Morgunblaðið - 15.01.2003, Síða 30

Morgunblaðið - 15.01.2003, Síða 30
UMRÆÐAN 30 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ M ikil gróska er í ís- lensku rappi og minnir það helst á pönktímabilið fyrir tveimur ára- tugum. Raunar var ég of ungur til að verða pönkari. Sterkasta minn- ing mín frá þessum árum er úr sjö ára bekk í Öldugötuskóla. Þá kenndi Ragnhildur Gísladóttir mér söng og mætti í hvern tíma með nýjan háralit. Ef til vill þykir það ekki sérlega byltingarkennt í dag, en á þeim tíma þótti það óskaplega merkilegt. Ég var samt ekki meiri pönkari en svo, að ég vonaði alltaf að hún tæki saman við Björgvin Halldórsson. Ég hélt líka þangað til ég gifti mig að ég væri of gamall til að verða rappari. Þá tróðu upp föðursystur brúðarinnar ásamt börnum með rapp. Þær áttu sal- inn; flutningurinn furðu hljóm- fastur og áheyrilegur. Svo óþekkj- anlegar voru þær í rappgervinu með húfurnar yfir hálfu andlitinu að tengdafaðir minn hallaði sér að mér, benti á systur sína á sextugs- aldri og spurði í fyllstu einlægni hvaða stelpa þetta væri. Margt er líkt með pönki og rappi. Í fyrsta lagi þurftu menn ekki að kunna á hljóðfæri til að komast í pönksveit, og ef þeir kunnu á hljóðfæri, þá voru þeir látnir spila á eitthvað annað. Þröskuldurinn er heldur ekki hár fyrir þá sem vilja byrja að rappa. Það er þjóðarsport að ríma og ef við bætist æfing, ásamt vissu frumkvæði og hugmyndaauðgi, þá er útkoman rapp. Fyrir vikið er flóran fjölskrúðug af rapp- sveitum, bæði þeim sem hafa náð að skapa sér nafn og eins þeim sem banka á dyrnar. Í annan stað er rappið bylting- arkennt eins og pönkið. Margir lagatextanna eru hreint ekki við hæfi foreldra. En þykja að sama skapi afskaplega spennandi hjá ungviðinu. Stærsti hlustendahóp- urinn er á aldrinum tólf til tuttugu ára, þó allt niður í sex ára hlusti á rapp. Og þó sumir foreldrar gefi börnum ekki rappdiska fyrir jólin vegna orðfærisins, þá laumast sum til að kaupa þá eftir jólin, þó ekki væri nema til að geta tekið þátt í slúðrinu í skólastofunni. Pönkið var ekki heldur við hæfi foreldra. En blessunarlega var aldrei gengið svo langt að setja aldurstakmörk á pönktónlistina frekar en rappið. Ég man að á unglingsárunum hristum við vin- irnir oft hausinn yfir því, sem við tengdum helst við Bandaríkin, að orð væru bönnuð vegna þess að þau hefðu slæm uppeldisleg áhrif. Okkur fannst það fáránlegt og einkennandi fyrir of mikil áhrif öfgafullra þrýstihópa á þeim bæn- um. En rappið er ekki alveg nýtt af nálinni fyrir Íslendingum. Það hefur raunar mun sterkari tengsl við íslenskan menningararf en pönkið, þó Sveinbjörn Beinteins- son allsherjargoði og rímnaflutn- ingur hans sé einna eftirminnileg- astur úr Rokki í Reykjavík og hugvitssamlega hafi verið farið með íslenskuna í pönktextum. Þegar XXX Rottweiler hundar gáfu út rappplötu fyrir jólin 2001, sem seldist í tíu þúsund eintökum, olli það straumhvörfum í íslensku rappi. Ástæðan var sú að broddur var í textunum og þeir fluttir á ís- lensku. Í kjölfarið var talað um að það væri eins og brostið hefði stífla og flætt fram rapptónlist á íslenskri tungu, sem safnast hefði upp á löngum tíma. Má líkja því við það þegar Megas gaf út sína fyrstu plötu, sem hét eftir listamann- inum, árið 1972. Þá varð til flóð- bylgja af íslenskum lagatextum. Og rappið fellur vel að íslenskri þjóðkvæðahefð, enda vísar XXX Rottweiler óspart í rímur sem rapptexta, eins og í laginu Hí á þig: „ég á alltaf nægar rímur, allt- af nóg háð / ég er rímari af guðs náð.