Morgunblaðið - 07.01.2003, Blaðsíða 22
AKUREYRI
22 ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
„HÁLFNAÐ er verk þá hafið er,“
segir Gunnar Konráðsson, Nunni
Konn, sem býr ásamt konu sinni,
Stellu Stefánsdóttur, í húsinu
númer 22 við Lækjargötu á Ak-
ureyri en bæði fögnuðu mjög þeg-
ar gatan var malbikuð í sumar, að
líkindum ein sú síðasta sem lögð
er malbiki innan bæjarmarka. Þó
ekki nema til hálfs, malbikið nær
rétt upp fyrir hús þeirra sem er
efsta húsið í Skammagili sem svo
heitir. Þau hjón hafa búið við
Lækjargötu í 54 ár, „og maður
hefur beðið eftir úrbótum hér á
götunni allan þann tíma“, segir
Gunnar. Efst í gilinu eru nokkur
hesthús og stendur til að fjarlægja
þau í vor. „En það er nú búið að
ljúga því að okkur svo oft áður,“
segir Gunnar og efast mjög um að
af verkinu verði, „þannig að ég
spái því að efri hluti Lækjargöt-
unnar verði ekki malbikaður fyrr
en eftir 100 ár.“ Stella kveðst ekki
svo svartsýn: „Þeir klára þetta í
vor, ég er viss um það,“ segir hún
og tínir til smákökur á disk, „sem
börnin hafa fært okkur, maður
gerir ekki mikið sjálfur orðið“,
segir hún, móðir 14 barna með
kojur upp um alla veggi hér í eina
tíð. „Það var nú oft býsna þröngt,
en alltaf líflegt.“
Meiriháttar viðburður
ef heyrðist í bíl
Gunnar og Stella segja umferð
bifreiða um Lækjargötu hafa auk-
ist mjög á síðustu misserum, enda
íbúðarbyggð að vaxa á holtinu of-
an við gilið. „Það er nú samt ekki
nema einn og einn vitleysingur
sem keyrir hratt hér um, flestir
fara varlega, en það væri þó ekki
úr vegi að setja upp hraðahindrun
þar sem malbikið endar,“ segir
Gunnar. Stella segir að á fyrstu
árum þeirra hjóna við Lækjargöt-
una hafði það þótt meiriháttar við-
burður ef bíll fór um gilið. „Við
þustum bara beint út í glugga ef
heyrðist í bíl, það var sama stemn-
ingin og í sveitinni, enda flestir
gangandi á þessum tíma. Það voru
líka bara dýr hér um allt, kindur,
kýr, hestar, eiginlega allt nema
asnar – nema þeir hafi einhverjir
verið á tveimur fótum,“ segir hún
og hlær.
Sótti kolin og dró
þau heim á hlað
Gunnar sagði snjóþunga mikinn
í gilinu og mokstur hefði ekki allt-
af verið til fyrirmyndar, en þó
batnað mikið hin síðari ár. „Þetta
var til skammar hér áður fyrr,
maður þurfti sjálfur að moka heil-
mikið, því þeir komu svo seint,
þessi gata var greinilega afgangs-
stærð,“ segir hann og bætir við að
hann hafi oft þurft að bera kol til
húshitunar upp götuna þegar ekki
var mokað. „Stella segir það, ég
man það nú ekki svo glöggt sjálf-
ur,“ segir hann og eiginkonan
staðfestir söguna. „Ojú, þannig
var þetta,“ segir hún. „Þú fórst
hér niður að Geirshúsi, sóttir kolin
og dróst þau hingað uppeftir.“
Þau hjón muna marga snjó-
þunga vetur þar sem allt var á
kafi og himinháir ruðningar
byrgðu sýn. Tíðarfarið nú í vetur
segja þau einstakt. „Ég bara man
ekki eftir svona tíðarfari svona
lengi,“ segir Gunnar, en minnist
þess þó að hafa tvívegis leikið golf
á nýársdagsmorgun. Fyrra sinnið
var 1959, „hitt var eitthvað seinna,
man ekki nákvæmlega hvenær“,
segir hann, en man mæta vel að
hann byrjaði í golfi fyrir hálfri
öld, árið 1953 „og var býsna seig-
ur á tímabili“, eins og hann orðar
það. Hætti að keppa ’85, en lék sér
eftir það allt þar til hann fékk fyr-
ir hjartað fyrir tveimur árum, „og
hætti þá alveg bæði að hjóla og í
golfinu, en hefði ég verið heill
heilsu geri ég ráð fyrir að hafa
verið á golfvellinum á hverjum
degi nú að undanförnu, þetta er
slík einmuna tíð“.
