Morgunblaðið - 17.01.2003, Síða 4

Morgunblaðið - 17.01.2003, Síða 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Verð á mann frá 19.800* kr. þegar bókað er á www.icelandair.is www.icelandair.is Netsmellur - alltaf ódýrast á Netinu Flugsæti á broslegu verði ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S IC E 19 89 0 01 /2 00 3 *Innifalið: Flug og flugvallarskattar VERJANDI Péturs Þórs Gunnars- sonar, fyrrverandi eiganda Gallerís Borgar, krafðist þess í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að ákæru gegn honum í svokölluðu málverkafölsun- armáli yrði vísað frá dómi. Málinu var frestað til 28. janúar en þá þarf verjandinn að leggja fram greinar- gerð kröfu sinni til stuðnings. Málið var þingfest í gær en ekki kom til þess að Pétur Þór yrði kraf- inn um afstöðu til ákærunnar. Jónas Freydal Þorsteinsson, sem einnig er ákærður en fyrir mun minni sakir, mætti ekki fyrir dóminn en hann er búsettur í Kanada. Þeir hafa báðir lýst yfir sakleysi sínu. Ákært er fyrir falsanir á 103 lista- verkum en alls var 181 myndverk til rannsóknar hjá lögreglu. Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahags- brotadeildar ríkislögreglustjóra, segir að rannsóknin hafi kostað emb- ættið á bilinu 40 til 50 milljónir króna, þar af sé kostnaður vegna að- keyptrar sérfræðiþjónustu um 20 milljónir. Telur hann þetta vera dýrustu og umfangsmestu lögreglurannsókn sem gerð hefur verið hér á landi. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins mun þetta einnig vera um- fangsmesta málverkafölsunarmál sem komið hefur upp í Evrópu að því er varðar fjölda mynda og höfunda. Í fréttatilkynningu frá ríkislög- reglustjóra kemur fram að rann- sóknin hafi verið óhemju tímafrek en að henni hafi komið um tugur starfs- manna hjá lögreglu á Íslandi auk þess sem leitað hafi verið til lögreglu í Danmörku og á Bretlandi vegna einstakra þátta málsins. Þá hafi ell- efu íslenskir sérfræðingar, utan raða lögreglu, komið að rannsókn málsins og um tugur erlendra sérfræðinga sem flestir starfa hjá erlendum rannsóknarstofnunum eða söfnum. Síðasta kæran í desember 2002 Í samtali við Morgunblaðið eftir að honum var birt ákæra sagðist Pétur Þór Gunnarsson ætla að krefjast frá- vísunar, m.a. á grundvelli þess að rannsókn málsins hefði dregist úr hófi. Jón H. Snorrason segist ekki vilja tjá sig um þessi ummæli en bendir á að fyrstu kærur í málinu hafi borist árið 1997, þegar kært var vegna 28 myndverka. Síðasta kæran hafi borist um fimm árum síðar, í desember árið 2002. Pétur Þór var ákærður sumarið 1998 vegna þriggja málverka. Að sögn Jóns barst um tugur kæra eftir að ákæran var gefin út og eftir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur 5. mars 1999 hafi um 49 kærur borist. Í nóv- ember sama ár kvað Hæstiréttur upp dóm og fljótlega eftir það hafi verið kært vegna á hátt í tuttugu verka. Í janúar 2001 hafi danska lögregl- an síðan sent um 60 myndir til rann- sóknar á Íslandi. Það hafi því liðið innan við ár frá því að um helmingur myndverkanna var kærður til lög- reglu og þar til ákæra er gefin út og flestar séu kærurnar innan við fjög- urra ára gamlar. Málverkafölsunarmálið þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær Kostnaður við rann- sóknina 40–50 milljónir Dýrasta og umfangsmesta rann- sókn íslenskrar lögreglu FYRSTA meinta brotið sem ákært er fyrir var framið árið 1990 en hið síðasta árið 1999, tveimur árum eftir að fyrsta kæran barst lögreglu. Ákært er vegna 103 myndverka sem ýmist voru fölsuð, málað var yfir myndverk annarra