Morgunblaðið - 07.01.2003, Side 17

Morgunblaðið - 07.01.2003, Side 17
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 17 KAUPHÖLL Íslands hefur sagt upp aðildarsamningi verðbréfafyrir- tækisins Fjárvernd-Verðbréf hf. að Kauphöllinni. Í tilkynningu frá Kauphöllinni í gær segir að ástæða uppsagnarinnar sé viðvarandi van- efndir á greiðslu aðildargjalda. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, segir að nokkr- ir mánuðir standi útaf hjá Fjár- vernd-Verðbréfum. Ekki sé um að ræða mjög langan tíma. Hjá Kaup- höllinni sé hins vegar litið svo á að fjármálafyrirtæki, sem sýsli með annarra fé, eigi að vera í stakk búið að standa skil á greiðslum. Annað sé ekki trúverðugt. Sú stefna sé mjög ákveðin hjá Kauphöllinni að fyrir- tækjum sé ekki leyft að safna skuld- um við hana. Forstjóri Fjármálaeftirlitsins, Páll Gunnar Pálsson, segir stofn- unina hafa farið yfir stöðu Fjár- verndar. „Við höfum haft málefni fé- lagsins til athugunar að undanförnu vegna bágrar eiginfjár- og rekstr- arstöðu. Þeir hafa fengið frest til að gera grein fyrir sínum málum,“ seg- ir Páll Gunnar. Arnór Arnórsson, framkvæmda- stjóri Fjárverndar-Verðbréfa hf., segir það leitt að til þess hafi komið að Kauphöllin hafi sagt upp aðild- arsamningi félagsins að Kauphöll- inni. Tímabundið greiðsluvandamál hafi orsakað að félagið hafi ekki náð að halda greiðslum til Kauphallar- innar í skilum. Félagið sé hins vegar í fjárhagslegri endurskipulagningu, sem líti vel út. Verið sé að semja við kröfuhafa auk þess sem nýtt hlutafé muni koma inn í félagið á næstunni. Hann segir að stefnt sé að því að endurnýja aðildarsamning Fjár- verndar-Verðbréfa að Kauphöllinni hið allra fyrsta. Fjárvernd-Verðbréf fékk starfs- leyfi í júní 2001 og annast jafnt út- boð sem kaup og sölu á verðbréfum fyrir fyrirtæki, stærri fjárfesta og einstaklinga. Fyrirtækið hefur gert samstarfssamning við svissneska bankann UBS um sérhæfða fjár- málaþjónustu fyrir einstaklinga og sölu verðbréfasjóða bankans á Ís- landi. Að sögn Þórðar Friðjónssonar er gjaldskrá Kauphallar Íslands gagn- vart einstökum aðilum þríþætt. Í fyrsta lagi eru aðildargjöld og nema þau 1.200 þúsund krónum á ári. Í öðru lagi er um að ræða tengi- og hugbúnaðargjöld sem fara eftir fjölda notenda. Í þriðja lagi greiða aðilar ákveðið hlutfall af veltu, sem er í grundvallaratriðum 0,005%. Kauphöllin segir upp samn- ingi við Fjárvernd-Verðbréf Morgunblaðið/Golli VIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands námu 1.133 millj- örðum króna á árinu 2002, sem er 51% veltuaukn- ing frá fyrra ári. Veltan jókst bæði með hlutabréf og skuldabréf og hefur hún aldrei verið meiri. Heildarvelta hlutabréfa nam 321 milljarði og er það um 132% aukning frá fyrra ári. Velta hlutabréfa á árinu 2001 var reyndar minni en árið 2000, eða 138 milljarðar seinna árið en 199 milljarðar á árinu 2000. Velta skuldabréfa á síðasta ári nam 812 millj- örðum króna, sem er 33% aukning frá fyrra ári. Velta hlutabréfa var tæpu einu prósenti minni á seinni hluta ársins 2002 en á fyrstu sex mánuðun- um. Velta skuldabréfa og víxla var rúmum 44% meiri á seinni hlutanum en á þeim fyrri. Septembermánuður á síðasta ári var veltumesti mánuður með hlutabréf frá upphafi en veltan nam þá tæpum 39 milljörðum króna. Frá þessu er greint í viðskiptayfirliti frá Kaup- höll Íslands. Mest viðskipti með Íslandsbanka Mest velta á árinu 2002 var með hlutabréf Ís- landsbanka, um 34 milljarðar króna. Næstmest velta var með bréf Kaupþings banka, um 27 millj- arðar. Þar á eftir komu Pharmaco með 25 milljarða, Delta með 21 milljarð og Baugur