Gunnar og Stella hafa búið við Lækjargötu í 54 ár
Morgunblaðið/Kristján
Stella Stefánsdóttir og Gunnar Konráðsson við húsið sitt í Lækjargötu.
…og loks var gatan
malbikuð til hálfs!
BÆNDUR í Grýtubakka-
hreppi gerðu sér ferð
norður í Hvalvatnsfjörð og
Þorgilsfjörð í Fjörðum nú
um áramótin. Þegar geng-
ið var að Þönglabakka í
Þorgilsfirði var komið að
fimm kindum sem voru að
því er virtist sallarólegar í
sólskini og snjóleysi við
Slysavarnafélagshúsið
sem þar stendur. Er ærn-
ar urðu manna varar var
líkt og sprengju hefði verið
kastað að þeim. Hófst nú
mikill eltingaleikur sem
endaði í fjörunni norður af
Arnareyri í Hvalvatnsfirði.
Áður hafði ein ærin stung-
ið sér úr hópnum og stefnt
að Botnsá í Þorgilsfirði þar
sem hún var handsömuð
og teymd í böndum austur
að Tindriðastöðum sem
var um tveggja tíma ferð.
Norður af Arnareyri náð-
ist að handsama þrjár ær
eftir átök við þær í grýttri
fjörunni en þá var ein ærin
búin að stinga sér til sunds
og ná landi á litlu skeri um
200 metra frá landi og
mátti skilja við hana þar.
Daginn eftir var farið í
Fjörður með bátkænu og
ætluðu menn að freista
þess að nálgast kindina
sem þá var með öllu horfin.
Frá því að göngum lauk í
Fjörðum á liðnu hausti
hafa ferðalangar sem farið
hafa norður í Fjörður
komið með kindur til
byggða þó ekki hafi verið
um skipulagðar eftirleitir
að ræða.
Morgunblaðið/Jónas Baldursson
Kindin syndir í átt að skerinu.
Eltingaleikur við
kindur í Fjörðum
Grýtubakkahreppur
LÚMSK hálka hefur verið á götum Akureyrar í blíð-
viðrinu undanfarna daga. Ökumenn hafa ekki farið var-
hluta af því, enda nokkuð verið um umferðaróhöpp.
Grófargilið er
sérstaklega
varasamt við
þessar aðstæður
og að minnsta
kosti tveir öku-
menn hafa lent í
vandræðum þar
síðustu daga.
Skömmu eftir
miðnætti aðfar-
arnótt sunnu-
dags skall hurð
nærri hælum er
ökumaður missti
vald á bíl sínum í
Gilinu þannig að
hún stakkst
fram af kantin-
um í beygjunni á
móts við Mynd-
listarskólann.
Aðstoð dráttar-
bíls þurfti til að koma bílnum af stað aftur og reyndist
hann lítið skemmdur. Á gamlársdag fór fólksbíll sömu
leið í Gilinu en í því tilfelli slapp ökumaðurinn einnig
með skrekkinn.
Mikið um rúðubrot í bænum
Töluvert hefur verið um rúðubrot í grunnskólum
bæjarins að undanförnu og þá hafa óprútnir menn verið
að gera sig heimakomna í geymslum fjölbýlishúsa.
Fimm rúður voru brotnar í Lundarskóla, tvær rúður í
Brekkuskóla og þrjár rúður í Síðuskóla, auk þess sem
þar voru níu útiljós skemmd og m.a. kveikt í einu
þeirra. Þá var rúða brotin í versluninni Sirku og einnig
í Sundlaug Akureyrar.
Morgunblaðið/Ingunn
Gilið á Akureyri er mjög varasamt í
hálku eins og ökumaður þessa bíls
fékk að reyna um helgina.
