Morgunblaðið - 07.01.2003, Page 18
ERLENT
18 ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LÖGREGLAN í Þýskalandi yfir-
heyrði í gær mann sem á sunnudag
rændi lítilli einshreyfils flugvél og
hótaði að fljúga henni á höfuðstöðvar
Seðlabanka Evrópu í Frankfurt.
Maðurinn er sagður veikur á geði og
var ekki ljóst í gær hvers eðlis ákæra
á hendur honum verður.
Mikill öryggisviðbúnaður var í
Frankfurt meðan á hringsóli manns-
ins í háloftunum stóð. Hann ákvað
hins vegar að lenda vélinni eftir
tveggja klukkustunda flug og var þá
handtekinn. Maðurinn, sem er 31 árs
gamall Þjóðverji, stal vélinni frá
litlum flugvelli skammt frá Frank-
furt. Ógnaði hann flugmanninum
með byssu og neyddi hann út úr vél-
inni áður en hann tók sjálfur á loft.
Sagt er að maðurinn hafi sagt, að
hann flygi vélinni á höfuðstöðvar
Seðlabanka Evrópu, sem eru í
Frankfurt, fengi hann ekki að fara í
viðtal um ævistarf Judith Resnik,
geimfara sem fórst með bandarísku
geimferjunni Challenger árið 1986.
„Hún [Resnik] á skilið meiri at-
hygli. Hún var fyrsti gyðingurinn til
að fara út í geim og kannski er það
þess vegna sem hennar er eiginlega
ekki minnst,“ sagði maðurinn í sam-
tali við sjónvarpsstöðina n-tv meðan
á flugferð hans stóð.
Flugræn-
inginn
sagður van-
heill á geði
Frankfurt. AP.
ÁÆTLANIR Bandaríkjastjórnar
um það hvað taki við að afloknu stríði
við Írak, fari svo að til hernaðar-
átaka komi, gera ráð fyrir hernámi í
minnst 18 mánuði, réttarhöldum yfir
hæst settu embættismönnum ríkis-
stjórnar Saddams Husseins og yfir-
töku olíulinda. Frá þessu er sagt í
The New York Times í gær en blaðið
segir að með yfirtöku olíulindanna sé
ætlunin að afla fjármuna til þess
uppbyggingarstarfs sem ráðgert er í
landinu.
Talsmenn Bandaríkjastjórnar
leggja áherslu á að enn hafi engin
ákvörðun verið tekin um að ráðast á
Írak. Þá sagði Jack Straw, utanrík-
isráðherra Bretlands, síðast í gær að
minna en helmingslíkur væru á því
að til átaka kæmi.
Embættismenn Bandaríkjastjórn-
ar hafa þrátt fyrir þetta lagt á ráðin
um eftirleik hugsanlegra hernaðar-
átaka, að því er fram kom í New
York Times í gær. Hafa hugmyndir
þeirra verið ræddar við George W.
Bush Bandaríkjaforseta. Þær hafa
hins vegar ekki verið endanlega út-
færðar og m.a. er mönnum umhugað
um að koma í veg fyrir að aðgerðir
Bandaríkjanna minni um of á hegð-
un evrópskra nýlenduvelda fyrr á
tímum.
Aðeins æðstu embættismenn
sóttir til saka
Áætlanirnar gera ráð fyrir því að
auðveldur sigur vinnist á her Íraka
og að Saddam verði hrakinn frá völd-
um. Engu að síður spáir varnarmála-
ráðuneytið bandaríska því að nauð-
synlegt muni reynast að setja á
laggirnar hernámsstjórn, sem ríki í
a.m.k. 18 mánuði, en verkefni hennar
yrði að standa vörð um frið í landinu,
hafa hendur í hári helstu undir-
manna Saddams og finna þau ger-
eyðingarvopn, sem Bandaríkjamenn
segja falin í Írak.
Samhliða yrði komið á fót borg-
aralegri stjórn, hugsanlega undir
forræði Sameinuðu þjóðanna, en
hennar verkefni yrði að stýra efna-
hag landsins, endurbyggja skóla og
pólitískar stofnanir og tryggja að
nauðþurftir bærust til bágstaddra.
Áætlanirnar gera ráð fyrir að að-
eins æðstu embættismenn ríkis-
stjórnar Saddams yrðu sóttir til
saka. Tekið yrði tillit til þess ef ein-
hverjir þessara manna ákvæðu að
taka þátt í því að hrekja Saddam frá
völdum.
Leita að skotpöllum
Dagblaðið The Boston Globe full-
yrðir síðan í gær að um eitt hundrað
bandarískir sérsveitarmenn séu
komnir inn í Írak, auk um fimmtíu
erindreka leyniþjónustunnar, CIA.
Hafi þessar sveitir verið að störfum
innan landamæra Íraks í allt að fjóra
mánuði. Verkefni mannanna hefur
verið, skv. Boston Globe, að hafa upp
á skotpöllum fyrir Scud-flugskeyti
Íraka, fylgjast með olíulindum
landsins, kortleggja jarðsprengju-
svæði og veita herþotum Banda-
ríkjamanna, sem hafa eftirlit með
flugbannssvæðinu yfir Írak, aðstoð á
jörðu niðri. Íraksforseti flutti sjón-
varpsávarp í gær þar sem hann sak-
aði vopnaeftirlitsmenn SÞ um að
stunda njósnir í landinu. „Í stað þess
að leita svokallaðra gereyðingar-
vopna í því skyni að sanna að í þeim
efnum hefur mörg lygin verið sögð,
hafa eftirlitsmenn verið að búa til
lista yfir íraska vísindamenn, spyrja
spurninga sem óljósan tilgang hafa
og leita svara um herbúðir og óleyfi-
legan vopnabúnað,“ sagði Saddam.
