Morgunblaðið - 17.01.2003, Side 27

Morgunblaðið - 17.01.2003, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 27 þeim líður er ljóst, að hin þjóðhagslega framvinda ræðst ekki síst af því, hvaða stjórnmálaflokki verður treyst fyrir forystu við stjórn efnahags- mála á næstu árum. Hagfræðingarnir taka ekki afstöðu til þess en það munu kjósendur gera í þingkosningunum í vor. Reynsla síðustu tólf ára sýnir, að í því efni skiptir mestu, að hlutur Sjálf- stæðisflokksins verði sem stærstur,“ sagði Björn og uppskar hlátur af áhorfendapöllunum en í nokkur skipti í ræðu hans þurfti forseti borgar- stjórnar að skerast í leikinn og biðja áhorfendur að hafa sig hljóða. Draga mætti þá ályktun að lánstraust Reykja- víkurborgar ykist enn við að Landsvirkjun efldist vegna þessara framkvæmda og lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar hækkaði, en það hefði gerst eftir að áformin um Kárahnjúkavirkjun og samning við Alcoa voru kunn. „Landsvirkjun gerir ráð fyr- ir, að fjárfesting hennar í Kárahnjúkavirkjun skili mun meiri arði en mælt er fyrir um í fyrrnefndum sameignarsamningi ríkisins, Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar. Miðar Landsvirkjun við 11% arðsemi á eigin fé, en ávöxtunarkrafa eigendanna er 5 til 6%. Í arðsemismati Landsvirkjunar er miðað við 25% eiginfjárhlutfall og 75% lánsfjár- hlutfall. Í stuttu máli má segja, að þessir sérfræðingar eigenda Landsvirkjunar leggi blessun sína yfir forsendur Landsvirkjunar og þá aðferð, sem fyr- irtækið notar til að komast að niðurstöðu um arð- semi Kárahnjúkavirkjunar. Hitt er einnig ljóst, að trúnaðarmenn eigenda telja sáralitlar ef nokkrar líkur á, að ábyrgð falli á eigendurna vegna lántöku í þágu framkvæmda við virkj- unina,“ sagði Björn. Svipað viðhorf til náttúru og Fjölnismenn Sagði hann þá sem snúast gegn Kárahnjúka- virkjun og álveri í Reyðarfirði með vísan til um- hverfis- og náttúruverndar ekki gera það af sýndarmennsku. Þvert á móti réðu þar í mörgum tilvikum sterkar tilfinningar sem bæri að virða. „Met ég mikils sjónarmið þeirra, sem vilja hlut íslenskrar náttúru sem mestan. Í því efni er hins vegar ekki um neinn einhlítan mælikvarða að ræða eins og þegar rætt er um fjárhagslega hlið þessa mikla máls. Hér ráða per- sónulegar skoðanir mestu og hef ég til dæmis svipað viðhorf til náttúrunnar og Fjölnismenn á nítjándu öld, að okkur Íslendingum beri ekki að- eins að njóta fegurðar hennar heldur einnig að nýta krafta náttúrunnar.“ Þurfti Björn að hætta máli sínu í miðju kafi í þessum hluta ræðunnar og biðja forseta að stilla til friðar, þvílík voru lætin af pöllunum. Björn sagði upplausn ríkja innan R-listans í málinu. R-listinn hefði enga burði til að takast á herðar meirihlutaábyrgð á stjórn borgarinnar. „Fyrst eftir að niðurstaða okkar lá fyrir og þar með meirihluti hér í borgarstjórn skýrði borg- arstjóri frá því, að hún vildi samþykkja ábyrgð- ina. Er líklega einsdæmi í sögu Reykjavíkurborg- ar, að pólitískur borgarstjóri og að nafninu til leiðtogi meirihluta hafi verið sporgöngumaður í máli sem þessu.