Morgunblaðið - 15.01.2003, Síða 47

Morgunblaðið - 15.01.2003, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 47 www.regnboginn.is Sýnd kl. 5.30 og 9. B.i. 12. Nýr og betri „Turnarnir gnæfa yfir bestu myndir ársins“ SV. MBL ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com 1/2HK DV „Besta mynd ársins“ FBL DV RadíóX Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.12 ára “Besta Brosnan Bond-myndin” GH Kvikmyndir.com i YFIR 70.000 GESTIR YFIR 60.000 GESTIR STÆRSTABONDMYND ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI Sýnd kl. 6.30, 8.30 og 10.30. B.i.14 ára FRÁ FRAMLEIÐENDUM LEON OG LE FEMME NIKITA Fantaflottur spennutryllir með ofurtöffaranum Jason Stratham úr Snatch Hraði , spenna og slagsmál í svölustu mynd ársins. Hverfisgötu  551 9000 www.laugarasbio.is „Turnarnir gnæfa yfir bestu myndir ársins“ SV. MBL ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com 1/2HK DV „Besta mynd ársins“ FBL DV RadíóX “Besta Brosnan Bond-myndin” GH Kvikmyndir.com i Sýnd kl. 5.30, 8 og 9. B.i. 12. Sýnd kl. 6 með íslensku tali. Stórkostlegt ævintýri frá Disney byggt á hinu sígilda og geysivinsælu ævintýri um GullEyjuna eftir Robert Louis Stevenson Sýnd kl. 8 og 10.20. B. i. 12 ára. YFIR 60.000 GESTIR STÆRSTA BONDMYND ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI YFIR 70.000 GESTIR 500 segulböndum, sem var stolið frá Bítlunum í lok sjöunda áratug- arins, hefur verið bjargað. Þar er að finna mörg lög sem aldrei hafa heyrst áður. Allt efnið var tekið upp er Bítlarnir voru að vinna að plötu sem þá gekk undir vinnuheit- inu Get Back en kom síðar út í tals- vert breyttri mynd sem Let it Be. Segulböndin hafa verið týnd í yfir 30 ár en afrit hafa þó náð að leka út á markaðinn. Áætlunin um að ná böndunum aftur var samstarfs- verkefni bresku og hollensku lög- reglunnar í samvinnu við fulltrúa frá stærstu tónlistarfyrirtækjunum. Sex manns eru nú í haldi vegna málsins og sagði David Munns, varaforseti tónlistardeildar EMI, af tilefninu: „Tónlistarstuldur er al- varlegur glæpur. EMI styður allar aðgerðir sem ætlað er að koma í veg fyrir að brotið sé á listamönn- um okkar og framleiðendum.“ Tónlist sem stolið var frá Bítlunum komin í leitirnar Bítlarnir leika efni af Get Back/Let it Be í janúar 1969. 500 segul- bönd ÍTALSKI tenórsöngvarinn Luciano Pavarotti varð pabbi á ný í fyrra- kvöld þegar vinkona og fyrrverandi aðstoðarkona, Nicoletta Mantovani, ól stúlkubarn á sjúkrahúsi í Bol- ogna, að því er greint var frá í gær. Tvíburasystkin litlu stúlkunnar lést hins vegar. Börnin voru tekin með keisaraskurði. Mantovani, sem er 33 ára, og dóttur hennar, sem fæddist mánuði fyrir tímann og vó einungis 1,75 kg, heilsast vel. Pavarotti á fyr- ir þrjár uppkomnar dætur af fyrra hjónabandi sínu og Adua, þær Lor- enza, 40 ára, Cristina, 38 ára, og Giuliana, 35 ára. Í apríl á síðasta ári varð söngvarinn góðkunni afi.… Systir rokkarans Jerry Lee Lewis hefur fallið frá ásökunum sínum um að írski tónlistarmaðurinn Van Morrison hafi áreitt hana kynferð- islega, að því er talsmaður réttarins í Lundúnum greindi frá í dag. Linda Gail Lewis, 54 ára, hafði lagt fram tvær kærur á hendur Morrison, aðra vegna kynferðislegrar áreitni og hina vegna ólögmætrar upp- sagnar en Linda starfaði fyrir tón- listarmanninn. Rétturinn hafnaði kærunni vegna ólögmætrar upp- sagnar í júlí á síðasta ári og til- kynnti að Morrison og Lewis hefðu náð sátt í hinu málinu. Lögmaður Morrisons, Paul