„Allt þetta, eða a.m.k. meginhluti
þess, kallast á mannamáli njósnir,“
bætti hann.
Þá hélt Saddam því fram að
Bandaríkin legðu á ráðin um að sölsa
allt Persaflóasvæðið – sem er afar
ríkt af olíu, eins og kunnugt er – und-
ir sig.
4567783986:;<9=;>995<;8?7
)% ! *
* %
!@ $)
%% ,"&$&&&% !
<
!"0&$&&&!
A
<1 &<<
BB
B7CDE F
G
H
#
! I,
J,G
K,
I
I, BG
<;8?
B
7$8$3$
@ C
D
)
? E!
B
=F
7% 8
?
G* '$*!6)$-.
#0*)&<<
'$*$
#*<*$#*
'$*L/! *
5*$. 0 "M*
! 0 "M*
'$*#50/!
'$*!6"*&<*#.
'$*0 !#5
D!*/!F0 #$-!
'*$-0$*!.4*!6"*
"
#
!
Reuters
Dagur íraska hersins var í gær og af því tilefni var marsérað framhjá Gröf óþekkta hermannsins í Bagdad. Naji
Sabri, utanríkiráðherra Íraks, sagði í ræðu, að herinn væri þess albúinn að verja landið árásum Bandaríkjamanna.
Hernám í 18 mán-
uði hið minnsta
Washington, Bagdad, London. AFP.
Bandarískir sérsveitarmenn sagðir að störfum í Írak
MIKLIR kuldar, snjóflóð og vatns-
flóð urðu að minnsta kosti 21 manni
að bana í Evrópu um helgina og veð-
urfræðingar spá sömu tíðinni áfram
út vikuna. Á Norðurlöndum og í
Eystrasaltslöndunum hafa sums
verið sett kuldamet og langt er síð-
an Danir hafa kynnst jafnmiklum
vetrarhörkum.
Í Ósló hefur frostið verið um 20
gráður daglega í nokkurn tíma og
hefur það stöðvað ferðir margra
lesta, einkum þeirra, sem komnar
eru nokkuð til ára sinna. Safna þær
undir sig snjó, sem bráðnar í löngum
lestargöngum en frýs síðan aftur og
stöðvar þá lestina á brautinni. Hafa
starfsmenn járnbrautanna unnið
myrkranna milli við að berja klak-
ann undan lestunum en það dugar
skammt. Hefur það sama verið upp
á teningnum með sporvagnana.
Í Noregi hefur kuldinn orðið fjór-
um mönnum að bana, þar af tveimur
gamalmennum af þremur, sem flutt
voru nær dauða en lífi á sjúkrahús í
Ósló vegna ofkólnunar. Hafði fólkið
hírst í jökulköldum íbúðum og
kenna margir um ofurverði á raf-
magni vegna mikils raforkuskorts í
Noregi.
Að auki urðu tvær konur, dönsk
og norsk, úti á Norefjell skammt frá
Ósló en þær höfðu lagt upp í 12 km
langa skíðagöngu á gamlársdag í 30
gráðna frosti.
Í Stokkhólmi var frostið svo hart,
að álftir og aðrir fuglar frusu fastir
og varð að losa þá úr ísnum með
volgu vatni. Í Finnlandi var frostið
mest í fyrrinótt 39 gráður en 23 í
Helsinki. Eru finnsku ísbrjótarnir
önnum kafnir við að halda höfn-
unum opnum en kuldarnir nú eru
fyrr á ferðinni en gerist og gengur.
Brynvarðir bílar
í sjúkraflutningum
Samgöngur í Danmörku hafa far-
ið úr skorðum síðustu daga vegna
snjóa og mikils kulda en á Jótlandi
var frostið um 20 gráður á sunnu-
dag. Hefur sums staðar verið gripið
til brynvarðra bíla í stað sjúkrabíla
og dönsku ísbrjótarnir eru að gera
klárt enda sundin farið að leggja.
Var því spáð í gær, að frostið myndi
harðna enn.
Snjóflóð hafa orðið mönnum að
bana á Ítalíu og í Slóvakíu og frá því
á föstudag hafa sjö látist í Þýska-
landi vegna flóða og bílslysa, sem
rakin eru til veðráttunnar. Í París
hefur flugið farið úr skorðum vegna
kafaldshríðar og í Rússlandi og víð-
ar í Austur-Evrópu fjölgar því fólki,
einkum útigangsmönnum, sem kuld-
inn leggur að velli.
Norður-
lönd í
kulda-
greipum
Róm, París, Ósló. AP, AFP.
Reuters
Þýskur hermaður reynir að halda jafnvægi á frosnum sandpokagarði við borgina Leubingen í Austur-Þýskalandi.
Eru flóðin í rénun þar en mikil úrkoma farin að valda vatnavöxtum í Tékklandi.