Morgunblaðið - 15.01.2003, Page 34

Morgunblaðið - 15.01.2003, Page 34
MINNINGAR 34 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Oddlaug Valdi-marsdóttir fædd- ist í Vallarnesi í Vest- mannaeyjum 5. maí 1917. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópa- vogi 6. janúar síðast- liðinn. Hún var dóttir hjónanna Halldóru Ólafsdóttur hús- freyju, f. 18. septem- ber 1888, og Valdi- mars Árnasonar útgerðarmanns, f. 13. júlí 1885. Alsystk- ini Oddlaugar voru Jón Bjarni, f. 25. sept. 1915, og Árnrós Berta, f. 25. ágúst 1921. Fyrir átti hún tvo hálfbræður, þá Óskar og Sölva, þau eru nú öll látin. Fóstursystir Odd- laugar er Svala Sölvadóttir, f. 4. apríl 1933, búsett í Kópavogi. Hinn 15. nóvember 1947 giftist hún Ólafi Jóhannssyni frá Bakka í Bjarnarfirði, f. 15. október 1908, d. 10. október 1964. Þau eignuðust þrjár dætur en fyrir átti Ólafur sjö börn. Árið 1984 kynntist Oddlaug Aðalsteini Þórðarsyni, f. 13. desem- Ósk, f. 17. júní 1970, hennar maki Vilhjálmur Jónsson, f. 6. nóvember 1971, þau eiga soninn Jóhann Beck, f. 7. ágúst 1999, en fyrir átti Cynthia Alexandríu Björgu Schev- ing, f. 6. október 1992. b) Ólafur Ottó, f. 20. júní 1972, hann á dótt- urina Anítu Karen, f. 19. desember 1994. Seinni eiginmaður Öldu er Ólafur Svanur Gestsson, f. 27. nóv- ember 1951, sonur hans er Ævar Þór, f. 27. maí 1977. 3) Ragnheiður, f. 15. febrúar 1955, giftist Árna Friðjóni Vikarssyni, f. 20. septem- ber 1948, þau slitu samvistum. Börn þeirra eru Oddlaug Sjöfn, f. 23. maí 1977, og Svanhvít Thea, f. 4. september 1979, dóttir hennar er Oddlaug Marín, f. 14. júní 1999. Fyrir átti Ragnheiður Ólaf Elfar Stefánsson, f. 11. júlí 1972. Oddlaug ólst upp hjá foreldrum sínum í Vallarnesi í Vestmannaeyj- um til 16 ára aldurs, þá fluttist hún til Reykjavíkur. Árið 1948 fluttu hún og Ólafur í Kópavog þar sem þau reistu sér hús, Vallargerði 36. Oddlaug vann við ýmis störf, að- allega við aðhlynningu sjúkra, bæði á stofnunum og í heimahús- um, lengst af á slysadeild Borgar- spítalans, þar til hún hætti vegna aldurs. Útför Oddlaugar verður gerð frá Kópavogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. ber 1920, sem varð ást- vinur hennar þar til yf- ir lauk. Dætur Oddlaugar og Ólafs eru: 1) Hall- dóra, f. 28. apríl 1948, giftist Eyjólfi Þór Georgssyni, f. 5. maí 1945, þau slitu sam- vistum. Börn þeirra eru: a) Gyða, f. 4. nóv- ember 1970, gift Jóni Kjartanssyni, f. 9. júní 1971, börn þeirra: Gréta, f. 16. júní 1998, og Erik Oddur, f. 9. desember 2002, b) Sigurður Ragn- ar, f. 1. desember 1973, kvæntur Ír- isi Björk Eysteinsdóttur, f. 5. des- ember 1974, og c) Hildur, f. 17. febrúar 1976, gift Borgari Ólafs- syni, f. 3. desember 1967, börn þeirra Brynhildur Dóra, f. 20. októ- ber 1995, Ísak Óli og Birta María, f. 27. júní 2001. Fyrir átti Borgar Að- alheiði Karenínu, f. 1. september 1991. 2) Alda Jóna Ósk, f. 29. ágúst 1952, giftist John Harris Crawford, f. 1. janúar 1950, þau slitu samvist- um. Börn þeirra eru: a) Cynthia Elsku mamma, takk fyrir allt. Ef sérð þú gamla konu, þá minnstu móður þinnar, sem mildast átti hjartað og þyngstu störfin vann og fórnaði þér kröftum og fegurð æsku sinnar og fræddi þig um lífið og gerði úr þér mann. Þú veizt, að gömul kona var ung og fögur forðum, og fátækasta ekkjan gaf drottni sínum mest. Ó, sýndu henni vinsemd í verki og í orðum. Sú virðing sæmir henni og móður þinni bezt. Því aðeins færð þú heiðrað og metið þína móður, að minning hennar verði þér alltaf hrein og skír, og veki hjá þér löngun til að vera öðrum góður og vaxa inn í himin – þar