höfunda og þau merkt með nöfnum þekktra lista- manna. Í öðrum tilvikum var mynd- verk óþekktra höfunda merkt sem verk annarra eða eftirmyndir seldar sem frummyndir. Meirihluti verkanna sem ákært er fyrir er eignaður Svavari Guðna- syni, alls 65 myndverk. Sami kaup- andinn var að þeim flestum, eigandi Galleri Leif Jensen í Kaupmanna- höfn, sem keypti samtals 58 mynd- verk. Í ákæru er ekki getið um verð- mæti þessara myndverka. Málverkin 45 sem seld voru öðrum kaupendum eru eftir marga helstu listamenn þjóðarinnar en alls nam söluverðmæti þeirra tæplega 13 milljónum króna. Pétur Þór er ákærður vegna sölu á 35 málverkum en Jónas Freydal Þorsteinsson vegna sölu á níu málverkum. Þá eru þeir ákærðir fyrir að selja eitt verk- anna í sameiningu. Ekki kært vegna 68 myndverka Í fréttatilkynningu frá ríkislög- reglustjóra kemur fram að 181 myndverk voru til rannsóknar vegna gruns um fölsun og fjársvik vegna þeirra. Kærur bárust frá 38 einstaklingum og átta fyrirtækjum, bæði hér á landi og erlendis. Í tæp- lega helmingi tilvika er krafist bóta. Ekki var ákært fyrir 68 myndverk og eru mál vegna þeirra látin niður falla. Í fréttatilkynningu ríkislög- reglustjóra kemur fram að í 63 til- vikum leiki vafi á að myndverkin séu eftir þá listamenn sem þau eru eign- uð með áritun. Ekki liggi þó fyrir gögn sem séu nægjanleg eða líkleg til sakfellis. Í fimm tilvikum þykir ljóst að kær- urnar voru tilefnislausar. Kærur vegna sjö verka hafi verið dregnar til baka meðan rannsókn stóð yfir. Flest verkin eignuð Svavari Guðnasyni                                        ! " #     $       "   %&  #  " JÓNAS Freydal Þorsteinsson seg- ist í yfirlýsingu sem hann sendi Morgunblaðinu vera þess fullviss að þau níu listaverk sem hann er ákærður fyrir að hafa ýmist falsað eða látið falsa séu ekki falsanir. Þau séu í raun eftir þá listamenn sem verkin eru eignuð. Jónas er m.a. sakaður um að selja vatnslitamynd sem málverk Nínu Tryggvadóttur á uppboði Gallerís Borgar í febrúar 1995. Þrír listfræðingar sem lögregla hafi rætt við hafi haldið því fram að myndin væri ekki máluð af Nínu Tryggvadóttur. Hafi Ólafur Ingi Jónsson m.a. sagt að teikningin væri í engu samræmi við verk hennar og Una Dóra Copley talið útilokað að Nína hefði málað eins ský og sjáist á myndinni. Þegar kassi frá Erlendi Guð- mundssyni í Unuhúsi, sem var inn- siglaður árið 1967 hafi verið opn- aður í Landsbókasafninu í janúar 2000 hafi hins vegar komið í ljós vatnslitamynd eftir Nínu sem svip- aði mjög til myndarinnar sem Jón- as er ákærður fyrir að hafa falsað eða látið falsa. Myndin sem var í kassanum var birt á forsíðu Les- bókar Morgunblaðsins hinn 5. febrúar 2000 og eru þær báðar birtar á síðunni. Jónas gerir einnig verulegar at- hugasemdir við rannsókn efna- hagsbrotadeildar ríkislögreglu- stjóra og segir hana m.a. brjóta gegn lögum um meðferð opinberra mála, stjórnarskrá Ísland og al- mennum mannréttindum. Þá hafi verið brotið gegn dönskum lögum um réttarstöðu sakbornings en hann kveðst hafa átt lögheimili í Danmörku þegar sum hinna meintu brota áttu sér stað og þau hafi jafnframt beinst gegn dönsk- um fyrirtækjum. Þá hafi ríkislög- reglustjóri ekki sinnt þeirri skyldu sinni að rannsaka einnig þá þætti sem kunni að leiða til sýknu. Vatnslitamynd sem er merkt með upphafsstöfum Nínu Tryggvadótt- ur. Jónas Freydal Þorsteinsson segir að hann sé ranglega ákærður fyrir að falsa eða láta falsa. Myndin sé alls ekki fölsun heldur hafi Nína í raun málað hana. Segir málverk- in vera ófölsuð Mynd eftir Nínu Tryggvadóttur sem var á bréfi til Erlends í Unu- húsi. Bréfið var meðal muna sem kom upp úr kassa sem var inn- siglaður árið 1967 og ekki opn- aður fyrr en í janúar 2000. HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær rík- ið af kröfum fyrrverandi kennara við Menntaskólann á Laugarvatni í máli þar sem deilt var um gildi starfsloka- samnings sem skólameistari menntaskólans og kennarinn gerðu með sér. Með dómi sínum hnekkti Hæstiréttur dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem taldi samninginn skuldbindandi og ríkinu bæri að greiða kennaranum rúmar 5 milljón- ir króna. Í samningnum var tekið fram að kennarinn léti af starfi við skólann og skólinn greiddi honum fullnaðar- bætur vegna starfslokanna með ein- greiðslu. Tekið var fram að samning- urinn fjallaði ekki um venjuleg starfsmannamál, væri ekki launa- samningur eða útfærsla á veikinda- rétti, heldur bótagreiðslur við starfs- lok, rúmar 5 milljónir króna, sem greiða skyldi í einu lagi og jafngilti 24 mánaða launum kennarans en við samningsgerðina hefði vottorð um starfshæfni hans legið fyrir. Þá var samningurinn ekki reistur á því að um væri að ræða uppsögn af hálfu skólans. Af hálfu ríkisins var ekki talið að samningurinn væri skuldbindandi þar sem ekki hefði verið fengin fyrir honum formleg heimild og ekki hefði verið leitað eftir heimild í fjárauka- lögum fyrir árið 2001 eða fjárlögum fyrir árið 2002. Hæstiréttur féllst á þetta, og sagði að báðum aðilum samningsins hefði mátt vera þetta ljóst, en þeir nutu aðstoðar lög- manna. Þá segir að fyrir liggi að fjár- laganefnd Alþingis hafi ekki veitt heimild fyrir samningnum í fjár- aukalögum 2001 eða fjárlögum 2002 og því væri starfslokasamningurinn óskuldbindandi fyrir ríkissjóð. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Guðrún Erlendsdóttir, Garðar Gíslason, Haraldur Henrysson, Hrafn Bragason og Pétur Kr. Haf- stein. Lögmaður kennarans var Ragnar H. Hall hrl. en áfrýjanda, ríkisins, Guðrún M. Árnadóttir hrl. Starfsloka- samningur skuldbatt ekki ríkið ♦ ♦ ♦ BAUGUR Ísland, sem er hluti af Baug Group hf., hefur selt frá sér rekstur Babysam á Íslandi. Baby- sam er sérverslun með barnavörur ættuð frá Danmörku en þar í landi eru reknar um 30 slíkar verslanir. Nýir eigendur Babysam eru Her- dís Jónsdóttir og Sverrir Þorsteins- son en þau stofnuðu og ráku áður verslunina Intersport sem í fyrra var seld til Kaupáss hf. Herdís, sem tók við versluninni í gær, sagði að sér litist vel á verk- efnið. „Við ætlum okkur að gera góða búð betri og við sjáum tækifæri í þessum geira.“ Hún segir að búðin sé ekki svo ólík Intersport að því leyti að hún selji sín eigin vörumerki og annarra í bland og úrvalið sé mik- ið og breitt. „Við erum að kaupa heil- steypta hugmynd. Viðskiptavina- hópurinn er líka sérstaklega skemmtilegur,“ sagði Herdís. Jón Björnsson, framkvæmdastjóri Baugs Íslands, segir aðspurður að ástæða sölunnar sé ekki sú að versl- unin hafi ekki staðið undir sér, held- ur sé salan liður í því að auka áherslu Baugs Íslands á færri og stærri verslunareiningar. „Þetta var ákveðið tilraunaverk- efni. Okkur varð ljóst að þetta fyr- irtæki myndi henta betur einstak- lingum eða fjölskyldu. Babysam- verslunin er frekar lítil eining á okkar mælikvarða og við viljum frek- ar einbeita okkur að stærri einingum okkar,“ segir Jón og á þar við fram- rás Topshop og Debenhams. Jón segir að með í kaupunum hafi fylgt einkaleyfi til að opna fleiri búðir af sömu tegund hér á landi. Baugur sel- ur Babysam

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.