Morgunblaðið - 15.01.2003, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 15.01.2003, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Á FUNDI borgarráðs í gær varð ljóst að meirihluti atkvæða, hið minnsta 8 atkvæði af 15, var tryggður í borg- arstjórn þegar til þess kemur að ákveða um ábyrgðir Reykjavíkur- borgar af lántöku vegna Kárahnjúka- virkjunar. Borgarráðsfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins lögðu fram bókun um að allir sex borgarfulltrúar flokkksins myndu standa að samþykkt ábyrgð- arinnar á fundi borgarstjórnar á morgun, fimmtudag. Þá lagði Alfreð Þorsteinsson fram bókun um að þau Anna Kristinsdóttir, fulltrúar Fram- sóknarflokksins í Reykjavíkurlistan- um, myndu samþykkja ábyrgðina í borgarstjórn, þar sem beiðni Lands- virkjunar verður tekin fyrir. Eru þar með komin átta atkvæði fyrir ábyrgðinni en á fundi borgar- ráðs lögðu einnig fram bókun þeir Árni Þór Sigurðsson, forseti borgar- stjórnar og oddviti Vinstri grænna í Reykjavíkurlistanum, og Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista frjálslyndra og óháðra, þess efnis að borgin samþykki ekki ábyrgðina. Ólafur lagði jafnframt fram spurning- ar í 15 liðum varðandi málið. Þrátt fyrir afstöðu sjálfstæðismanna og framsóknarmanna ætla þeir að leggja tillögu sína fram í borgarstjórn. Misjafnar skoðanir í Samfylkingunni Afstaða Samfylkingarinnar í Reykjavíkurlista liggur ekki form- lega fyrir en á borgarráðsfundinum lýsti Stefán Jón Hafstein yfir per- sónulegri andstöðu sinni gegn ábyrgðartöku borgarinnar. Dagur B. Eggertsson ætlar að sitja hjá við afgreiðslu borgarstjórnar á morgun um ábyrgðir borgarinnar vegna framkvæmda við Kárahnjúka- virkjun. „Ég get ekki samþykkt ábyrgðina vegna þess að mér finnst hún of há og arðsemin umdeilanleg. Mér finnst hins vegar ekki heldur rétt að borgarstjórn bregði fæti fyrir mál- ið. Ég hef sagt það áður að mér finnst að úrslitin eigi að ráðast á Alþingi. En með sömu rökum finnst mér rétt að hlutur Reykjavíkurborgar verði los- aður. Ég tel það alveg klárt að ríkið eigi að bera þessa ábyrgð,“ segir Dag- ur. Steinunn Valdís Óskarsdóttir segir að það muni væntanlega skýrast í dag hver afstaða hennar er til beiðni Landsvirkjunar um að borgin gangi í ábyrgðir fyrir lán vegna byggingar Kárahnjúkavirkjunar. Annar borgar- ráðsfundur verður haldinn í dag þar sem boðaðir hafa verið fulltrúar Landsvirkjunar og hagfræðingarnir Þorsteinn Siglaugsson og Þórólfur Matthíasson. „Ég mun væntanlega gefa upp afstöðu mína eftir þann fund,“ segir Steinunn. Virkjunin er „glapræði“ Í greinargerð rökstyðja Árni Þór og Ólafur tillögu sína m.a. með því að vísa til andstöðu meðal þjóðarinnar við virkjunina. Segjast þeir vera þeirrar skoðunar að af umhverfis- og náttúruverndarsjónarmiðum einum saman sé virkjunin „glapræði“. Til viðbótar þeim sjónarmiðum megi nefna arðsemis- og áhættusjónarmið fyrir Reykjavíkurborg, sem einn eig- enda Landsvirkjunar. Einnig eru nefnd „margvísleg neikvæð áhrif á efnahags- og atvinnulíf á höfuðborg- arsvæðinu“. Sjálfstæðismenn tóku af skarið Bókun sjálfstæðismanna í borgar- ráði var svohljóðandi: „Borgarfulltrú- ar Sjálfstæðisflokksins hafa farið yfir þau gögn, sem lögð hafa verið fram vegna ábyrgðar Reykjavíkurborgar á lántökum Landsvirkjunar vegna Kárahnjúkavirkjunar. Við teljum að samþykkja beri ábyrgðina. Allir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu standa að samþykkt ábyrgðar- innar á fundi borgarstjórnar 16. jan- úar nk.