Morgunblaðið - 07.01.2003, Page 8

Morgunblaðið - 07.01.2003, Page 8
FRÉTTIR 8 ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Mikill áhugi á brids Félagslega sterkur leikur Félagsvísindastofnunfann það út fyrirnokkrum misser- um, í einni af mörgum könnunum sínum, að fjórði hver Íslendingur þekkti til brids á þann hátt að geta spilað spilið. Líkt og að kunna mann- ganginn í skák. Þetta er með ólíkindum hátt hlut- fall þjóðar, að sögn Guð- mundar Páls Arnarsonar, forstöðumanns Bridsskól- ans sem var nýverið að auglýsa næstu námskeið sín. Guðmundur gaf sér dálitla stund til að ræða um brids við Morgunblað- ið. – Hvenær byrjuðu menn að spila brids? „Það er nú kannski sveipað óvissu nákvæmlega hve- nær við byrjuðum að spila brids, en spilið eins og við þekkjum það í dag er ekki gamalt, raunar að- eins um áttatíu ára. Brids er runninn af vist, sem margir þekkja og allt þar til að spilið komst í sinn núverandi búning hefur hann farið í gegnum þó nokkur breytingarskeið sem er kannski of langt mál að fara út í hér.“ – Nútímabridsinn, hvað er helst um hann að segja? „Upphaf íþróttarinnar er mið- að við 1925, er Harold Vanderbilt og vinir hans lögðu grunninn að þeim útreikningi sem stuðst er við í dag. Þeir sigldu þá um Pan- amaskurð og spiluðu brids svo dögum skipti, og prófuðu þá alls konar útfærslur og afbrigði og hugmyndir. Hópurinn rataði þá á réttu formúluna að þeim brids sem er spilaður í dag.“ – Og hefur spilið þá ekkert þróast? „Ekki reglurnar sem slíkar sem er til marks um hversu vel útfærð breyting Vanderbilts og félaga var. Hins vegar hefur orð- ið gífurleg þróun í sagntækni. Á fyrstu árum íþróttarinnar eru menn að gera alls konar tilraunir sem hafa haldið áfram æ síðan og má líta á sem raunverulegan þátt af spilinu. Það er sífellt reynt að búa til nákvæmari og betri sagn- kerfi og ekki sér fyrir endann á þeirri vinnu. Ennfremur hefur orðið mikil þróun í varnarsam- vinnunni“ – Það er áleitið að spyrja: Er þetta ekki einstaklega flókið spil og er nokkuð allra að læra það? „Það má alveg bera þetta sam- an við skák þar sem maður er kannski tíu mínútur að læra mannganginn en síðan alla ævina að verða svona þokkalegur skák- maður. Leikreglur eru miklu fleiri í brids og hann er vissulega margslungnari heldur en skák. Hins vegar er það eini munurinn, það eru fleiri reglur og útfærslur, en í sjálfu sér ekki erfiðari reglur að læra heldur en í skákinni.“ – Bridsskólinn er einmitt að auglýsa námskeið þar sem um tíu kvöld- stundir er að ræða... „Já, það er sá tími sem þarf til að komast yfir þessar reglur. Ég er bæði með námskeið fyrir byrj- endur og lengra komna og ég er ekki að þreyta byrjendur með sögulegum fróðleik. Við förum strax út í að skilgreina spilið og það er mjög fljótt að verða skemmtilegt hjá okkur. Það er nefnilega grundvallaratriði, brids er skemmtun. Brids er leik- ur. Fólk á ekki að hugsa öðru vísi um brids. Þetta er jafnframt gíf- urlega félagslega sterkur leikur, fólk kemur sér upp bridshópum og klúbbum þar sem fólk á öllum aldri situr sem jafningjar og spil- ar af hjartans lyst.“ – Á öllum aldri seg- irðu…hverjir koma og læra brids? „Það er fólk á öllum aldri og það kemur á ýmsum forsendum. Sumir eru að undirbúa sig fyrir efri árin, að gera sig gjaldgenga fyrir elliheimilið þegar þar að kemur. Það kemur og mikið af hjónafólki. Þetta eru kvöldnám- skeið þannig að ég er ekki að fá mikið af krökkum, en nemendur mínir eru á bilinu 18 til 80 ára.“ – Ef þetta er spilað í pörum, verða menn þá að koma til þín í pörum? „Nei, það er alger óþarfi. 30– 40% af nemendum koma stakir. Við leysum það mál.“ – Hvað hefurðu kennt mörgum að spila brids? „Skólinn var 25 ára á síðasta ári og ég tók við honum fyrir 18 árum. Síðan rúlla ég rúmlega hundrað manns í gegn á hverjum vetri á almennum námskeiðum og svo talsverðum fjölda á auka- námskeiðum. Þetta gera hátt í þrjú þúsund manns. Ísland er í öðru sæti yfir fjölda keppnisspil- ara miðað við höfðatölu, með 1400 manns, aðeins Holland er ofar okkur með tæplega 100 þús- und manns. Með heimaspilurum má margfalda tölu okkar a.m.k. tuttugu- til þrjátíufalt. Síðan er mikill fjöldi til viðbótar sem kann grundvallaratriðin.