Morgunblaðið - 07.01.2003, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 07.01.2003, Qupperneq 42
María María – Fínar línur FYRIR u.þ.b. tveimur ár- um fór ég á snyrtistofuna Fínar línur og fékk af- bragðs þjónustu í sam- bandi við varanlega förðun hjá stúlku sem María heit- ir. Nú er búið að loka þess- ari stofu og mér tekst ekki að hafa upp á henni Maríu. Ef María sér nú þessa fyr- irspurn og er enn að vinna þætti mér vænt um ef hún hefði samband við mig í síma 820 0939. Hjördís. Léleg þjónusta ÉG VIL koma á framfæri óánægju minni með þjón- ustuna hjá smurstöðinni hjá Esso við Skúlagötu. Ég kom þarna sl. fimmtudag til að láta smyrja bílinn og var mér þá sagt að það væri 15 mínútna bið og enginn beið fyrir utan. Ég spurði hvort ég mætti skreppa frá í 10 mínútur í stað þess að bíða á staðnum og var mér sagt að það væri í lagi. Þegar ég kom 10 mínútum seinna voru fleiri bílar komnir og þá var mér sagt að það væri hálf- tíma bið og mér sagt að fara í röðina. Finnst mér þetta mjög ósanngjarnt því ég hefði ekki skroppið frá ef ég hefði vitað þetta. Óli Örn Jónsson. Dýrahald Billy er týndur BILLY týndist í Selja- hverfi á gamlárskvöld og hefur ekkert til hans spurst síðan. Hann er svartur og hvítur, fjögurra ára með rauða ól og eyrnamerktur R 9183. Þeir sem hafa orðið hans varir vinsamlega hafi samband við Sólveigu í síma 695 4943. Trölli er týndur KÖTTURINN Trölli hefur ekki sést heima hjá sér, í Hlíðarhjalla í Kópavogi, síðan á nýárskvöld. Trölli er tæpra 4 ára geltur fress, grár og hvítur á lit. Hann var ólarlaus en er eyrna- merktur. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar hann er eða afdrif hans eru vinsamlega beðnir að hringja í síma: 564 1339 eða 896 3943. Fundarlaun. Gormur er týndur LÍTILL grábrúnn og hvít- ur kanínustrákur strauk frá heimili sínu í Kópavog- inum um miðjan desember. Hans er sárt saknað. Þeir sem hafa orðið hans varir eða geta gefið einhverjar upplýsingar um hann, vin- samlegast hafi samband í síma 554 6815 eða 898 6815. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is VARÐANDI skrif um söngnámskeið þeirra Sig- ríðar Beinteins og Maríu Bjarkar. Dóttir mín sem er að verða 11 ára hefur tvisvar farið á námskeið hjá þeim stöllum. Hún er mjög ánægð með námskeiðin og vill komast aftur sem fyrst. Hún var mjög feim- in fyrst en það fór fljótt af og henni hefur mikið far- ið fram í söng og fram- komu. Einnig var hún fengin til að syngja inná Söngvaborg 2 sem María og Sigga stjórna og fékk hún mikið út úr því. Varð- andi þessa vídeóspólu sem gerð er og kostar 1.500 kr. þá er börnunum frjálst hvort þau kaupa spóluna eður ei. Þessar 1.500 kr. eru einungis fyrir kostn- aði við gerð spólunnar. Það er mím skoðun að það sé mjög vel staðið að þess- um námskeiðum og Sigga og María fagmenn fram í fingurgóma. Enda hafa báðar langan feril að baki sem söngkonur. Mér finnst um að gera að ef börnin vilja fara á svona námskeið þá á að leyfa þeim það og hvetja þau áfram. Þau fá aukið sjálfstraust og eiga auð- veldara með að koma fram. En það þarf að passa uppá að vekja börn- unum ekki of miklar væntingar, því stúlkur á þessum aldri eru með fyrimyndir eins og Britn- ey og Jóhönnu Guðrúnu. Halda þeim á jörðinni og láta börnin njóta nám- skeiða eins og þessara söngnámskeiða. En ég mæli með að vilji börn fara á námskeið eins og hjá Siggu og Maríu þá er um að gera að stuðla að því og hvetja þau áfram. Einnig er það þannig á námskeiðum hjá Siggu og Maríu að það eru haldnir tónleikar fyrir foreldrana og er það mjög skemmti- legt og ótrúlega mikið til af frábærum og fram- bærilegum krökkum. Ég treysti Maríu og Siggu fullkomlega fyrir barninu mínu og ber hún þeim vel söguna. Þráinn Stefánsson. Mjög góð söngnámskeið DAGBÓK 42 ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Arn- arfell kemur í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Sel- foss kom til Straums- víkur í gær, Lómur fór í gær. Joching kom í gær. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Hamraborg 20a. Fataúthlutun þriðju- daga kl. 17–18. Mannamót Aflagrandi 40. Sam- söngur kl. 14, stjórnandi Kári Friðriksson. Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta og opin handavinnustofa, kl. 9– 12.30 bókband og öskju- gerð, kl. 9.30 dans, kl. 9.30–10.30 Íslandsbanki á staðnum, kl. 10.30 leik- fimi, kl. 13–16.30 opnar handavinnu- og smíða- stofur. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8.30– 14.30 böðun, kl. 9–9.45 leikfimi, kl. 9–16 handa- vinna, kl. 9–12 tréskurð- ur, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 10–11.30 sund, kl. 13– 16 leirlist, kl. 14–15 dans. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið opið mánu- og fimmtudaga. Mánud: Kl. 16 leikfimi. Fimmtud: Kl. 13 tré- skurður, kl. 14 bókasafn- ið, kl. 15–16 bókaspjall, kl. 17–19 æfing kór eldri borgara í Damos. Félagsstarfið Furugerði 1. Í dag kl. 9, aðstoð við böðun og bókband, kl. 13, frjáls spilamennska. Handavinnan fellur niður eins og er, nánar auglýst síðar. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9–14 aðstoð við böðun, kl. 9 hárgreiðslu- stofan opin, kl. 10–11 samverustund, kl. 14 fé- lagsvist. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handa- vinnustofan, kl. 9–16 vefnaður, kl. 10–13 opin verslunin, kl. 13.30 myndband. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 opin vinnustofa, tré- skurður, kl. 10 leikfimi, kl. 12.40 verslunarferð í Bónus, kl. 13.15–13.45 bókabíllinn, hárgreiðslu- stofan opin 9–14. Félagsstarfið, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hár- snyrting, kl. 11 leikfimi, kl. 13 föndur og handa- vinna. Félag eldri borgara á Selfossi, félagsvist kl. 13. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Brids og saumur kl. 13.30, pútt í Hraunseli kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan op- in kl. 10–13 virka daga. Morgunkaffi, blöðin og matur í hádegi. Þriðju- dagur: Skák kl. 13. Skrif- stofa félagsins er í Faxa- feni 12, sími 588-2111. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, m.a. glerskurður og perlusaumur, frá há- degi spilasalur opinn, kl. 13 boccia. Allar upplýs- ingar um starfsemina á staðnum og í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.05 og kl. 9.50 leik- fimi, handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum kl. 10–17. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið frá kl. 9–17 heitt á könnunni. Hraunbær 105. Kl. 9 postulínsmálun og gler- skurður, kl. 10 boccia, kl. 11, leikfimi, kl. 12.15 verslunarferð, kl. 13 myndlist og hárgreiðsla. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun og boccia, kl. 10.45 bankaþjónusta, kl. 13 handavinna, kl. 13.30 helgistund. Fótaaðgerð- ir, hársnyrting. Allir vel- komnir. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa og tréskurður, kl. 10–11 boccia, kl. 9–17 hár- greiðsla, kl. 14–15 jóga. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15–16 bútasaumur og postu- línsmálun. kl. 9.15–15.30 alm. handavinna, kl. 13– 16 frjáls spilamennska. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30 glerskurður og morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerðir og leikfimi, kl. 13 handmennt m.a. mosaik, kl. 14 félagsvist. Bridsdeild FEBK, Gjá- bakka. Brids í kvöld kl. 19. Félag áhugamanna um íþróttir aldraðra. Leik- fimi í Bláa salnum kl. 11. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði, á mið- vikudögum kl. 20, svarað í s. 552 6644 á fund- artíma. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, félagsheim- ilið Hátúni 12. Bingó kl. 20. Kvenfélag Laug- arnessóknar. Sameig- inlegur fundur með safn- aðarfélagi Áskirkju og Kvenfélagi Langholts- sóknar verður í safn- aðarheimili Laugarnes- kirkju á morgun 8. janúar kl. 20.30. Minningarkort Minningarkort Barna- heilla til stuðnings mál- efnum barna fást af- greidd á skrifstofu samtakanna á Laugavegi 7 eða í síma 561-0545. Gíróþjónusta. Barnaspítali Hringsins. Upplýsingar um minn- ingarkort Barnaspít- alasjóðs Hringsins fást hjá Kvenfélagi Hringsins í síma 551-4080. Kortin fást í flestum apótekum á höfuðborgarsvæðinu. Bergmál, líknar- og vinafélag. Minning- arkort til stuðnings or- lofsvikna fyrir krabba- meinssjúka og langveika fást í síma 587-5566, alla daga fyrir hádegi. Minningarkort barna- deildar Sjúkrahúss Reykjavíkur eru af- greidd í síma 525-1000 gegn heimsendingu gíró- seðils. Minningarkort Thor- valdsensfélagsins eru til sölu á Thorvaldsens- bazar, Austurstræti 4, s. 551-3509. Samúðar- og heilla- óskakort Gídeonfélags- ins er að finna í anddyr- um eða safnaðarheimilum flestra kirkna á landinu, í Kirkjuhúsinu, á skrif- stofu KFUM&K og víð- ar. Þau eru einnig af- greidd á skrifstofu Gídeonfélagsins, Vest- urgötu 40, alla virka daga frá kl. 14–16 eða í síma 562 1870. Allur ágóði fer til kaupa á Nýja testa- mentum sem gefin verða 10 ára skólabörnum eða komið fyrir á sjúkra- húsum, hjúkrunarheim- ilum, hótelum, fangelsum og víðar. Minningarspjöld Kristniboðssambandsins fást á skrifstofunni, Holtavegi 28 (hús KFUM og K gegnt Langholtsskóla) sími 588-8899. Minningarkort Graf- arvogskirkju. Minningarkort Graf- arvogskirkju eru til sölu í kirkjunni í síma 587 9070 eða 587 9080. Einnig er hægt að nálgast kortin í Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31, Reykjavík. Líknarsjóður Dómkirkj- unnar, minningarspjöld seld hjá kirkjuverði. Minningarkort Stóra- Laugardalssóknar, Tálknafirði, til styrktar kirkjubyggingarsjóði nýrrar kirkju í Tálkna- firði eru afgreidd í síma 456-2700. Minningarspjöld Frí- kirkjunnar í Hafnarfirði fást í Bókabúð Böðvars, Pennanum í Hafnarfirði og Blómabúðinni Burkna. Minningarkort Áskirkju eru seld á eftirtöldum stöðum: Kirkjuhúsinu Laugavegi 31, þjón- ustuíbúðum aldraðra við Dalbraut, Norðurbrún 1, Apótekinu Glæsibæ og Áskirkju, Vesturbrún 30, sími 588-8870. KFUM og KFUK og Samband íslenskra kristniboða. Minning- arkort félaganna eru af- greidd á skrifstofunni, Holtavegi 28 í s. 588 8899 milli kl. 10 og 17 alla virka daga. Gíró- og kreditkortaþjónusta. Í dag er þriðjudagur 7. janúar, 7. dagur ársins 2003. Knútsdagur, Eldbjargarmessa. Orð dagsins: Fagnið því, þótt þér nú um skamma stund hafið orðið að hryggjast í margs konar raunum. (1Pt. 1, 6.) Víkverji skrifar... ÍSLENDINGAR eru miklir áhuga-menn um Spánarferðir. Ekki að ósekju. Loftslagið er hlýtt og nota- legt þar um slóðir og fólk upp til hópa viðmótsþýtt. Það er aftur á móti ekki auðhlaupið að því fyrir venjulegan Íslending að ræða við Spánverja. Enskukunnátta þeirra er almennt af skornum