Morgunblaðið - 15.01.2003, Qupperneq 31
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 31
HÖFUNDUR þessarar greinar
hefur fylgst með íslenskri ferða-
þjónustu í yfir 30 ár. Á þeim tíma
hafa verið stofnuð 6–7 flugfélög og
3–4 ferðaskrifstofur til að keppa
um hylli neytenda á flugleiðum til
og frá Íslandi. Allar hafa þessar til-
raunir endað með gjaldþroti
þeirra, sem til stofnuðu og í þeim
gjaldþrotum hafa þjónustuaðilar
tapað miklum fjárhæðum á við-
skiptum við þá „frumkvöðla og
frelsara“ sem hafa boðað fagnaðar-
erindi um lággjaldaferðir landans
til útlanda. Í flestum tilvikum hafa
farþegar sloppið með óþægindi og
skrekk því tryggingar sem ferða-
skrifstofum er skylt að leggja
fram, hafa dugað til að bjarga far-
þegunum heim með frímerki á
rassinum.
Taprekstur í ferðaþjónustu
Þessar tilraunir hafa ekki leitt til
þess að neytendur hafi fengið betri
kjör á sínum ferðalögum þegar til
lengri tíma er litið. Þvert á móti
hefur reyndin orðið sú að þær at-
vinnugreinar, sem falla undir
ferðaþjónustu, hafa verið reknar
með mun verri árangri og beinlínis
taprekstri en aðrar atvinnugreinar.
Þessi slæma afkoma hefur komið
fram í óraunsærri verðlagningu á
þjónustu og úttekt á þjónustu, sem
aldrei hefur verið greidd. Lengst
gekk þessi firra þegar orlofssjóðir
verkalýðsfélaga voru látnir halda
Samvinnuferðum-Landsýn hf.
gangandi til ógæfu fyrir íslenska
ferðaþjónustu. Sem kunnugt er
endaði saga Samvinnuferða-Land-
sýnar með gjaldþroti eftir að for-
stjóri ferðaskrifstofunnar hafði
lýst því yfir að skrifstofan ætlaði
að halda uppi reglubundnu áætl-
unarflugi frá Íslandi á „hreint
ótrúlega lágu verði“. Árangurinn
var 1.200–1.500 milljóna gjaldþrot,
sem ferðaþjónustufyrirtæki og
lánastofnanir urðu að axla.
Íslendingar hafa verið afkasta-
meiri en nágrannar okkar í Evrópu
við stofnun flugfélaga, miðað við
fólksfjölda. Þar hafa einungis verið
stofnuð rúmlega 100 flugfélög en
aðeins 20 þeirra eru enn við lýði,
sum undir verndarvæng eldri flug-
félaga sem til stóð að keppa við, því
„ef þú getur ekki barið á honum þá
skalt þú sameinast honum“.
Iceland Express /
Reykjavík Express
Nú um stundir ganga nokkrir
menn fram fyrir skjöldu og segjast
hafa stofnað „lággjaldaflugfélag“,
sem þó er ekki flugfélag í skilningi
loftferðalaga. Þeir lýsa því yfir að
þeir muni „fljúga á flugrekstrar-
leyfi erlendra aðila“.
Flugrekstur er skilgreindur í
loftferðalögum. Í IX. kafla loft-
ferðalaga er fjallað um skilyrði
þess að samgönguráðherra veiti
flugrekstrarleyfi. Í reglugerðum
og tilskipunum er gert ráð fyrir því
að flugrekstraraðili leggi fram
rekstraráætlun um væntanlegan
rekstur og í framhaldi af því eru
gerðar kröfur um eigið fé og
lausafé væntanlegs flugrekstrar-
aðila. Það liggur í hlutarins eðli að
flugfélög í áætlunarflugi verða að
hafa mun meira lausafé en leigu-
flugfélög. Kröfur um lausafé flug-
félaga gera ráð fyrir að flugfélög
geti haldið áfram rekstri í 3 mán-
uði án tekna. Leiguflugfélög hafa
takmarkaðar skyldur við farþega.
Kröfur til áætlunarfélaga byggjast
á því að farþegar geti vænst þess
að fá heimflutning hvað sem líður
rekstrarerfiðleikum félagsins.
Kröfur um lausafé eru einnig kröf-
ur um að flugfélög vanræki ekki
öryggisþætti í flugrekstrinum.
Í lögum um skipulag ferðamála
er gert ráð fyrir að til að fá ferða-
skrifstofuleyfi þurfi rekstraraðili
að leggja fram tryggingar sem
nemi 70% af veltu tveggja veltu-
mestu mánaðanna í röð eða 40% af
veltu fjögra söluhæstu mánaðanna
í röð eða 20% af ársveltu, og skal
sú niðurstaða, sem gefur hæstu
tryggingu gilda.
