Morgunblaðið - 17.01.2003, Page 41
Opinn fundur með gestum frá
Kúbu verður í Alþjóðahúsinu,
Hverfisgötu 18 í Reykjavík, sunnu-
daginn 19. janúar kl. 14. Gestirnir
eru fulltrúar ICAP, Vináttustofn-
unar þjóðanna á Kúbu, Elio Gámez
Evrópufulltrúi og Gladys Ayllón
Norðurlandafulltrúi. Elio Gámez
mun tala um Kúbu, síðan munu
þau bæði svara spurningum. Túlk-
að verður.
Myndasýning um Kúbu verður í
sal MÍR, Vatnsstíg 10 í Reykjavík,
mánudagskvöldið 20. janúar. Sýnd
verða myndbönd um ýmsar hliðar
þjóðfélagsins á Kúbu. Kúbukaffi,
aðgangseyrir er 500 kr.
Verkefnastjórnun í heilbrigðis-
og lífvísindum Verkefnastjórn-
unarfélag Íslands boðar til nám-
stefnu um: Verkefnastjórnun í
heilbrigðis- og lífvísindum fimmtu-
daginn 23. janúar kl. 8.30–12.30 í
Smárabíói, sal 5. Frummælendur
af ólíkum starfsvettvangi innan
heilbrigðis- og lífvísinda munu m.a.
leitast við að lýsa stöðu verk-
efnastjórnunar á sínu starfssviði.
Erindi halda: Guðrún Högnadóttir,
ráðgjafi hjá IMG Deloitte, Þór-
ólfur Árnason, yfirlæknir sótt-
varna hjá Landlæknisembættinu,
Þórunn Rafnar, forstöðumaður
krabbameinsrannsókna hjá Urði,
Verðandi, Skuld, Lilja Þorsteins-
dóttir frá þróunarskrifstofu hjúkr-
unarforstjóra og hugbúnaðardeild
LSH, Hilmar Janusson, þróun-
arstjóri Össurar hf. og Guðjón
Birgisson, skurðlæknir á LSH.
Fundarstjóri verður Thomas Möll-
er, aðstoðarforstjóri Lífs hf. Delta
hf. og Rannís eru styrktaraðilar
námsstefnunnar. Málþingið er
áhugavert fyrir stjórnendur og þá
sem áhuga hafa á verkefnastjórn-
un í heilbrigðis- og lífvísindum,
ráðgjafa og aðra samstarfsaðila í
verkefnum, starfmenn rann-
sóknasjóða, ráðuneyta og nefnda á
þeirra vegum, segir í fréttatilkynn-
ingu. Skráning þarf að berast í síð-
asta lagi þriðjudaginn 21. janúar.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn í
VSF eru 8.500 kr. og fyrir utan-
félagsmenn 12.000 kr. Fjórði hver
þátttakandi frá sama fyrirtæki fær
fría þátttöku. Skráning og afhend-
ing námstefnugagna hefst kl. 8 um
morguninn. Vinsamlegast tilkynnið
þátttöku með tölvupósti:
vsf@vsf.is.
Á NÆSTUNNI
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 41
Mörkinni 3, 108 Reykjavík
sími 588 0640
Opið: mán-fös 11-18
lau 11-15 • sun 13-17
Útsala
15-60% afsláttur
15% afsláttur af ljósum á meðan á útsölunni stendur
Hönnun
gæði
glæsileiki
FULLTRÚARÁÐ verkalýðsfélag-
anna í Reykjavík hefur fært
Rauða krossinum 500.000 krónur
til þess að nota til hjálpar þeim
sem eiga í erfiðleikum. Féð er
hluti af vaxtatekjum af fjár-
munum sem fulltrúaráðið fékk
við söluna á Alþýðuhúsinu árið
2001.
Styrkurinn verður notaður til
stuðnings geðfötluðum í gegnum
starfsemi Vinjar, athvarfs Rauða
krossins á Hverfisgötunni. Um
25– 30 einstaklingar eiga daglegt
athvarf í Vin þar sem er aðstaða
til tómstunda og samveru.
Þegar Alþýðuhúsið var byggt á
sínum tíma lögðu verkalýðsfélög
fram fé til byggingarinnar, þar á
meðal fulltrúaráð verkalýðsfélag-
anna í Reykjavík. Þegar húsið
var selt komu rúmlega átta millj-
ónir króna í hlut fulltrúaráðsins.
Á aðalfundi í fyrra var ákveðiðað
verja vaxtatekjunum meðal ann-
ars til mannúðarmála.
Starf til stuðnings geðfötluðum
er meðal áhersluverkefna Rauða
kross Íslands. Á vegum félagsins
og deilda þess eru starfrækt þrjú
athvörf fyrir geðfatlaða, Vin í
Reykjavík, Dvöl í Kópavogi og
Laut á Akureyri. Verið er að
skoða möguleg verkefni til stuðn-
ings geðfötluðum víðar um land-
ið, segir í fréttatilkynningu.