“ Að auki væri Samfylkingin klof- in í málinu, þar sem tveir af þremur fulltrúum hennar væru á móti því að veita ábyrgðina. „Hvers eiga Reykvíkingar að gjalda að búa við svo máttlaust forystuafl í málum sínum? Áhættan af því að sitja undir slíkum glundroða í stjórn borgarinnar er meiri en af því að ábyrgjast lán- töku Landsvirkjunar vegna Kárahnjúkavirkjun- ar. Hag Reykjavíkurborgar er meiri hætta búin af stjórnleysinu undir R-listanum en því að axla þessa ábyrgð vegna lántöku Landsvirkjunar.“ Hæpnar álverðsforsendur Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar og oddviti Vinstri grænna í R-listanum, sagði skýrslu eigendanefndarinnar ekki veita eigend- um Landsvirkjunar neinar leiðbeiningar um hvort verkefnið væri arðbært eða ekki. Til að fá viðhlítandi svör við þeirri spurningu hefði þurft að bera fjárfestinguna saman við aðrar sambæri- legar fjárfestingar og leggja sjálfstætt mat á for- sendur Landsvirkjunar í arðsemisútreikningi fyrirtækisins. Jafnfremt hefði þurft að fara fram ítarlegt áhættumat fjárfestingarinnar vegna ábyrgðar borgarinnar. Árni sagði það ekki skyn- samlegt, að hans viti, að ábyrgjast lán með þá hugsun að leiðarljósi að það kæmi líklega aldrei að skuldadögum. Margir hefðu farið flatt á því. Sérstaklega bæri að vara við forsendum Landsvirkjunar um álverðið annars vegar og stofnkostnað hins vegar. „Raunar er samningum við hið geðþekka ítalska fyrirtæki ekki lokið, svo mönnum er ekki ljóst á þessari stundu, hver niðurstaðan verður í þeim viðræðum og hver stofnkostn- aður verður þegar upp er staðið.“ Það væri álitamál hvort ábyrgðir af því tagi sem um ræddi væru löglegar með vísan til sveitarstjórnarlaga. Einnig væri óljóst hvort framkvæmdin samræmdist ákvæðum EES-samningsins. „Þessi álitamál tel ég miklu þýðingarmeiri heldur en vangaveltur um arðsemi framkvæmdarinnar þar sem útkoman úr því reikningsdæmi ræðst fyrst og fremst af því hvaða forsendur menn gefa sér og þær eru, eins og öll- um er ljóst, afar umdeildar svo ekki sé fastar að orði kveðið.“ Mun leiða til þenslu Stórframkvæmdir myndu leiða til þenslu í hag- kerfinu með neikvæðum afleiðingum fyrir upp- byggingu á öðrum sviðum samfélagsins. Hærri útlánsvextir og hátt gengi krónunnar myndu þrengja að samkeppnisgreinum, rekstrarum- hverfi útrásarfyrirtækja yrði afleitt, hvöt ungs fólks til að afla sér menntunar myndi dvína og ýmsar opinberar framkvæmdir á höfuðborgar- svæðinu og víðar yrðu settar á langtíma biðlista. „Þannig er næsta víst að framkvæmdir eins og Sundabraut, tónlistar- og ráðstefnuhús, hjúkrun- arheimili, framhaldsskólar og fleira munu verða fyrir barðinu á boðuðum frestunar- og niður- skurðarhnífi stjórnvalda. Þá mun boðuð 2% hækkun raunvaxta á langtímalánum bitna harka- lega á fjölskyldum í landinu, ekki síst þeim sem eru að koma sér þaki yfir höfuðið.“ Árni Þór sagði Vatnajökul og hálendið norðan hans tvímælalaust í flokki náttúrufyrirbæra á heimsvísu. „Stórbrotið landslag, fjölbreytt nátt- úrufar, samspil jökla og elda og jarðsagan öll gera Vatnajökul og umhverfi hans að einstæðustu og verðmætustu sameign þjóðarinnar. Þessa eign höfum við sem nú búum í landinu að láni frá af- komendum okkar.“ Árni sagði að áhrif virkjunarinnar myndu ná til 3.000 ferkílómetra svæðis, sem léti nærri að vera um 90 sinnum stærra en byggt land í Reykjavík. Þar yrðu nokkur uppistöðulón, samtals um 70 fer- kílómetrar, þéttbýlissvæðið í Reykjavík væri til samanburðar 63 ferkílómetrar. Árleg vatnsborðs- sveifla í Hálslóni yrði um 75 metrar, eða á við Hallgrímskirkju. „Og til hvers er svo allt þetta? Fyrir ímyndaða byggðastefnu? Fyrir eirðarlaus- ar pólitískar sálir? Fyrir stundargróða? Fyrir amerískan álrisa?