“ Dr. Ólína Þorvarðardóttir segist telja það ótvírætt að rím- urnar hafi verið baðstofurappið á sínum tíma með rætur í alþýðu- menningu eins og rappið í Harlem. „Rímur spretta upp sem undir- leikslaus tónlist,“ segir hún. „Hrynjandin liggur í kveðskap- armálinu sjálfu og maður heyrir það á því hvernig þær eru kveðnar að þær hafa ekki verið studdar af hljóðfærum. Kveðandin í stemm- unum styður sig mikið sjálf og undirniðurinn í henni er veðra- brigðin, aldan, þegar rokkurinn er stiginn.“ Rappið er á vissan hátt stutt af tónlist, en það hefur innbyggðan þennan innri rytma, sem er ekki háður hljóðfærum. „Þetta er aft- urhvarf yfir í rímið og ákveðna formbindingu málsins, þar sem formbindingin fer að nálgast tón- list, alveg eins og var í gamla rímnakveðskapnum,“ segir Ólína. Sem dæmi um afbrigði af rímum, sem myndi sóma sér vel í rappinu, má nefna erindi eftir Jón Hallsson sýslumann, sem ort var fyrir siða- skipti: Kláða, hryglu og hósta, hefur það ellin nú með sér, kveisu í limu kann ljósta, leikur hún þetta stundum mér, líkama mannsins lætur hún allan dofna, kaldur og freðinn klæðfár er, hann klórar sér í sæng þá vill hann sofna. Þulurnar eru frjálsari í forminu en rímurnar og hægt að spinna meira með þær – þær eru meira endileysuform. Ólína rifjar upp fallega barnaþulu um fuglana við Látrabjarg, sem hún lærði þegar hún var lítil og hefur aldrei áður birst á prenti: Fuglinn undir bjarginu á fallegan unga, hvít er á honum bringan og blóðrauð í honum tungan. Yljar honum móðir á mosasæng og vermir hann undir sínum væng. Ríum og ríum og ríum og ró – á morgun flýgur fuglinn eftir fisk út á sjó. „Hraðinn er meiri í rappinu en íslenskum alþýðukveðskap, enda er þjóðfélagið annað,“ segir Ólína að lokum. „Það er meiri síbylja og umferðarniður í rappinu. En í eðli sínu er þetta sama fyrirbrigðið, sjálfsprottið úr sama jarðvegi.“ Pönk og rímnarapp Og rappið fellur vel að íslenskri þjóð- kvæðahefð, enda vísar XXX Rottweiler óspart í rímur sem rapptexta, eins og í laginu Hí á þig: „ég á alltaf nægar rímur, alltaf nóg háð / ég er rímari af guðs náð.“ VIÐHORF Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is LANDHELGISGÆSLAN er einn af hornsteinum þjóðarinnar, hlutverk hennar er að vernda efna- hagslögsöguna og tryggja öryggi sjómanna og reyndar landsmanna allra. Starfsfólk Landhelgisgæsl- unnar finnur til ábyrgðar gagnvart efnahagslögsögu þjóðarinnar eins og sjá má á greinaskrifum þess. Sjó- menn finna einnig til þessarar ábyrgðar eins og sjá má á ályktunum stéttarfélaga sjómanna undanfarnar vikur. En hver er ábyrgð ráðamanna þegar Landhelgisgæslan getur ekki lengur gegnt hlutverki sínu svo við- unandi sé? Í byrjun árs sökk lítið flutninga- skipi í blíðuveðri 80 sml austur af Stokksnesi, tveimur dögum eftir að áhöfn þess var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Það var ekkert skip á sjó fyrir austan, aðeins tvö varðskip í rekstri. Lítil mengun varð en flakið gæti valdið togskipum vandræðum. Þarna vorum við hepp- in. Gefum okkur að þetta hafi verið 20.000 tonna olískip, suðaustan bræla (35–45 hnútar), ekki óalgegnt á þessum tíma árs. Næsta varðskip væri 30 klst. á leið austur en gæti lít- ið aðhafst í þessu veðri vegna smæð- ar sinnar. Þegar svo skipið er sokkið og jafnvel brotið flæða fleiri þúsund tonn af olíu í sjóinn. Innan fárra daga er svo þessi olía búin að hreiðra um sig í fjörum Austfjarða. Síðastliðin fimm ár hafa þrjú flutningaskip far- ist innan lögsögu okkar, sem betur fer ekkert olíuskip. Hvernig halda ráðamenn að hefði farið ef flutninga- skipið Vikartindur, sem strandaði við Þjórsárós í mars 1997, hefði verið 20 þúsund tonna olíuskip? 