Morgunblaðið - 17.01.2003, Side 9

Morgunblaðið - 17.01.2003, Side 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 9 SÝSLUMAÐURINN á Keflavíkur- flugvelli hóf á miðvikudag að sekta þá sem reyna að flytja inn matvæli með ólögmætum hætti. Í gær höfðu nokkrir verið sektaðir en upphæðin var ekki í ýkja há, í flestum til- fellum nokkur hundruð krónur. Áð- ur voru matvælin einungis gerð upptæk en að sögn sýslumannsins eru þessi hertu viðurlög í samræmi við leiðbeiningar sem ríkissaksókn- ari gaf út í fyrra. Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli gerir daglega upptæka ólöglega matvöru sem farþegar flytja með sér frá útlöndum. Í fyrra var heild- armagnið 1,5 tonn og var því öllu eytt í sorpbrennslustöð Suðurnesja. Gróflega áætlað má gera ráð fyrir að sektir vegna innflutningsins hefðu numið ríflega 10 milljónum króna. Vonsviknir sælkerar Jóhann R. Benediktsson, sýslu- maður á Keflavíkurflugvelli, segir að margir þekki ekki reglur sem gildi um innflutning matvæla og verði því að vonum vonsviknir þeg- ar tollgæslan geri matvæli þeirra upptæk. Í mörgum tilfellum sé jafn- vel um að ræða matvörur sem séu boðnar til sölu í verslunum hér- lendis. Jóhann minnir á að það sé ekki tollgæslan sem taki ákvörðun um hvaða matvæli megi ekki flytja inn heldur landbúnaðarráðuneytið. Embætti sýslumanns geti ekki lagt faglegt mat á þær reglur sem því sé gert að framfylgja enda búi starfs- menn þess ekki yfir sérþekkingu á dýrasjúkdómum. Ástæðan fyrir því að matvæli sem séu seld í verslunum séu gerð upptæk á Keflavíkurflugvelli sé væntanlega sú innflytjendurnir hafi lagt fram tilskilin vottorð með vör- unni. Merkingarnar á matvælum sem ferðamenn hafi meðferðis séu oft ekki nægjanlegar og sjaldnast hafi þeir meðferðis gild heilbrigðis- vottorð og leyfi til innflutningsins. Ekki er óheimilt að flytja inn kjöt sem sannarlega er soðið. Ef magnið er meira en þrjú kíló þarf að greiða aðflutningsgjöld af því sem er um- fram. 222 ólögleg vopn Tollgæslan mun hér eftir einnig sekta fyrir innflutning á hand- og fótjárnum og verður sektin 5.000 kónur. Sama sekt er fyrir að flytja inn eftirlíkingar af skot- og egg- vopnum. Fyrir innflutning á fjað- urhnífum og fiðrildahnífum verður sektin 10.000 krónur og sama sekt er fyrir innflutning á hnúajárnum. Ekki verður sektað fyrir eftirlík- ingar sem án nokkurs vafa eru ein- ungis skrautmunir enda sé ekki hægt að nota þá í ólögmætum til- gangi. Árið 2002 voru 222 ólögmæt vopn gerð upptæk í tollhliðunum á Keflavíkurflugvelli. Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli Sektir fyrir ólöglegan innflutning matvæla              ()   *  ()+     (,    (  " -      ( .  *  ("+ /000 1000 1000 1000 1000 1000 200 300 400 5 HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef- ur dæmt tvo menn á þrítugs- og fer- tugsaldri í fangelsi fyrir tilraunir til þjófnaðar, fjársvik og nytjastuld á nýliðnu ári, ýmist saman eða hvor í sínu lagi. M.a. sviku þeir út vörur, aðallega áfengi og fatnað, fyrir rúm- ar 50 þúsund krónur með því að framvísa í heimildarleysi debetkorti þriðja manns. Eldri maðurinn var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi og til að borga 13 þúsund kr. í bætur. Játaði hann brot sín skýlaust en hann hefur 18 sinnum áður hlotið dóma og fjór- um sinnum undirgengist sátt, aðal- lega fyrir brot á almennum hegning- arlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Yngri maðurinn bar fyrst við minnisleysi en neitaði síðan sök. Hlaut hann eins mánaðar skilorðs- bundið fangelsi. Hefur hann níu sinnum hlotið dóma og fjórum sinn- um undirgengist sættir. Gunnar Að- alsteinsson héraðsdómari kvað upp dóminn. Verjandi yngri mannsins var Jón Egilsson hdl. og verjandi þess eldri Sigurður Georgsson hrl. Sækjandi málsins var Sigríður Elsa Kjartansdóttir fulltrúi sýslumanns- ins í Kópavogi. Síbrotamenn dæmdir fyrir svikastarfsemi Bankastræti 14, sími 552 1555 Útsala Einnig nýjar glæsilegar vörur Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00. 15% viðbótarafsláttur af öllum drögtum og kápum Allar skyrtur á útsölunni á 1990 Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030. Opið mán.—fös. frá kl. 10—18, lau. 10—15. Tilboðsdagar frá 17.-24. janúar Sérverslun með ítalskar vörur fyrir dömur og herra Laugardagur 25. janúar Auglýsendur! Laugardaginn 25. janúar fylgir Morgun- blaðinu tímarit um heilbrigði og lífsstíl í 55.000 eintökum. Í tímaritinu verður fjallað um það sem viðkemur heil- brigðu líferni og hraustum líkama. Tímaritið er prentað á 60 g pappír og skorið í stærðinni 26,5 x 39,8 sm. Skilatími Fullunnar auglýsingar kl. 16.00 þriðjudaginn 21. janúar Auglýsingar í vinnslu kl. 16.00 mánudaginn 20. janúar Hafðu samband við auglýsingadeild Morgunblaðsins í síma 569 1111 eða í gegnum netfangið augl@mbl.is Útsalan er hafin Laugavegi 68, sími 551 7015 Vantar þig tösku? 30% afsl. af töskum 50% afsl. af útsöluvörum Laugavegi 58 — Smáralind, sími 551 3311 — 528 8800 Laugavegur Gríptu tækifærið! Nýtt kortatímabil Smáralind kvenfataverslun, Skólavörðustíg 14, sími 551 2509. ÚTSALA 30-50% afsláttur af öllum vörum verslunarinnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.