Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 44
KVIKMYNDIR
44 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI
fransmannsins Lucs Besson
(Subway, Leon, La Femme Nikita),
stendur á bak við fransk/bandaríska
hasarmynd þar sem kappakstur,
slagsmál og manndráp eru verkefni
dagsins. Til að fá sem mest út úr ör-
þunnum söguþræði hafa verið ráðnir
tveir leikstjórar til verksins. Annar,
Corey Yuen, mun vera kunnur
stjórnandi Hong-Kong bardaga-
mynda og stendur sig sómasamlega,
en sá franski, Letterier, kemur að
verkinu sem leikstjóri leikhópsins.
Hefði getað sparað sér fyrirhöfnina
þar sem aðalstjarnan, Latham, hefur
greinilega lært það litla sem hann
kann hjá Vinnie Jones, samleikara
sínum í Snatch og Lock, Stock and
Two Smoking Barrells – eða öfugt.
Hvort sem er, þá eru þessir bresku
töffarar með alverstu leikurum
heimsbyggðarinnar nú um stundir.
Það reynir sem betur fer lítið á
leikhæfileika því The Transporter
gengur nánast öll út á vel útfærðar
átakasenur, fjöldadráp og kappakst-
ur á þýskum eðalvögnum. Framleið-
endurnir hafa verið svo hugulsamir
að setja þetta margtuggða innihald í
fallegar umbúðir Miðjarðarhafs-
stranda Frakklands og skreytt þær
síðan með austurlenskri blómarós.
Annað er það eiginlega ekki því
The Transporter þjáist af alvarlegu
hugmyndaleysi, við höfum séð þetta
allt saman áður og oftast betur gert.
Allt lagt upp úr leiðigjörnum töff-
arastælum og svala. Lítil brú í fram-
vindunni, t.d. er íverustaður flutn-
ingsmannsins (Latham), fyrst
dritaður niður með þúsundum blý-
kúlna úr alls kyns skotvopnum í
löngu umsátursatriði þar sem á að
slátra manninum – síðan stóreflis
bang; húsið sprengt upp í heiðið hátt
með einni eldflaug. Því í ósköpunum
spöruðu menn sér ekki blýið?
Reyndar ætti að koma fram á aug-
lýsingaplakötum mynda af þessu
sauðarhúsi að áhorfendur eigi að
slökkva á heilastarfseminni (ef hún
er til staðar) undir sýningu. Þá fyrst
geta þær flokkast undir þolanlega
afþreyingu.
Snattari í
stórræðum
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn
Leikstjórar: Louis Letterier og Corey
Yuen. Handrit: Luc Besson og R. M. Kam-
en. Kvikmyndatökustjóri: Pierre Morel.
Tónlist: Stanley Clarke. Aðalleikendur:
Jason Statham, Qi Shu, Matt Schultze,
Francois Berléaud, Ric Young, Doug
Rand. 90 mín. 20th Century Fox. Frakk-
land/Bandaríkin 2002.
THE TRANSPORTER
Viltu dansa: Hálfnakinn Jason
Statham.
Sæbjörn Valdimarsson
BÆKURNAR hans eru öndveg-
isverk sem skipa heiðurssess í bóka-
skápum landsmanna. Hverjir þekkja
ekki ritflokkinn sem kenndur er við
náttúru Íslands; Fugla, Perlur,
Strönd og Hálendið? Augnayndi,
stútfullt af fróðleik um undirstöðuat-
riði í lífi þjóðarinnar, þar sem vísindi,
list, saga og þjóðtrú kallast á yfir
gullfallegar myndir af landinu og líf-
ríkinu. Færri vita hins vegar einhver
deili á höfundinum, náttúruunnand-
anum og vísindamanninum Guð-
mundi Páli Ólafssyni. Það var tíma-
bært að gera honum skil með þeim
hætti sem blasir við í heimildarmynd
Ingólfs Margeirssonar, Fæddur í
Paradís.