“ spurði Árni Þór og var klapp- að, stappað og hrópað af áhorfendapöllunum. Reisa sér ævarandi níðstöng Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi frjáls- lyndra og óháðra, sagði deilurnar um hversu miklu megi fórna af náttúrugæðum fyrir vafasaman skammtímaávinning einkennast af hálfu íslenskra valdhafa, af óvandvirkni, flýti og flaustri, skammtímahugsun og brengluðu verðmætamati. „Þau einkennast ekki síður af óbilgirni og hrottaskap, valdníðslu og virðingarleysi fyrir landi og þjóð. Eyðilegging ís- lenskra náttúrudjásna fyrir örstutta uppsveiflu í hagkerfinu en stórtap fyrir þjóðina til lengri tíma blasir við. Borgarfulltrúar í Reykjavík mega ekki styðja það níðingsverk gegn náttúru Íslands sem Kárahnjúkavirkjun er og veðsetja eignir Reyk- víkinga fyrir þessari áhættusömu fjárfestingu. Í mínum huga er það alveg ljóst að þeir sem standa fyrir þessum framkvæmdum munu reisa sér ævarandi níðstöng með þessu skemmdarverki gagnvart afkomendum okkar. Skömm þeirra mun uppi meðan land byggist,“ sagði Ólafur F. Magnússon og uppskar mikil fagnaðarlæti af áhorfendapöllunum. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, annar fulltrúi Samfylkingar í R-listanum, velti þeirri spurningu upp hvaða neikvæðu skammtímaáhrif fram- kvæmdirnar hefðu í för fyrir Reykvíkinga. „Það gefur jú auga leið að draga þarf úr framkvæmd- um hér á höfuðborgarsvæðinu og hefur fjármála- ráðuneytið gefið það út að slíkur samdráttur þyrfti að vera a.m.k. 10%. […] Sem fulltrúi Reyk- víkinga í borgarstjórn er erfitt að samþykkja framkvæmd sem hefur svo neikvæð áhrif í för með sér á stöðu mála í borginni og hlýtur að verða að skoðast í samhengi við þá arðsemi sem reikna má út að sé fullnægjandi fyrir Reykvíkinga sem eigendur í Landsvirkjun. Og út frá hagsmunum Reykjavíkurborgar og þeirra sem hér búa, er einnig erfitt að samþykkja veðsetningu vegna þessara lána, þó svo að ólíklegt sé að þessar lán- veitingar falli á Reykjavíkurborg. Að mínu viti kemur ekki til álita að skuldsetja borgina umfram heildareignir með þessari framkvæmd.“ Ef-in í málinu væru hreinlega of mörg. Flýta þarf framkvæmdum Alfreð Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í R-listanum, sagði rétt að grípa þyrfti til mótvæg- isaðgerða þegar framkvæmdirnar hæfust. „At- vinnuleysi hefur stungið sér niður í Reykjavík og það er mikið undirliggjandi atvinnuleysi hér í borginni. Hér er ungt námsfólk nýkomið úr námi með skuldabyrði, hér er verslunarfólk, verkafólk og fólk úr öllum geirum sem gengur um atvinnu- laust. Við höfum skyldur borgarfulltrúar við þetta fólk eins og við höfum skyldur við náttúru lands- ins.“ Alfreð sagði það liggja fyrir að farið yrði í fram- kvæmdir við Kárahnjúka og í Reyðarfirði. Þess vegna þyrfti Reykjavíkurborg væntanlega þegar á þessu ári að grípa til aðgerða til að flýta fram- kvæmdum hvort sem það væri í skólamálum, íþróttamálum, gatnamálum eða orkumálum. „Það þarf jafnvel að fara í lántökur til að fara í þau veigamiklu verkefni sem bíða og örva atvinnulífið í borginni á þessu ári og fram eftir næsta ári. Það er mjög brýnt að við skoðum þessi mál heildstætt og eyðum ekki of miklu púðri í ákvörðun sem þeg- ar hefur verið tekin á Alþingi Íslendinga. Málið er einfaldlega þannig að fyrir okkur liggur að sam- þykkja eða synja ábyrgð á lánum Landsvirkjun- ar, í raun og veru er ekkert sem okkur kemur við annað umfram það.