Group með um 20 milljarða. Úrvalsvísitalan hækkaði um 16,7% á árinu 2002 og var 1.352,03 í árslok. Vísitala Aðallista hækkaði um 21,6% en vísitala Vaxtarlista lækkaði um 5,8%. Kauphallaraðilar voru 19 í árslok 2002 og var þar af einn erlendur. Hlutdeild Kaupþings banka í magni hlutabréfaviðskipta á markaðsvirði var mest meðal kauphallaraðila, eða 29,2% af heildinni. Næst kom Íslandsbanki með 20,1% hlutdeild, Landsbankinn með 19,5%, Búnaðarbankinn með 19,0% og Verðbréfastofan með 6,0%. Kaupþing banki var einnig með mesta hlutdeild í magni hlutabréfaviðskipta innan Kauphallarinnr, eða 29,7%. Íslandsbanki var þar einnig í öðru sæti með 22,5% hlutdeild, en Búnaðarbankinn fór þar hins vegar yfir Landsbankann og var með 19,4% hlutdeild en Landsbankinn með 16,4%. Þá var Sparisjóður Hafnarfjarðar í fimmta sæti yfir hlut- deild í magni hlutabréfa á markaðsvirði innan kauphallarinnar með 2,4% hlutdeild. 10 félög afskráð á árinu Þrjú félög voru skráð í Kauphöll Íslands á árinu 2002 en tíu voru afskráð. Þau félög sem voru skráð í Kauphöllinni voru Vátryggingafélags Íslands og Tækifæri, en þau voru bæði skráð á Tilboðsmark- aði, og Kaldbakur fjárfestingarfélag, sem var skráð á Aðallista. Af þeim tíu félögum sem voru afskráð í Kauphöll Íslands á árinu 2002 voru sjö á Aðallista, tvö á Vaxtalista og eitt á Tilboðsmarkaði. Félögin sem voru afskráð voru Keflavíkurverktakar, Loðnu- vinnslan, Útgerðarfélag Akureyringa, Talenta Há- tækni, Skagstrendingur, Húsasmiðjan, Delta, Þró- unarfélag Íslands, Auðlind og Haraldur Böðvarsson. Þrjú þessara félaga voru að rúmlega 90% komin í eigu Eimskipafélags Íslands þegar þau voru af- skráð, þ.e. Útgerðarfélag Akureyringa, Skag- strendingur og Haraldur Böðvarsson. Hin félögin, að Keflavíkurverktökum undanskildum, voru öll af- skráð eftir samruna við önnur félög. Í árslok 2002 voru 64 hlutafélög skráð í Kauphöll Íslands. Á Aðallista voru skráð 50 félög og þar af voru 5 hlutabréfasjóðir. Á Vaxtalista voru 9 félög, þar af einn hlutabréfasjóður, og 5 félög voru skráð á Tilboðsmarkaði. Heildarmarkaðsvirði skráðra hlutabréfa í Kaup- höll Íslands í lok ársins 2002 var 530 milljarðar króna, en var 428 milljarðar í lok árs 2001. Mikil veltuaukning með húsbréf Veltan með skuldabréf og víxla í Kauphöllinni á árinu 2002 var mest með húsbréf og stóðu þau fyrir um 39,3% af heildarveltunni. Veltan með ríkisbréf var fyrir um 16,4% af heildinni, húsnæðisbréf um 13,6% og spariskírteini um 12,7%. Bankavíxlar, rík- isvíxlar og önnur langtíma skuldabréf voru samtals um 18% af heildarveltu skuldabréfa og víxla á árinu. Eins og með hlutabréf var hlutdeild Kaupþings banka mest í viðskiptum með skuldabréf og víxla mælt í magni á markaðsvirði, 25,1%. Íslandsbanki var í öðru sæti, þá Landsbankinn, Búnaðarbankinn og Sparisjóðabankinn, hvort sem um vær að ræða viðskiptin alls eða viðskiptin innan kauphallarinn- ar. Mikil veltuaukning með verðbréf í Kauphöll Íslands á árinu 2002 Mestu viðskipti frá upphafi „ÞETTA lofar mjög góðu. Þeir sjá loðnu mjög víða og veðrið getur ekki verið betra á þessum árstíma,“ segir Freysteinn Bjarnason, út- gerðarstjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, í samtali við Morg- unblaðið. Beitir NK var fyrsta skipið til að landa loðnu á þessari vertíð, en hann kom með um 1.100 tonn til löndunar í Neskaupstað aðfaranótt mánudagsins og hefur haldið til veiða á ný. Þá kom Birtingur til heimahafnar í Neskaupstað síðdeg- is í gær með um 700 tonn sem hann fékk í nót og Börkur var í gær kom- inn með góðan afla líka. Freysteinn segir að loðnan sé mjög góð, átulaus og því sé