Tweed, sagðist ekki geta greint frá innihaldi sáttarinnar en sagði að Lewis hefði fallið frá ásökununum og beðið Morrison afsökunar. Tweed sagði að Morrison væri ákaf- lega vonsvikinn yfir því að málið skyldi hafa staðið í tæp tvö ár áður en sátt náðist. Hann væri hins vegar ánægður með niðurstöðuna og tæki afsökunarbeiðnina algerlega til greina. Lewis hélt því fram að Morrison hefði rekið sig þegar hún hefði tjáð honum að hún ætlaði að hætta að loknu tónleikaferðalagi. Þá segir hún að Morrison hafi leitað á sig kynferðislega í sinni óþökk. Morrison neitar ásökununum.… Bandaríski rapparinn Eminem vann til fernra verðlauna á bandarísku tónlistarverðlaunahátíðinni Americ- an Music Awards, sem fram fór í Los Angeles í fyrri- nótt, en hann lét ekki sjá sig við verð- launaafhendinguna. Hann vann verðlaun fyrir bestu rokk- breiðskífuna, bestu hip-hop/R&B- breiðskífuna og var valinn besti karlkyn- stónlistarmaðurinn í báðum flokkum. Ashanti var valin besti nýliðinn í báðum flokkum, þar á meðal tónlistarkona ársins. Sher- yl Crow var valin besti kvenkyns rokkarinn í Bandaríkjunum. Þá unnu Dixie Chicks og hljómsveitin Creed til verðlauna á hátíðinni. Rapparinn Nelly var tilnefndur til fernra verðlauna en þurfti að sjá á eftir verðlaunum til Eminem. Nelly fékk hins vegar sérstök verðlaun frá aðdáendum. Kynnar á hátíðinni voru meðlimir Osbourne- fjölskyldunnar. Ozzy Osbourne er sagður hafa blótað svo mikið að áhorfendur í sjónvarpi áttu erfitt með að fylgjast með því sem hann sagði því komið var í veg fyrir að munnsöfnuður hans bærist til sjón- varpsáhorfenda. Þetta er ein helsta tónlistarverðlaunahátíðin í Banda- ríkjunum. Fjöldi tónlistarmanna kom þar fram, svo sem Elton John, Bobby Brown, Ja Rule, Missy Ell- iott og Christina Aguilera.… Ákveðið hefur verið að hefja fram- leiðslu sjónvarpsþátta sem byggjast á óvæntasta bíósmelli síðasta árs, rómantísku gamanmyndinni My Big Fat Greek Wedding. Þættirnir koma til með að heita My Big Fat Greek Life og hefja göngu sína í febrúar á CBS-sjónvarpsstöðinni bandarísku. Nia Vardalos höfundur myndarinnar og aðalleikkona mun að öllum líkindum leika aðal- hlutverkið sem og flestir aðrir leik- arar myndarinnar, að eiginmann- inum John Corbett undanskildum, sem búinn var að binda sig öðrum verkefnum.… Ein virtasta tónlistarhátíðin hinum megin við tjörnina eru Brit- verðlaunin í Bretlandi en tilnefn- ingar til verðlaunanna voru kynntar á mánudags- kvöldið. Helstu nýstjörnurnar í tónlistarheim- inum í Bretlandi fengu flestar til- nefningarnar eins og við var búist. The Streets og Ms Dynamite fengu fjórar tilnefn- ingar hvort og skyggðu á þekktara tónlistarfólk á borð við Robbie Williams, sem fékk eina tilnefn- ingu, og Kylie Minogue, sem fékk enga. Sugababes fengu síðan þrjár tilnefningar líkt og Will Young, Gareth Gates, Pink og djass- söngkonan Norah Jones. Ms Dyna- mite, sem hefur verið ráðandi á verðlaunahátíðum undanfarið eins og á Mercury- og Mobo-hátíðunum, er tilnefnd í flokknum besta söng- konan. Þar mætir hún samkeppni frá Sophie Ellis Bextor, Beverly Knight, Alison Moyet og Beth Ort- on. „Ég bjóst ekki við þessu. Ég hélt ég myndi verða tilnefnd en ekki fá fjórar tilnefningar. Ég varð mjög hissa,“ sagði Ms Dynamite, sem heitir í raun Niomi McLean-Daley, í samtali við blaðamenn. Hún vildi hinsvegar ekki svara spurningum varðandi þann orðróm að hún sé ólétt.… FÓLK Ífréttum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.