“ Ríkissósíalismi sem ber að forðast Stefán Jón Hafstein, oddviti Samfylkingarinn- ar innan R-listans, spurði hversu langt ætti að ganga í að veita styrki frá hinu opinbera. Hér ætl- uðu ríki og borg að veita erlendum álframleið- anda opinbera styrki í formi lægri vaxta á lánum til orkuvinnslu fyrir þennan eina kaupanda. Ekk- ert fyrirtæki á Íslandi nyti viðlíka fyrirgreiðslu, né heldur myndi nokkurt annað eiga möguleika á slíkum kjörum. Slík væri stærð framkvæmdar- innar. „Ríkissósíalismi af þessu tagi hefur marga ókosti sem varast ber.“ Virkjunin væri ekki hluti af almenningsveitukerfi landsins en í því tilviki væri rökrétt að ýmsu leyti að veita ábyrgð. Stefán Jón sagði að ríkisvaldið hefði, í málefn- um virkjunarinnar, gengið framhjá öllum nútíma- legum viðhorfum um kröfur sem gera yrði til svona framkvæmdar. Ein krafan væri sú að þau náttúruspjöll væru verðmetin og kæmu fram sem kostnaðarliður við arðsemisreikninga. Álfram- leiðandinn ameríski fengi orkuverðið niðurgreitt sem næmi náttúru Íslands. „Staðreyndin er þessi: Jafnvel lágt mat á náttúruspjöllum við Kára- hnjúka, upp á 300–500 milljónir á ári, mun koll- varpa arðsemisútreikningum.“ Þá væri Alcoa undanþegið sköttum og skyld- um. „Og ekki nóg með það. Landsvirkjun greiðir ekkert auðlindagjald. Við tölum um sægreifa sem eiga ríkisrekinn einkaaðgang að auðlindum hafs- ins, en greiða þó auðlindagjald til málamynda. Það mál hefur slitið sundur friðinn í landinu í ára- tugi. Hér er verið að efna til nýrrar stéttar ál- greifa. Þeir þurfa ekki að greiða mengunarskatta, þurfa ekki að greiða fyrir verðmætaspjöll í nátt- úrunni, þurfa ekki að greiða orkuverð sem end- urspeglar eðlilega skatta framleiðandans og því síður auðlindagjöld.“ Stefán Jón sagði að til samans gerðu fórnirnar öll þessi áform öll að „stærstu framkvæmd ríkis- sósíalista á Íslandi fyrr og síðar“ nú þegar kjöraðstæður væru til að nýta frumkvæði einstaklinga til að hreinsa til í lúnum atvinnuvegum og rífa upp nýjar greinar. Guðlaugur Þór Þórðarson, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokks, sagði að hann hefði aldrei heyrt pólitískan samherja tala með þeim hætti um það fólk sem starfar með honum og Stefán Jón hafi gert. „Hann kallaði þá sem styðja þessa ákvörðun ríkissósíalista og sagði að þeir væru að fara með efnahagslífið aftur að Breshn- ev-tímanum,“ sagði Guðlaugur Þór. Benti hann á að Stefán væri formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar og þeir sem Stefán kallaði rík- issósíalista væru m.a. Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir borgarstjóri. hnjúkavirkjun samþykktar í borgarstjórn undir háværum mótmælum af áhorfendapöllum Morgunblaðið/Sverrir tan Ráðhús Reykjavíkur þegar borgarstjórn tók ábyrgðarmálið fyrir. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gerir hér grein fyrir atkvæði sínu. mhverfi, arðsemi issósíalisma“ Ábyrgðir á lántöku ólöglegar? Valdníðsla og virðing- arleysi nina@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.