Morgunblaðið - 15.01.2003, Side 25
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 25
UM fátt annað er talað þessa dag-
ana, í kaffiskúrum landsins, en Alcoa-
samninginn og Kárahnjúkavirkjun.
Hvort vextir hækki, hversu margir
Pólverjar komi til Íslands að vinna,
hvort hagkerfið þoli framkvæmdina
og síðast en ekki síst: hver græði á
öllu saman. Morgunblaðið birti 9. jan-
úar sl. grein eftir Björk Guðmunds-
dóttur þar sem tónlistarmaðurinn
lýsti m.a. áhyggjum sínum yfir því að
það verði einhverjir aðrir en við, Ís-
lendingar, sem græði peninga á þess-
ari stærstu framkvæmd Íslandssög-
unnar og vill frekar að Íslendingar
einbeiti sér að því að virkja hugvitið
en náttúruauðlindirnar. Fullyrðir
Björk m.a. að Þjóðverjar vildu margt
vinna til þess að geta endurheimt þau
ósnortnu landsvæði sem þýska þjóðin
hefur nýtt við uppbyggingu landsins.
Og „hin vinstri græna“ Elísabet Jök-
ulsdóttir hélt ekki vatni yfir þessum
stórkostlega bandamanni andstæð-
inga virkjunarinnar og hafði á orði að
sú „björgunarþyrla“ sem myndi
bjarga Kárahnjúkum yrði ef til vill
„Björkunarþyrla“, þ.e. söngkonan
heimsfræga. Ég er Íslendingur og vil
gjarnan að sem mest af okkar landi
haldi sinni óspilltu náttúru, en ég bý
líka á þessari jörð og á þessu landi.
Ég bý hér árið um kring, lifi og hrær-
ist í því samfélagi sem hér ríkir, og af-
koma mín og barna minna er tengd
afkomu lands og þjóðar. Fyrir mér er
Ísland meira en einhver sumarleyf-
isparadís sem ég get boðið ríkum vin-
um mínum frá útlöndum að heim-
sækja og skoða fallegu náttúruna
sem heimamenn (í þessu tilfelli Aust-
firðingar á kostnað eigin lífskjara)
eiga að halda „óspilltri“ fyrir þá, eða
fínu eyjuna og dalinn sem ég keypti
því ég veit ekki aura minna tal. Ég
þarf að horfa á stóru myndina, sjá
málið í heild, og taka alla þætti inn í
þá mynd. Um það er snýst málið, við
verðum að hugsa um jörðina okkar í
heild en ekki bara einblína á það sem
okkur er næst. Ég held að enginn sé
svo þröngsýnn að sjá ekki að ál er
nauðsynlegt í nútíma þjóðfélagi, og
ekki bara nauðsynlegt heldur líka
hagkvæmt. Vegna lítillar eðlisþyngd-
ar efnisins og mikils styrkleika er far-
ið að nota ál í æ ríkari mæli í far-
artæki s.s. flugvélar og bíla. Þetta
leiðir af sér að fyrir hvern kílómetra
skila þessi farartæki minna koldíoxíði
(CO2) út í andrúmsloftið en ef
„gömlu“ málmarnir væru notaðir.
Hugvitið eitt og sér minnkar ekki los-
un þessara efna. Nauðsynlegt er að
endurnýja álverin, því að þau ganga
úr sér eins og aðrir hlutir, og hvar er
þá betra að staðsetja þau en einmitt
þar, sem hægt er að framleiða græna
raforku (nota hér orðið „framleiða“
þó ekki sé hægt að framleiða orku
heldur bara umbreyta henni). Vatns-
fallsvirkjanir eru hentugustu virkj-
anir sem við getum byggt með tilliti
til legu landsins, mótunar þess og
veðurfars. Þær eru einnig hagkvæm-
ari en sjávarfallavirkjanir, þegar að
viðhaldi kemur, og mun fallegri en
vindmyllur þegar litið er til sjón-
mengunar. Raða þyrfti t.d. niður
vindmyllum meðfram allri suður-
ströndinni, frá Þorlákshöfn og austur
að Vík í Mýrdal, til að ná sömu af-
kastagetu og ein Kárahnjúkavirkjun
og það yrði slíkt lýti á landinu að
meira segja Vinstri grænir yrðu á
móti því.
Er Palli einn í heiminum?