Vaxtatekjur til
stuðnings RKÍ
Guðmundur Jónsson, formaður fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna, og Reyn-
ir Jósepsson, gjaldkeri þess, afhenda Sigrúnu Árnadóttur ávísun upp á
500.000 krónur. Með þeim er Helga G. Halldórsdóttir, skrifstofustjóri inn-
anlandsstarfs hjá Rauða krossi Íslands.
RAGNAR Berg Andrésson frá
Ungliðahreyfingu Skagafjarðar-
deildar RKÍ og faðir hans Andrés
Viðar Ágústsson hafa komið sér
fyrir í anddyri Skagfirðingabúðar
og eru að selja happdrættisdagatal
Þroskahjálpar. Eins og nokkur
undanfarin ár hefur Skagafjarðar-
deild RKÍ annast dreifingu og sölu
í Skagafirði og aðstoðað nemendur
á starfsbraut Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra við söluna.
Sölulaunin renna síðan í ferðasjóð
starfsbrautar.
Eins og undanfarin ár er Ragnar
Berg langafkastamesti sölumaður-
inn í Skagafirði og aðdáunarvert er
að fylgjast með vinnusemi, glað-
værð og ýmsum sölubrellum hjá
þeim feðgum, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Selja happ-
drættisdaga-
tal Þroska-
hjálpar
Konur í læri – dagar í lífi stjórn-
málakvenna Nefnd um aukinn hlut
kvenna í stjórnmálum stendur fyrir
ráðstefnu í dag, föstudaginn 17. jan-
úar, kl. 16–18 í Hátíðarsal Háskóla
Íslands. Fjallað verður um bar-
áttuaðferðir kvenna í stjórnmálum.
Hildur Helga Gísladóttir, formaður
nefndarinnar, setur ráðstefnuna.
Erindi halda: Júlía Bjarney Björns-
dóttir, nemi í stjórnmálafræði, Sig-
urlín Margrét Sigurðardóttir tákn-
málskennari, Elín Brimdís
Einarsdóttir sjúkraliði, Elínbjörg
Ingólfsdóttir fangavörður, Sif Jóns-
dóttir háskólanemi, Ingibjörg Guð-
laug Jónsdóttir háskólanemi, Frið-
bert Traustason, formaður
Sambands íslenskra bankamanna,
Gunnar Hersveinn, heimspekingur
og blaðamaður, og Herdís Þorgeirs-
dóttir þjóðréttarfræðingur.
Í DAG
Friðarfundur á Lækjartorgi Á
morgun, laugardaginn 18. janúar kl.
14 verður efnt til til útifundar á Lækj-
artorgi, Reykjavík, til að mótmæla
hótunum Bandaríkjanna um árás-
arstríð gegn Írak og til að hafna
stríðsstefnu Bandaríkjanna. Mót-
mælafundir verða einnig haldnir
þessa helgi í Washington og Lund-
únum, segir í fréttatilkynningu.
Opið hús verður í félagsheimili
Ásatrúarmanna við Grandagarð á
morgun, laugardaginn 18. janúar kl.
14–18. Þorsteinn Víkingur mun flytja
fyrirlestur um rúnir, en einnig stend-
ur yfir sýning Júlíusar Samúelssonar
„Lífsins tré“. Allir eru velkomnir.
Á MORGUN
Ágúst Ólafur Ágústsson, formað-
ur Ungra jafnaðarmanna hefur
ákveðið að gefa kost á sér til
áframhaldandi setu sem formaður
Ungra jafnaðarmanna á landsþingi
Ungra jafnaðarmanna sem verður
haldið á Selfossi helgina 24.–26.
janúar næstkomandi. Ágúst Ólafur
mun skipa 4. sæti á lista Samfylk-
ingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi
suður fyrir komandi þingkosn-
ingar.
STJÓRNMÁL
KIWANISKLÚBBURINN Elliði
varð 30 ára fyrir skömmu, og af því
tilefni ákváðu Kiwanis-félagar að
styrkja Barnaspítala Hringsins.
Fyrir valinu varð fullkomið tæki til
vöktunar á lífsmörkum, blóðþrýst-
ingi, öndun, súrefnismettun og hjart-
slætti. Verðmæti gjafarinnar er
rúmlega ein milljón króna.
Kiwanisklúbburinn Elliði hefur á
undanförnum árum endurtekið
styrkt Barnaspítala Hringsins. Kiw-
anisfélagar hafa áður gefið Barna-
spítalanum lækningatæki, vöktunar-
tæki, sjónvarp, myndbandstæki
ásamt myndböndum fyrir börnin og
fleira.
Elliði styrkir
Barnaspítala
Hringsins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fulltrúar Kiwanisklúbbsins færðu Barnaspítala Hringsins að gjöf full-
komið tæki til vöktunar á lífsmörkum, blóðþrýstingi, öndun, súrefnis-
mettun og hjartslætti.
SMS FRÉTTIR
mbl.is