Morgunblaðið - 15.01.2003, Page 19
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 19
REYKJANESBÆR hefur fengið
húseignina Hafnargötu 88 afhenta
og er undirbúningur hafinn að
breytingum á húsnæðinu. Þar mun
vinnuskólinn hafa bækistöðvar, fé-
lagsmiðstöðin Fjörheimar flyst
þangað ásamt öðru tómstunda-
starfi og sett verður á laggirnar
ný upplýsinga- og menningar-
miðstöð ungs fólks.
Árni Sigfússon bæjarstjóri og
eigendur Óðins sf., Höskuldur og
Brynjólfur Þórðarsynir, rituðu
undir leigusamning til fimm ára
framan við húsið í gær og bæj-
arstjóri afhenti það síðan Stefáni
Bjarkasyni, framkvæmdastjóra
menningar-, íþrótta- og tóm-
stundasviðs bæjarins (MÍT). Við-
staddir voru starfsmenn MÍT og
formaður Nemendafélags Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja.
Höskuldur og Brynjólfur hafa
rekið vélsmiðju í húsinu og eru nú
að minnka við sig. Þeim líst vel á
að fá þangað æskulýðsstarf í stað
vélsmiðjunnar.
Húsið er tæplega 800 fermetrar
að stærð og segir Stefán að það
skapi mikla möguleika fyrir starf-
ið. Hann segir að verið sé að und-
irbúa nauðsynlegar breytingar á
húsnæðinu og síðan verði það tek-
ið í notkun smátt og smátt. Vinnu-
skóli Reykjanesbæjar mun hafa
þar aðsetur í sumar sem og úti-
deildin. Útbúið verður æfinga-
húsnæði fyrir hljómsveitir í kjall-
aranum. Ýmis tómstundafélög fá
þarna einnig aðstöðu. Fé-
lagsmiðstöðin Fjörheimar flytur á
neðri hæð hússins föstudaginn
8/8, klukkan 8.08.
Stefán vonast til að fyrr verði
unnt að opna félags- og menning-
armiðstöð ungs fólks á efri hæð-
inni. Hún hefur hlotið vinnuheitið
„88“ og er hugsuð fyrir unglinga,
16 ára og eldri. Ekki liggur fyrir
hvaða þjónustu verður boðið upp á
í þessari miðstöð enda segist Stef-
án leggja mikla áherslu á að ung-
lingarnir sjálfir komi beint að
hugmyndavinnunni. Hefur hann
leitað til Nemendafélags Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja með það
og þar hefur verið skipaður starfs-
hópur til að vinna að verkinu.
Kveðst Stefán binda miklar vonir
við þann undirbúning.
Með „88“ verður einnig leitast
við að ná til þeirra ungmenna sem
ekki finna sig í hefðbundu íþrótta-
og tómstundastarfi.
Hugmynd um unglingagarð
Hugmyndin er að koma upp svo-
kölluðum unglingagarði framan
við húsið. Sá hluti lóðarinnar verði
ræktaður upp og komið upp bekkj-
um og aðstöðu til að grilla. Verið
er að teikna garðinn og vonast
Stefán til að geta sýnt íbúum húsa
í nágrenninu fyrstu hugmyndir á
fundi sem fyrirhugað er að halda
með þeim á næstu dögum.
Bærinn og Óðinn undirrita leigusamning um húsið að Hafnargötu 88
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Árni Sigfússon bæjarstjóri og Höskuldur Þórðarson frá vélsmiðjunni Óðni takast í hendur eftir undirritun samn-
inga og sést Stefán Bjarkason á milli þeirra. Árna á hægri hönd eru Brynjólfur Þórðarson, Hafþór Barði Birgisson
og Valgerður Guðmundsdóttir og Höskuldi á vinstri hönd eru Ragnar Örn Pétursson og Runólfur Sanders.
Félags-
starf ung-
linga á ein-
um stað
Reykjanesbær
HELDUR meiri afla var landað í
Suðurnesjahöfnum á nýliðnu ári en
árið 2001. Aukningin nemur 5%. Staf-
ar það af stórauknum kolmunnaafla
sem landað var í Grindavík.
Á Suðurnesjum komu á land
255.855 tonn á síðasta ári, samkvæmt
tölum Hagstofu Íslands. Er það 13
þúsund tonnum meira en á árinu 2001
og nemur munurinn 5%. Botnfiskafli
var tæplega 66 þúsund tonn og hafði
dregist saman um 2.500 tonn. Kemur
samdrátturinn einkum fram í Sand-
gerði og höfnum Reykjanesbæjar.
Hins vegar jókst uppsjávarafli, var
184 þúsund tonn í stað 169 þúsund
tonna. Löndun á síld og loðnu dróst
saman en kolmunnaafli vó það upp og
vel það með því að hann margfald-
aðist, fór úr tæpum 7 þúsund tonnum
í tæp 32 þúsund tonn.
