Morgunblaðið - 07.01.2003, Page 45
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 45
Brautarholti 4
46. starfsár
Social Foxtrott
Þú verður fær um að dansa
við 90% af öllum lögum sem leikin eru
á venjulegum dansleik eftir 10 tíma.
Samkvæmisdansar - barnadansar
Áratuga reynsla og þekking tryggir þér bestu fáanlega kennslu.
14 vikna námskeið fyrir fullorðna
14 vikna námskeið fyrir börn
Dansleikur í lokin
Tjútt
Við kennum gamla góða íslenska tjúttið.
10 tíma námskeið.
Gömlu dansarnir
10 tíma námskeið og þú lærir þá alla
Keppnisdansar
Svanhildur Sigurðardóttir og Ingibjörg Róbertsdóttir,
frábærir þjálfarar í keppnisdönsum.
14 vikna námskeið - Mæting 1x, 2x eða 3x í viku.
Línudans
Auðveldir og skemmtilegir.
Bók fylgir með lýsingu á dönsunum.
Salsa
Dansinn sem fer sigurför um heiminn.
10 tíma námskeið
Erlendur gestakennari
Freestyle
Erla Haraldsdóttir kennir.
10 vikna námskeð. Mæting 2x í viku
Brúðarvalsinn
Kenndur í einkatíma.
Barnadansar
Kennum yngst 4 ára.
Innritun og upplýsingar í síma 551 3129
milli kl. 16 og 22 daglega til laugardagsins 11. janúar.
Kennsla hefst í Reykjavík mánudaginn 13. janúar.
Mosfellsbær og Suðurnes - Innritun og upplýsingar í sama síma.
KENNSLA HEFST Í REYKJAVÍK
MÁNUDAGINN 13. JANÚAR
HJÓNIN Patrick og Catherine Le
Cellier hafa vanið komur sínar til
Íslands frá því snemma á áttunda
áratuginum. Þau eru þó ekki venju-
legir ferðamenn því þau hafa einn-
ig skrifað mikið um Ísland, fest það
á filmu og haldið fyrirlestra um
landið.
Í þetta sinnið eru þau komin
hingað til lands í þeim erindagjörð-
um að huga að gerð heimild-
armyndar um Ísland. Þau ætla að
koma aftur hingað í vor og dvelja
yfir sumarið við vinnu við myndina.
Catherine tekur að sér að ræða
um myndina og þýða úr frönsku
innskot eiginmannsins. Hún segir
myndina líklegast verða tilbúna í
árslok en þó verði hún ekki tekin til
sýninga fyrr en næsta ár.
Ferðast um með myndina
„Eftir það ferðumst við næstu ár-
in um hinn frönskumælandi heim
og kynnum myndina og Ísland,“ út-
skýrir hún og býst við að þau hjónin
verði á ferðalagi til ársins 2010.
Þetta kann að hljóma undarlega í
augum þeirra, sem eru vanir því að
mynd sé sýnd í bíó um nokkurt
skeið og þvínæst sé hægt að fá hana
á myndbandaleigu. Þetta á vænt-
anlega við um allflesta en Patrick
og Catherine hafa annan háttinn á.
Catherine útskýrir að hefð sé fyr-
ir þeirra aðferð í frönskumælandi
löndum. „Patrick heldur fyrirlestur
á hverjum stað á meðan á sýning-
unni stendur. Það gefur okkur
tækifæri til að breyta textanum og
jafnvel myndinni ef stórtíðindi eiga
sér stað á Íslandi, eins og eldgos,“
segir hún.
Hafa rætt við nokkra forseta
Hjónin eru ekki ókunn íslenskum
stórtíðindum því þau komu hingað
þegar gaus í Vestmannaeyjum
1973, í kringum þorskastríðið og
embættistöku Vigdísar Finn-
bogadóttur árið 1980 en Vigdísi
kynntust þau persónulega nokkrum
árum fyrr.
Ein af mörgum greinum, sem þau
hafa skrifað fyrir erlend blöð um
Ísland, birtist í franska Elle, og var
einmitt um embættistöku þessa
fyrsta kvenforseta í heimi.
Ennfremur hafa þau tekið viðtal
við annan forseta, Kristján Eldjárn,
og árið 1972 ræddu þau við Ólaf
Ragnar Grímsson. Viðtalið kom til
vegna þess að þau óskuðu eftir því
að ræða við ungan og upprennandi
stjórnmálamann. „Það er greinilegt
að hann hefur í raun verið upp-
rennandi því nú er hann forseti,“
segir Catherine og hlær við.
Þau hafa lengi haft hug á því að
gera þessa heimildarmynd um Ís-
land. Það hefur þó ekki gengið upp
fyrr en nú. Á níunda áratugnum
gerðu þau í staðinn mynd af svip-
uðu tagi um Pólland.
Í Íslandsmyndinni verður farið
yfir sögu landsins og áhersla lögð á
samfélagsbreytingar síðustu ára-
tuga og jafnframt sögu og náttúru
landsins. „Við ætlum jafnvel að
nota myndir sem við tókum hér fyr-
ir þrjátíu árum,“ útskýra þau.
Í viðtali fyrir þremur áratugum
Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem
Morgunblaðið tekur viðtal við hjón-
in vegna vinnu sinnar og Íslands-
áhuga. Í júlí árið 1972 var tekið við-
tal við Patrick og þau mynduð. Í
myndatexta er Catherine kölluð
túlkur og ber þá nafnið Foulquier.
