Morgunblaðið - 07.01.2003, Síða 21

Morgunblaðið - 07.01.2003, Síða 21
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 21 VERKEFNIÐ, sem fjallar um sam- þættingu fjölskyldu- og atvinnulífs meðal foreldra barna á leikskólaaldri á Íslandi og í Hollandi, vann Stein- unn í Maastricht veturinn 2000– 2001. Steinunn, sem er þjónustustjóri hjá Leikskólum Reykjavíkur, segir að fyrst og fremst þurfi að koma til viðhorfsbreyting meðal atvinnurek- enda og einnig að tryggt verði að for- eldrar tapi engum réttindum þótt þeir séu frá vinnu tímabundið vegna barna sinna. „Ég get nefnt sem dæmi að leik- skólum er lokað tvisvar á ári vegna skipulagsdaga og það þykir slæmt og rætt um að verið sé að brjóta á for- eldrum. Í staðinn fyrir að kröfur séu gerðar til atvinnurekenda um að það sé sjálfsagt að það komi dagar þar sem fólk þurfi að vera frá vegna barna sinna,“ segir Steinunn, sem er félagsráðgjafi að mennt og hefur starfað hjá Leikskólum Reykjavíkur frá 1995. Um eins árs skeið bjó hún í Maaastricht þar hún kannaði m.a. hvernig hollenskir atvinnurekendur koma til móts við þarfir fólks með ung börn og bar saman við atvinnu- rekendur hér á landi. Um er að ræða Evrópumiðað meistaranám á vegum Háskólans í Norður-Lundúnum sem kennt er í Hollandi þar sem m.a. eru bornar saman félagsmálastefnur í ólíkum Evrópulöndum. Lítið um launalaus leyfi Að sögn Steinunnar er mun al- gengara í Hollandi að mæður sinni börnunum og það þykir ekki sjálf- sagt að þau séu í dagvistun alla daga vikunnar. Mjög algengt er að konur sem eiga börn séu ekki í fullu starfi og um 55% kvenna á vinnumarkaði í Hollandi er í hlutastörfum. Samkvæmt tölum frá Hagstofu Ís- lands voru 91% íslenskra barna á aldrinum 3–5 ára í leikskólum árið 2002 og 62% barna á aldrinum 0–5 ára. Í Hollandi byrja flest börn í grunn- skóla fjögurra ára en tæpur þriðj- ungur barna í Hollandi, þriggja ára og yngri, fær dagvistun af einhverju tagi. Fæðingarorlof þar í landi er fjórir mánuðir en níu mánuðir hér sem skiptist á milli foreldra. Á móti er mikið lagt upp úr í Hollandi að for- eldrar geti tekið tímabundið leyfi frá störfum, launalaust eða jafnvel á launum, vegna fjölskylduaðstæðna og er það beinlínis bundið í lögum. Dæmi um þetta eru veikindi barna en einnig á launþegi rétt á að taka launalaust leyfi ef t.a.m. vatnsrör springur eða aðrar aðkallandi og ófyrirsjáanlegar aðstæður koma upp heima fyrir. „Hér á landi höfum við lítið þróað þetta. Við erum með tíu daga veik- indaleyfi á ári sem foreldrar geta fengið vegna veikinda barna sinna en að öðru leyti hefur fólk lítið annað en fæðingarorlofið.“ Að sögn Steinunnar leggja at- vinnurekendur í Hollandi sömuleiðis áherslu á sveigjanlegan vinnutíma og samkvæmt lögum sem sett voru fyrir tveimur árum hefur fólk rétt á að stytta eða lengja tímabundið vinnutíma vegna fjölskylduað- stæðna. Hún bendir á að þar í landi sé það meðvituð stefna stjórnvalda að gera kröfur til atvinnurekenda um að þeir axli hluta ábyrgðarinnar og auðveldi foreldrum að samþætta hlutverk sín, meðal annars með ólaunuðum leyfum. Þá er algengt að vinnustaðir skipuleggi og fjármagni dagvistun svo fátt eitt sé nefnt og samkvæmt nýlegum hollenskum lög- um fjármagna atvinnurekendur þriðjung af dagvistunarþjónustu vegna barna sem eru á framfæri launþega. Hér munar um minna og getur framlag atvinnurekenda því numið rúmum 60 prósentum af dagvistun- argjöldum ef báðir foreldrar eru úti- vinnandi. Ábyrgðin færist á fyrirtækin Þorláki Björnssyni, formanni leik- skólaráðs Reykjavíkurborgar, líst