Morgunblaðið - 07.01.2003, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 43
DAGBÓK
Ísak og Helga Dögg
DANS ER SKEMMTUN
FYRIR ALLA, Á ÖLLUM ALDRI!
Dansfélagið Hvönn
HK-húsinu við Digranesveg,
200 Kópavogur,sími 862 6168,
Netfang:
hvonn@islandia.is
danshusid@islandia.is,
www.islandia.is/danshusid
Hildur Ýr
danskennari
Samkvæmisdansar, barnadansar,
gömlu dansarnir, línudansar, kántrýdansar,
salsa, tjútt og swing, hóptímar, einkatímar,
sérnámskeið fyrir fyrirtæki, hópa og þroskahefta.
Kennarar og leiðbeinendur á vorönn:
Hildur Ýr, Óli Geir, Arna Björg, Helga Dögg og Ísak
Innritun stendur
til 12. janúar,
Kennsla hefst
laugardaginn 11. janúar
„Námið hefur gagnast mér afar vel og hefur opnað
margar dyr í lífi mínu. Þegar ég var hálfnaður með
MCSA braut fékk ég starf hjá einu af stóru
tölvufyrirtækjunum.”
Daníel F. Jónsson
nemandi á MCP, MCSA og MCSE braut 2001-2002
MCSE braut hjá Rafiðnaðarskólanum
Fyrir þá sem vilja ná árangri
Skeifan 11b · 108 Reykjavík · Sími 568 5010 · Fax 581 2420 · www.raf.is
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2, 101 Reykjavík, s. 551 7800, fax 551 5532.
NETFANG hfi.@islandia.is
Handverk
Stutt og löng námskeið
Krók- og spaðafaldur: 11. jan. lau. frá kl. 9-16
Vefnaður: 13. jan.-24. feb. mán. og mið., frá kl.19.30-22.30
Vattarsaumur: 14., 16., 21., og 23. jan. þri. og fim. frá kl. 15-18
Vattarsaumur: 14., 16., 21., og 23. jan. þri. og fim.
frá kl. 19.30-22.30
Orkering frh: 15. jan og 22. jan. mið. frá kl.19.30-22.30
Þæfing: 18. jan.-15. feb. lau. frá kl. 10-13. Fullbókað
Þæfing: 18. jan.-15. feb. lau. frá kl. 14-17
Baldýring frh: 21. jan. og 18. feb. þri. 19.30-22.30
Perlusaumur og skurður: 21. jan. og 4. feb. þri.
frá kl 19.30-22.30
Þjóðbúningar kvenna: 20. jan-31. mars, frá kl.19.30-22.30
Þjóðbúningar kvenna: 23. jan.-3. apríl, frá kl. 15-18
Þjóðbúningar karla: 3. feb.-14. apríl mán. frá kl. 15-18
Tóvinna: 4. feb.-25. feb. þri. frá kl. 19.30-22.30
Útskurður: 10. feb.-10. mars, mán. frá kl. 10-13
Útsaumur: 12. feb.-12. mars, mið. frá kl. 19.30-22.30
Hekl: 19. mars-9. apríl, mið. frá kl. 19.30-22.30
Ódagsett námskeið á vorönn. Knipl - Baldýring -
Orkering - Fótvefnaður - Myndvefnaður - Spjaldvefnaður -
Fatasaumur - Prjón - Lopapeysur - Leppar - Sjöl -
Keðjugerð - Víravirki - Faldbúningur - Skautbúningur -
Kyrtill - Möttull
Gjafabréf - tilvalin tækifærisgjöf.
Upplýsingar og skráning virka daga frá kl. 10-19
Sími 551 7800 • Fax 551 5532
Netfang: hfi@islandia.is
www.islandia.is/~heimilisidnadur
Mynd, Hafnarfirði
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 27. júlí 2002 í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði af sr. Sigríði Kristínu þau Hildigunnur Erna
Gísladóttir og Viktor Guðmundsson. Heimili þeirra er á
Álfaskeiði 86, Hafnarfirði.
Ljósmynd Sissa
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 16. júní 2002 í Dómkirkjunni
þau Rut Gunnarsdóttir og Jón Örn Guðbjartsson.
LJÓÐABROT
SKÓGARKYRRÐ
Eins og ljósálfasnekkjur, er liggja við strengi,
liljur á vatninu hvítar blunda;
skuggarnir horfa um akur og engi
augum svörtum úr fylgsnum lunda.
Allt bíður – bíður í ró
eftir brosi mánans í kyrrum skóg.
Hulda
Árnað heilla
NÚ reynir á verkkunnátt-
una. Suður spilar þrjú
grönd og fær út spaðatíu:
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ K43
♥ G3
♦ 1074
♣ÁK632
Suður
♠ Á82
♥ Á875
♦ ÁK5
♣1074
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 grand
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Hvernig er best að
spila?