Við búum með náttúruna við úti-
dyrnar hjá okkur en það gera líka
íbúar Schramberg í miðjum Svarta-
skógi í Þýskalandi og það verður allt-
af huglægt mat hvort náttúran okkar
sé fallegri en þeirra. Auðvitað er það
líka huglægt mat hvenær við Íslend-
ingar erum að fórna minni auðlindum
fyrir meiri, en ef við skyggnumst ör-
lítið út fyrir landsteinana þá er nið-
urstaðan alltaf sú sama; íslensku fall-
vatnsvirkjanirnar slá á aukningu
gróðurhúsaáhrifa, sem hafa áhrif á
alla jarðarbúa, auk þess sem við
tryggjum uppsveiflu í atvinnulífinu
og arðbæra fjárfestingu. Á komandi
umhverfisráðstefnum getum við þó
bent á að ef ekki væri fyrir Kára-
hnjúkavirkjun þyrfti að brenna gríð-
arlegu magni af kolum og olíu til að
annast orkuþörf umrædds álvers, því
það mun rísa einhvers staðar rísi það
ekki hér.
Með fullri virðingu fyrir náttúru-
verndarsinnanum Björk Guðmunds-
dóttur þá ímynda ég mér að einu
„Björkunarþyrlurnar“ sem Elísabet
Jökulsdóttir komi til með að sjá
sveima yfir Kárahnjúkum verði
einka-, skoðunar- og útsýnisþyrlur
þeirra sem nægt fjármagn hafa og
þurfa ekki að hafa áhyggjur af at-
vinnuleysi eða afkomu sinni á Aust-
fjörðum eftir að útsýnisfluginu lýkur,
frekar en tónlistarmaðurinn Björk
Guðmundsdóttir.
Þær þyrlur eru ekki eins umhverf-
isvænar og gönguskór.
Skrifað á Alcoa-daginn, 10. janúar
2003.
Ál er allra
mál!
Eftir Ólaf Hauk
Ólafsson
„Afkoma
mín og
barna minna
er tengd af-
komu lands
og þjóðar.“
Höfundur er orku- og
umhverfisfræðingur.
SNIÐUGHEIT gerðu Össur
Skarphéðinsson að skemmtilegum
þingmanni. Fyndin setning eða gal-
gopalegt tilsvar frá reykvíska þing-
manninum fékk menn til að brosa út í
annað. Eftir að Össur varð formaður
stjórnmálaflokks urðu brandararnir
taktlausir. Það er ekki einkamál Öss-
urar þegar hann eyðir trúverðugleika
Samfylkingarinnar með gönuhlaup-
um.
Hugmynd Össurar um að snúa við-
ræðum við Evrópusambandið um
EES-samninginn upp í umsókn um
aðild Íslands gæti verið komin frá for-
ystumanni lítils kverúlantaflokks sem
ávallt er tilbúinn í pólitísk yfirboð
bara ef úr verði uppsláttur. Dapurt er
að hugmyndin komi frá formanni
flokks sem mælist í skoðanakönnum
stærstur í landinu.
Umræða um inngöngu Íslands í
Evrópusambandið er alvörumál, um
það geta aðildarsinnar og andstæð-
ingar verið sammála. Nú stendur fyr-
ir dyrum að gera tæknilegar breyt-
ingar á EES-samningnum vegna
stækkunar Evrópusambandsins í
austur. Það er hvorki þingmeirihluti á
Íslandi né pólitískur vilji í Brussel að
breyta samningaviðræðum um EES í
aðildarviðræður um inngöngu lands-
ins í sambandið. Engar forsendur eru
fyrir því að hugmynd formannsins
komist í íhugunarstig, hvað þá meira.
Hver gæti þá skýringin verið á
bráðlætinu, önnur en ungæðingshátt-
ur? Jú, Össur og fáeinir aðrir í forystu
Samfylkingarinnar knúðu fram at-
kvæðagreiðslu í flokknum í sumar
leið. Þeim tókst, með því að þver-
brjóta lýðræðislegar leikreglur og
hafa í frammi ósvífnar blekkingar, að
fá fjórðung flokksmanna til þátttöku.
Uppskera Össurar var að fá hjáróma
já við því að skilgreina samnings-
markmið okkar gagnvart Evrópu-
sambandinu.
Össur hefur svikist um að skil-
greina þau samningsmarkmið sem
ættu að liggja til grundvallar umsókn
Íslendinga um inngöngu okkar í Evr-
ópusambandið. Ástæðan liggur í aug-
um upp. Í samningsmarkmiðum
þyrfti m.a. að koma fram hvort sæst
yrði á að yfirráðin yfir fiskveiðilög-
sögunni færu til Brussel og hvort
taka ætti áhættuna af argentínsku
efnahagsástandi á Íslandi með upp-
töku evrunnar. Össur slyppi við póli-
tískt jarðsprengjusvæði ef hægt væri
að snúa samningaviðræðum um
EES-samninginn upp í aðildarvið-
ræður. En það er heldur leitt hve
draumaveröld formannsins rímar illa
við veruleikann.