skammti. Flest- ir hverjir tala ekki stakt orð í hinu al- þjóðlega tungumáli, sem svo er kall- að. Þess í stað baða þeir út öllum öngum og fara mikinn á móðurmál- inu, jafnvel þótt þeim sé ljóst að við- mælandinn viti ekki hvort hann er að koma eða fara. Af þessu hljótast oft skondin atvik. Víkverji hitti á dögunum mann sem hefur búið á Spáni í vetur. Spænskukunnátta hans var ekki upp á marga fiska þegar út var komið og rakst hann fyrir vikið á ýmsa veggi. Þannig var eitt af hans fyrstu verk- um ytra að láta tengja Netið fyrir sig – eins og góðum Íslendingi sæmir. Fékk hann uppgefið númer hjá fyr- irtæki sem veitir þjónustu af því tagi hjá upplýsingalínunni – á spænsku. Hófst svo símtalið. Konan á hinum enda línunnar talaði vitaskuld ekki orð í ensku og skellti fljótlega á Ís- lendinginn. Okkar maður gaf sig þó hvergi og hringdi aftur, núna vopn- aður orðabók. Komst hann örlítið lengra að þessu sinni en á endanum fór allt á sama veg. Skellt var á. Ís- lendingurinn fékk þá spænskan kunningja sinn til liðs við sig og bað hann að hringja í konuna. Verður hann fljótlega undarlegur á svipinn og afsakar sig eitthvað í símann. „Heyrðu,“ segir spænski kunninginn – sem vel að merkja talaði ensku – svo hálfvandræðalegur að símtali loknu. „Það er ekki undarlegt að þú skyldir fá svona dræmar undirtektir þarna. Þetta var matvöruverslun!“ x x x VÍKVERJA er líka ógleymanlegsagan af manninum sem var að greina kunningja sínum frá því þeg- ar hann var staddur á fínum veit- ingastað á Spáni. „Matseðillinn var allur á spænsku og það talaði auðvit- að ekki nokkur maður ensku þarna,“ sagði maðurinn. „Mig langaði í nautasteik og sá ekki annan kost í stöðunni en að baula. Hátt og snjallt. Það virkaði ágætlega.“ Kunninginn hlýddi á sposkur á svip og sagði síðan: „Það var eins gott að þig langaði ekki í bjúgu!“ x x x VÍKVERJA finnst árið aldrei al-mennilega hafið fyrr en búið er að leika þriðju umferðina í enska bik- arnum í knattspyrnu fyrsta laugar- dag ársins. Í þessari elstu knatt- spyrnukeppni í heimi leiða Davíð og Golíat gjarnan saman hesta sína og oft má sá síðarnefndi lúta í gras. Lít- ið var raunar um óvænt úrslit að þessu sinni, nema hvað þriðjudeild- arlið Shrewsbury Town kom bragði á úrvalsdeildarlið Everton á sínum ágæta velli, Gay Meadow. Þá var kátt á engi. Ekki dró það heldur úr dramatíkinni að knattspyrnustjóri Shrewsbury er enginn annar en Kevin Ratcliffe, sem um árabil var fyrirliði Everton og vann með félag- inu tvo meistaratitla, 1985 og 1987. Þessi gamli miðvörður var líka hálf- skömmustulegur í viðtali að leik loknum og viðurkenndi að tilfinning- in væri blendin. Hann hefði fremur kosið að leggja annað úrvalsdeildar- lið. En svona er fótboltinn. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 svil úr fiski, 4 fást við, 7 viðureign, 8 hamagang- ur, 9 virði, 11 sigaði, 13 band, 14 tappi, 15 þarm- ur, 17 verkfæri, 20 tíndi, 22 lagði á flótta, 23 hindr- un, 24 týna, 25 barefla. LÓÐRÉTT: 1 rotnunarskán, 2 ósvip- að, 3 varningur, 4 stúlka, 5 borða, 6 flýtirinn, 10 ráfa, 12 greinir, 13 op, 15 eðalborin, 16 slíta, 18 vottar fyrir, 19 missa marks, 20 mjúka, 21 rændi. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 silakepps, 8 falið, 9 lútan, 10 gái, 11 runna, 13 neita, 15 stegg, 18 skróp, 21 ryk, 22 launa, 23 refir, 24 lundarfar. Lóðrétt: 2 iglan, 3 auðga, 4 eplin, 5 putti, 6 æfir, 7 unna, 12 nóg, 14 eik, 15 sæll, 16 efuðu, 17 grand, 18 skrár, 19 rifja, 20 pára.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.