hægt að hefja frystingu en afli Beitis fór í bræðslu. Beitir og Börkur eru á trolli en Birtingur veiðir í nót. Mjög góð veiði var í nótina undir morgun á mánudaginn og jöfn og þokkaleg veiði hefur verið í trollið. Nær allur loðnuflotinn hefur haldið til veiða og voru mörg skip á landleið í gær. Veiðisvæðið er 70 til 80 mílur austur af Vopnafirði. Vík- ingur AK var í gær á leið til Seyð- isfjarðar með fullfermi af loðnu eða um 1400 tonn og Ingunn AK var komin með rúm 1000 tonn. Nokkur skip eru þó enn á síld. „Þetta lof- ar góðu“ Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Beitir NK á landleið með fullfermi. ● SKOSKI fjárfestirinn Tom Hunter, sem gerði yfirtökutilboð með stuðn- ingi Baugs-ID í verslanakeðjuna House of Fraser (HoF) fyrir áramót, hefur aukið hlut sinn í Allders- keðjunni upp í tæp 5%. Þetta þykir styrkja þá kenningu, að Hunter hygg- ist ná yfirráðum í báðum félögum og sameina þau. Samanlagt eiga Baug- ur og fyrirtæki Hunters, TBH, 15% hlutafjár í HoF, Baugur þar af 8% . Talsmaður Hunters segir hann hafa stöðugt aukið hlut sinn í Allders að undanförnu og vilji „fá sæti við samningsborðið“. Stjórn Allders samþykkti nýlega yfirtökutilboð stærsta hluthafans í félaginu, Min- erva, upp á 132 milljónir punda, eða rúma 17 milljarða króna. Félagi Baugsmanna kaupir í Allders ● LANDSBANKI Íslands hyggst nýta sér sölurétt að nafnverði rúmar 115 milljónir króna í Vátryggingafélagi Ís- lands. Gengið í viðskiptunum er 26 og markaðsverð viðskiptanna rúmir þrír milljarðar. Sölurétturinn er hluti kaupsamn- ings sem LÍ gerði í ágúst síðastliðnum við Ker, Eignahaldsfélagið Andvöku, Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga og Samvinnulífeyrissjóðinn en þá seldi Landsbankinn 27% af 41% hlut sínum í VÍS. Greiðsla fer fram fyrsta næsta mánaðar og þegar söluréttur er frádreginn er eignahlutur bankans í VÍS innan við 2%. Landsbankinn selur í VÍS ● Norvik hf., móðurfélag Byko, seldi á gamlársdag allt hlutafé sitt í Keri, 223 milljónir að nafnvirði, eða 22,53% til Gerðis ehf. sem er dótt- urfélag Norvikur hf. Gengið í viðskipt- unum var 12,25 en lokaverð Kers í Kauphöll Íslands í gær var 11,50. Norvik eignaðist hlutinn þegar það seldi 25% í VÍS til Hesteyrar sem greiddi fyrir með hlutnum í Keri. Norvik selur í Keri RAPPARINN Eminem hefur komið frönsku fjölmiðlasamsteyp- unni Vivendi Universal nokkuð til hjálpar í þeim erfið- leikum sem hún hefur átt í að undan- förnu. Geisla- diskur rapp- arans, The Eminem Show, sem Universal gaf út, seldist í 7,6 millj- ónum eintaka í Bandaríkjunum á síðasta ári og var mest seldi disk- urinn þar í landi. Þá var diskur með lögum úr fyrstu bíómynd Eminem, 8 Mile, í fimmta sæti yf- ir þá mest seldu á árinu. Myndin hefur einnig gert það gott en Universal dreifir henni. Frá þessu greindi netútgáfa BBC. Fréttir af Vivendi Universal hafa flestar verið neikvæðar á undanförnum mánuðum. Fjár- hagsörðugleikar, lækkun á gengi hlutabréfa, uppsögn forstjórans og ásakanir um meinta ólöglega starfsemi, er það sem mest hefur borið á í umfjöllun um þetta næst- stærsta fjölmiðlafyrirtæki heims, næst á eftir AOL Time Warner. Samkvæmt frétt BBC var markaðshlutdeild Vivendi Universal á geisladiskamarkaði í Bandaríkjunum á síðasta ári nærri tvöfalt meiri en þess fyr- irtækis sem næst kom, eða 29% á móti tæplega 16% hlutdeild Warner. BBC greinir frá því að sala á geisladiskum í Bandaríkj- unum hafi dregist saman um 9,3% á árinu 2002 frá fyrra ári en þá hafi salan verð 2,8% minni en árið áður. Eminem hjálpar Vivendi Eminem

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.