Morgunblaðið - 17.01.2003, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 17.01.2003, Qupperneq 42
DAGBÓK 42 FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Víkverji skrifar... Í MORGUNBLAÐINU á mið-vikudag var sagt frá tveimur umferðarslysum, þar sem lausir hundar komu við sögu. Annars veg- ar hljóp hundur fyrir bíl og drapst. Í hitt skiptið hljóp hundur fyrir bíl þannig að ökumaðurinn þurfti að snögghemla og fékk þá annan bíl aftan á sig í hálkunni. Hundurinn, sem slysinu olli, elti svo ökumann- inn heim! Fyrir skemmstu reyndu tveir lausir hundar að éta gælukanínur lítilla barna í garði í Skerjafirði. Fyrir nokkru hafði þeim tekizt að gera sér mat úr fyrirrennurum kanínanna í sama garði. Víkverji hefur því vissa samúð með tilfinn- ingum föður barnanna, sem plaffaði úr haglabyssu sinni á hundana. Hvað eru eigendur þessara hunda eiginlega að hugsa? Víkverji veit ekki betur en að í samþykkt um hundahald í Reykjavík sé kveð- ið á um að hafa verði hunda í taumi utan húss í þéttbýli og þeir eigi að vera í umsjá manns, sem hefur fullt vald yfir þeim. Það er greinilega ekki raunin með hundana, sem hér um ræðir. Víkverja finnst að banna eigi hundahald í Reykjavík á ný ef hundaeigendum er ekki treystandi til að passa upp á skepnurnar. Fyr- ir utan þá slysahættu, sem stafar af lausum hundum, eru þeir auðvitað til óþrifnaðar. Eða hvernig ætla hundaeigendur að uppfylla þá skyldu sína að hirða upp hundaskít- inn ef gæludýrið þeirra er bara á brokki einhvers staðar úti í bæ, án þeirra eftirlits? x x x VÍKVERJI og kunningi hanshugðust mæla sér mót í há- deginu einn daginn í vikunni. Í SMS-skeytum gengu á milli þeirra hugmyndir um á hvaða veitingahúsi þeir ættu að hittast og hugðist kunninginn taka að sér að panta borð. Tvisvar sinnum setti Víkverji fram hugmynd um veitingastað, en í bæði skiptin kom sama svarið eftir að kunninginn hafði kannað málið: Lokað í hádeginu, bara opið á kvöldin. Í þriðju atrennu tókst að finna veitingahús í miðborg Reykjavíkur, sem er opið í hádeg- inu. Segir þetta ekki sína sögu um ástand mála í miðborginni? Þar er greinilega ekki nógu mikið mannlíf um miðjan dag til að halda veitinga- húsunum opnum. Á kvöldin vantar hins vegar ekki mannfjöldann, sem býr, starfar og verzlar einhvers staðar annars staðar en kemur nið- ur í miðbæinn að fá sér að borða og drekka. x x x ÁKVÖRÐUNUM um Kára-hnjúkavirkjun og álver á Reyðarfirði hefur mikið verið mót- mælt undanfarna daga. Mörgum er heitt í hamsi vegna umhverfisáhrifa þessara framkvæmda. Í gær fylltu andstæðingar framkvæmdanna sali og ganga Ráðhúss Reykjavíkur þegar taka átti fyrir ábyrgðir borg- arinnar vegna virkjunarinnar og hefur annar eins mannfjöldi senni- lega ekki mætt til að mótmæla neinu öðru máli, sem fjallað hefur verið um í borgarstjórn. Vegfarandi í miðbænum hafði á orði þegar hann sá fólk drífa að Ráðhúsinu að ný andategund væri á ferðinni við Tjörnina, nefnilega mótmælendur! ÉG vil vekja athygli á grein í Morgunblaðinu laugardag- inn 11. janúar undir fyrir- sögninni Í klóm risans eftir Ingibjörgu Pétursdóttur iðjuþjálfa. Ingibjörg dregur þar upp raunsanna mynd af stjórn Landspítala-háskólasjúkra- húss. Ég þekki ekki þá deild sem hún