Morgunblaðið - 07.01.2003, Síða 39

Morgunblaðið - 07.01.2003, Síða 39
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 39 BÁTAR SKIP Bátur og kvóti til sölu! Krókaaflamarksbátur og krókaaflahlutdeild (óveitt) ca 130 tonn þorksígildi. Aflamörk innan ársins í stóra kerfinu ca 100 tonn þorksígíldi. Áhugasamir hafi sambandi við Þorstein á Hóli, skipasölu, í síma 595 9000 eða 869 0839. TILKYNNINGAR TÍBRÁR tónleikar í Salnum starfsárið 2003-2004 • Minnt er á að umsóknarfrestur til að sækja um tónleikahald í Tíbrá 2003- 2004 rennur út 10. janúar nk. Umsóknir um tónleikahald ásamt kjörtíma flytjenda og hugmyndum að efnisvali sendist til Fræðslu- og menningarsviðs, Björns Þorsteins- sonar, Fannborg 2, sími 570-1600, eða með tölvupósti til Sigurbjargar Hauksdóttur: sigurbjorg@kopavogur.is. Valið er úr umsóknum og öllum svarað að vali loknu. Fræðslu- og menningarsvið Kópavogs KÓPAVOGSBÆR Happdrætti Félags heyrnarlausra Útdráttur 31. desember 2002 Bifreið af gerðinni Skoda Fabia Combi kr. 1.320.000 1941 iBook Combo tölva frá Aco kr. 185.000 1509 6953 7655 18894 Ferðavinningur frá Flugleiðum kr. 90.000 5093 6061 10238 13358 Ferðavinningur frá Flugleiðum kr. 60.000 3460 9879 10518 16023 Vöruúttekt hjá versluninni Útilíf kr. 40.000 2071 4008 7642 10650 11118 12966 14136 15178 Gjafabréf í IKEA kr. 25.000 561 4485 7332 7897 8268 11682 15566 17780 18489 19228 Gjafabréf í Smáralind kr. 5.000 447 1196 2172 2487 3702 4218 4413 4593 4710 6153 6491 6715 7057 7411 8909 9295 9297 9345 10118 10363 10987 11751 12208 13453 13699 13944 15555 15775 16407 16878 16922 17642 17887 18041 18076 18548 18888 19267 Birt með fyrirvara um prentvillur. Þökkum veittan stuðning. Félag heyrnarlausra, Laugavegi 103, 105 Reykjavík, sími 561 3560. UPPBOÐ Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Bjarkarbraut 1, 0201, eignarhl., Dalvíkurbyggð, þingl. eig. Sigvaldi Gunnlaugsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Akureyri, föstudag- inn 10. janúar 2003 kl. 10.00. Brekkugata 3, tengibygging, Akureyri, þingl. eig. Brekkubúðin ehf., gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna, föstudaginn 10. janúar 2003 kl. 10.00. Brekkugata 3b, suðurhl. bakhúss, Akureyri, þingl. eig. Brekkubúðin ehf., gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna, föstudaginn 10. janúar 2003 kl. 10.00. Grenivellir 16, 0201, íb. á 2. hæð til vinstri, Akureyri, þingl. eig. María Hólm Jóelsdóttir, gerðarbeiðendur Fasteignalánasjóður póstmanna, Íslandsbanki hf. og Lífeyrissjóðir Bankastræti 7, föstudaginn 10. janúar 2003 kl. 10.00. Huldugil 64, eignarhl., Akureyri, þingl. eig. Elías Hákonarson, gerðar- beiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., föstudaginn 10. janúar 2003 kl. 10.00. Kaupvangsstræti 21, neðri hæð, Akureyri, þingl. eig. Sverrir Kristjáns- son, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður og Sparisjóður Norðlend- inga, föstudaginn 10. janúar 2003 kl. 10.00. Skessugil 13, 0101, Akureyri, þingl. eig. Jarðverk ehf., gerðarbeiðend- ur Íbúðalánasjóður og sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 10. janúar 2003 kl. 10.00. Skessugil 13, 0102, Akureyri, þingl. eig. Jarðverk ehf., gerðarbeiðend- ur Íbúðalánasjóður og sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 