Mikið um rúðubrot
Lúmsk hálka í blíðunni
BEGGUBÚÐ, eða Verslun Berg-
þóru Nýborg sem áður stóð við
Strandgötu í Hafnarfirði, var á
dögunum flutt frá geymslusvæði
Þjónustumiðstöðvar Hafnarfjarðar
við Hringhellu og sett niður norð-
an við hús Bjarna Sívertsens. Þar
verður Beggubúð ásamt Sívert-
senshúsi hluti af verslunarminja-
safni á vegum Byggðasafnsins,
segir í frétt á heimasíðu Hafnar-
fjarðarbæjar. Beggubúð var upp-
haflega reist árið 1906 fyrir vefn-
aðarvöruverslun Egils Jacobsens.
Þann 22. september árið 1937 urðu
eigendaskipti er frú Bergþóra Ný-
borg tók við verslunarrekstrinum
en sem fyrr var verslað með fatnað
og prjónagarn. Árið 1959 tók Vig-
dís Madsen við versluninni en
áhersla á verslun með álnavöru og
prjónagarn hélst allt fram til árs-
ins 2000 þegar verslunarrekstri
var hætt.
„Flutningurinn gekk eins og í
sögu og var húsið komið á sinn
stað upp úr hádegi [4. janúar] og
þar mun þetta tæplega hundrað
ára gamla hús standa um ókomna
framtíð,“ segir í fréttinni.
Ljósmynd/Björn Pétursson
Beggubúð komið fyrir á nýja staðnum við hús Bjarna Sívertsens og er hús-
ið nú orðið hluti af verslunarminjasafni Hafnarfjarðar.
Beggubúð í versl-
unarminjasafnið
Hafnarfjörður
MENNINGARLÍF Seltirninga hef-
ur fengið öfluga vítamínsprautu því
nú hafa bæjaryfirvöld aftur tekið
við rekstri félagsheimilis bæjarins.
Undanfarin sjö ár hafa utanaðkom-
andi aðilar séð um rekstur heimilis-
ins en nú um áramót losnuðu samn-
ingar og breytinga er því að vænta
á nýtingu hússins. Það er bæj-
arlistamaðurinn Bubbi Morthens
sem ríður á vaðið á fimmtudags-
kvöldið með tónleikum í félags-
heimilinu í tilefni þess að bærinn
hefur endurheimt húsið.
„Það hefur komið skýrt fram síð-
ustu misseri, sérstaklega í kosn-
ingabaráttunni, mikill áhugi á að
nýta félagsheimilið í þágu Seltirn-
inga með ýmsum hætti,“ segir Jón-
mundur Guðmarsson, bæjarstjóri.
„Með því að taka við rekstrinum
viljum við stuðla að því að félögin
sem í bænum starfa og aðrir aðilar
geti nýtt sér húsnæðið, t.d. til fund-
arhalda, menningarstarfsemi eða
fyrir veislur.“
Að sögn Jónmundar liggur ekki
endanlega fyrir með hvaða hætti
félagsheimilið verður nýtt. „Við
ætlum samt sem áður að taka for-
skot á sæluna og efna til tónleika
með bæjarlistamanninum okkar,
Bubba Morthens, næstkomandi
fimmtudag og gera það að tákn-
rænum viðburði í tilefni þess að við
höfum aftur tekið við félagsheim-
ilinu.“
Jónmundur telur ekki ástæðu til
þess að svo stöddu að fara út í
breytingar eða endurbætur á fé-
lagsheimilinu. Þeir sem ráku húsið
sáu um ákveðnar endurbætur á því
meðan á leigutíma stóð.
„Það á eftir að koma í ljós þegar
það skýrist betur hvernig við viljum
nýta húsið. Það verður þá kannski
með örlítið öðrum hætti en áður og
gæti krafist einhverra breytinga.“
Tónleikar Bubba hefjast kl. 20 á
fimmtudagskvöldið.
„Það er mjög spennandi að fá að
opna félagsheimilið. Vonandi verð-
ur þetta til þess að lyfta upp menn-
ingarbragnum hjá okkur, við meg-
um vel við því að efla hann,“ segir
Jónmundur að lokum.
Seltjarnarnesbær tekur við
rekstri félagsheimilisins
Morgunblaðið/Sverrir
Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjarnarness, og Bubbi Morthens
bæjarlistamaður kampakátir fyrir utan Félagsheimilið en þar heldur sá
síðarnefndi tónleika á fimmtudagskvöldið.
Mun vonandi efla
menningarlífið
Seltjarnarnes