Þeir sem handleika stórvirkin
fjögur um náttúru Íslands hljóta að
hrífast af fagmannlegum vinnu-
brögðunum hvar sem litið er. Hvort
sem um er að ræða vísindalegar upp-
lýsingar, tilvitnanir úr kveðskap,
þjóðsögum, munnmælum, teikning-
ar eða myndmál. Allt er þetta meira
og minna verk líffræðingsins Guð-
mundar. Það sem hrífur mann ekki
síst er sú ósvikna virðing og ást sem
hann ber fyrir viðfangsefninu og
endurspeglast á hverri síðu. Enda
næsta víst að verkin hans hefðu aldr-
ei orðið kjörgripir ef höfundurinn
hefði ekki borið slíkar tilfinningar í
brjósti.
Ingólfur sækir Guðmund heim í
Flatey á Breiðafirði þar sem hann
hefur átt heimili undanfarna þrjá
áratugi. Hann rekur lífshlaup sitt og
greinir frá tilurð bókaflokksins, sem
í upphafi átti að vera mun rýrari um
sig. Sem betur fer lenti þessi ágæti
vísindamaður, penni, ljósmyndari og
náttúruruunnandi í höndunum á
stórhuga útgefanda og ber afrakst-
urinn þess fagurt vitni. Guðmundur
er hæverskur maður og beinir at-
hyglinni frá sjálfum sér og verkum
sínum að þeim framkvæmdum sem
ógna nokkrum helstu náttúruperlum
landsins. Áhrifamesti kafli myndar-
innar gerist í merkri og aldurhnig-
inni menningarstofnun; bókasafni
Flateyinga þar sem Guðmundur,
sem er einnig landskunnur umhverf-
isverndarsinni, rífur blöð úr bókinni
Hálendið í náttúru Íslands. Á þeim
eru myndir af ægifögrum stöðum
sem er ógnað vegna virkjunarfram-
kvæmda; sumir komnir undir vatn
og glataðir um aldur og ævi. Aðrir
við það að hverfa, enn öðrum hefur
verið ákveðinn slíkur aldurtili í ná-
inni framtíð.
Köldukvíslareyri, hluti Þjórsár-
vera, Langisjór, Dimmugljúfur,
Kringilsárrani, Töfrafoss, Fögru-
hverir, Kiðagil, svo eitthvað sé nefnt
af dauðum og dauðvona náttúruperl-
um. Blöðunum fækkar í bókinni hans
Guðmundar samfara því sem harm-
urinn eykst í brjósti áhorfandans,
sem spyr sig: Er þetta hægt?
Maðurinn á
bak við meist-
araverkin
SJÓNVARP
RUV
Umsjón og handrit: Ingólfur Margeirsson.
Dagskrárgerð, kvikmyndataka og klipp-
ing: Jóhann Sigfússon. Samsetning: Örn
Sveinsson og Ögmundur Sigfússon.
Myndataka (16 mm): Bergsteinn Björg-
úlfsson og Einar Magnús Magnússon.
Hljópupptaka: Jón Kjartansson. Hljóð-
blöndun: Nick Cathcart-Jones. Grafík:
Hermann Karlsson. Sýningartími 48 mín.
Framleiðendur: Anna Dís Ólafsdóttir og
Jón Þór Hannesson. Saga Film 2003.
RUV 12. jan. 2003.
Fæddur í paradís
Morgunblaðið/RAX
Fæddur í paradís fjallar um Guðmund Pál Ólafsson líffræðing, störf hans
og lífsviðhorf.
Sæbjörn Valdimarsson
19. jan. kl. 14. örfá sæti
26. jan. kl. 14. laus sæti
2. feb. kl. 14. laus sæti
9. feb. kl. 14. laus sæti
Grettissaga
saga Grettis
leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt
á Grettissögu
Lau 18. jan, kl 20, nokkur sæti
fim 23. jan kl. 19,
ath breyttan sýningartíma
Miðasala í síma 555 2222 0g á www.hhh.is og midavefur.is
Miðasala er opinn alla virka daga frá 15.00 til 19.00.