Mestu var landað í Grindavík sem
fyrr, 157 þúsund tonnum sem er
aukning um 22 þúsund tonn. Stafar
það af því að meiru var landað af kol-
munna eins og áður er nefnt en hann
kom allur á land í Grindavík.
Grindavík er fjórða mesta fisklönd-
unarhöfn landsins, í tonnum reiknað,
á eftir Vestmannaeyjum, Neskaup-
stað og Eskifirði.
Landað var 53.667 tonnum í höfn-
um Reykjanesbæjar og liðlega 45
þúsundum tonnum í Sandgerðishöfn.
Í báðum tilvikum er um nokkurn sam-
drátt að ræða frá fyrra ári, bæði í
botnfiskafla og uppsjávarafla.
Kolmunni
bætir upp
samdrátt
í afla
Reykjanes
BÆJARRÁÐ Grindavíkur hefur
áhuga á að hefja undirbúning að
byggingu tveggja til þriggja íbúða í
nágrenni dvalar- og hjúkrunar-
heimilisins Víðihlíðar. Vilji ráðsins
kom fram við umfjöllun um nið-
urstöður könnunar á högum aldr-
aðra í bæjarfélaginu. Könnunin
bendir til að aldraðir séu almennt
sáttir við þjónustu sveitarfélagsins.
Félagsvísindastofnun gerði skoð-
anakönnunina og kannaði ekki síst
hug aldraðra til húsnæðismála og
þjónustu sveitarfélagsins. Greindi
Halldór Ingvason félagsmálastjóri
frá helstu niðurstöðum hennar í
skýrslu til bæjarráðs á dögunum.
Könnunin náði til allra íbúa bæj-
arfélagsins, 60 ára og eldri. Fram
kom að flestir búa í eigin húsnæði
og yfirleitt í einbýlishúsum. Flest-
um líður vel í núverandi húsnæði
og helmingur telur ekki þörf á sér-
stakri þjónustu hjá bæjarfélaginu.
Vilja búa sem lengst heima
Halldór bendir á að þegar litið
sé einungis til þess hluta svarenda
sem náð hafi 70 ára aldri beri
meira á óskum um þjónustu og
annað búsetuform. Flestir vilji þó
búa sem lengst í núverandi hús-
næði og þá með óskum um heim-
ilishjálp og aðstoð við hirðingu lóð-
ar. Segir Halldór að þessi þjónusta
sé fyrir hendi og flestir ánægðir
með hana.
„Ekki er nokkur vafi á að þjóð-
hagslega er það hagkvæmast að
aldraðir búi sem lengst í eigin hús-
næði og helst fram á síðustu ár, en
til þess að það sé mögulegt þarf að
auka heimaþjónustu og heima-
hjúkrun að miklum mun. Þar sem
takmörkuð heimilishjálp er í verka-
hring sveitarfélaga en heimahjúkr-
un í verkahring ríkisins þurfa
framlög frá ríki að aukast verulega
til að sveitarfélögum sé mögulegt
að veita þessa þjónustu,“ segir fé-
lagsmálastjórinn í greinargerð
sinni.
Flestir þeirra sem geta hugsað
sér að breyta til kjósa íbúðir við
Víðihlíð, sem rætt hefur verið um
að byggja. Upplýsir Halldór að frá
því könnunin var gerð hafi átta ein-
staklingar haft samband við sig til
að spyrjast fyrir um hvenær byrjað
verði á þessum íbúðum en það séu
einstaklingar sem búi einir í stóru
húsnæði.
Einungis um helmingur þeirra
Grindvíkinga sem náð hafa 70 ára
aldri tekur þátt í félagsstarfi aldr-
aðra og telur Halldór það varla við-
unandi.
Hann telur að bæjaryfirvöld geti
verið nokkuð ánægð með niður-
stöður könnunarinnar því þar komi
ekki fram mikil óánægja með þá
þjónustu sem veitt er.
Við umfjöllun um niðurstöður
könnunarinnar ákvað bæjarráð
Grindavíkur að leggja til við bæj-
arstjórn að hafinn verði undirbún-
ingur að byggingu tveggja eða
þriggja íbúða fyrir aldraða við
Víðihlíð. Ólafur Örn Ólafsson bæj-
arstjóri segir að hugmyndin sé að
einstaklingar geti keypt þessar
íbúðir og notið þar nálægðar við
hjúkrun og félagsstarf aldraðra.
Aldraðir almennt sáttir við þjónustu bæjarins
Stefnt er að byggingu
íbúða á lóð Víðihlíðar
Grindavík
Hugmyndir eru uppi um að byggja hús með eignaríbúðum fyrir aldraða
norðan og vestan við dvalar- og hjúkrunarheimilið Víðihlíð.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
MEÐ BLAÐINU Í DAG
Blaðinu
í dag fylgir
sérblaðið Bílar