vitnar til en þeim mun betur til á ýmsum öðr- um deildum LHS, þ.e.a.s. jóla- og sumarlokana o.s.frv. þar sem veiku fólki er þvælt út og suður. Öll veldur þessi röskun ómældu álagi á sjúk- linga og hjúkrunarfólk sem þarf að senda burtu frá sér veikt fólk og fær það ennþá veikara til baka. Allan síðasta áratug hef- ur risinn LHS verið að skjóta sig í lappirnar undir formerkjum sparnaðar. Hvað hefur sparast annars vegar og hver er fórnar- kostnaðurinn? Fleiri mættu fara að dæmi Ingibjargar og láta í sér heyra. Hjúkrunarfræðingur. Sérstaklega góð þjónusta ÉG á heima úti á landi en var staddur í Reykjavík þegar ég lenti í því að bíllinn minn, frá B&L, bilaði. Lenti ég í miklum vand- ræðum á Nýbýlavegi en komst við illan leik upp í B&L. Þar er mér bent á verkstæði í austurenda hússins. Hitti þar bifvéla- virkja sem yfirheyrði mig um lasleika bílsins og skráði allt niður í tölvu. Segir síðan að hann viti hvað þetta sé, fékk lánaðan lykil að bílnum og benti mér á að fá mér kaffi á kaffistofunni á með- an. Eftir 43 mínútur, ná- kvæmlega, kemur hann til baka, veifar lyklinum, og segir að þetta sé búið. Þegar ég ætla að borga fyrir viðgerðina segir hann að ég þurfi þess ekki því bíll- inn lafi í ábyrgð. Vil ég senda honum þakk- ir mínar fyrir sérstaklega góða þjónustu. Eigandi AP-277. Flugeldaæði LESANDI hafði samband við Velvakanda og sagðist sammála þeim sem skrifar í Velvakanda 9. janúar sl. um flugeldaæðið um nýliðin áramót. Segir lesandi að það sé kominn tími til að leggja þennan sið niður og séu margir landsmenn á sama máli. Segir lesandi að allir tali um þetta en enginn geri neitt. Sammála HJÖRDÍS hafði samband við Velvakanda og vildi hún koma því á framfæri að hún væri sammála þeim sem telja að það sé kominn tími til að Kristín Rós verði valin íþróttamaður ársins. Tapað/fundið Barnaúr týndist G-SHOCK-barnaúr, vín- rautt og nýtt, týndist mið- vikudaginn 8. janúar í Graf- arvogslaug í skólasundi. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 694 4590. Hjól týndist í Fossvogi BLÁTT Mongoose-hjól týndist í Fossvogi í nóvem- ber. Þeir sem hafa orðið var- ir við hjólið hafi samband í síma 581 4377. Dýrahald Kettlingar fást gefins EINSTAKLEGA blíðir og fallegir kettlingar fást gef- ins á góð heimili. Kassavan- ir. Upplýsingar í síma 567 0733 og 868 7488. Kisustrákar fást gefins ÞESSA 8 vikna kisustráka vantar gott heimili. Mjög fjörugir og kassavanir. Uppl. í síma 696 2880. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Við Reykjavíkurhöfn. Hvað hefur sparast? LÁRÉTT: 1 syfjuð, 4 fánýti, 7 gröf, 8 afla, 9 læsing, 11 frétta- stofa, 13 þari, 14 fugl, 15 strítt hár, 17 veisluréttur, 20 óræsti, 22 leynibrall, 23 sjúga, 24 kveðskapur, 25 afrennsli. LÓÐRÉTT: 1 umfram allt, 2 skríkjur, 3 gjóta, 4 helgidóms, 5 færa rök að, 6 flatfótur, 10 sammála, 12 móðu- þykkni, 13 á húsi, 15 drekkur, 16 auðugum, 18 skrifar, 19 stöðvun, 20 eirðarlaus, 21 svikul. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 tómstunda, 8 stétt, 9 bólur, 10 tía, 11 rétti, 13 rauða, 15 hvarf, 18 ónáða, 21 lið, 22 glaða, 23 iðinn, 24 til- gangur. Lóðrétt: 2 órétt, 3 setti, 4 umbar, 5 dollu, 6 ósar, 7 trúa, 12 tær, 14 ann, 15 högg, 16 ataði, 17 flagg, 18 Óðinn, 19 álinu, 20 agna. K r o s s g á t a Skipin Reykjavíkurhöfn: Ilya Erenburg kemur í dag. Danica Violet, Mána- foss, Ýmir og Hanseduo fara í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Bingó í dag kl. 14. Árskógar 4. Kl. 13–16.30 opin smíða- og handa- vinnustofan. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 16 hárgreiðsla, kl. 8.30– 12.30 böðun, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 10 helgi- stund, kl. 13–16 frjálst að spila í sal. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9 hárgreiðslu- stofan opin, aðstoð við böðun og opin handa- vinnustofa, kl. 11.15 há- degismatur, kl. 15 kaffi- veitingar. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handa- vinnustofan, kl. 9–12 applikering, kl. 10–13 opin verslunin. Félagsstarfið Furugerði 1. Messa kl. 14, Furu- gerðiskórinn syngur. Félagsstarfið Hæðar- garði 31. Kl. 9–12 bað- þjónusta, kl. 9–16.30 op- in vinnustofa, myndlist, gifs o.fl., kl. 9.30 göngu- hópurinn Gönuhlaup leggur af stað, kaffi á eftir göngunni, allir vel- komnir, kl. 14 brids og almenn spilamennska. Korpúlfar Grafarvogi samtök eldri borgara. Vatnsleikfimi er í Graf- arvogslaug á föstudög- um kl. 14. Nýir félagar velkomnir. Upplýsingar gefur Þráinn í síma 545 4500. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8. böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 11 leikfimi, kl. 11.30 hádeg- isverður, kl. 13 „opið hús“ spilað á spil kl. 14.30 kaffiveitingar. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Kl. 9.30 og kl. 13 glerbræðsla, kl. 13.30 ferð í Þjóðmenning- arhús. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Bingó spilað í Gullsmára 13, kl. 14. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Pútt og brids kl 13. 30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan opin kl. 10–13 virka daga. Morgunkaffi, blöð- in og matur í hádegi. Námskeið í framsögn hefst fimmtudaginn 6. febrúar, leiðbeinandi Bjarni Ingvarsson, skráning hafin á skrif- stofu FEB. Skrifstofa félagsins er í Faxafeni 12, sími 588 2111. Fólk er beðið að hlusta á Út- varp Sögu 94,3 á föstu- dögum kl. 12.20 og fylgj- ast með málefnum aldraðra. Þá geta hlust- endur hringt inn með spurningar, þátturinn er ýmist í umsjón Ólafs Ólafssonar formanns FEB eða Benedikts Davíðssonar formanns LEB. Þátturinn er end- urfluttur á sunnudögum kl. 13. Gerðuberg, félagsstarf, kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, frá hádegi spila- salur opinn. Fjölbreytt vetrardag- skrá alla virka daga. Allar upplýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.30 málm- og silf- ursmíði, kl. 9.15 vefn- aður, kl. 13 bókband. Þorrablót verður 25. jan- úar, skráning hafin. Miðasala hefst þriðju- daginn 21. janúar kl. 13. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 glerlistahópur, kl. 10 ganga. Kl. 14–15 bingó. Hraunbær 105. Kl. 9 baðþjónusta, handa- vinna, útskurður, fótaað- gerð og hárgreiðsla, kl. 11 spurt og spjallað. Kl. 14 bingó. Kl. 14 verður fræðsla um gigt, Kaffi- veitingar. Allir velkomn- ir. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun og postulín, kl. 12.30 postulín. Fótaað- gerð, hársnyrting. Allir velkomnir. Norðurbrún 1. Kl. 9–13 tréskurður, kl. 9–17, hárgreiðsla kl. 10–11 boccia. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15–14.30 alm. handavinna, kl. 10– 11 kántrý dans, kl. 11–12 stepp, kl. 13.30–14.30 Sungið við flygilinn, kl. 14–15 félagsráðgjafi á staðnum, kl. 14.30–16 dansað í aðalsal. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla og myndlist, kl. 9.30 bók- band og morgunstund, kl. 10 fótaaðgerðir, kl. 11.30 matur, kl. 12. 30 leirmótun, kl. 13.30 bingó, kl. 14.30 kaffi. Bridsdeild FEBK Gjá- bakka. Brids kl. 13.15 í dag. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13, kl. 10 á laugardögum. Ungt fólk með ungana sína. Hitt húsið býður ungum foreldrum með börnin sín að koma á fimmtud. kl. 13–15 á Loftið í Hinu húsinu, Pósthússtræti 3–5. Opið hús og kaffi á könnunni, djús, leikföng og dýnur fyrir börnin. Húnvetningafélagið í Reykjavík. Dansað í Húnabúð Skeifunni 11 í kvöld frá kl. 22–2. Hljómsveit Hjördísar Geirs leikur. Allir vel- komnir. Borgfirðingafélagið í Reykjavík. Félagsvist spiluð á morgun laug- ardaginn 18. janúar kl. 14 á Suðurlandsbraut 30. Allir velkomnir. Minningarkort Minningarkort Park- insonsamtakanna á Ís- landi eru afgreidd á skrifstofutíma í síma 552-4440 frá kl 11–15. Kortin má einnig panta á vefslóðinni: http:// www.parkinson.is/ sam_minningarkort.asp Minningarkort Krabba- meinsfélags Hafnar- fjarðar (KH) er hægt að fá í Bókabúð Böðvars, Reykjavíkurvegi 64, 220 Hafnarfirði s. 565-1630 og á skrifstofu KH, Suð- urgötu 44, II. hæð, sími á skrifstofu 544-5959. Krabbameinsfélagið. Minningarkort félagsins eru afgreidd í síma 540 1990 og á skrifstofunni í Skógarhlíð 8. Hægt er að senda upplýsingar í tölvupósti (minning- @krabb.is). Minningarkort Sjálfs- bjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, eru afgreidd í síma 551- 7868 á skrifstofutíma og í öllum helstu apótekum. Gíró- og kreditkorta- greiðslur. Minningarkort For- eldra- og vinafélags Kópavogshælis fást á skrifstofu endurhæf- ingadeildar Landspít- alans, Kópavogi (fyrr- verandi Kópavogshæli), síma 560-2700 og skrif- stofu Styrktarfélags vangefinna, s. 551-5941 gegn heimsendingu gíróseðils. Minningarsjóður Krabbameinslækninga- deildar Landspítalans. Tekið er við minningar- gjöfum á skrifst. hjúkr- unarforstjóra í síma 560- 1300 alla virka daga milli kl. 8 og 16. Utan dag- vinnutíma er tekið á móti minningargjöfum á deild 11-E í síma 560- 1225. Hrafnkelssjóður (stofn- að 1931) minningarkort afgreidd í símum 551- 4156 og 864-0427. Minningarkort Minn- ingarsjóðs Maríu Jóns- dóttur flugfreyju eru fá- anleg á eftirfarandi stöðum: Á skrifstofu Flugfreyjufélags Ís- lands, s. 561-4307/fax 561-4306, hjá Halldóru Filippusdóttur, s. 557- 3333 og Sigurlaugu Hall- dórsdóttur, s. 552-2526. Slysavarnafélagið Landsbjörg, Stangarhyl 1, 110 Reykjavík. S. 570 5900. Fax: 570 5901. Netfang: slysavarna- felagid@landsbjorg.is Minningarkort Rauða kross Íslands eru seld í sölubúðum kvennadeild- ar RRKÍ á sjúkrahúsum og á skrifstofu Reykja- víkurdeildar, Fákafeni 11, s. 568-8188. Í dag er föstudagur 17. janúar, 17. dagur ársins 2003. Antóníumessa. Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. (Jóh. 14, 20.) 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.