vel á þær hugmyndir sem reifaðar eru í verkefni Steinunnar, m.a. um að auknar kröfur verði gerðar til at- vinnurekenda um að þeir komi betur til móts við foreldra leikskólabarna. Verkefnið var kynnt á fundi leik- skólaráðs í síðasta mánuði. Hann bendir á að nú sé verið að kynna sumarlokanir á leikskólum og einu mótrökin sem heyrst hafi séu hversu erfitt reynist að samræma sumarleyfi fyrirtækjanna og for- eldra. Sumarlokanir tíðkuðust til margra ára á leikskólum en árið 1995 var far- ið að hafa opið á leikskólum yfir sum- armánuðina. Um þriðjungur leik- skóla hefur verið opinn samfellt yfir sumarmánuðina. „Atvinnurekendur sjá þetta nátt- úrlega sem álag á þá. Skyndilega fer ábyrgðin á samræmingunni af for- eldrum yfir á þá, því þarna þurfa þeir að taka tillit til sinna starfsmanna hvað þetta snertir sem þeir hafa ekki þurft.“ Hann segir að komið verði til móts við þá foreldra sem ekki geta nýtt sér sumarlokanir. Meðal hugmynda sem ræddar hafa verið er að hafa ein- hverja leikskóla opna yfir sumar- mánuðina ef meirihluti foreldra ósk- ar þess. Meistaraprófsverkefni um samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs kynnt í leikskólaráði á dögunum Þörf á viðhorfsbreytingu meðal atvinnurekenda Morgunblaðið/Árni Sæberg Steinunn Hjartardóttir, þjónustustjóri hjá Leikskólum Reykjavíkur, skrif- aði verkefni til meistaraprófs sem fjallar um samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs meðal foreldra barna á leikskólaaldri á Íslandi og í Hollandi. Gera þarf kröfur til at- vinnurekenda um að þeir komi í auknum mæli til móts við þarfir foreldra barna á leikskólaaldri og að vinnustaðir verði fjöl- skylduvinsamlegri en þeir eru í dag. Þetta er meðal þess sem Stein- unn Hjartardóttir kemst að í meistaraprófs- verkefni sínu. Reykjavík ALLS heimsóttu um 7.400 manns Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í desember sl. en gestir voru 4.700 í desember í fyrra. Aðsóknarmet hafa nú verið slegin tvö ár í röð í desembermánuði. Í lok ársins höfðu tæplega 210.000 manns heimsótt garðinn en til samanburðar voru gestir um 190.000 í fyrra. Árið 2002 er annað besta ár í sögu garðsins. Mest var aðsóknin árið 1993 en þá heimsóttu 220.000 manns Fjölskyldu- og húsdýragarð- inn. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn 7.400 gestir í desember Laugardalur Morgunblaðið/Árni Sæberg Bleikjur og bolinn Guttormur eru meðal þess sem fjölmargir gestir Fjölskyldu- og húsdýragarðsins skoða. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Stökktu á skíði til Zell am See 18. janúar frá kr. 53.550 Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri á skíði til eins vinsælasta skíðabæjar í Austurrísku ölpunum, Zell am See/- Kaprun. Beint leiguflug til Salzburg, þaðan sem er aðeins um klukku- stundar akstur til Zell. Nú bjóðum við einstakt tækifæri á síðustu sætunum á skíði í vetur. Þú bókar núna og 3 dögum fyrir brottför tilkynnum við þér á hvaða hóteli þú gistir. Í öllum tilfellum er að ræða þægilegt skíðahótel með morgunverði. 55 lyftur eru á svæðinu þ.a. hægt er að velja um allar tegundir af brekkum, allt eftir getu hvers og eins. Úrval verslana, veitinga- og skemmti- staða er í bænum sem og í næstu bæjum. Síðustu sætin Verð kr. 59.950 Verð fyrir mann, m.v. 2 í herbergi, gisting í 7 nætur á hóteli með morgunmat, skattar. Alm. verð kr. 62.950. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Verð kr. 53.550 M.v. flugsæti fram og til baka, Salzburg, með sköttum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.