Viðskiptahugmyndin
Viðskiptahugmynd forvígis-
manna Iceland Express / Reykja-
vík Express byggist á eftirfarandi:
Að stofna ferðaskrifstofu sem
heitir Reykjavík Express.
Tryggingarfé ferðaskrifstofunn-
ar er 1.000.000 kr. Réttindi
ferðaskrifstofunnar heimila út-
gáfu farseðla fyrir flugrekstrar-
aðila.
Blöð í stærðinni A4 eru gefin út
á fyrirtæki, sem heitir Iceland
Express. Samkvæmt upplýsing-
um framkvæmdastjórans er það
einungis „sölu- og markaðsfyr-
irtæki“. Á blaðinu eru upplýs-
ingar um hvað greitt hefur verið
fyrir, þ.e. ferð til Kaupmanna-
hafnar eða London á tilteknum
dögum ásamt flugvallarsköttum.
Hvergi kemur fram að blaðið í
stærðinni A4 sé krafa á flugfélag
í Bretlandi sem heitir Astraeus.
Astraeus er flugfélag sem var
stofnað í Bretlandi á liðnu ári og
hefur takmarkaða rekstrarsögu.
Á heimasíðu félagsins er síðast
sagt frá afrekum í maí á liðnu
ári.
Ef þessi tilraun Iceland Express
/ Reykjavík Express endar með
sömu skelfingu og fyrri 10 til-
raunir, verða farþegar og hand-
hafar blaða í stærðinni A4 að
sækja rétt sinn til Astraeus í
Bretlandi en ekki í tryggingar
hjá samgönguráðuneytinu á Ís-
landi. Sá réttur er væntanlega
torsóttur því hvergi kemur fram
neitt um kröfuréttarsamband
handhafa A4 blaðanna og Astr-
aeus. Iceland Express er óþarfur
milliliður ef flogið er á flug-
rekstrarleyfi Astraeus og
Reykjavík Express er ferðskrif-
stofa með réttindi til reglubund-
ins leiguflugs en svo er ekki.
Aðilum í ferðaþjónustu er boðið
upp á að leggja fram þjónustu og
að fá hana endurgreidda með
hlutabréfum í „sölu- og markaðs-
fyrirtækinu“. Slík bréf verða síð-
an verðlaus og gagnlaus krafa ef
starfsemin verður gjaldþrota.
Sem fyrr segir ganga forkólfar
Iceland Express / Reykjavík
Express“ hreint til verks“ og þeir
koma sér undan að setja trygg-
ingar fyrir fjárhagslegum skuld-
bindingum við farþega, hvort held-
ur í flugrekstri eða ferðaskrifstofu-
rekstri. Heiðvirðir stjórnendur
ferðaþjónustufyrirtækja skilja ekki
nýfengið frjálslyndi stjórnvalda!
Sala á A4 er hafin!
Fyrir síðustu helgi hóf ferða-
skrifstofan Reykjavík Express að
gefa út seðla í stærðinni A4 með
kvittun fyrir flugferðum. Til þess
að starfsemin geti farið fram þarf
að gefa upp greiðslukortanúmer en
með því er komin skuldbinding
korthafa við ferðaskrifstofuna. Það
er hins vegar með öllu óvíst að þeir
sem panta sér far með því að gefa
upp kortanúmer sitt fari ferðina. Í
fyrri tilraunum til „lággjaldaferða“
hafa kortafyrirtæki stundum setið
uppi með skell og óþægindi af til-
rauninni, því kortafyrirtækin höfðu
stundum gert upp við „rekstrarað-
ilann“ áður en til greiðsluþrots
kom en skuldfærðu ekki auðtrúa
korthafa fyrir úttekt þeirra af góð-
mennsku.
Það að „fljúga á flugrekstrar-
leyfi“ breska leiguflugfélagsins
Astraeus í reglubundnu áætlunar-
flugi ber keim af því að koma sér
undan eftirliti í heimalandi með því
að fljúga í öðru landi. Þetta var
þekkt meðal fjármálafyrirtækja
þar sem til þess var ætlast að eft-
irlitið væri á vegum yfirvalda í
heimalandi en var í raun hvergi og
hagnast með því á reglugerðar-
ósamræmi.
Forkólfar „sölu- og markaðsfyr-
irtækisins“ Iceland Express gera
lítið annað en að hæða og spotta
samgönguráðherra, flugmála-
stjóra, hugsanlega farþega, þjón-
ustufyrirtæki og síðast en ekki síst
fjölmiðlafólk sem þorir ekki að
spyrja réttu spurninganna.
Flugfélag eða ferðaskrif-
stofa eða bara froða!
Eftir Vilhjálm
Bjarnason
„Því miður
virðist öll
starfsemi
Iceland
Express og
Reykjavík Express
byggjast á að fara á
svig við lög og reglur
um neytendavernd …“
Höfundur er rekstrarhagfræðingur.
ÞAÐ voru sannkölluð tímamót
þegar hún ung manneskjan fékk
skyndilega sorgarfregn. Hún hafði
orðið fyrir áfalli, erfiðum missi.
Fyrstu viðbrögðin voru afneitun,
lost. Þetta getur ekki verið satt.
Þetta getur ekki verið að koma
fyrir, ekki fyrir mig. Hún fékk sér
sæti, það var eins og tappa hefði
verið komið fyrir í kokinu á henni.
Hún dofnaði öll upp og gat ekkert
sagt. Þetta bara gat ekki verið að
gerast.
Langar þungar mínútur liðu.
Hún fékk útrás, reiddist og fylltist
hatri og fyrirlitningu. Hún spark-
aði í húsgögn og veggi, öskraði,
kenndi fólki um og skammaði þá
sem í kringum hana voru. Henni
fannst þeir ekki skilja sig.
Hún brotnaði niður og grét
sáran, fékk mikinn ekka. Hún gat
ekki borðað, var haldin óhugnan-
legri vanlíðan. Hún var hreint ekki
með sjálfri sér, svo fjarræn og til-
finningalaus, máttlaus og einmana.
Samt var fullt af góðu, hjálplegu
og skilningsríku fólki allt í kring-
um hana, sem bar hag hennar
sannarlega fyrir brjósti. Fólk sem
tók út fyrir að sjá hana engjast
svona sundur og saman af vanlíð-
an.
Eftir nokkra daga fékk hún
sektarkennd. Hún ásakaði sjálfa
sig og fékk mörg grátköst. Hún
reiddist Guði, reifst við hann og
skammaði hann. Hún hrópaði hvað
eftir annað: Af hverju Guð?
Tíminn leið
Löngu síðar varð henni ljóst að
hún mátti leita Guðs með þessum
hætti og spyrja hann í angist sinni:
Af hverju Guð?
Hún mátti hrópa til hans, rífast
við hann og skamma hann, því að
enginn skildi hana betur en einmitt
sjálfur Guð almáttugur.
Hann gaf henni mátt og reisti
hana við. Hann gerði henni kleift
að koma aftur fram í ljósið og
horfa framan í dagana. Hún gerði
upp við Guð og sættist við hann. Í
dag er hann hennar nánasti og
besti vinur, þrátt fyrir allt.
Það hlustar nefnilega enginn
betur en Guð og það skilur mann
enginn betur en hann. Og það elsk-
ar okkur enginn jafn djúpri og
innihaldsríkri ást og hann.
Uppbygging – bati – framtíð
Árin eftir áfallið liðu hægt, en þó
örugglega. Bati var hægur og eft-
irköstin mörg. Smám saman lærði
hún að lifa við sáran missi. Örið
situr að sjálfsögðu eftir, en hún er
stöðugt að læra að sættast við
sjálfa sig, umhverfið og Guð. Nú er
hún full þakklætis til þeirra sem
umvöfðu hana með kærleika og
bænum, sinntu henni og veittu
henni umhyggju. Hún er þakklát
öllum þeim sem hafa gefið henni af
dýrmætum tíma sínum í þolinmæði
og öllum þeim sem bara hafa verið
til staðar og hlustað. Þeir, eftir
allt, hafa reynst best.
Þegar vitjað er syrgjenda
Speki, afsakanir, viðmið, reynsla
annarra eða of mörg orð yfirleitt
eiga ekki við í húsi syrgjenda.
A.m.k. ekki fyrst eftir áfallið.
Hlustaðu bara, faðmaðu og vertu
til staðar. Þannig sýnir þú skiln-
ing, samstöðu og umhyggju, ómet-
anlega vináttu og stuðning. Hlust-
aðu og vertu á meðan þú ert, í
þolinmæði. Þú þarft ekki endilega
að dvelja svo lengi, en vertu á með-
an þú ert, án þess að vera sífellt að
líta á klukkuna.
Sparkað í hús-
gögn og veggi
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Höfundur fæst við ritstörf, er fram-
kvæmdastjóri Laugarneskirkju og
forseti Gídeonfélagsins á Íslandi.
„Hlustaðu
bara, faðm-
aðu og vertu
til staðar.“
Útsala - Útsala
Klapparstíg 44 - sími 562 3614
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050