Morgunblaðið - 07.01.2003, Side 37
alann, aðeins þremur dögum fyrir
jól, var ég hjá henni og henni leið
ekki nógu vel því það var ekki búið
að stilla gangráðinn sem hún var
nýbúin að fá. Hún sagði mér að það
ætti að stilla hann eftir helgi en það
hafði dregist fyrir einhvern mis-
skilning.
Hér á árum áður þegar ég var í
skóla hér fyrir sunnan, þá innan við
tvítugt, fór ég oft í heimsókn til
Önnu og Ara í Hlíðarnar en þau
bjuggu þar á þeim tíma. Heimili
þeirra var hlýlegt og fullt af elsku og
mér fannst alltaf svo mikill glæsi-
leiki yfir þeim hjónum og sérstak-
lega Önnu frænku, hún var bara
ávallt eitthvað svo virðuleg.
Anna og Ari áttu engin börn sam-
an og því var það að Anna var stund-
um ein á jólum þegar Ari var lang-
dvölum til sjós og leiddist henni þá
oft og mikið að vera ein yfir jólahá-
tíðirnar.
Þetta sagði hún mér í síðustu
heimsókninni minni til hennar nú
fyrir jólin og það er alltaf sárt að vita
til þess að fólk sé einmana um jól því
flestir vilja njóta samveru við aðra
yfir jólin. Ég man líka þegar ég
heimsótti Önnu á Landspítalann
daginn sem gangráðurinn var settur
í. Hún var máttfarin, þreytt og dös-
uð eftir svæfinguna og þegar ég tal-
aði um það að fara heim svo hún gæti
hvílt sig þá sagði hún að það sem
þreytti hana væri að liggja, hún yrði
aldrei þreytt á fólki. Það er einmitt á
svona stundum sem auðvelt er að
sakast við sjálfan sig og finnast mað-
ur hafa mátt gera betur, að heim-
sóknarferðirnar til Önnu hefðu verið
fleiri en þær voru í raun og veru. Þá
er líka hægt að leiða hugann að því
hvernig lífi manneskjan lifir hér á
jörðinni, mannfólkið nú á dögum
hugsar svo mikið um að vinna og
vinna og veltir kannski ekki fyrir sér
raunverulegum tilgangi lífsins, þ.e.
að rækta kærleiksrík sambönd,
hvort heldur er milli hjóna, vina,
frændfólks, kunningja o.þ.h. og hlúa
hvert að öðru og sýna kærleik í
verki.
Ég kveð elskulega frænku mína,
Önnu, með sorg og söknuði og veit
að það er stór hópur af góðu fólki
sem tekur á móti henni á eyjunni
bláu.
Sigrún Jónsdóttir.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 37
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl.
10–14 í neðri safnaðarsal kirkjunnar.
Bæna- og fyrirbænastund kl. 12. Að lokinni
bænastund gefst þátttakendum kostur á
léttum hádegisverði. Samvera foreldra
ungra barna er kl. 14 í neðri safnaðarsaln-
um. 12 spora fundur í kvöld kl. 19 og opinn
bænafundur á sama tíma fyrir alla þá sem
áður hafa farið í gegnum 12 spora vinnuna,
fyrsta þriðjudag hvers mánaðar.
Bústaðakirkja. TTT-æskulýðsstarf fyrir
10–12 ára kl. 17.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris-
ganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður að
samverustund lokinni.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Eldri borg-
arastarf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og
spjall.
Óháði söfnuðurinn. Tólf sporin - andlegt
ferðalag. Í dag, þriðjudag, kl. 18 er haldið
áfram þar sem frá var horfið fyrir jól. Þátt-
takendur eru boðnir velkomnir. Ragnar K.
690 6694.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með
altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má
koma til sóknarprests í viðtalstímum hans.
Fella- og Hólakirkja. Fjölskyldustund í
safnaðarheimili á þriðjudagsmorgun kl.
10–12 í umsjón Lilju G. Hallgrímsdóttur
djákna. Kaffi og notalegheit þar sem
heimavinnandi foreldrar hittast í góðu um-
hverfi kirkjunnar.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18.
Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara í
safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 13–16 á
vegum kirkjunnar. Spilað og spjallað. Helgi-
stund kl. 16. Fjölbreytt æskulýðsstarf fyrir
9–12 ára stúlkur í safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli kl. 17.30–18.30 í umsjón
KFUK.
Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8–9 ára
börn í dag kl. 17.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12
ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi,
Vonarhöfn frá kl. 17–18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 7–9
ára börn kl. 16.30–18. Æskulýðsstarf, 8.
og 9. bekkur kl. 20–22.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla
þriðjudaga kl. 10–12.
Hveragerðiskirkja. Kl. 10 foreldramorg-
unn. Jólafundur með jólablæ. Kl. 15.30
helgistund á Ási.
Borgarneskirkja. TTT tíu–tólf ára starf alla
þriðjudagakl. 17–18. Helgistund í kirkjunni
sömu daga kl. 18.15– 19.
Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl.
13.40.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Kefas. Brauðsbrotning og bænastund kl.
20.30. Allir velkomnir.
Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9.
Safnaðarstarf
✝ Golda HelenMontgomery
fæddist í Pike, Miss-
issippi í Bandaríkjun-
um 18. júní 1929. Hún
andaðist á Landakoti
21. desember síðast-
liðinn. Hún var dóttir
hjónanna Hilda Mar-
ie Montgomery (fædd
Dunaway), f. 29. jan-
úar 1913, og Robert
Lee Montgomery, f.
16. ágúst 1908, d. 17.
ágúst 1973. Þau
skildu. Helen ólst upp í Los Angel-
es. Þar kynntist hún Sveinbirni
Þórhallssyni flugvirkja, f. 30.
ágúst 1922, d. 8. febrúar 1983, og
þau giftu sig á Íslandi 28. desem-
ber 1946. Þau skildu. Foreldrar
hans voru Jónína Eyþóra Guð-
mundsdóttir og Þórhallur Bjarn-
arson prentari. Börn Helenar og
Sveinbjörns eru fjögur: 1) Jón Þór
rafeindavirki, f. 1.
maí 1948, kvæntur
Margréti Jónu
Sveinsdóttur. 2)
Stefán prentari, f.
19. apríl 1951,
kvæntur Hall-
björgu Karlsdótt-
ur. 3) Jónína María
leikskólakennari, f.
2. ágúst 1952, gift
Haraldi Guðbjarts-
syni. 4) Hrafnhild-
ur skrifstofustjóri,
f. 25.6. 1957, gift
Helga A. Nielsen. Barnabörn eru
sextán og langömmubörnin orðin
þrjú.
Helen kom til landsins í október
1946 og vann m.a. hjá bandaríska
sendiráðinu, Skeljungi og Glóbus
ehf.
Útför Helenar verður gerð frá
Neskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Mig langar með fáum orðum að
minnast ömmu Helen sem nú hefur
kvatt þennan heim og heilsað öðrum
fegurri. Hún var yndisleg og
hjartahlý kona, kona sem háði hetju-
lega baráttu við illvígan sjúkdóm. Ég
kallaði hana alltaf ömmu Helen, þó
svo að hún væri ekki amma mín, en
hún átti þó alltaf vissan stað í hjarta
mínu eins og ömmur eiga. Ég kynnt-
ist henni fyrir tæpum 16 árum eða
þegar við Bjarki kynntumst. Við
komum reglulega til hennar í heim-
sókn og áttum saman margar góðar
stundir. Þeir voru líka óteljandi
föstudagarnir sem við fórum til
hennar í mat.
Mér er þakklæti efst í huga þegar
ég hugsa til ömmu Helen. Ég bið
góðan Guð að styrkja alla þá sem
eiga um sárt að binda. Hennar er
sárt saknað en hún skilur eftir sig
hlýjar minningar í hjarta þeirra sem
voru svo lánsamir að kynnast henni.
Ásdís Sturlaugsdóttir.
GOLDA HELEN MONTGOMERY
KIRKJUSTARF
Vorsins barn, þú verður
kvatt með tárum
og vinahendur hlúa að þínum beð.
Ég veit að margir sitja nú í sárum
og sakna þess að geta ei fylgst þér með.
Við biðjum Guð að blessa minning þína
og breyta sorgarmyrkri í ljósan dag
og láta kærleiksröðul skæran skína
og skreyta jörð við lífs þíns sólarlag.
(Guðm. Guðm.)
SIGRÍÐUR BEN
SIGURÐARDÓTTIR
✝ Sigríður BenSigurðardóttir
fæddist í Reykjavík
13. mars 1928. Hún
lést á Landspítalnum
v/ Hringbraut 22.
desember síðastlið-
inn og var útför
hennar gerð frá Frí-
kirkjunni í Hafnar-
firði 30. desember.
Þessar ljóðlínur
koma upp í hugann þeg-
ar við hugsum til henn-
ar Diddu frænku eins
og hún var kölluð á okk-
ar heimili eða Didda
Ben, jazzsöngkona. En
það kallaði Lúlli bróðir
hana stundum með bros
á vör. Með söknuði og
eftirsjá skrifum við
þessar línur til minning-
ar um ástkæra frænku
sem var okkur svo góð.
Alltaf vorum við velkomin í Hafnar-
fjörðinn til hennar og Geira, hvort
sem var á Skúlaskeiðið eða á Hjalla-
brautina, þótt heimsóknirnar hafi
ekki verið margar. Þar var setið og
spjallað um alla heima og geima og í
gegn um hana Diddu náðum við að
fylgjast aðeins með fjölskyldunni
okkar. Hún Didda gat alltaf séð
spaugilegu hliðarnar á hlutunum og
hlegið af innlifun.
Með hláturinn hennar í huga viljum
við kveðja ástkæra frænku.
Elsku Geiri, Gísli, Marín, Jenný,
Sísí, Egill, Ari, Soffa og fjölskyldur.
Guð blessi ykkur og styrki í sorg
ykkar.
Gott fólk gleymist aldrei.
Fríða, Hanna, Halla,
Lúðvík og Anna Laufey.
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Toppsölumenn óskast!
til að kynna og selja
geysivinsæla öryggisvöru.
Allar nánari uppl. gefur Sverrir í síma 661 7000. Sjúkraliðar
— þroskaþjálfar
Á Grund eru laus til umsóknar staða hópstjóra
á sérdeild fyrir minnisskerta. Um er að ræða
80-100% stöðu sem er laus nú þegar eða eftir
nánara samkomulagi. Einnig eru lausar kvöld-
og helgarvaktir hópstjóra á almennri hjúkrun-
ardeild. Ýmsir möguleikar í boði. Reynsla í
öldrunarhjúkrun æskileg en sjálfstæði og áhugi
skilyrði. Umsækjendur velkomnir að koma að
skoða heimilið.
Nánari upplýsingar hjá Sólveigu hjúkrunarfor-
stjóra í síma 530 6100 eða 530 6116 frá klukkan
8-16 virka daga.
Lausar stöður við
LINDASKÓLA
Lindaskóli er einsetinn skóli með nemendur í
1. – 10. bekk.
Skólinn er vel búinn kennslutækjum og
starfsaðstaða er mjög góð.
Lindaskóli auglýsir eftir:
• dönskukennara á mið-stig og
• tónmenntakennara til að stofna og
stjórna kór við skólann.
Laun samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launa-
nefndar sveitarfélaga.
Karlar jafnt og konur eru hvattir til að sækja um
stöðurnar.
Upplýsingar gefur skólastjóri Gunnsteinn Sigurðs-
son í síma 554 3900
eða 861 7100.
Starfsmannastjóri
www.kopavogur.is
KÓPAVOGSBÆR
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
KENNSLA
Frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
Fjarnám á vorönn 2003
Skráning í fjarnám við FG á vorönn 2003 verð-
ur til 22. janúar 2003. Boðið er upp á fjarnám
í mörgum bóknámsgreinum. Fjarnám er góður
kostur fyrir þá sem vilja ljúka því námi sem
þeir á sínum tíma byrjuðu á; fyrir þá sem vilja
bæta við sig námsgreinum og fyrir þá sem
finnst gaman að rifja upp og/eða læra eitthvað
nýtt.
Fjarnám er hugsað fyrir fólk á öllum aldri. Fjar-
nám er hægt að stunda þegar manni hentar
- innan ákveðinna marka þó!
Umsóknareyðublað um fjarnám fæst á skrif-
stofu skólans sem er opin virka daga frá kl. 9-16
og á heimasíðu skólans - www.fg.is .
Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Pálsdóttir,
kennslustjóri fjarnáms, í síma 520 1600 net-
fang: rpals@fg.is .
Verðskrá er á heimasíðu skólans.
Skólameistari.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á skrifstofu
embættisins, Borgarbraut 2, Stykkishólmi, sem hér segir:
Sigurbjörg SH-48, sknr. 1129, þingl. eig. Gísli/Hálfdán ehf., Snæ-
fellsbæ, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingabankinn hf., föstudaginn
10. janúar 2003 kl. 11.00.
Sýslumaður Snæfellinga,
3. janúar 2003.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Ennisbraut 55, Snæfellsbæ, þingl. eig. Tréskip ehf., Stykkishólmi,
gerðarbeiðendur innheimtumaður ríkissjóðs og Lífeyrissjóðurinn
Lífiðn, föstudaginn 10. janúar 2003 kl. 14.00.
Sýslumaður Snæfellinga,
3. janúar 2003.
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti, netfangið er minning@mbl.is, svar er
sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að
fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími)
fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær
berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn ein-
stakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar
skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að
það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.