“ – Hvar stendur Ísland í styrk- leika? „Við erum í fremstu röð þótt ekki hafi unnist allra stærstu titl- ar síðan Bermúdaskál- in vannst árið 1991. Við erum meira og minna í topp tíu og höf- um t.d. síðustu árin tvisvar verið í átta liða úrslitum á Ólympíumótum. Þá erum við ýmist í fyrsta eða öðru sæti á Norðurlandamótum. – Hvers vegna eru Íslendingar svona góðir í brids? „Erum við ekki góð í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur? Ein kenning sem ég hef er ná- lægðin, sem sagt, bestu spilar- arnir hafa gott næði og tíma til að slípa sig saman.“ Guðmundur Páll Arnarson  Guðmundur Páll Arnarson er fæddur 1954 í Reykjavík, en er búsettur í Kópavogi. Guðmundur rekur Bridsskólann, gefur út og ritstýrir Bridsblaðinu og er fyr- irliði íslenska bridslandsliðsins. Maki hans er Guðrún Guðlaugs- dóttir blaðamaður og eiga þau samtals sjö börn. Aðeins Holland er ofar okkur Útsala 50-70% afsláttur Opnunartími miðvikudag kl. 14-18 • fimmtudag kl. 14-18 og 20-22 föstudag kl. 14-18 • laugardag kl. 11-14 Hlaðhömrum 1 • Grafarvogi • sími 577 4949 Næs Láttu ekki svona, Dabbi minn, komdu og hlustaðu á hvað það hjalar dásamlega. UMSÓKNARFRESTUR um emb- ætti forstöðumanns Kvikmyndamið- stöðvar Íslands rann út sl. föstudag. Menntamálaráðuneytinu bárust sautján umsóknir um starfið. Umsækjendur eru: Anna G. Magn- úsdóttir, Ágúst Guðmundsson, Árni Thoroddsen, Daði Bragason, Frið- bert Pálsson, Gísli Þór Gunnarsson, Inga Björk Sólnes, Laufey Guðjóns- dóttir, Óli Örn Andreassen, Páll Bald- vin Baldvinsson, Ragnar Halldór Blöndal, Rúnar Gunnarsson, Sigurð- ur G. Valgeirsson, Sigurgeir Orri Sig- urgeirsson, Valgeir Guðjónsson, Þor- finnur Ómarsson og Þór Elís Pálsson. Í samræmi ákvæði kvikmyndalaga mun menntamálaráðuneytið senda umsóknirnar til umsagnar kvik- myndaráðs. Lokið verður við að skipa í kvikmyndaráð í lok þessarar viku. Að fengnum umsögnum kvikmynda- ráðs mun menntamálaráðherra skipa í embættið. Tólf umsóknir bárust um starf for- stöðumanns Kvikmyndasafns Ís- lands. Þeir sem sóttu um eru eftir- taldir: Árni Thoroddsen, Birna Gunnarsdóttir, Einar S.H. Þorbergs- son, Erlendur Sveinsson, Guðmundur Ásgeirsson, Jón Ólafur Ísberg, Oddný Sen, Ragnar Halldór Blöndal, Rakel Halldórsdóttir, Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, Steinar Almarsson og Þórarinn Guðnason. Menntamálaráðuneytið mun senda umsóknirnar um starf forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðvar til umsagnar kvikmyndaráðs. Að fengnum um- sögnum kvikmyndaráðs mun menntamálaráðherra skipa í embætt- ið. Skipað verður í embætti forstöðu- manns Kvikmyndasafns í síðasta lagi 1. mars næstkomandi. Sautján sækja um stöðu for- stöðumanns Kvikmyndamiðstöð Íslands KONA á fimmtugsaldri missti hægri höndina í vinnuslysi í Ullarþvottar- stöðinni í Hveragerði í gærmorgun. Að sögn lögreglunnar á Selfossi varð slysið með þeim hætti að konan var að losa um stíflu í ullartætara þegar gaddar í honum gripu í hönd hennar með þeim afleiðingum að höndin fór af við úlnlið. Konan var flutt á slysa- deild Landspítalans í Fossvogi. Mál- ið er til rannsóknar hjá lögreglu og starfsmaður Vinnueftirlits ríkisins kannaði einnig aðstæður á vettvangi. Missti höndina í vinnuslysi MEÐ sameiningu Hollustuverndar ríkisins, Náttúruverndar ríkisins og embættis veiðistjóra um áramótin í Umhverfisstofnun varð til veiði- stjórnunarsvið stofnunarinnar sem tók við hlutverki veiðistjóra. Um 17 þúsund skotveiðimenn fá um þessar mundir sendar veiðiskýrslur vegna veiðinnar á síðasta ári. Í frétt frá veiðistjórnunarsviði seg- ir að tvær nýjungar hafi verið teknar upp á skilavef veiðistjórnunarsviðs- ins. Þegar skotveiðimenn skili veiði- skýrslu geti þeir um leið sótt um leyfi til hreindýraveiða. Einnig séu veiði- menn beðnir að tilgreina fjölda veiði- daga á hverri veiddri dýrategund. Segir að mikilvægt sé að fá uppgefinn fjölda veiðidaga til að sjá sóknar- þunga að baki veiðinni þar sem út frá honum megi meta álag á veiðistofna. Þá kemur fram að færst hafi í vöxt að veiðimenn skili skýrslum með raf- rænum hætti. Skiluðu 11.087 veiði- menn skýrslu í fyrra og voru 65% í rafrænu formi. „Nú fá 9.245 veiði- menn af 16.888 lykilorð til netskila sent með tölvupósti í stað skýrslu- forms í bréfi og eru það viss þáttaskil þar sem þetta er í fyrsta sinn sem fleiri fá veiðiskýrslu með tölvupósti en með hefðbundnum pósti,“ segir m.a. í fréttatilkynningu. Nýjung við skýrslugjöf skotveiðimanna Mikilvægt að tilgreina fjölda veiðidaga ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.