sem kærleikurinn býr. (Davíð Stefánsson.) Þín Alda. Núna ertu farin, elsku amma mín. Búin að fá hvíldina, laus undan oki Alzheimer-sjúkdómsins. Mikið er bú- ið að vera sárt að fylgjast með hvern- ig hann yfirtók þig. Þegar ég heim- sótti þig í ágúst og þú brostir til Grétu, sá ég glytta í ömmuna sem ég þekkti. Ég felldi gleðitár. Eins vorið 2001, þegar þú tókst blíðlega utan um mig, þá þekkti ég þig. Þetta varst þú, snertingin þín. Þú varst einstök kona og ég á svo margar góðar minningar um þig. Til dæmis þegar við sátum við eldhús- borðið í Vallargerðinu og lögðum kap- al og ég mátti óska mér ef hann gengi upp. Ég óskaði mér að þú myndir hitta nýjan mann. Síðar hittir þú hann Alla sem reyndist þér svo vel. Eins allar sögurnar sem þú sagðir mér af þér ungri, Vestmannaeyjum, leikhús- ferðum og dansleikjum. Ég á óteljandi góðar minningar frá öllum skiptunum sem ég gisti hjá þér. Þá töluðum við um heima og geima og veltum fyrir okkur draumunum okk- ar. Við hlustuðum á plöturnar þínar, horfðum á sjónvarpið og lásum. Ein sérstök minning er þegar þú greiddir blíðlega í gegnum hárið mitt, það var engin eins mjúkhent og þú. Þú gerðir svo mikið fyrir mig og það var mér mikil gleði að geta að- stoðað þig við að búa lengur á fallega heimilinu þínu eftir að sjúkdómurinn var farinn að gera þér erfitt fyrir. Minningarnar þaðan hafa deyft sökn- uðinn eftir að fjarlægðin varð svona mikil. Ég er svo þakklát fyrir að vera dótturdóttir þín. Börnin mín, Gréta og Erik Oddur, munu fá að kynnast þér í gegnum minningarnar mínar. Takk fyrir að hafa verið svona ynd- isleg kona og fyrir allt sem þú gafst af þér. Gyða. Elskuleg amma mín er nú dáin eft- ir erfið veikindi til margra ára. Ég hefði ekki getað hugsað mér betri ömmu. Ég á svo margar góðar minn- ingar um hana. Ég man eftir mér sem lítilli hnátu í heimsókn hjá þér á Kópavogsbraut- inni. Þú sagðir mér að við skyldum eiga saman leyndarmál. Svo settir þú á mig brúna „gömlukonu“ hárkollu og lést mig hafa kaffibolla og sígarettu. Sagðir að ég væri gömul kona í heim- sókn hjá þér. Svo tókstu mynd og lést stækka hana. Myndin kom og ég sýndi mömmu myndina og hélt að enginn myndi þekkja mig, því svo vel trúði ég henni ömmu minni. Ég man svo vel allar næturnar sem ég gisti hjá þér. Ég var ekki nema 5 ára þegar ég var farin að hringja í þig og biðja um að fá að koma og taka svo ein strætó ofan úr Breiðholti og út í Kópavog til þín. Þar fékk ég að vera tuðran þín, eins og þú kallaðir mig alltaf. Það var svo gott að vera hjá þér. Við gátum spilað þjóf og marías. Þér fannst alveg nóg að spila tvö spil – vildir ekkert vera að flækja málin með að læra einhver fleiri. Eins fékk ég að fara með þér út um allt, m.a. í heimsóknir til vin- kvenna þinna og í bæinn með strætó. Svo þegar þú komst stundum og gistir hjá okkur. Þá lumaðir þú á ein- hverju í veskinu þínu, tyggjói eða ópali og eftir að ég stækkaði gafstu mér stundum í bíó eða einhvern pen- ing. Alltaf var ég montin af að eiga bestu ömmu í heimi. Þú varst einstaklega barngóð og hafðir gaman af að sjá börnin mín al- veg undir það síðasta. Oftast tókst þeim að laða fram bros hjá langömmu sinni. Elskulega amma mín, minning þín lifir hjá okkur um ókomna tíð. Þín tuðra, Hildur. Loksins fékkstu friðinn, amma mín. Frið eftir að hafa glímt við erf- iðan sjúkdóm svo lengi. Þú barðist hetjulega í mörg ár. Þegar ég lít til baka sé ég að ég á aðeins góðar minn- ingar í samvistum mínum við þig. Þú varst svo góð manneskja og vildir allt- af gera allt fyrir mig. Við systkinin vorum alltaf svo velkomin í heimsókn til þín á Kópavogsbrautina og þar varstu óþreytandi við að spila við okk- ur og sinna okkur á allan hátt. Þú gafst mér viðurnefnið Gauri sem mér hefur alltaf þótt vænt um og mér fannst ég vera sérstakur hjá þér. Það er erfitt að kveðja þig með fáum fátækum orðum en þú mátt vita að þú munt alltaf eiga sess í mínu hjarta. Ef það var eitthvað sem ég gleymdi að gera þá var það að segja nógu oft takk og ég elska þig við þig. Ég bið Guð að taka vel á móti þér og ég veit að þú hvílir nú í örmum hans, hamingjusamari en nokkru sinni fyrr. Guð sé með þér, elsku Lauga amma, og blessuð sé minning þín. Þinn Gauri, Sigurður Ragnar. ODDLAUG VALDIMARSDÓTTIR Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT JÓSAVINSDÓTTIR, Staðarbakka, lést á hjúkrunarheimilinu Seli, Akureyri, þriðju- daginn 7. janúar. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 17. janúar kl. 13.30. Jarðsett verður í Myrkárkirkjugarði. Ásgerður Skúladóttir, Ólafur Eggertsson, Sigurður Skúlason, Margrét Halldórsdóttir, Guðmundur Skúlason, Sigrún Franzdóttir, Dóra Margrét Ólafsdóttir, Árni Freyr Antonsson, Borghildur Ólafsdóttir, Friðrik Baldur Þórsson, Birgitta Sigurðardóttir, Robert Lauis Pells, Helga Margrét Sigurðardóttir, Tómas Jónsson, Erla Elísabet Sigurðardóttir, Steingrímur Hannesson, Sólveig Elín Þórhallsdóttir, Auður María Þórhallsdóttir, Hjalti Þórhallsson og langömmubörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN S. KARLSDÓTTIR, Ægisíðu 56, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir aðfaranótt mánu- dagsins 13. janúar. Elín Vigdís Hallvarðsdóttir, Gísli I. Þorsteinsson, Hallvarður Jes Gíslason, Einar Karl Hallvarðsson, Kristín Edwald, Snædís Edwald Einarsdóttir. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN SIGURJÓNSDÓTTIR, Ægisíðu 107, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Víðinesi mánudaginn 13. janúar. Sigurjón H. Gestsson, Inga Gunnlaugsdóttir, Almar Gestsson, Elín Jónsdóttir, Baldvin Gestsson, Lotte Gestsson, Guðmundur R. Gestsson, Ásta D. Björnsdóttir, Kristinn Gestsson, Valgerður M. Ingimarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERNA GEIRLAUG ÁRNADÓTTIR MATHIESEN, Hringbraut 2 A, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnu- daginn 12. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Árni Matthías Sigurðsson, Eygló Hauksdóttir, Valgerður Sigurðardóttir, Friðbjörn Björnsson, Hjálmtýr Sigurðsson, Kristín Edvardsdóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Lárus Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, TÓMAS JÓNSSON fyrrverandi brunavörður, Hafnarstræti 21, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánu- daginn 13. janúar. Jón Tómasson, Þórey Bergsdóttir, Skjöldur Tómasson, Björk Nóadóttir, Hreinn Tómasson, Þórveig B. Káradóttir, Guðbjörg Tómasdóttir, Axel Guðmundsson, Svala Tómasdóttir, Rafn Herbertsson, Helga Tómasdóttir, Gústaf Eggertsson, barnabörn og barnabarnabörn. Kveðjuathöfn um föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUND SIGURJÓN HJÁLMARSSON frá Grænhól, Barðaströnd, verður í Fossvogskapellu fimmtudaginn 16. janúar kl. 13.30. Útförin verður gerð frá Hagakirkju, Barða- strönd, laugardaginn 18. janúar kl. 14.00. Guðmundur Snorri Guðmundsson, Ásta Jónsdóttir, Samúel Jón Guðmundsson, Guðfinna Sigurðardóttir, Hjálmar Jón Guðmundsson, Linda Halldórsdóttir, Ingi Gunnar Guðmundsson, Gróa Guðmundsdóttir, Hugrún Ósk Guðmundsdóttir, afabörn og langafabörn. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minn- ingargreina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.