Morgunblaðið - 07.01.2003, Blaðsíða 31
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 31
UNDANFARINN áratug var
árlegt meðaltal hagvaxtar í Þýska-
landi 1,4%, sem var helmingi
minna en hérlendis og tæpur
fimmtungur af hagvexti á Írlandi.
Vegna þessa hefur atvinnuleysi
verið viðvarandi vandamál í Þýska-
landi um langt skeið, nálægt 8% af
vinnuaflinu síðan 1995, á meðan
ástandið batnaði víða, sérstaklega í
smærri ríkjum ESB. Því hefur ver-
ið haldið fram að bágborið atvinnu-
ástand í Þýskalandi megi rekja til
þess að evran og peningastefna á
evru-svæðinu henti því ekki. Þessi
skoðun er byggð á misskilningi því
efnahagsvandann má að mestu
rekja til úreltrar þýskrar vinnulög-
gjafar.
OECD er helsti samráðsvett-
vangur um efnahagsstjórn þrjátíu
ríkja sem hafa lýðræði og starf-
semi á frjálsum markaði að leið-
arljósi. Hagdeild OECD hefur í
áratugi unnið að greiningu á for-
sendum hagvaxtar og atvinnusköp-
unar á tímum hnattvæðingar. Í
þeirri vinnu hafa áhrif löggjafar og
reglugerða, sem lúta að vinnu-
markaði, á atvinnusköpun verið
skoðuð ýtarlega. Niðurstaða þeirr-
ar vinnu er skýr. Vinnulöggjöf
Þýskalands er úr takti við alþjóð-
lega þróun. Með því að binda um of
hendur fyrirtækja og einstaklinga
á markaði dregur úr getu þeirra til
að laga sig að kröfum markaðarins.
Gölluð vinnulöggjöf tengist oft
ófullnægjandi samkeppni á vöru-
og þjónustumörkuðum. Afleiðingin
er sú að fyrirtæki skapa færri
störf, það dregur úr nýsköpun og
hægir á framleiðniþróun. Allt eru
þetta atriði sem vega að rótum
sjálfbærs hagvaxtar.
Þessi þróun hefur jafnframt
veikt fjárhagslega afkomu þýska
ríkisins. Stuðningur við fjórar
milljónir atvinnulausra hefur kall-
að á aukna skattheimtu. Þýska rík-
isstjórnin hefur lagt nýja skatta á
atvinnurekstur sem draga frekar
úr samkeppnishæfni fyrirtækj-
anna. Þýskaland er því sýnilega
komið í ákveðinn vítahring, þar
sem löggjöfin truflar starfsemi á
markaði og kostnaður vegna at-
vinnuleysis kallar á aukna skatt-
heimtu sem veikir atvinnusköpun
enn frekar.
OECD hefur í mörg ár bent á
ýmis atriði í löggjöf landsins, sem
þarf að breyta til að atvinnusköpun
geti verið með eðlilegum hætti.
Ríkisstjórn Gerhards Schroeders
hefur ekki brugðist rétt við vand-
anum. Í raun hafa viðbrögð rík-
isstjórnarinnar orðið til að auka
vandann. Það sést á því að þrátt
fyrir mikið atvinnuleysi hafa launa-
hækkanir verið talsverðar vegna
þess að samkeppni um ný störf er
aðallega meðal þeirra sem þegar
eru starfandi. Háar atvinnuleysis-
bætur og háir skattar valda því að
ekki er eftirsóknarvert fyrir hina
atvinnulausu að leita sér að vinnu.
Við þessar aðstæður skapar bóta-
kerfið vítahring – fátæktargildru –
fyrir hina atvinnulausu þar sem
fjarveran rýrir reynslu og getu
þeirra á vinnumarkaði og mögu-
leika til betur launaðra starfa.
Eins og meðfylgjandi mynd sýn-
ir hefur atvinnusköpun í Þýska-
landi verið með minnsta móti í
OECD-ríkjunum. Þetta ófremdar-
ástand er ekki hægt að laga með
því að lækka vexti frekar. Það sést
best á því að atvinnusköpun annars
staðar í ESB hefur víða verið með
ágætum við svipað vaxtastig und-
anfarinn áratug. Þá hefur atvinnu-
sköpun í öðrum ESB-ríkjum í nið-
ursveiflunni síðustu tvö ár einnig
verið meiri en í Þýskalandi.
Benda má á að einn helsti vandi
hagstjórnar undanfarin ár hefur
verið mikil lækkun á verði hluta-
bréfa, sem hefur dregið úr bjart-
sýni neytenda og fjárfesta og þar
af leiðandi eftirspurn í hagkerfinu.
Niðursveiflan í heimsbyggðinni
undanfarin missiri hefur leitt til
þess að vextir hafa víða verið lækk-
aðir óvenju mikið. Sú þróun er
óháð evrunni.
Vextir á evrusvæðinu eru nú
2,75%, sem er með því lægsta sem
verið hefur í Þýskalandi frá stríðs-
lokum. Evrópski seðlabankinn hef-
ur átt erfitt með að lækka vexti
vegna launabólgu í Þýskalandi. Þá
eru raunstýrivextir í Þýskalandi
um 1,5%, en til samanburðar eru
þeir mun hærri á Íslandi, eða um
4%.