Ástæðan er sú að þau giftu sig ekki
fyrr en þremur árum síðar en þau
eiga saman tvö börn.
Ísland hefur verið eins og rauður
þráður í gegnum samband þeirra
og nú hefur dóttir þeirra einnig
fengið áhuga á landinu og hyggst
jafnvel koma til dvalar hérlendis.
Ljóst er að Ísland er örlagavald-
ur í lífi fjölskyldunnar og höfðu
hjónin það gott yfir jólin hérlendis.
„Okkur finnst æðislegt hérna og við
hefðum ekkert á móti því jafnvel að
setjast hér að ef svo bæri undir.“
Frönsk hjón hyggja á sérstæða heimildarmyndagerð um Ísland
Ferðast og
fræða aðra
Morgunblaðið/Jim Smart
Patrick og Catherine Le Cellier eru miklir Íslandsvinir.
Morgunblaðið tók viðtal við hjónin fyrir þrjátíu árum.
TENGLAR
.....................................................
www.connaissancedumonde.com
Kermit og árin í mýrinni
(Kermit’s Swamp Years)
Barnamynd
Bandaríkin 2002. Skífan VHS. (84 mín.)
Öllum leyfð. Leikstjórn David Gumpel.
Aðalhlutverk Steve Whitmire, Bill
Baretta.
UNGA fólkið er of ungt til að
muna eftir hinum gömlu góðu
Prúðuleikurum sem sýndir voru í
Sjónvarpinu annað hvert föstudags-
kvöld á móti Skonrokki, öllum þess-
um óborganlegu brúðum eins og
Kermit, Fossa, Svínku, Gunnsa,
Daggadropa, Sænska kokkinum,
Skúta og Hrólfi og Dýra svo ein-
hverjir séu nefndir. Þættirnir voru
kostulegir – í minningunni að
minnsta kosti – og því orðnir heilagir
í huga manns. Óþægindatilfinning
grípur mann þegar einhver fitlar við
slíkt, reynir að endurvekja gamla,
annarra manna
snilld.
Það kom því
þægilega á óvart að
sjá þessa bráð-
skemmtilegu og
spánýju barna-
mynd um froskinn
Kermit á yngri ár-
um, þegar hann tekur þá stóru
ákvörðun að yfirgefa heimkynni sín,
mýrina og freista gæfunnar, ákvörð-
un sem síðar leiðir til þess að hann
gerist kynnir í prúðuleikhúsinu.
Ekki jafnast hún á við gömlu fyr-
irmyndina en þessi nýja útgáfa
stendur þó fyrir sínu og er prýðis-
skemmtun fyrir unga sem
eldri.½
Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Froskur úti í mýri
Móðursýkisblinda
(Hysterical Blindness)
Drama
Bandaríkin 2002. Skífan VHS. (104
mín.) Bönnuð innan 12 ára. Leikstjórn
Mira Nair. Aðalhlutverk Uma Thurman,
Gena Rowlands, Juliette Lewis.
Í ÞESSU „konudrama“ – vafasöm
skilgreining það reyndar, hvernig er
„karladrama“? – leika Uma Thurman
og Juliette Lewis tvær vinkonur
komnar vel á þrítugsaldurinn. Margir
myndu skilgreina þær sem „hvítt
rusl“, þ.e. þær eru hvítar, þröngsýnar
og ómenntaðar konur sem eiga í
mesta basli með að láta enda ná sam-
an og eyða kvöldinu á hverfisbarnum,
í leit að hinum eina rétta eða þá bara
einhverjum öðrum. En gengur hvorki
né rekur í þeim efnum, bæði vegna
þess að Lewis er einstæð móðir og
báðar svo örvæntingarfullar og yfir-
þyrmandi að áberandi er lengstu leið-
ir. En þær láta sig stöðugt dreyma
um að drauma-
prinsinn birtist á
hvíta hestinum og
virðast gjörsamlega
grandalausar um að
slíkur maður muni
aldrei stíga fæti inn
á aðra eins búllu, og
allra síst í þeim til-
gangi að finna sér lífsförunaut. Þann-
ig eru þær verulega brjóstumkenn-
anlegar þessar ungu og ólánsömu
konur, ekki síst vegna þess að þær
eru hreint yfirgengilega leiðinlegar,
sér í lagi persóna Thurman, sem er
svo óþolandi sjálfhverf og frek í óör-
yggi sínu að maður fær vel skilið að
menn forðist hana sem eldinn heita.
Þetta er um margt athyglisvert
hversdagsdrama, svolítið langdregið
reyndar, en þannig er nú bara raun-
veruleikinn oftast. Stærsti gallinn er
Thurman. Hún virkar engan veginn í
hlutverki sínu og ofleikur óhóflega,
ólíkt Lewis og Rowland, sem leikur
móður Thurmans, þær eru fremur
lágstemmdar og glerfínar í sínum
rullum. Leikstjórn Miru Nair
(Monsoon Wedding) er látlaus og
næm en hún hefði að ósekju mátt tóna
niður ýkjurnar til að gera annars
raunsæja mynd raunsærri. Skarphéðinn Guðmundsson
Leitin að lífs-
förunautnum