10. janúar 2003 kl. 10.00. Skessugil 13, 0201, íb. á 2. hæð til vinstri, Akureyri, þingl. eig. Jarð- verk ehf., gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 10. janúar 2003 kl. 10.00. Skessugil 13, 0202, Akureyri, þingl. eig. Jarðverk ehf., gerðarbeiðend- ur Íbúðalánasjóður og sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 10. janúar 2003 kl. 10.00. Sunnuhlíð 12c, 010103, Akureyri, þingl. eig. Ragnheiður Austfjörð og Bjarni Rúnar Guðmundsson, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður versl- unarmanna, föstudaginn 10. janúar 2003 kl. 10.00. Svarfaðarbraut 32, Dalvíkurbyggð, þingl. eig. Vignir Þór Hallgríms- son, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Lífeyrissjóður Norðurlands og Vátryggingafélag Íslands hf., föstudaginn 10. janúar 2003 kl. 10.00. Sýslumaðurinn á Akureyri, 6. janúar 2003. Harpa Ævarrsdóttir, ftr. SMÁAUGLÝSINGAR TILKYNNINGAR Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur, Síðumúla 31, s. 588 6060. Miðlarnir, spámiðlarnir og hug- læknarnir Þórhallur Guð- mundsson, Ólafur Hraundal Thorarensen, Ingibjörg Þeng- ilsdóttir, Erla Alexanders- dóttir og Garðar Björgvins- son michael-miðill starfa hjá félaginu og bjóða félagsmönn- um og öðrum upp á einkatíma. Upplýsingar um félagið, einka- tíma og tímapantanir eru alla virka daga ársins frá kl. 13— 18. Utan þess tíma er einnig hægt að skilja eftir skilaboð á símsvara félagsins. Netfang: mhs@vortex.is . Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur starfar í nánum tengslum við Sál- arrannsóknarskólann á sama stað. SRFR. KENNSLA  www.nudd.is FÉLAGSLÍF  EDDA 6003010719 III  FJÖLNIR 6003010719 I  HLÍN 6003010719 VI  HLÍN 6003010719 VI I.O.O.F.Rb.4  152178- R A Ð A U G L Ý S I N G A R FRÉTTIR mbl.is Rangt föðurnafn Í frétt blaðsins á laugardag um ráðningu hótelstjóra á Selfossi var rangt farið með nafn hans. Hótel- stjórinn heitir Sigurður Skúli Bárð- arson. Beðist er velvirðingar á mis- tökunum. „Þúsund“ féll niður Í bréfi til blaðsins í Morgunblaðinu föstudaginn 3. janúar birtist grein mín „BORGAR TVÖFALDAN SKATT“. Í greininni urðu þau leiðu mistök að það féll niður eitt orð þann- ig að 45 þús. kr. urðu að 45 kr. bið ég því Morgunblaðið að birta þennann hluta greinarinnar sem villan er í og fer sá kafli hér á eftir: Einnig er rétt að vekja athygli á því að ellilífeyrisþegi sem er giftur, mak- inn á vinnumarkaði og vinnur auka- vinnu, þá verður lífeyrisþeginn fyrir 45 þús. kr. skerðingu á tekjutrygg- ingu á móti 100 þús. kr. tekjum laun- þegans, launþeginn borgar 39 þús. kr. í skatt af þessum hundrað þús. kr. svo eftir standa aðeins 16 þús. kr. Guðvarður Jónsson LEIÐRÉTT Málþing um íþróttir og gildismat. Íþrótta- og Ólympíusamband Ís- lands býður til opins málþings um íþróttir og gildismat í samvinnu við fræðslusvið Biskupsstofu, miðviku- daginn 8. janúar kl. 17 á Grand Hótel í Reykjavík. Meðal frummælenda verður Ólafur Stefánsson nýkjörinn íþróttamaður ársins 2002. Á málþinginu verður velt upp spurn- ingum eins og: Eiga íþróttaþjálfarar að byggja upp manneskjur eða vinna til verðlauna? Hvers konar gildi og viðmiðanir gefa íþróttir börnum og ungu fólki? Eru íþróttir að verða að skemmtun frekar en ástundun heil- brigðrar hreyfingar? Hverjar eru dygðir íþróttaiðkunar og hverjir eru