600.000 tonn af olíu eru flutt til landsins með skipum á ári hverju. Um efnahags- lögsögu okkar fer fjöldi misvel bú- inna flutningaskipa. Sum þessara skipa eru á svörtum lista hjá öðrum Evrópuþjóðum þar sem þau þykja ekki örugg vegna aldurs. Hvernig erum við búin undir stórt mengunar- slys? Hingað til lands koma yfir fimmtíu skemmtiferðaskip á ári með yfir þrjátíu þúsund manns. Um borð í hverju skipi eru frá nokkur hundruð til yfir 3.000 manns. Maxim Gorky sigldi á rekís norður af Noregi, far- þegum og áhöfn bjargað af norsku varðskipi og þyrlum. Fyrir nokkrum árum strandaði stórt farþegaskip við Svalbarða, bjargað af norsku Land- helgisgæslunni. Einn daginn þurfum við að takast á við álíka tilfelli. Hvernig erum við búin undir alvar- legt slys á stóru farþegaskipi? Frá byrjun apríl til júlíloka stend- ur úthafskarfavertíðin yfir á Reykja- neshrygg. Yfir 100 togarar af ýmsu þjóðerni eru á svæðinu þegar mest lætur auk íslenskra skipa. Þessi skip hafa verið mjög ágeng á lögsögu- mörkunum og hafa íslenskir togara- skipstjórar ítrekað kvartað yfir ástandinu og krafist þess að varð- skip væri á svæðinu, bæði til að vernda lögsöguna og til að tryggja öryggi þeirra þúsunda sjómanna er þarna starfa. Grænlenskir, norskir og færeysk- ir rækjutogarar stunda veiðar við lögsögumörkin á Dornbanka. Á Færeyjahrygg stunda Rússar, Norðmenn og Færeyingar botnfisk- veiðar við lögsögumörk okkar. Á haustin stunda japönsk og taívönsk túnfiskveiðiskip línuveiðar við suð- urmörk lögsögunnar. Í júní hefst loðnuvertíðin fyrir Norðurlandi og þá flykkjast hingað norsk, grænlensk og færeysk loðnu- skip. Á síðustu vertíð höfðu rúmlega 90 norsk loðnuskip veiðileyfi innan íslenskrar lögsögu en 25 til 35 norsk loðnuskip mega stunda veiðarnar í einu auk nokkurra grænlenskra og færeyskra skipa. Þessar veiðar standa yfir fram eftir sumri og svo aftur eftir áramót. Íslendingar hafa nú sagt upp loðnusamningnum við Norðmenn og því óvíst hvernig ástandið verður næsta sumar. En þó svo að norsk skip hafi ekki veiðileyfi innan lögsögu á næstu vertíð sigla þau í tugatali í gegnum lögsöguna á grænlensk mið og með þeirri gegn- umferð þarf að fylgjast. Yfir 40 fær- eysk skip hafa árlega leyfi til línu- og handfæraveiða á Íslandsmiðum auk síldar- og kolmunnaskipa. Þá hafa nokkur norsk línuskip og ESB-tog- arar veiðileyfi innan lögsögunnar. Samtals tilkynntu 150 erlend skip sig til veiða innan efnahagslögsögu Íslands á síðasta ári og nam afli þeirra rúmlega 206 þúsund tonnum. Á þessu má sjá að ágangur erlendra skipa hér við land er mikill enda eru þessir flotar í mörgum tilfellum bún- ir að þurrka upp sín heimamið. Flest erlend skip sem stunda veiðar innan lögsögu hafa fjareftirlitsbúnað og þannig er fylgst með ferðum þeirra. Samt sem áður þarf að fara um borð í skipin og bera afla og afladagbækur saman við tilkynningar til Landhelg- isgæslunnar. Floti okkar Íslendinga telur 2.408 skip og báta. Á miðunum er fjöldinn allur af lokuðum svæðum til verndar fiskistofnunum. Þessi svæði eru m.a. lokuð fyrir línuveiðum, síldveiðum, togveiðum, togveiðum án smáfiska- skilju o.s.frv. Stór svæði eru lokuð fyrir skipum í ákveðnum stærðar- flokki og með ákveðna veiðigetu. Þá voru gefnar út 139 skyndilokanir á síðasta ári. Það má hverjum manni vera ljóst að tveggja skipa og einnar flugvélar floti Landhelgisgæslunnar getur ekki haft eftirlit með öllum þessum flota né tryggt öryggi hans svo við- unandi sé. Getur verið að ráðamenn þjóðarinnar hafi gleymt sinni ábyrgð? Ábyrgð ráðamanna Eftir Auðun F. Kristinsson „Tveggja skipa og einnar flug- vélar floti Landhelg- isgæslunnar getur ekki haft eftirlit með öllum þessum flota né tryggt öryggi hans svo við- unandi sé.