Nánari upplýsingar um Grettissögu og máltíð á Fjörukránni
fyrir sýningu á www.hhh.is
Allra síðustu sýningar
Fim. 16. jan kl. 21, forsýning
til styrktar Kristínu Ingu
Brynjarsdóttur, UPPSELT.
Föst. 17. jan. kl. 21,
frumsýning, UPPSELT.
lau 25/1 kl. 21, örfá sæti
lau1/2 kl. 21, örfá sæti
föst 7./2 kl. 21
lau 8/2 kl. 21
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka
daga, kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19
sýningardaga. Ósóttar pantanir seldar
4 dögum fyrir sýningar. Sími 562 9700
Lau 18/1 kl 21
Fös 24/1 kl 21 Uppselt
Fös 31/1 kl 21
Stóra svið
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
3. sýn fö 17/1 kl 20 rauð kort
4. sýn lau 18/1 kl 20 græn kort UPPSELT
5. sýn fö 24/1 kl 20 blá kort
Lau 25/1 kl 20,
Fö 31/1 kl 20,
Lau 1/2 kl 20
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
Su 19/1 kl 20,
Su 26/1 kl 20,
Fi 30/1 kl 20
Sýningum fer fækkandi
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Su 19/1 kl 14
Su 26/1 kl 14
Fáar sýningar eftir
Nýja svið
Þriðja hæðin
Litla svið
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Miðasala: 568 8000
GINUSÖGUR-VAGINA MONOLOGER-
PÍKUSÖGUR á færeysku, dönsku og íslensku
Kristbjörg Kjeld, María Ellingsen, Birita Mohr,
Charlotte Böving.
Leiksýning, kaffi, tónleikar: Eyvör Pálsdóttir syngur.
Lau 25/1 kl 20
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Lau 18/1 kl 19, Fö 25/1 kl 20
KVETCH eftir Steven Berkoff
í samstarfi við Á SENUNNI
Lau 18/1 kl 21, Su 26/1 kl 21
Ath. breyttan sýningartíma
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Fö 17/1 kl 20, Lau 25/1 kl 20, Fö 31/1 kl 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Frumflutningur
og tryggingar
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500
sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR
Charles Ives er vafalaust þekktasti
tryggingasölumaður tónlistar-
sögunnar.Tónlist hans var svo
langt á undan samtíðinni að hann
gat engan veginn lifað á henni.
En í dag lifa tónverk hans hins
vegar góðu lífi.
Á tónleikunum verður Flautu-
konsert nr. 2 eftir HaukTómasson
frumfluttur.
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Tónleikar í bláu röðinni í Háskólabíói
fimmtudaginn 16. janúar kl. 19:30
Hljómsveitarstjóri: Ilan Volkov
Einleikari: Sharon Bezaly
Kór Langholtskirkju
Béla Bartók: Divertimento
Haukur Tómasson: Flautukonsert nr. 2
Charles Ives: A Symphony: New England Holidays
Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi
7. sýn. lau. 18. jan. kl. 16
8. sýn. sun. 19. jan. kl. 16
9. sýn. sun. 25. jan. kl. 16
10. sýn. sun. 26. jan. kl. 16
Aðeins 10 sýningar
Miðalsala í Hafnarhúsin
alla daga kl. 10-17. Sími 590 1200
Hverdagslegt
kraftaverk
eftir Évgení Schwarz
Leikstjóri: Vladimír Bouchler.
sýn. lau. 18. jan. kl. 19 laus sæti
sýn. lau. 8. feb. kl. 19
sýn. sun. 9. feb. kl. 15
sýn. fös. 14. feb. kl. 20
Síðustu sýningar.
Barn fær frítt í fylgd með fullorðnum
Leyndarmál
rósanna
Frumsýning 31. jan. kl. 20
Uppistand um
jafnréttismál
Frumsýning í KG 1. feb. kl. 20
Miðasölusími sími 462 1400
www.leikfelag.is