“ Björn Bjarnason, oddviti sjálfstæð- ismanna í borgarstjórn, segir við Morgunblaðið að aldrei hafi verið ágreiningur um málið innan raða sjálfstæðismanna í borgarstjórn. „Við ákváðum að taka af skarið og tilkynna afstöðu okkar formlega í borgarráði því það var augljóst af umræðum á þeim fundi sem við sátum þar að það átti enn að draga málið á langinn, afla enn meiri gagna og efna til funda til þess að spyrja og skeggræða. Við töldum hins vegar að málið lægi alveg skýrt fyrir og það ætti enginn að vera í vanda að komast að niðurstöðu. Það kom einnig í ljós, eftir að við lögðum fram bókun okkar. Þá hrukku menn í gírinn og klofningur R-listans varð öllum ljós. Það er mjög sérkenni- legt að R-listinn, sem telur sig hafa meirihluta í borgarstjórninni, geti ekki leitt þetta mál til lykta einn og óstuddur og raunar klofnaði hann í smáparta í borgarráði. Meira að segja þeir sem eru á móti virkjuninni innan R- listans gátu ekki komið sér saman um hvernig þeir ættu að bóka and- mæli sín. Á borgarráðsfundinum var alveg óljóst hvaða afstöðu borgarstjóri hafði. Síðan tók Ingibjörg Sólrún svo af skarið og þá kom í ljós, að Samfylk- ingin er líka klofin í parta innan borg- arstjórnar vegna málsins. Meirihluti í borgarstjórn, sem hefur ekki burði til að leiða mál af þessari stærðargráðu til lykta, er einskis virði fyrir umbjóð- endur sína, borgarbúa.“ Allri óvissu eytt Alfreð Þorseinsson segir m.a. í bók- un sinni að með afstöðu framsóknar- manna og sjálfstæðismanna hafi allri óvissu verið eytt um afstöðu Reykja- víkurborgar til málsins. „Vil ég lýsa yfir ánægju með afstöðu borgarfull- trúa Sjálfstæðisflokksins,“ segir hann. Í bókuninni kemur fram að eig- endanefnd hafi komist að þeirri nið- urstöðu að eigendur taki ekki teljandi áhættu með því að veita einfalda ábyrgð. „Í raun er það eina atriði málsins, sem borgarfulltrúar þurfa að taka afstöðu til. Fyrirhugaðar virkj- unar- og stóriðjuframkvæmdir skipta sköpum fyrir atvinnulífið í landinu á sama tíma og atvinnuleysi hefur farið vaxandi. Borgarfulltrúar í Reykjavík verða að axla ábyrgð í þeim efnum sem öðrum. Vil ég sérstaklega minna á afstöðu verkalýðshreyfingarinnar, en ASÍ hefur lýst yfir stuðningi við framkvæmdir, þar sem aukinn hag- vöxtur mun skila sér til almennra launþega. Kaupmáttur ráðstöfunar- tekna mun ennfremur aukast að mati ASÍ.“ Bókað á víxl í borgarráði í gær vegna Kárahnjúkavirkjunar Meirihluti fyrir virkjunar- ábyrgð í borgarstjórn FULLTRÚAR Alcoa áttu í gær- morgun fund með Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur borgarstjóra vegna afstöðu Reykjavík- urborgar, sem eiganda Lands- virkjunar, til ábyrgðartöku á lán- um vegna Kárahnjúkavirkjunar. Með borgarstjóra á fundinum voru Sigurður Á. Snævarr borg- arhagfræðingur og Helga Jóns- dóttir borgarritari. Engin loforð Jake Siewert, talsmaður Alcoa, sagði við Morgunblaðið að fund- urinn með borgarstjóra hefði ver- ið góður. Engin loforð hefðu ver- ið gefin á fundinum og hann vissi ekki hug allra borgarfulltrúa í málinu. Siewert sagðist hafa tekið það skýrt fram á fundinum að samn- ingurinn um Kárahnjúkavirkjun væri góður fyrir báða aðila, þ.e. Alcoa og Landsvirkjun, og hann væri hagstæður íslensku efna- hagslífi til langs tíma litið. Ingibjörg Sólrún tók undir með Siewert um ágæti fundarins. Hún sagði í samtali við Morgunblaðið að talsvert hefði verið rætt um ýmsa áhættuþætti varðandi fram- kvæmdirnar, m.a. álverðið. Fulltrúar Alcoa hefðu verið upp- lýstir um hvernig málið stæði í borgarstjórn en Ingibjörg benti á að á þeim tíma hefði afstaða sjálf- stæðismanna ekki legið fyrir. Hún hefði komið fram á borgarráðs- fundi síðar um daginn. „Ég sagði þeim að ég hefði allt- af haft uppi tvö meginsjónarmið í þessu máli varðandi aðkomu borgarinnar, annars vegar um áhættuna að ábyrgðir féllu á Reykjavíkurborg og hins vegar um arðsemina af framkvæmdinni. Ég greindi þeim frá andstöðunni í okkar hópi og að málið yrði af- greitt á fimmtudaginn,“ sagði Ingibjörg. Morgunblaðið/Kristinn Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri í Reykjavík, hellir kaffi í bollann hjá Jake Siewert, talsmanni Alcoa, við upphaf fundar þeirra í Ráðhúsinu í gærmorgun. Þau voru sammála um að fundurinn hefði verið góður. Talsmenn Alcoa áttu góð- an fund með borgarstjóra INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri hefur ákveðið að sam- þykkja beiðni Landsvirkjunar um að Reykjavíkurborg, sem eigandi að 45% hlut í fyrirtækinu, gangist