiðangursstjórinn,
Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðing-
ur, segir að rannsóknaleiðangurinn
muni standa yfir í allt að þrjár vik-
ur. Hann segir menn hafa séð mikið
af loðnu og útlitið sé bjart. „Við för-
um norður fyrir landið og byrjum
væntanlega á því að reyna að fá yf-
irlit yfir líklegustu loðnusvæðin og
þar með talin veiðisvæðin austan við
landið. Veðurspáin er mjög góð,
nánast út vikuna, og þetta er mjög
góð byrjun á loðnuveiðinni,“ sagði
Hjálmar.
„Þetta lofar mjög góðu. Þeir sjá
loðnu mjög víða og veðrið getur
ekki verið betra á þessum árstíma,“
sagði Freysteinn Bjarnason, út-
gerðarstjóri Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað, í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Beitir NK varð
fyrstur loðnubáta til að landa loðnu
eftir áramótin. Hann landaði 1100
tonnum í Neskaupstað og hélt rak-
leiðis á veiðar á ný.
Eftir loðnuvertíðina í fyrra var
útflutningsverðmæti loðnumjöls og
-lýsis 16,3 milljarðar króna og hefur
aldrei verið meira. Loðnuvertíðin í
fyrra var ein sú besta hérlendis frá
upphafi og fóru saman góð afla-
brögð og hagstæðar markaðsað-
stæður. Frá áramótum 2002 og til
loka vertíðarinnar í lok mars náðist
metafli á land, 890 þúsund tonn.
Mjög bjart útlit
með loðnuveiðar
Þetta lofar/17
Mokveiði út af Austfjörðum
VETUR konungur ríkir nú með ótví-
ræðum hætti víða í Evrópu og óveðr-
ið hefur sett ferðaáætlanir þúsunda
manna úr skorðum. Óvenjumikil
snjókoma í Danmörku í fyrrinótt olli
töluverðum töfum á Kastrup-
flugvelli, þar á meðal á áætl-
unarflugi Flugleiða. Um 1.000
strandaglópar neyddust til að eyða
aðfaranótt mánudagsins á göngum
flugstöðvarinnar. Snjókoma olli
einnig tímabundnum lokunum á
mörgum flugvöllum, járnbraut-
artengingum og hraðbrautum þvers
og kruss um meginlandið, allt frá
Moskvu í austri til Bordeaux í vestri.
Vetrarveðrið olli miklum töfum á
lestar- og bílasamgöngum í Svíþjóð
og Noregi, og þykkur ís er kominn á
Helsingjabotn og Finnska flóa.
Sunnar í álfunni hafa miklar rign-
ingar valdið flóðum.
Ljósmynd/NF- Bax Lindhardt
Roskinn Kaupmannahafnarbúi öslar um snævi þakta Krónprinsessugötu í gamla miðbænum í gær.
Vetrarríki
í Evrópu
Norðurlönd/18
ORCA-hópurinn var mjög nálægt því markmiði
sínu síðastliðinn vetur að ná yfirráðum yfir Ís-
landsbanka. Ráðandi meirihluta tókst á síðustu
stundu að koma í veg fyrir það. Þetta kemur
fram í annarri grein af fjórum í greinaflokki
Agnesar Bragadóttur, Baráttan um Íslands-
banka, í blaðinu í dag.
Var yfirtökutilraun Orca-hópsins úr sögunni
þegar Hreggviður Jónsson, fyrrv. forstjóri
Norðurljósa, dró framboð sitt til bankaráðs Ís-
landsbanka til baka 6. mars, skömmu fyrir aðal-
fund bankans. „Þar með máttu þeir Jón Ásgeir
[Jóhannesson] og félagar sjá á bak mögulegum
5% stuðningi atkvæða Hannesar Smárasonar
[aðstoðarforstjóra Íslenskrar erfðagreiningar]
og mögulegum 4,31% stuðningi TM [Trygginga-
miðstöðvarinnar] á einum og sama sólarhringn-
um, sem í einu vetfangi gerði vonir þeirra um að
ná undirtökunum í Íslandsbanka að engu,“ segir
í greininni.
Í greininni segir að hálfum mánuði fyrir aðal-
fund Íslandsbanka sem haldinn var 11. mars sl.
hafi ákveðnir fulltrúar eigenda bankans vaknað
upp við vondan draum, einkum fulltrúar lífeyr-
issjóðanna, þegar þeir sáu að Orca-hópurinn
réði líklega yfir um 30% eignarhlut í bankanum,
að meðtöldum tæplega 5% eignarhlut Hannesar
Smárasonar í bankanum. Þeir sem stóðu að
meirihlutanum í bankaráði Íslandsbanka réðu
yfir öðrum 30%, þannig að við blasti að úrslitin í
kosningu bankaráðs og hvernig meirihlutinn
yrði skipaður myndi ráðast af hinum almenna
hluthafa, yrði ekkert að gert.
Fram kemur að Hannes Smárason fékk, að
höfðu samráði við Bjarna Ármannsson, banka-
stjóra Íslandsbanka, Hreggvið til að bjóða sig
fram sem málsvara hins almenna hluthafa. Síð-
ar frétti Hreggviður að Jón Ásgeir hafði merkt
Orca-hópnum framboð hans. Auk þess fékk
Hreggviður mjög afdráttarlaus skilaboð fyrir
milligöngu fjölda manns um að það félli ekki í
pólitískt kram stjórnarráðsins, ef hann yrði til
þess að fella sitjandi meirihluta bankaráðsins.
Orca var hársbreidd frá
yfirráðum í Íslandsbanka
Mikið skorti/12–16
JEAN-Claude Trichet, seðlabankastjóri
Frakklands, kom í gær fyrir rétt í áratugar
gömlu hneykslismáli sem snýst um bók-
haldssvindl Credit Lyonnais-bankans, sem
var þá í ríkiseigu. Að Trichet skuli vera
flæktur í þetta mál kann að hindra að hann
verði næsti aðalbankastjóri Seðlabanka
Evrópu, eins og áformað hafði verið.
Trichet er ásamt átta öðrum frönskum
bankamönnum og fjármálasérfræðingum
ákærður fyrir að hafa átt aðild að meintri
yfirhylmingu yfir tap sem varð á háum fjár-
hæðum er franski ríkissjóðurinn hljóp und-
ir bagga með Credit Lyonnais í byrjun tí-
unda áratugarins, er bankinn átti í miklum
rekstrarerfiðleikum. Á þeim tíma var
Trichet einn af æðstu mönnum franska
fjármálaráðuneytisins, en hans deild bar
m.a. ábyrgð á eftirliti með ríkisreknum fyr-
irtækjum. Trichet neitar öllum sakargift-
um. Réttarhaldið tekur um sex vikur.
Trichet
fyrir rétt
París. AFP, AP.
Reuters
Jean-Claude Trichet (t.v.) og Jacques de
la Rosiere (t.h.), fv. seðlabankastjóri,
koma út úr réttarsal í París í gær.
Á SÍÐASTA ári drukku Íslendingar
rúmlega 14 milljónir lítra af áfengi.
Það samsvarar því að allir 20 ára og
eldri hafi drukkið um 70 lítra af
áfengum veigum í fyrra.
Samkvæmt upplýsingum frá
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
jókst áfengisneysla milli ára um
6,77%. Ef mælt er í hreinum vínanda
er aukningin um 4,71%.
Mesta söluaukningin var í léttum
vínum, sem eru innan við 22% að
styrkleika, um tæp 13%. Sala á bjór
jókst um 6,32% en sala á sterkum
vínum dróst saman um 4,32%.
Við nánari skoðun kemur í ljós að
neysla rauðvíns eykst mest milli ára
eða um tæp 16%. Sala á hvítvíni jókst
um 9,8%. Í lítrum talið selst þó tæp-
lega þrisvar sinnum meira af rauð-
víni.
Langmest var innbyrt af bjór í
fyrra eða tæpar ellefu milljónir lítra.
Áfengis-
neysla jókst
um 6,77%
♦ ♦ ♦
ÍSRAELSK stjórnvöld meinuðu í gær
sendinefnd palestínsku heimastjórnarinnar
að sækja ráðstefnu í Lundúnum um frið-
arhorfur fyrir botni Miðjarðarhafs. Þau
ákváðu ennfremur að loka þremur palest-
ínskum háskólum. Þessar ráðstafanir Ísr-
aelsstjórnar voru meðal viðbragða hennar
við skæðu sjálfsmorðssprengjutilræði sem
framið var í Tel Aviv í fyrradag. Voru þessi
viðbrögð álitin mildileg með tilliti til þess að
tilræði af stærðargráðu þess sem framið
var á sunnudag – þar sem 22 fórust og yfir
100 særðust – hafa áður jafnan kallað á víð-
tækar hefndaraðgerðir af hálfu Ísraelshers.
En úrval ríkisstjórnar Ariels Sharons af
hefndarkostum er orðið takmarkað – eink-
um með tilliti til þess að þingkosningar fara
fram í Ísrael eftir þrjár vikur og Banda-
ríkjastjórn er mjög í mun að sem minnst sé
um ofbeldi á svæðinu, nú er hún er að und-
irbúa hugsanlega hernaðaríhlutun í Írak.
Píslarvottasveit Al Aqsa, herskár klofn-
ingshópur frá skæruliðasveitum tengdum
Fatah-hreyfingu Yassers Arafats, leiðtoga
Palestínumanna, lýsti yfir ábyrgð á tilræð-
unum. Talsmenn Fatah og heimastjórnar
Palestínumanna fordæmdu þau. Úr röðum
ísraelskra stjórnarliða komu hins vegar
strax fram nýjar ásakanir um að Arafat
hvetti sjálfur til slíkra árása á óbreytta ísr-
aelska borgara. Gera bæri Arafat útlægan
frá heimastjórnarsvæðunum.
Talsmaður Píslarvottasveitar Al Aqsa
upplýsti að hún nyti fjárstuðnings frá Íran
og myndi halda árásum áfram.
Viðbrögð
Ísraela
takmörkuð
Jerúsalem. AP.