Gönuhlaup Össurar
Eftir Pál
Vilhjálmsson
„Draumaver-
öld for-
mannsins
rímar illa við
veru-
leikann.“
Höfundur er blaðamaður.
ÍSRAELSSTJÓRN hefur af-
numið ferðafrelsi íbúa borga og
bæja á Vesturbakkanum og til-
kynnt að erlendum ferðamönnum
sem grunaðir eru um samúð með
málstað Palestínumanna verði vís-
að úr landi við komuna til Ísrael.
Sama gildi um alla sem hyggjast
ferðast til Vesturbakkans eða
Gaza. Meira að segja bandarískum
ríkisborgurum verður vísað úr
landi þegar í stað, ef upp kemst að
þeir eiga sér palestínskan upp-
runa. Sharon ætlar nú að koma í
veg fyrir að nokkrir utanaðkom-
andi verði vitni að stríðsglæpum
Ísraelshers og landtökumanna á
herteknu svæðunum. Það á einnig
að koma í veg fyrir að sjálfboðalið-
ar, þar á meðal frá Íslandi, geti
farið á vettvang til hjálparstarfa.
Í dag, 12. janúar, hélt íslensk
kona áleiðis til Vesturbakkans til
sjálfboðastarfa á æskulýðsmið-
stöðvum í Ramallah, Nablus og
víðar. Hún fer eins og 12 aðrir ís-
lenskir sjálfboðaliðar á undan
henni, til ýmissa hjálpar- og eft-
irlitsstarfa í tengslum við Samein-
uðu palestínsku læknishjálpar-
nefndirnar (UPMRC). Félagið
Ísland-Palestína hefur um árabil
haft samvinnu við þessi samtök
sem árið 2001 fengu viðurkenningu
WHO, Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar, fyrir afburða starf
að heilsugæslu við erfiðar aðstæð-
ur. Þá hefur neyðarsöfnun félags-
ins sen hófst í nóvember árið 2000
og nemur nú rúmum 3 milljónum
króna, runnið að mestu leyti til
þessara samtaka. Nokkru fé hefur
jafnframt verið varið til geðhjálp-
arverkefnis fyrir börn á Gaza, en
það hefur einnig notið stuðnings
Barnaheilla.
Það hefur verið eitt af hlutverk-
um sjálfboðaliðanna að vera í
tengslum við þessi samtök, fylgj-
ast með og taka þátt í starfi þeirra
einsog aðstæður leyfa. Sjálfboða-
liðarnir hafa óspart fengið að
heyra hvers virði heimsókn þeirra
er og viðvera, þótt ekki sé annað,
við þær aðstæður sem ríkja vegna
hernáms Ísraela og vaxandi
grimmdar sem er fylgifiskur þess.
Þess er að vænta að íslensk
stjórnvöld mótmæli harðlega þess-
um grófu mannréttindabrotum
Ísraelsstjórnar og tryggi Íslend-
ingum ferðafrelsi til mannúðar-
starfa á herteknu svæðunum. Ef
Ísraelsstjórn virðir ekki alþjóðalög
og grundvallarmannréttindi er
réttmætt að hún finni fyrir því að
slíkt verður ekki liðið. Þá er rétt
að fylgja mótmælum eftir með því
að hætta viðskiptum við Ísrael og
slíta stjórnmálasambandi, á meðan
Ísraelsstjórn fer ekki að lögum.
Ísraelsstjórn
afnemur
ferðafrelsi
Eftir Svein Rúnar
Hauksson
„Þess er að
vænta að ís-
lensk stjórn-
völd mót-
mæli
harðlega þessum grófu
mannréttindabrotum
Ísraelsstjórnar …“
Höfundur er læknir og formaður
Fél. Ísland-Palestína.
Útsalan hófst í dag kl. 10.00
Klapparstíg 44 - sími 562 3614
BANDALAG ÍSLENSKRA LEIKFÉLAGA
Vantar þig gervi
fyrir grímuballið?
Hárkollur • Trúðanef • Gervinef • Tannlakk
Gerviskegg • Gerviaugnhár • Lithársprey
Leikhúsfarði • Gervitennur • Gervieyru
Gerviskallar • Gerviblóð • Gervihor
Sendum í póstkröfu!
Laugavegi 96 • www.leiklist.is • 551 697