Morgunblaðið - 17.01.2003, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Fjarnám í boði í námsráðgjöf
Námið og stétt-
in eru í sókn
JÓNÍNA ÓlafsdóttirKárdal er verkefnis-stjóri fjarnáms í
náms- og starfsráðgjöf
sem nú er boðið upp á hjá
Háskóla Íslands.
– Segðu okkur aðeins
frá aðdragandanum.
„Nám í námsráðgjöf
hefur verið í boði frá árinu
1990 sem árs viðbótarnám
á meistarastigi og er ætl-
að grunnskóla- og fram-
haldsskólakennurum og
þeim sem hafa BA-próf í
sálfræði eða uppeldis- og
menntunarfræði. Sannast
hefur hversu mikilvægt
það er að hafa menntaða
námsráðgjafa á öllum
sviðum skólastarfsins og
jafnframt í atvinnulífinu í
starfsráðgjöf.“
– Hvað er þetta stór hópur?
„Á tíu ára afmæli náms í náms-
ráðgjöf útskrifaðist hundraðasti
náms- og starfsráðgjafinn. Nú í
vor verða þeir orðnir um 120 tals-
ins. Það má því segja að það fjölgi
ört í stéttinni og mjög gott til
þess að vita. Áhuginn á náminu
hefur reynst vera mikill. Rann-
sóknir á stöðu stéttarinnar sýna
að langflestir náms- og starfsráð-
gjafar starfa á höfuðborgarsvæð-
inu eða á Akureyri og skortur er
á menntuðum náms- og starfs-
ráðgjöfum á landsbyggðinni.“
– En það er að breytast eða
hvað?
„Náms- og starfsráðgjafar, að-
standendur námsins við fé-
lagsvísindadeild ásamt símennt-
unarstöðvum á landsbyggðinni og
aðilum eins og Vinnumálastofn-
un, sáu að það var full þörf fyrir
að bjóða upp á fjarnám í náms-
og starfsráðgjöf. Menntamála-
ráðuneytið og Vinnumálastofnun
styrktu síðan verkefnið.“
– Og nú er fjarkennslan hafin?
„Já, námið hófst haustið 2001
og er skipulagt sem heildstætt
fimm missera hlutanám, samtals
34 einingar. Þegar við auglýstum
þetta fjarnám var áhuginn gríð-
arlegur. Fjarnám getur hentað
afar mörgum, ekki síst þeim sem
þurfa að sækja langt í mennt-
unina, t.d. til höfuðborgarinnar.
Það getur verið erfitt að rífa upp
fjölskylduna og flytjast búferlum
til Reykjavíkur til að mennta sig.
Núna er fjórða misserið að hefj-
ast af fimm og sautján manns
stunda fjarnámið. Um síðustu
helgi vorum við með staðbundna
lotu þar sem nemendurnir komu í
bæinn í nokkra daga til að þreyta
ákveðin verkefni.“
– Er það nauðsynlegt, er ekki
hægt að ljúka náminu alfarið á
Netinu?
„Námið er þess eðlis að stað-
bundnar lotur eru sjálfsagðar og
eðlilegur hluti af því. Námslot-
urnar eru yfirleitt 2–3 á misseri
og sú lengsta í upphafi. Það eru
vissir hlutir sem ekki er hægt að
læra í gegnum Netið, t.d. viðtals-
tækni og starfsþjálfun. Auk þess
eykur það tengsl nem-
enda við Háskólann að
koma af og til suður,
það tengir nemendur
betur við háskóla-
samfélagið. Félagslega
er það einnig gott, fólk kynnist og
það myndar sitt námssamfélag.“
– Dugar þessi fjöldi til að fylla
þau störf sem bíða úti á vinnu-
markaðinum?
„HIngað til hafa umsækjendur
verið mun fleiri heldur en við höf-
um getað tekið á móti, bæði í
staðbundna náminu og fjarnám-
inu sem sannar að þörf er á nám-
inu og störfum náms- og starfs-
ráðgjafa í þjóðfélaginu. Fjöldi
nemenda miðast við starfsþjálf-
unarpláss sem í boði eru. Unnið
er að því að fjölga nemendum í
náminu og stefnt að því að taka
18 nemendur næst inn í stað-
bundna námið. Ljóst er að eft-
irspurn er eftir menntuðum
náms- og starfsráðgjöfum því þá
er ekki einungis að finna í skóla-
kerfinu heldur og hjá vinnumiðl-
unum, símenntunarstöðvum og
fyrirtækjum.“
– Geturðu nefnt á hvaða hátt
þessi fjölgun í stéttinni kemur
landsbyggðinni til góða?
„Af þeim sem eru núna í fjar-
náminu eru tveir búsettir í
Reykjavík. Hinir búa í öllum
landshlutum. Ég get nefnt sem
dæmi að á Ísafirði var einn
menntaður náms- og starfsráð-
gjafi, en þrír til viðbótar eru nú í
námi og einn þeirra er kominn til
starfa. Á Austurlandi eru tveir en
nú bætast við þrír fyrir austan.
Svona mætti áfram telja.“
– Hver er eiginlega fyrirmynd-
in að þessu?
„Fjarnám er til víða í ýmsum
myndum, en við vitum aðeins af
heildstæðu námsráðgjafanámi
sem kennt er í Finnlandi. Við leit-
uðum til þeirra til að fá góð ráð
og læra af reynslu þeirra, en
þurftum engu að síður að heim-
færa margt og mikið upp á Ísland
áður en við höfðum fullbúið okkar
nám. Til merkis um að við erum í
fararbroddi á þessu sviði er að
okkur Guðbjörgu Valdemarsdótt-
ur, lektor í greininni, hefur verið
boðið að kynna fjarnámið á ráð-
stefnu ACA (American
Counselling Associa-
tion) í Bandaríkjunum
í mars nk.“
– Og hvað er um
framtíðina að segja?
„Námið og stéttin eru í sókn.
Náms- og starfsráðgjöf er mjög
þörf í flóknu upplýsingasamfélagi
nútímans. Af fyrirspurnum um
þetta nám merki ég að enginn
skortur er á áhugasömum um-
sækjendum. Stefnt er að því að
bjóða upp á fjarnámið aftur að
ári, haustið 2004, og í undirbún-
ingi er að bjóða upp á meistara-
nám í greininni.“
Jónína Ó. Kárdal
Jónína Ó. Kárdal er fædd 8.
nóvember 1966. Útskrifaðist frá
KHÍ 1990 og frá HÍ með viðbót-
arnám í námsráðgjöf 1995. Lauk
mastersgráðu í ráðgjafar-
sálfræði frá Háskólanum í
Minnesota 1999. Hefur verið við
kennslu og námsráðgjöf á Höfn
og námsráðgjafi hjá HÍ frá
haustinu 1999. Í janúar skipuð
verkefnisstjóri fjarnáms í náms-
ráðgjöf. Maki er Þorbjörn Vign-
isson.
… núna í vor
verða þeir
120 talsins