“ Höfundur starfar sem stýrimaður / sigmaður hjá Landhelgisgæslunni. FATLAÐIR og hreyfihamlaðir eiga mikið undir því að geta ferðast um án aðstoðar annarra og rekið sjálfir erindi sín þrátt fyrir fötlun sína. Mikilvægur áfangi í réttinda- málum fatlaðra náðist þegar farið var að merkja sérstök bílastæði í þeirra þágu og eru nú mörg slík við inn- gangsdyr spítala, verslana, banka og annarra mikilvægra stofnana sem fatlaðir sækja þjónustu til eins og annað fólk. Engum er heimilt að leggja bíl í þessi sérmerktu stæði nema hann sé hreyfihamlaður og hafi því til sönnunar P-merki í framrúðu. Ófremdarástand Mikið er hins vegar um það að þessi sérmerktu stæði séu ekki virt og þar leggi fullfrískt fólk sem sparar sér þannig örfá skref. Þeir sem leggja þannig ólöglega í frátekin stæði fatl- aðra gera það í trausti þess að yfir- völd aðhafast ekkert til að stemma stigu við þessu háttalagi og að fatlaðir bílstjórar eru ólíklegir til að standa fast á rétti sínum. Er þetta að sjálf- sögðu mjög bagalegt fyrir þá sem eru hreyfihamlaðir og þurfa á þessum stæðum að halda. Hingað til hefur það algjörlega vantað að eftirlit sé haft með því hér í höfuðborginni að stæði fatlaðra og hreyfihamlaðra séu virt. Erum við Ís- lendingar þar miklir eftirbátar ann- arra þjóða. Víða erlendis, t.d. í Svíþjóð og Bandaríkjunum, eru bílar þeirra ökumanna sem leggja ranglega í stæði fatlaðra miskunnarlaust dregn- ir í burtu og sektaðir. Í janúar 2002 eða fyrir réttu ári síð- an var greint frá því í fjölmiðlum að í samgöngunefnd Reykjavíkur hefði verið samþykkt tillaga um að gera sérstakt átak í bílastæðamálum fatl- aðra. Samkvæmt tillögunni átti að upplýsa almenning um gildandi regl- ur vegna bifreiðastæða fatlaðra og hreyfihamlaðra og koma á fót eftirliti með því að settum reglum um þau yrði framfylgt, m.a. með eftirliti lög- reglunnar og bílastæðasjóðs. Var þessi þarfa tillaga samþykkt og lýstu forsvarsmenn öryrkja yfir mikilli ánægju með það gleðiefni. Ekkert gerist Undirritaður hefur skerta göngu- getu og þessi mál snerta mig því sér- staklega. Var ekki laust við að maður hlakkaði til þess að tillagan kæmist í framkvæmd og þannig yrði von bráð- ar auðveldara að fá bílastæði en verið hefur þegar farið er í bæjarferð. Þrátt fyrir að ár sé nú liðið frá sam- þykkt tillögunnar, hefur hins vegar ekkert frést af afdrifum hennar og ekkert bólar enn á aðgerðum. Ætti þó ekki að taka langan tíma að bæta þarna úr ef vilji væri fyrir hendi. Það ríkir því enn óásættanlegt ófremdar- ástand í ferlimálum fatlaðra og hreyfihamlaðra í Reykjavík. Það lýsir heldur ekki miklum áhuga hjá stjórn- málamönnunum á málefnum þessara hópa að samþykkja slíka tillögu en að- hafast síðan ekkert í málinu í heilt ár. Spurningar til borgarstjóra Ég hef spurst fyrir um þetta mál í borgarkerfinu en ekki fengið svör og enginn virðist vita hver ber ábyrgð á því að fylgja margnefndri tillögu eftir. Mig langar því til að beina eftirfar- andi spurningum til borgarstjóra. Skýr svör óskast. a) Hver ber ábyrgð á því að koma í framkvæmd tillögu um úrbætur í bílastæðamálum fatlaðra sem sam- þykkt var í borgarkerfinu fyrir ári síðan? b) Hvers vegna hefur tillögunni ekki enn verið komið í framkvæmd? c) Hvenær er úrbóta að vænta í bílastæðamálum fatlaðra? Að lokum langar mig til að þakka þeim bílstjórum sem virða sérmerkt stæði fatlaðra og hreyfihamlaðra og sýna okkur á annan hátt tillitsemi í umferðinni. Þá vil ég þakka fyrir sér- merkt stæði hreyfihamlaðra við Smáralind en þau eru vel staðsett, rúmgóð og áberandi máluð. Hafi for- svarsmenn Smáralindar, Hagkaupa og fleira aðilar þökk fyrir og mættu aðrir taka sér þá til fyrirmyndar. Hvað varð um tillöguna? Eftir Svein Scheving „Ekkert gerist í úr- bótum í bílastæða- málum fatlaðra.“ Höfundur er öryrki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.