Það er því ekki vaxtastiginu á
evrusvæðinu að kenna eða að gengi
þýska marksins hafi verið of hátt
við upptöku evrunnar hversu lítill
hagvöxturinn hefur verið í Þýska-
landi. Í því samhengi má benda á
að þýska markið var hátt metið í
áratugi fyrir inngöngu Þjóðverja í
evrusamstarfið vegna velgengni
hagkerfis þeirra. Til að viðhalda
þeirri velgengni þurfa Þjóðverjar
að laga hagkerfi sitt að kröfum nú-
tímans. Að takast á við það myndi
jafnframt draga úr óvissu fjárfesta
í Þýskalandi með framvinduna.
Það er því röng ályktun að pen-
ingastefnu Evrópska seðlabankans
og evrunni fylgi of mikið aðhald
fyrir þýska hagkerfið. Í raun
myndi það breyta litlu fyrir Þjóð-
verja að hafa eigin mynt. Það er
vegna þess að viðvarandi efnahags-
vandi Þjóðverja er ekki til kominn
vegna vaxtastigsins eða evrunnar
heldur á hann einkum rætur að
rekja til úreltrar vinnulöggjafar.
Áhrif evrunnar eru jákvæð fyrir
Þýskaland eins og önnur lönd Evr-
ópu. Þar sem evran eykur virkni
sameiginlegs markaðar Evrópu er
hún forsenda meiri hagvaxtar í álf-
unni. Áskorun Þjóðverja felst í því
að uppfæra leikreglur heimamark-
aðarins til að geta nýtt sér betur
sóknarfærin sem fylgja evrunni.
Þýskaland
og evran
Eftir Þorstein
Þorgeirsson
„Því hefur
verið haldið
fram að bág-
borið at-
vinnuástand
í Þýskalandi megi rekja
til þess að peninga-
stefna á evrusvæðinu
henti því ekki. Þessi
skoðun er byggð á mis-
skilningi því vandann
má að mestu rekja til
úreltrar þýskrar vinnu-
löggjafar.“
Höfundur er hagfræðingur
Samtaka iðnaðarins.
Aðeins það besta
fyrir andlit þitt
Estée Lauder andlitsmeðferðin miðar öll að því að veita þér slökun og
dekra við þig - allt frá vandvirkri hreinsun húðarinnar að yndislega
róandi nuddinu.
Nútímaleg húðumhirða okkar vinnur gegn vandamálum sem stafa af
þurri húð eða feitri, hrukkum, slælegri blóðrás, þreytulegri húð og
öðru sem hrjáir húðina. Öll er meðferðin umvafin ljúfri munúð og
slökun.
Veittu þér andlitsmeðferð eins og þær gerast bestar og sjáðu hvað
svolítið dekur gerir húðinni gott.
Það kostar aðeins kr. 2.500.
Hringdu og pantaðu tíma.
Síminn er 568 9033.
Snyrtiklefi
Kringlunni, sími 568 9033.
B ú s e t i h s f . S k e i f u n n i 1 9 s í m i 5 2 0 - 5 7 8 8
w ww . b u s e t i . i s
Fyrsta skrefið að öruggu húsnæði!
umsóknarfrestur til og með 14. janúar nk.
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu Búseta hsf. Opið virka daga frá 8:30 til 16:00. Með umsóknum
um íbúðir á leiguíbúðalánum þarf að skila: síðustu skattskýrslu og launaseðlum síðustu sex mánaða.
Úthlutun íbúðanna fer fram miðvikudaginn 15. janúar kl. 12:00 - 12:30 að Skeifunni 19.
Umsækjendur verða að mæta á tilskyldum tíma og staðfesta úthlutun sína að öðrum kosti
gætu þeir misst réttindi sín og íbúðinni yrði úthlutað til annars félagsmanns.
3ja herb.
Kristnibraut 67, Reykjavík
92m2 íbúð 206 Alm.lán
Búsetur. frá 1.865.268 til 1.882.080
Búsetugjald kr. 79.432
Laus strax að ósk seljanda
Íbúð með almennum lánum
veitir rétt til vaxtabóta.
Íbúð með leiguíbúðalánum
veitir rétt til húsaleigubóta.
3ja herb.
Lerkigrund 7, Akranesi
80m2 íbúð 302 Leiguíb.lán
Búseturéttur kr. 1.165.664
Búsetugjald kr. 42.119
Laus maí/júní að ósk seljanda
N Ý T T H Ú S
Kristnibraut 61-63, Reykjavík
Tvær 3ja herb. og fjórar 4ra herb. íbúðir eftir
89-91m2 og 99-109m2. Almenn lán.
Afhending 16. maí 2003
Búseturéttur kr. 1.766.310 og 1.801.913,
frá kr. 1.962.127 til 2.155.966
Búsetugjald kr. 76.660 og 78.205,
frá kr. 85.158 til 93.571
4ra herb.
Lerkigrund 7, Akranesi
94m2 íbúð 301 Alm.lán
Búsetur. frá 1.339.664 til 3.881.946
Búsetugjald frá 62.117 til 77.153
Laus srax að ósk seljanda
N Ý T T H Ú S
Þverholt 13-15, Mosfellsbæ
Sjö 2ja herb. 54-83m2, sjö 3ja herb. 82-90,3m2
og tvær 4ra herb. 100m2. Almenn lán.
Afhending 4. apríl 2003
Búseturéttur frá kr. 1.142.815 til 1.575.702,
1.568.461 til 1.752.897 og 1.847.185.
Búsetugjald frá kr. 57.254 til 78.224,
77.873 til 86.808 og 91.375
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti 11 sími 551 3930
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Brúðhjón
A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r