Sagnhafi þarf fjóra slagi
á lauf og fær það sjálfkrafa
ef liturinn brotnar 3–2,
eins og algengast er. En
það er sjálfsagt að huga að
4–1 legunni. Ef samgang-
ur við blindan væri nægur
mætti ráða við háspil stakt
í vestur með því að taka
fyrst á ásinn og spila svo
að tíunni. Þetta dugir ekki
hér, því blindur er of fá-
tækur af innkomum til
hliðar. Annar möguleiki
(og í sjálfu sér jafngóður)
er að leggja af stað með
lauftíuna að heiman í þeim
tilgangi að gleypa staka
níu eða áttu í austur:
Norður
♠ K43
♥ G3
♦ 1074
♣ÁK632
Vestur Austur
♠ D1095 ♠ G76
♥ 942 ♥ KD106
♦ G6 ♦ D9832
♣DG95 ♣8
Suður
♠ Á82
♥ Á875
♦ ÁK5
♣1074
Vestur leggur á tíuna og
sagnhafi tekur með ás.
Spilar svo litlu laufi á
sjöuna og níu vesturs. Síð-
an er hægt að svína lauf-
sexunni.
Þetta spil leynir veru-
lega á sér, enda sjaldgæft
að sexur og sjöur gegni
slíku lykilhlutverki.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
60 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 7. jan-
úar, er sextug Hrefna Pét-
ursdóttir, Njarðvíkurbraut
8, Njarðvík. Af því tilefni
munu hún og eiginmaður
hennar, Almar V. Þórólfs-
son, taka á móti ættingjum
og vinum í Safnaðarheimili
Innri-Njarðvíkur laugar-
daginn 11. janúar á milli kl.
16 og 20.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
STEINGEIT
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hafðu það í huga að allar
fjarvistir taka sinn toll þeg-
ar þú ráðstafar tíma þínum.
Sinntu því sem sinna þarf.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þótt þú sért ekki hlynntur
því sem ættingi þinn er að
gera skaltu láta það af-
skiptalaust. Sýndu þolin-
mæði.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú lætur sem þú eigir erfitt
með að taka ákvörðun í
veigamiklu máli. Mundu að
aðgát skal höfð í nærveru
sálar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú átt að hafa þann aga til
að bera sem þarf til að
rannsaka málin vandlega
áður en þú segir af eða á.
Taktu samt enga óþarfa
áhættu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þótt gaman sé að breyta til
er fáránlegt að gera það
breytinganna vegna. Skoð-
aðu dæmið af fullri skyn-
semi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú heldur þig fullmikið út
af fyrir þig. Þú þarft að
koma sjálfum þér á það stig
að veraldlegir hlutir hafi
ekki heljartak á þér.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er oft skammt milli
hláturs og gráts og það
þarft þú að hafa í huga í
umgengninni við aðra.
Segðu hug þinn skýrt og
skorinort.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það ríkir nú friðsæld í
kringum þig svo þú ættir að
hafa tíma til að leggja drög
að nýjum áætlunum fyrir
framtíðina.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Kannaðu vel verð og gæði
áður en þú festir kaup á
nýjum hlutum. Mundu það,
að ekki er allt gull sem gló-
ir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Láttu þér ekki mislíka þótt
einhverjir hörfi undan þeg-
ar þú sækir fast að þeim.
Vertu umfram allt sannur.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Einhver sem þú hélst að
væri horfinn úr lífi þínu fyr-
ir fullt og fast kemur fyr-
irvaralaust inn í það aftur.
Það ríður á miklu að þú get-
ir gert upp fortíðina.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er aldrei of seint að
læra og allt nám kemur þér
til aukins þroska. Láttu
aðra ekki slá þig út af lag-
inu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Afmælisbörn dagsins:
Þú átt auðvelt með að nýta
þér tækifæri lífsins. Mundu
bara að vandi fylgir veg-
semd hverri.
1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6
4. Be3 c6 5. h3 Rbd7 6. f4 e5
7. Df3 Da5 8. Bd3 Bg7 9.
dxe5 dxe5 10. f5 gxf5 11.
Dxf5 b5 12. Rge2 b4 13.
Rb1 Rb6 14. Df2 Ra4 15.
O-O Be6 16. b3 Rb2 17.
Rg3 Rxd3 18. cxd3
Db5 19. Rd2 Hd8
20. Bg5 Hg8 21.
Rf5 Bh8 22. Dxa7
Bxf5 23. Hxf5 Hd7
24. Df2 Hxg5 25.
Hxg5 Dxd3 26.
Hxe5+ Kf8 27.
Dc5+ Kg8 28.
Hg5+ Bg7 29. e5
Rd5 30. Df2 Re7
31. Rc4 Rg6 32.
He1 He7 33. h4 h6
34. Hg3 Dd5 35. h5
Rxe5 36. Re3 Dc5
Staðan kom upp
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
á alþjóðlegu móti í Ham-
borg 1997 sem Sergei Mov-
sesjan vann með 8½ vinn-
ingi af 9 mögulegum þar
sem Viktor gamli Kortsnoj
var sá eini sem náði jafn-
tefli gegn honum. Hér
hafði hann hvítt gegn Lju-
bomir Ftacnik. 37. Hxg7+!
og svartur gafst upp enda
drottningin að falla í valinn.
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík