Morgunblaðið - 17.01.2003, Side 18
AKUREYRI
18 FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
www.islandia.is/~heilsuhorn
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Glucosamine (870 mg
Glucosamine í hverjum belg)
ásamt engifer og turmeric
Fyrir vöðva og liðamót
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889
Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum,
Árnesapóteki, Selfossi og
Yggdrasil, Kárastíg 1.
„NÚ brosum við breitt,“ sagði
Guðmundur Karl Jónsson, for-
stöðumaður í Hlíðarfjalli ofan Ak-
ureyrar, en þar hefur nú snjóað
töluvert síðustu sólarhringa og ef
fram heldur sem horfir verður
hægt að opna skíðasvæðið í næstu
viku. Guðmundur Karl sagði að
um 20 cm jafnfjallinn snjór væri í
fjallinu og hafa starfsmenn þar
verið að troða snjóinn og ýta hon-
um til í brekkunum. „Það er kom-
in ágætis holufylling en þetta er
enn aðeins fjarska fallegt og það
verður ekki hægt að hafa opið
um helgina. Það er snjór í veð-
urspánni og ef það heldur áfram
að snjóa erum við í góðum mál-
um,“ sagði Guðmundur Karl.
Þótt skíðasvæðið í Hlíðarfjalli
hafi ekki enn verið opnað hafa
ungmenni sem renna sér á snjó-
brettum verið að leika sér þar í
vetur og reyndar alveg frá því í
október. Brettakrakkarnir eru
sérlega duglegir og láta sig ekki
muna um að ganga upp brekk-
urnar þegar lyftur eru ekki í
gangi. Myndin er tekin við Fjark-
ann, nýju stólalyftuna í gær.
Morgunblaðið/Kristján
„Nú brosum við breitt“
Snjóað hefur í Hlíðarfjalli síðustu sólarhringa
TÍUNDA starfsár Listasafnsins á Akureyri hefst
á morgun með þremur sýningum, sem bera sam-
eiginlega yfirskriftina Aftökur og útrýmingar.
„Sýningin fær okkur vonandi til að líta aðeins í
eigin barm og skoða hlutina í víðu sögulegu sam-
hengi,“ segir Hannes Sigurðsson, forstöðumaður
Listasafnsins, við Morgunblaðið.
Sýningin Hitler og hommarnir fjallar um út-
rýmingu samkynhneigðra á nasistatímanum.
„Myndlistarparið David McDermott og Peter
McGough frá New York horfast þar í augu við
óbærilegar staðreyndir nasistatímans og um-
breyta þeim á persónulegan hátt, m.a. með því að
endurgera opinberar myndir af Hitler og skrifa
nöfn og númer samkynhneigðra fórnarlamba inn
á myndirnar,“ segir Hannes.
Aftökuherbergi samanstendur af 30 ljós-
myndum eftir Lucindu Devlin sem teknar voru í
bandarískum fangelsum á tíunda áratugnum.
„Áhorfandinn fær að skyggnast inn í það rými og
þrúgandi andrúmsloft sem umlykur hina dauða-
dæmdu fanga. Þessi sýning var framlag Banda-
ríkjamanna á Feneyjatvíæringnum 2001 og vakti
mikla athygli.
Hinstu máltíðir „er döpur veisla sem þó vekur
upp djúpar tilfinningar,“ segir Hannes. „Hér
teflir Barbara Caveng, Svisslendingur búsettur í
Berlín, fram sjónrænum matseðlum dauðafanga
sem mega kýla á sér vömbina áður en þeir eru líf-
látnir svo fremi sem máltíðin kostar ekki meira
en 50 dollara. Til hliðar við þessa innsetningu má
svo draga fram skýrslur hvers fanga fyrir sig og
upplifa það ferli sem fangarnir ganga í gegnum
áður en stundin rennur upp. Dauðafangar verða
oftast að bíða árum saman eftir aftökunni meðan
mál þeirra velkjast um í dómskerfinu.“
David McDermott er fæddur 1952 í Hollywood
en Peter McGough 1958 í New York. Barbara
Caveng er fædd 1963 í Zürich og Lucinda Devlin
er fædd 1947 Michigan-ríki í Bandaríkjunum.
„Það er ekkert náttúrulegt við aftökur og út-
rýmingar þar sem einvaldar hafa tekið sér það
bessaleyfi að svipta heilu þjóðfélagshópana lífi.
Hvort tveggja er enn stundað í ríkum mæli um
víða veröld. Hver hefur leyfi til að drepa hvern
og hvers vegna?“ spyr Hannes og bætir við: „Er
mannúðlegra að taka fólk af lífi í rafmagnsstól í
votta viðurvist heldur en að drepa það í gas-
klefum útrýmingarbúða? Er betra að embætt-
ismenn ákveði að myrða einhvern með köldu
blóði heldur en að maður sem er reiður eða
hræddur drepi einhvern í örvæntingu eða stund-
arbrjálæði? Er morð á vegum ríkisins eitthvað
göfugra?“
Íslendinga segir hann heldur enga engla þegar
kemur að kúgun og fordómum „sem í sinni svört-
ustu mynd leiddu til útrýmingarherferðar nas-
ista. Barátta homma og lesbía fyrir sjálfsögðum
mannréttindum fór fyrst að þokast í rétta átt eft-
ir að Samtökin 78 voru stofnuð 1978. Orð yfir
samkynhneigð á íslensku var t.d. ekki til fyrr en
nýyrðið kynvilla birtist í Skírni árið 1922 í grein
um nýjungar í læknisfræði.“
Aftökur og útrýmingar í Listasafninu
Tákn sýningarinnar er einskonar afbyggður
nasistafáni. Skipt var á merki safnsins og haka-
krossinum; Über alles vísar til nasismans jafn-
framt því sem minnt er á baráttu safnsins fyrir
því að fá efstu hæð hússins til yfirráða.
LITLU mátti muna að illa færi
þegar fólksbifreið með tveimur
mönnum innanborðs fór út af veg-
inum yfir Víkurskarð í fyrrakvöld.
Þeir félagar Þorvaldur Hjaltason
og Sigurður Davíðsson voru á leið
frá Húsavík til Akureyrar þegar
óhappið varð en töluverð hálka var
á veginum. „Við fengum á okkur
vindhviður með þeim afleiðingum
að afturendi bifreiðarinnar fór af
stað. Bíllinn fór fram af vegkant-
inum og stöðvaðist á syllu um 20
metrum neðan við veg,“ sagði Þor-
valdur í samtali við Morgunblaðið.
Þorvaldur sagði að fallið fram af
sylluni hefði verið um 15 metrar til
viðbótar og niður í grjót, „ en fyrir
einhverja guðsmildi stoppaði bílinn
á syllunni.“ Bíllinn snérist einn
hring á hjólunum á veginum áður
en hann fór út af. Þorvaldur sagði
að bíllinn hefði runnið eina 50–60
metra eftir hlíðinni áður en hann
stöðvaðist á syllunni. Hann sagði
að þeim félögum hefði að vonum
verið brugðið en þeir sluppu þó vel
miðað við aðstæður og án teljandi
meiðsla en fundu þó báðir fyrir
eymslum í baki.
Vel gekk að ná bílnum aftur upp
en dráttarbíll dró hann með
spilinu upp á veg og áfram til Ak-
ureyrar, þar sem hann var óöku-
fær eftir óhappið. Að sögn Þor-
valdar varð atvikið um 200–300
metrum fyrir ofan afleggjarann til
Grenivíkur. Þorvaldur var á leið í
flug á Akureyri þegar óhappið
varð en hann náði að halda för
sinni áfram til Reykjavíkur í gær-
morgun.
Litlu munaði þegar bíll fór út af veginum yfir Víkurskarð
Stöðvaðist á syllu um 20
metrum neðan við veg
Skákfélag Akureyrar heldur eitt af
sínum vinsælu atkvöldum í kvöld,
föstudagskvöld, og hefst tafl-
mennskan klukkan 20. Tefldar verða
3 atskákir auk nokkurra hraðskáka.
Að venju eru allir velkomnir.
Á sunnudaginn heldur félagið svo
uppskeruhátíð fyrir fyrri hluta
vetrarins þar sem verðlaun eru af-
hent, auk þess sem boðið verður upp
á léttar vetingar og jafnvel gripið í
tafl á eftir. Hátíðin hefst klukkan 14.
Í DAG
Íslandsmeistramótið í listskautum
verður haldið á Akureyri um
helgina. Á mótinu keppa aðeins þær
bestu í listskautum á Íslandi. Mótið
fer fram í Skautahöll Akureyrar á
laugardag milli 11 og 13 og á sunnu-
dag milli 9 og 11.
„Það hafa venjulega komið fjölmarg-
ir áhorfendur hér á Akureyri þegar
við höfum haldið sýningar. Á síðustu
vorsýningu var fullt út úr dyrum og
áhuginn er að aukast mikið,“ sagði
Sólrún Stefánsdóttir, fjölmiðla-
fulltrúi hjá Skautafélagi Akureyrar.
Á MORGUN
NÝJA fjölnota íþróttahúsið á
félagssvæði Þórs við Hamar,
sem fengið hefur nafnið Bog-
inn, verður formlega tekið í
notkun á morgun, laugardag.
Húsið verður opnað kl. 13.30
en formleg dagskrá hefst kl.
14.00 með ávarpi Kristjáns
Þórs Júlíussonar bæjarstjóra.
Eftir að bæjarstjóri hefur
tekið húsið formlega í notkun
munu þau Friðrik Ómar og
Hera Björk taka lagið og val-
inkunnir Akureyringar reyna
með sér í vítaspyrnukeppni.
Að lokinni formlegri dagskrá
munu fulltrúar frjálsíþrótta-
og knattspyrnufélaga bæjar-
ins kynna íþróttir sínar fyrir
ungu kynslóðinni, sem jafn-
framt fær að spreyta sig.
Húsið verður opið til kl. 16.00
en boðið verður upp á léttar
veitingar í Hamri frá kl.
13.30.
Alls bárust 48 tillögur um
nafn á húsið frá 29 einstak-
lingum en nafnið Boginn varð
fyrir valinu á fundi íþrótta- og
tómstundaráðs nýlega. Í hús-
inu er löglegur knattspyrnu-
völlur og aðstaða fyrir frjálsar
íþróttir, m.a. hlaupa- og
stökkbrautir. Einnig er gert
ráð fyrir að kylfingar og skot-
menn geti stundað æfingar í
húsinu og eldri borgarar feng-
ið sér heilsubótargöngu.
Boginn
formlega
vígður
TVEIR piltar, 14 og 16 ára
gamlir hafa viðurkennt við yf-
irheyrslu hjá rannsóknadeild
lögreglunnar á Akureyri að
hafa staðið að 17 innbrotum
síðustu daga.
Töluvert hefur verið um inn-
brot á einkaheimili á Akureyri
að undanförnu, innbrot í bif-
reiðageymslur fjölbýlishúsa
þaðan sem stolið hefur verið úr
ólæstum bifreiðum og í vinnu-
skúra.
Lögreglan hefur vegna
þessa haldið uppi sérstöku eft-
irliti að næturlægi og sam-
kvæmt upplýsingum frá rann-
sóknadeildinni leiddi þetta
eftirlit til þess að tveir ung-
lingar voru handteknir. Þeir
voru með í fórum sínum
tvenna bíllykla og bílskúrs-
hurðaopnara sem stolið var úr
einni bifreiðageymslunni.
Viðurkenndu drengirnir að
hafa farið inn á 6 einkaheimili,
þar sem þeir stálu ýmsum
verðmætum, 5 vinnuskúra þar
sem stoflið var verðmætum
verkfærum, m.a. keðjusög. Þá
viðurkenndu þeir að hafa farið
inn í 4 bifreiðageymslur fjöl-
býlishúsa þar sem þeir stálu
tveimur bifreiðum. Annarri
skiluðu þeir aftur á sama stað,
en hina festu þeir á vegi
skammt frá golfvellinum og
skildu þar eftir. Drengirnir
viðurkenndu einnig að hafa
brotist inn í geymslur í kjöll-
urum þessara fjölbýlishúsa
sem og einnig að hafa brotið
rúður í Lundarskóla.
Lögreglan telur að verð-
mæti þýfisins hlaupi á ein-
hverjum hundruðum þúsunda,
en drengirnir hafa vísað á stór-
an hluta þýfisins.
Samkvæmt upplýsingum
lögreglu er nokkur vinna eftir
við rannsókn þessara mála,
þar sem vitað er að fleiri ung-
lingar tengjast þeim. Þá hefur
lögregla einnig aflað upplýs-
inga um önnur mál í tengslum
við þessi en úr þeim verður
unnið á næstu dögum.
Tveir pilt-
ar viður-
kenna 17
innbrot
Verðmæti
þýfisins talið
hundruð
þúsunda króna