í ábyrgðir fyrir lán vegna byggingar Kárahnjúkavirkjunar. Ingibjörg upp- lýsti þetta í samtali við Morgunblaðið að loknum fundi borgarráðs í gær. „Það er alveg ljóst að ég mun ekki bregða fæti fyrir þetta verkefni. Ég hef metið það annars vegar útfrá þeim ábyrgðum sem borgin gengst í gagnvart Landsvirkjun og þeirri áhættu sem er á því að ábyrgðir af lánum falli á borgina, sem ég tel að sé lítil þótt hún sé alltaf til staðar, og hins vegar útfrá arðseminni. Eftir að hafa farið yfir öll gögn málsins sýnist mér að arðsemin sé vel yfir þeim 5–6% mörkum sem eigendur Lands- virkjunar hafa sett sér. Þetta var nið- urstaða eigendanefndar sem starfaði árið 1996, og var samþykkt arðgjaf- armarkmið allra eigenda. Á þessum grundvelli mun ég samþykkja beiðn- ina en ég hef sitthvað við málið að at- huga að öðru leyti,“ segir Ingibjörg. Aðspurð hvaða athugasemdir það séu segist Ingibjörg hafa verið þeirr- ar skoðunar lengi að það sé ekki eðli- legt, og geti ekki staðið til frambúðar, að bæði Reykjavíkurborg og Akur- eyrarbær, ein sveitarfélaga, beri ábyrgð á öllum skuldbindingum Landsvirkjunar. Hún hafi leitað sam- komulags um breytingar á þessu, en án árangurs. Það hefði verið farsælla fyrir alla málsaðila að ríkið gengist í þessar ábyrgðir. Hún muni gera frek- ari grein fyrir afstöðu sinni í borg- arstjórn á fimmtudaginn. „Mín eigin afstaða“ Ingibjörg segir að afstaða sjálf- stæðismanna, sem fram hafi komið í borgarráði, hafi ekki breytt afstöðu sinni. Hún hafi legið fyrir, þó að hún hafi ekki viljað gefa hana upp opin- berlega fyrr en nú. „Ég tek mína eigin afstöðu til máls- ins. Ég óskaði eftir því að nefnd óháðra aðila á vegum eigendanna yrði sett á laggirnar og að hún færi yfir arðsemismat Landsvirkjunar. Síðan hafa borist ýmis gögn sem ég hef verið að fara yfir. Eftir það hef ég komist að minni niðurstöðu, óháð því hvernig landið liggur pólitískt inni í borgarstjórn, enda málið þannig vax- ið í Reykjavíkurlistanum að menn fylgja sinni eigin sannfæringu. Ég hef ekki hugsað mér að vera í ein- hverju skjóli frá Sjálfstæðisflokknum í þessu máli frekar en öðrum,“ segir Ingibjörg. Spurð um tillögu Árna Þórs og Ólafs F. segir hún hana ekki hafa átt að koma á óvart. Afstaða þeirra hafi ávallt legið fyrir í málinu. Hins vegar hafi ekki verið vonum seinna að sjálf- stæðismenn gáfu upp sína afstöðu. Sjálfstæðisflokkurinn fari fyrir land- stjórninni, þar sem virkjunarmálið hafi verið unnið og til lykta leitt. Hún segir að það hefði verið með miklum ólíkindum ef sjálfstæðismenn hefðu ekki stutt málið í borgarstjórn. Samþykkir beiðni Lands- virkjunar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ÓLAFUR F. Magnússon, borgar- fulltrúi F-lista frjálslyndra og óháðra, lagði fram bókun á fundi borgarráðs í gær þar sem hann gagnrýnir harðlega vinnubrögð eig- endanefndar Landsvirkjunar, sem fór yfir arðsemisútreikninga vegna Kárahnjúkavirkjunar. Lýsir Ólafur yfir miklum von- brigðum sínum með vinnubrögð nefndarinnar. Hún hafi ekki lagt sjálfstætt mat á arðsemi Kára- hnjúkavirkjunar heldur unnið „nán- ast gagnrýnislaust“ út frá gefnum forsendum Landsvirkjunar, sem hafi verið „hæpnar og áróður- skenndar“. Fram komi margar og alvarlegar viðvaranir í skýrslu nefndarinnar sem stangist síðan á við þá niðurstöðu hennar að yf- irgnæfandi líkur séu á jákvæðri arðsemi af virkjuninni. Fjölmiðlar einnig gagnrýndir Ólafur F. gagnrýnir einnig fjöl- miðla fyrir hvernig þeir hafi túlkað niðurstöðu eigendanefndar. Flutt hafi verið villandi skilaboð til al- mennings um að virkjunin sé góð fjárfesting. „Það er dæmigert fyrir túlkun fjölmiðla á skýrslu eigendanefnd- arinnar að þeir borgarfulltrúar sem mest hafa lagt sig fram um að kynna sér alla þætti Kárahnjúka- virkjunar eru sakaðir um vanþekk- ingu á málinu í leiðara Morgun- blaðsins,“ segir m.a. í bókun Ólafs frá því í gær. Gagnrýnir eigenda- nefndina harðlega Ólafur F. Magnússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.