lestir, s.s. lyfjamisnotkun. Ellert Schram forseti ÍSÍ setur mál- þingið kl 17 en síðan verða flutt fjög- ur stutt framsöguerindi: Íþróttir – að vinna sigur á sjálfum sér eða öðrum? Halldór Reynisson verkefnisstjóri á Biskupsstofu. Þjálf- arar og gildismat, Vanda Sigurgeirs- dóttir, þjálfari og kennari. Áherslur og gildismat í íþróttum, Olav Ball- isager íþróttafrömuður og háskóla- kennari í Árósum. Hvað hafa íþróttir gefið mér sem einstaklingi? Ólafur Stefánsson atvinnumaður í hand- knattleik. Á eftir verða pallborðs- umræður. Áætluð lok málþingsins eru kl. 19:30. Málþingið er opið öll- um. Skráning fer fram á skrifstofu ÍSÍ, netfang andri@isisport.is Á MORGUN LÖGREGLUNNI í Reykjavík var tilkynnt um 22 umferðaróhöpp um helgina en í tveimur tilfellum var um minniháttar meiðsl að ræða. 54 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur, einn þeirra var tekinn á 100 km hraða þar sem hámarkshraði er 50 km/klst. Aðeins þrír voru kærðir vegna gruns um ölv- un við akstur. Nokkuð var um þjófnaði á veit- ingahúsum um helgina. Meðal ann- ars var stolið myndbandsupptökuvél að verðmæti um 180.000. Þá var kona handtekin vegna gruns um að hafa stolið úr veski á veitingastað, m.a. farsíma. Er lögreglumenn voru að yf- irheyra konuna kom þýfið upp um hana, þegar farsíminn sem hún hafði stolið fór að hringja en hún var með hann í vasanum. Þá var kona hand- tekin fyrir að hafa stolið peysu af annarri konu. Konan neitaði að fara úr peysunni og urðu lögreglumenn að færa hana úr og komu peysunni síðan til eigandans. Óheiðarlegur blaðasali Tilkynnt var um 12 innbrot og 33 skemmdarverk um helgina. Á föstu- dag var tilkynnt um mann sem hafði fallið í hálku inni í Vogum. Mun hann hafa ökklabrotnað. Á laugardag var maður handtek- inn í Lækjargötu grunaður um að hafa stolið blaðapakka frá verslun og vera að selja blöðin. Viðurkenndi maðurinn verknaðinn, skilaði því sem hann átti óselt og greiddi andvirði þeirra blaða sem hann hafði selt. Þá var á laugardag brotist inn í íbúð í Túnunum. Fór þjófurinn inn í svefn- herbergi og stal fartölvu, farseðlum og vegabréfum. Á laugardagskvöld barst tilkynning frá íbúa í Breiðholti um að fjórir drengir hefðu sprengt upp ruslatunnu. Fékkst á þeim greinargóð lýsing og voru þeir hand- teknir skömmu síðar. Viðurkenndu þeir verknaðinn. Maður var handtek- inn á laugardagskvöld í Austurstræti eftir að hafa sparkað í fimm bifreiðar. Dyraverðir sáu til mannsins og hand- sömuðu hann og héldu þar til lög- reglan kom á staðinn. Á sunnudagsmorgun tilkynnti leigubifreiðastjóri um mann sem hafði orðið fyrir árás tveggja manna á Miklubraut. Höfðu mennirnir barið manninn og stolið af honum 6–7 þús- und krónum og GSM-síma. Var mað- urinn fluttur á slysadeild en hann var með áverka á augabrún og kvartaði undan eymslum við öndun. Um hádegi á sunnudag varð laus eldur í kertaskreytingu í húsnæði við Þorragötu. Ekki varð af mikill eldur en eitthvað mun húsbúnaður hafa skemmst af völdum reyks. Á sunnu- dag var tilkynnt um innbrot í íbúð í Þingholtunum. Þarna hafði verið far- ið inn um glugga á lítilli kjallaraíbúð, þaðan farið upp á hæðina og stolið fartölvu og farsíma. Úr dagbók lögreglu 3.–6. janúar Hringing í vasanum kom upp um þjófinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.